Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010 Sudoku Frumstig 4 3 8 6 9 8 3 7 4 1 9 8 2 3 3 9 2 1 8 9 6 2 7 3 4 1 8 9 4 3 2 8 1 5 9 9 6 2 8 3 2 5 4 3 8 1 2 8 4 1 6 1 6 4 2 9 7 6 7 8 4 3 9 5 8 4 6 1 5 2 8 4 2 5 9 2 7 1 4 5 6 8 3 8 3 1 9 2 6 7 5 4 6 4 5 8 7 3 2 9 1 3 7 9 2 5 1 8 4 6 5 1 6 4 8 7 3 2 9 2 8 4 3 6 9 1 7 5 7 6 8 5 1 4 9 3 2 1 5 3 7 9 2 4 6 8 4 9 2 6 3 8 5 1 7 1 8 6 2 4 9 5 7 3 4 7 3 1 6 5 8 2 9 5 9 2 8 3 7 4 6 1 6 1 5 7 8 2 3 9 4 3 2 7 4 9 1 6 5 8 9 4 8 6 5 3 7 1 2 7 3 9 5 1 4 2 8 6 8 5 1 3 2 6 9 4 7 2 6 4 9 7 8 1 3 5 1 6 8 4 3 7 5 2 9 4 7 2 5 9 1 3 6 8 9 3 5 6 8 2 7 4 1 2 1 3 8 6 9 4 5 7 6 5 9 7 1 4 8 3 2 8 4 7 3 2 5 9 1 6 7 8 6 1 5 3 2 9 4 5 9 1 2 4 8 6 7 3 3 2 4 9 7 6 1 8 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 14. júní, 165. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka. (Mt. 25, 42.) Vinafólk Víkverja tekur heims-mestarakeppnina í knattspyrnu alvarlega. Á fjölskyldufundi í aðdrag- anda keppninnar var ákveðið að allir myndu klæða sig upp að sið þeirrar þjóðar sem viðkomandi fjölskyldu- meðlimur heldur með þegar það lið etur kappi við annað. x x x Víkverja finnst þetta til eftir-breytni og hafði sérstaklega gaman af því að koma heimsókn til þessa fólks á föstudag. Þá tók heim- ilisfaðirinn á móti honum klæddur í mexíkóskt axlaskjól en eiginkona hans, sem er mikil aðdáandi suður- afríska landsliðsins, var í þjóðlegum búningi kvenna af súlúættbálknum. x x x Víkverji telur að þetta uppátækiauki hina fjölmenningarlegu vídd upplifunarinnar að baki heims- meistaramótsins. Hann lét sitt ekki eftir liggja og setti á sig hjálm í lík- ingu við þann sem yfirmenn í þýska hernum báru í fyrri heimstyrjöldinni á meðan hann studdi sína menn gegn Ástralíu í gær. Og eiginkona Vík- verja gerir nú dauðaleit að flamingó- kjól fyrir leik Spánverja við Sviss- lendinga á miðvikudag. x x x Reyndar átti óhapp sér stað áföstudagskvöldið hjá þessu ágæta vinafólki Víkverja. Það kvikn- aði í mexíkóska axlaskjólinu þegar heimilisfaðirinn var að undirbúa grillið á svölunum í leiknum. Betur fór en á horfist en Víkverji minnist á þetta óhapp hér til þess að brýna fyr- ir lesendum að það er aldrei of var- lega farið þegar kemur að útigrillum. Þegar grillað er er mikilvægt að huga vel að mögulegum hættum og hafa hinn mikla eyðingarmátt eldsins of- arlega í huga. x x x Öryggismál heimila eru ær og kýrVíkverja og finnst honum oft hætturnar að baki útigrillum gleym- ast. Æskilegt væri að kjötframleið- endur minntust á þennan þátt máls- ins þegar þeir auglýsa sínar gómsætu grillsteikur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ófullkomna, 8 staurs, 9 gerast oft, 10 eyða, 11 hálffrosinn snjór, 13 gyðju, 15 ljóma, 18 grænmetistegund, 21 blaut, 22 rifja hey, 23 að baki, 24 drambsfull. Lóðrétt | 2 hefja, 3 gæti, 4 óborðandi, 5 heyið, 6 lof, 7 illgjarn, 12 vindur, 14 tunna, 15 sigra, 16 sér eftir, 17 kvenvarg, 18 vinna, 19 smá, 20 þyngd- areining. Lausn síðustu krossgátu 1 fjöld, 4 fýlda, 7 útrás, 8 álfar, 9 arð, 11 akra, 13 ásar, 14 gómar, 15 berg, 17 skip, 20 ána, 22 læður, 23 ginin, 24 sælan, 25 arrar. Lóðrétt: 1 fjúka, 2 ögrar, 3 dæsa, 4 fjáð, 5 lofts, 6 aðrir, 10 ræman, 12 agg, 13 árs, 15 bálks, 16 riðil, 18 konur, 19 pínir, 20 áran, 21 agða. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Staðan kom upp á sterku atskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Odessu í Úkraínu en mótið var hluti af heims- bikarröð sambands atvinnuskák- manna. Í upphafi tóku 16 stórmeist- arar þátt í keppninni og fór hún fram með útsláttarfyrirkomulagi. Til úrslita tefldu heimamaðurinn Sergei Karjak- in (2.739) og Rússinn Dmitri Jako- venko (2.725). Fyrstu fjórum atskák- um einvígisins lauk öllum með jafntefli og í framhaldinu voru tefldar tvær hraðskákir sem fóru einnig jafn- tefli. Þá var gripið til bráðabana þar sem Karjakin hafði hvítt og fékk meiri tíma en Jakovenko dugði jafn- tefli til að vinna einvígið. Lukkudís- irnar voru með Karjakin í liði og tryggði hann sér sigurinn með ein- faldri fléttu: 63. Hxe5+! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ekkert gambl. Norður ♠10 ♥ÁD7 ♦9432 ♣ÁK863 Vestur Austur ♠G987543 ♠KD62 ♥2 ♥KG863 ♦106 ♦– ♣1074 ♣DG92 Suður ♠Á ♥10954 ♦ÁKDG875 ♣5 Suður spilar 6♦. „Gambling þrjú-grönd“ er minni áhættumelding en nafnið gefur til kynna. Sögnin er mjög lýsandi, segir frá þéttum sjö-spila láglit og fyr- irstöðu í lit mótherjanna hafi þeir sagt. Makker getur svo tekið sínar ákvarðanir: passað, breytt í fjóra í láglit eða reynt við slemmu. Hér stekkur suður í 3G við hjartaopnun austurs (smá „gambl“) og norður keyrir í slemmu. Útspilið er ♥2. Fimmta laufið þarf að fría, en vand- inn er innkomuleysið í borði. Sagnhafi leysir málið þannig: Drepur á ♥Á, tekur einu sinni tromp, spilar ♣Á-K og stingur lauf hátt. Leggur ♠Á inn á bók og spilar loks litlum tígli, undan blokkinni. Vestur fær óvæntan slag á ♦10, en skilar honum til baka með því að spila í tvöfalda eyðu og gefur um leið innkomu til að trompa laufið frítt. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Nú er að grípa tækifærið og gera tilboð í það sem þú hefur lengi haft auga- stað á. Allt of margir átta sig ekki á því fyrr en börnin eru vaxin úr grasi hvað þeir hefðu getað gert með þeim. (20. apríl - 20. maí)  Naut Upphaflega áætlunin virkar ekki. Gættu að framkomu þinni því aðrir gætu tekið sér hana til eftirbreytni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þó að niðurstöðurnar berist ekki jafn skjótt og þú hefðir kosið, áttu að halda þig við upphaflega áætlun. Sam- vinna og vinnufélagar koma þér til góða. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Til að vera eins góð/ur og þú getur verið þarftu að íhuga nokkrar breytingar. Notaðu kraftana til að láta hlutina ganga greiðlega fyrir sig. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert mjög viðráðanleg/ur þegar þú lætur yfir þig ganga hluti sem þú hefur aldrei gert áður. Kannski að þú viljir meira frelsi. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Himintunglin gefa í skyn að ást og peningar séu innan seilingar – allt sem þig vantar er meira traust. Ef mistök verða orsakast þau af fljótfærni eða kæruleysi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ferð fram úr keppinautunum. Not- aðu tímann sem þú hefur til að byggja þig upp á jákvæðan hátt. Ekki gera of mikið úr vandamálum annarra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú getur litið bjartsýn/n fram á veginn. Leyfðu jákvæðum straumum að umvefja þig og eyddu þeim neikvæðu. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Gættu þess að lenda ekki milli tveggja elda. Hugsanlega mun gamall kærasti eða kærasta gefa til kynna að log- inn á milli ykkar sé ekki slokknaður. Hafðu trú á ástvinum þínum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert mjög móttækileg/ur núna. Vertu ekki svona grimm/ur við sjálfa/n þig heldur lærðu af mistökunum, þú gerðir eins vel og þú gast þá stundina. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þótt allt virðist ganga nokkuð átakalaust fyrir sig núna gæti það breyst í einni svipan ef þú slakar of mikið á. Gleymdu þó ekki í allri gleðinni þeim sem standa þér næst og þurfa stuðning. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þótt þú hafir náð ákveðnum áfanga sem sjálfsagt er að fagna máttu ekki falla í gryfju letinnar. Haltu utan um alla hluti bæði í starfi sem heima fyrir. Stjörnuspá 14. júní 1949 Þyrlu var flogið á Íslandi í fyrsta sinn. Þetta var tveggja sæta „helecopter-flugvél“ af Bell-gerð. Hún hafði verið flutt til landsins svo hægt væri að reyna slíka flugvél við björgunarstörf og strand- gæslu. 14. júní 1975 Ferjan Smyrill kom til Seyðis- fjarðar í fyrsta sinn, með fimmtíu farþega og tíu bíla. Þar með hófust ferju- samgöngur milli Færeyja og Íslands. Norröna tók við af Smyrli árið 1983. 14. júní 1980 Stan Getz tenórsaxófónleikari lék með djasskvintett sínum á Listahátíð í Laugardalshöll. „Fögnuðurinn var mikill – og ekki að ástæðulausu,“ sagði í Morgunblaðinu. 14. júní 1986 Fyrsta hjartaaðgerðin var framkvæmd hér á landi, á Landspítalanum. Sá sem fór í þessa aðgerð var Valgeir G. Vilhjálmsson, 63 ára kennari. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Júlíus Freyr Bjarnason og Ísak Hafþórsson voru með tombólu við Bónus og 10-11 í Hafnarfirði. Þeir færðu Rauða krossinum ágóðann, 8.161 kr., til styrktar börnum á Haítí. Hlutavelta „Ég ætla bara að vinna venjulegan vinnudag og eiga svo þægilega kvöldstund með fjölskyldunni,“ segir Vilhjálmur J. Sigurpálsson húsasmiður, sem verður fimmtugur í dag. „Maður er tvítugur í anda og líkaminn er hraustur,“ segir hann og bæt- ir við að hálfrar aldar afmælið leggist alveg ágæt- lega í hann. Vilhjálmur segist ekki hyggja á mikil veisluhöld í tilefni af þessum tímamótum: „Ég tók það svo vel út þegar ég var þrítugur og fertugur.“ „Það er ekki nema maður geri vel við konuna fyrir að hafa hangið með manni í þrjátíu ár,“ segir Vilhjálmur en í dag fagna hann og eiginkona hans, Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, einnig þriggja áratuga brúðkaupsafmæli sínu. Þau hjónin eiga saman þrjá syni milli tvítugs og þrítugs. „Ég vona að maður geti nú eitthvað skoðað þetta sker sem maður býr á, maður hefur ekki mátt vera að því hingað til fyrir vinnu,“ segir Vilhjálmur inntur um það hvað hann hyggist gera í sumar. Hann kveðst vongóður um að fá tækifæri til að ferðast innanlands í sumar en segir ekkert ákveðið í þeim efnum. Hann muni haga seglum eftir vindi og láta veðrið og sólskinið ráða ferðinni. skulias@mbl.is Vilhjálmur J. Sigurpálsson er fimmtugur Gerir vel við konu sína í dag Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.