Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 17
Minningar 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010 stundar einstaklega frjór í hugsun og þyrsti í nýjustu upplýsingar um hin fjölbreytilegustu málefni. Lestrarelja hans var ótrúleg. Þann- ig hafði hann lesið allar bækur, sem út hafa komið á Íslandi um hrunið og var hálfnaður við að lesa hina viðamiklu hrunskýrslu. Sameiginlegur áhugi okkar frændanna spannaði mjög vítt svið. En fyrst ber til að taka innlend þjóð- og atvinnumál. Algengt orða- tiltæki Gunnars, þegar við gerðum tilraun til sundurgreiningar ástandsins á viðkomandi sviði, var: „Allt skýrist við samanburð.“ Í því sambandi vísaði hann gjarnan til reynslu sinni af samstarfi við sænska lögfræðinga, sem hann mat mikils. En mesta happ sitt til að brjótast út úr viðjum hinnar dæmi- gerðu íslensku „ístöðusetningar“ (positioned), taldi hann hafa verið að vinna um tíma sem lögfræðingur flugliðs varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Með því að kynnast vinnu- brögðum og viðhorfum Ameríkana opnaðist honum nýr og mjög mark- verður heimur, þar sem áhersla var lögð á setningu markmiða, skipulag, aga og árangur. Hann vitnaði oft í einn af þáverandi yfirmönnum lög- fræðideildar hersins á Keflavíkur- flugvelli, Bob Dorsey, sem varð einn hans bestu vina. Bob tjáði sig í ein- földum örsetningum á skýran og einfaldan hátt, sem Gunnar vitnaði gjarnan í til skýringar á hvernig taka bæri á málum. Gunnar bjó að óhemju víðtækri reynslu, ekki ein- ungis á sínu sérsviði, lögfræðinni, heldur ekki síður á tæknilegri og fjármálalegri hlið flugrekstar. Þann- ig björguðu þeir bræður, ásamt með vaskri sveit annarra starfsmanna, Flugleiðum frá yfirvofandi gjald- þroti á erfiðum tíma. Þáttur Gunn- ars í því var ekki lítill, þegar hann endasentist heimsálfna í milli við kaup á flugvélum og fjármögnun er- lendra banka. Það var því Gunnari gersamlega óskiljanlegt, þegar farið var að tala fjálglega um „útrás“ að ekki sé talað um „útrásarvíkinga“, átök um uppgjör banka í hérlendri eða erlendri mynt. Þetta höfðu þeir bræður þegar gert áratugum áður og yfirvöld á Íslandi höfðu ekkert um það að segja. Lenging flugbraut- anna á Keflavíkurflugvelli, sem var forsenda þess að hefja þotuflug DC-8 farþegavéla, var ekki, þó að hún hafi margsinnis ranglega verið eignað opinberum embættismönn- um, fyrir tilstilli íslenskra yfirvalda, heldur einkaframtak þeirra bræðra vegna sambanda Gunnars við amer- íska aðila. Að lokum má ekki gleyma fót- boltaáhuga Gunnars og æskufélaga hans, Knúts Hallssonar, er lést fyrir skömmu, en þeir félagarnir mættu á alla KR-leiki á meðan stætt var. Við Sigrún sendum börnum Gunnars svo og Ástríði systur hans innilegar samúðarkveðju. Sveinn Aðalsteinsson. Í minningunni stendur Gunnar púandi vindil á árbakkanum, reykj- armökkurinn heldur óæskilegum mývargi í hæfilegri fjarlægð. Lopa- peysan, veiðivestið, klofstígvélin, Ray-Ban sólgleraugun og þriggja stjörnu derhúfan sem honum þótti mikið til koma. Hér er hershöfðing- inn í essinu sínu, hann er að hvetja unga veiðimenn til dáða með skip- unum og bendingum og duga þá engin vettlingatök. Af rausnarskap eftirlætur hann okkur að veiða á sinni vakt í fínustu veiðiám landsins. Það var hans háttur, hann var örlát- ur á allt sitt og gilti einu hvort það var veraldlegur auður eða fyrsta rennsli í gjöfulum hyl. Margir af leiðsögumönnum við Þverá og Kjarará í Borgarfirði fengu snemma notið þjálfunar hjá Gunnari. Sem „lautinantarnir“ hans urðum við margs vísari; hvort sem um var að ræða leyndardóma lax- veiðinnar eða lífið sjálft, alltaf var Gunnar ráðagóður. Enginn kunni betur að umgangast unglinga sem jafningja, hann hafði óþrjótandi áhuga á ungu fólki og fylgdist vel með málefnum líðandi stundar. Hann var næmur hlustandi, íhugull og tilfinningaríkur. Okkur duldist þó ekki að þar fór maður með ákveðnar skoðanir, lundarfar hert af áratuga reynslu af því alþjóðlega viðskiptaumhverfi er fylgdi störfum hans sem lögmaður Loftleiða og Flugleiða. Gunnar var vanur mannaforráðum, réttvís og sanngjarn. Hann lýsti því og sjálfur að á þeim árum sem hann starfaði sem ungur maður á lögfræðideild varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafði hann kynnst öguðum vinnu- brögðum og skýrum boðleiðum og var það honum að skapi. Vinur hans og þáverandi yfirmaður, Bob Dor- sey ofursti, hvatti hann til að vera óspar á hrós þegar ástæða var til og má segja að það hafi verið aðals- merki Gunnars æ síðan. Vináttan við Gunnar samtvinnast ævilangri vináttu við börn hans og fjölskyldu og hefur þar aldrei borið skugga á. Auðæfi hans liggja í föngulegum hópi afkomenda sem bera honum fallegt merki. Hann er nú mættur á árbakkann hinum megin, þar sem veiðilendurn- ar eru miklar og laxarnir stórir. Það logar á ný í vindlinum. Tvíhendan munduð. Línan strekkist og syngur í fluguhjóli. „Hann er við það, drengir“ kallar höfðinginn brosandi. Þannig er gott að minnast Gunnars, þar hitta vinirnir á hann í fyllingu tímans. Kristján Garðarsson. Fundum okkar Gunnars Helga- sonar bar fyrst saman árið 1981 þegar við nokkrir félagar tókum á leigu Þverá í Borgarfirði, eina mestu laxveiðiperlu landsins. Í þeim tilgangi var stofnað félag, sem hlaut nafnið Sporður, og hefur það félag haft Þverá á leigu allar götur síðan. Gunnar var kosinn í þriggja manna stjórn félagsins og sat hann þar meðan honum entist aldur og heilsa til. Gunnar átti ættir sínar að rekja til Grímsstaða á Mýrum þar sem afi hans, Hallgrímur Níelsson, og amma bjuggu rausnarbúi. Meðal systkina Hallgríms var séra Har- aldur Níelsson prófessor og eru margir afkomendur þeirra systkina þjóðþekktir fyrir dugnað og gáfur. Það var bæði ánægjulegt og lær- dómsríkt að kynnast Gunnari Helgasyni. Hann tók mikinn þátt í stjórn Sporðs, lagði ætíð gott til mála, var vel að sér og fróður, rétt- sýnn og rökfastur. Gunnar hafði mjög ákveðnar skoðanir í pólitík, harðsoðinn íhaldsmaður af bestu gerð og afdráttarlaus Nato-sinni. Hann var mjög hrifinn af Banda- ríkjunum og aðhylltist stefnu þeirra Reagans og Bush-feðga. Að sama skapi hafði hann mikið dálæti á bresku járnfrúnni, Margaret Thatc- her. Hann hafði á yngri árum starf- að sem lögfræðingur hjá varnarlið- inu á Keflavíkurflugvelli og kynnst þar mörgum yfirmönnum. Svo vel var hann kynntur meðal yfirmanna varnarliðsins, að hann stóð árlega fyrir kynningarferðum hóps vina sinna til Keflavíkurflugvallar þar sem þeim var sýnd starfsemin, og lauk ferðum þessum ávallt með boði yfirmanna hersins í herforingja- klúbbinn þar sem þátttakendum var borinn veglegur kvöldverður. Eftir að hafa starfað á Keflavík- urflugvelli um árabil lá leiðin til Loftleiða og við sameiningu félags- ins og Flugfélags Íslands varð hann forstöðumaður lögfræðideildar Flugleiða. Lögfræðin var Gunnari alltaf mjög hugleikin og hafði hann mikla ánægju af að velta fyrir sér og rökræða lögfræðileg úrlausnarefni. Í Sporði starfaði Gunnar af heil- indum og var bæði traustur og trygglyndur. Hann lagði sig ávallt fram um að gefa sig að yngri kyn- slóðinni með fræðslu og leiðbeining- um. Með Gunnari Helgasyni er geng- inn góður drengur, sem gott var að eiga samneyti við, hreinskiptinn og vinfastur. Mér er ofarlega í huga þakklæti fyrir ánægjulegar sam- verustundir sem ég átti með Gunn- ari, hvort heldur var við laxveiðar, á ferðalögum erlendis eða við að starfa að sameiginlegum áhugamál- um okkar. Við Anna vottum börnum hans og öðrum aðstandendum dýpstu sam- úð. Jón Ingvarsson. Í dag kveðjum við vin okkar Gunnar Helgason í hinsta sinn. Við kynntumst honum við veiðar í Þverá og Kjarrá en hann var ásamt feðr- um okkar félagi í veiðifélaginu Sporði sem stofnað var árið 1981 í tengslum við leigu á Þverá. Við vor- um aðeins unglingar þegar við kynntumst Gunnari fyrst. Hann gaf sér þó alltaf tíma til að ræða við okkur unga fólkið um lífið og til- veruna og voru stjórnmálin þar ávallt ofarlega á baugi. Þrátt fyrir að við hittum Gunnar ekki oft yfir vetrartímann fylgdist hann vel með því sem við höfðum fyrir stafni. Gunnar var mikill hægrisinni í pólitík og hafði gaman af því að velta stjórnmálalegum málefnum fyrir sér. Hann var fróður og naut þess að segja frá enda átti hann margar skemmtilegar sögur í far- teskinu. Innan Sporðs var hann oft og tíðum kallaður „The Colonel“ (Ofurstinn) sem vísar til yfirmanns- stöðu innan bandaríska hersins. Ástæðan fyrir þessu uppnefni var sú að hann var vel að sér í málefnum bandaríska hersins og hafði hann gaman af því að fræða okkur um þau málefni enda starfaði hann á ár- um áður sem lögfræðingur varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli. Þá var Gunnar góður veiðimaður og fróður um laxinn og lífríki hans og miðlaði þeim fróðleik til okkar. Síðustu árin hefur yngri kynslóðin orðið sífellt fyrirferðarmeiri við veiðar í Kjarrá þar sem áin er nokkuð erfið yfir- ferðar. Það var lýsandi fyrir áhuga Gunnars á laxveiði að oft var hann eini Sporðsfélaginn sem var við opn- un Kjarrár, ásamt okkur yngra fólk- inu, þrátt fyrir að hann gæti ekki veitt nema hluta árinnar sjálfur. Síðasta veiðiferðin sem við tókum þátt í með Gunnari var einmitt í Kjarrá í ágúst 2008. Gunnar var mættur með öllum börnum sínum og tveimur tengdabörnum þrátt fyr- ir hrakandi heilsu. Það var ekki oft sem öll fjölskyldan var sameinuð enda tveir synir hans búsettir er- lendis. Gunnar naut þess að vera innan um fólkið sitt og var þetta sérstaklega skemmtileg og eftir- minnileg ferð. Við heimsóttum Gunnar í Sóltún í vetur þar sem hann bjó síðasta eina og hálfa árið. Er okkur bar að garði sat hann með bók í hendi auk þess sem hann fylgdist með enska bolt- anum á sjónvarsskjánum. Gunnar las mikið hvort heldur sem það voru bækur, blöð eða tímarit og var hann langt kominn með skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis. Það var fátt sem fór fram hjá honum og hann fylgdist vel með helstu heims- fréttum allt fram á síðasta dag. Brátt hefst nýtt veiðitímabil við Þverá og Kjarrá, en að þessu sinni höldum við til veiða án vinar okkar Gunnars Helgasonar. Hans verður sárt saknað. Við vottum börnum Gunnars og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Unnur og Þorgeir. Um það leyti sem ég fór til Bandaríkjanna til náms, eða síðla árs 1976, kynntist ég Gunnari Helgasyni. Meðan á dvöl minni stóð í Bandaríkjunum og þar á eftir voru náin og góð kynni milli okkar Gunn- ars. Ég minnist hans sem heil- steypts einstaklings sem hafði ákveðnar skoðanir á þjóðmálum sem og einstaklingum. Hann var ófeiminn við að láta þessar skoðanir sínar í ljós þegar svo bar undir. Það fór ekkert á milli mála að New York var sú borg sem Gunnari var kærust. Þar sló hjarta viðskipta og þar voru straumar í listum og menningu einnig sterkir. Þetta kunni Gunnar að meta. Meðan við hjónin bjuggum í New York og ná- grenni bar fundum okkar Gunnars reglulega saman. Við gerðum hvor öðrum ýmsa greiða og eru mér minnisstæðar ferðir sem ég fór með honum um svæðið þar sem hann var að sinna málum fyrir kunningja sína og viðskiptafélaga. Við fórum langt inn í Pennsylvaníu og til Connecti- cut í þessum erindagjörðum. Gunnar kunni að slá á létta strengi og var alltaf hinn skemmti- legasti í mannfagnaði. Hann passaði sig þó á því að hafa þetta í réttri röð. Ég minnist alltaf setningar sem hann sagði við mig sem ungur námsmaður vestra, „work before pleasure“ sem vísaði sterklega til þess að það var mikilvægast af öllu að ljúka dagsverkinu og því sem manni er treyst fyrir, áður en slegið er á létta strengi. Gunnar var eindreginn fylgismað- ur vestrænnar menningar og gilda og dró ekki dul á andúð á öllum stefnum og tilburðum stjórnmála- manna til að auka hlut ríkisins í um- svifum þjóðfélagsins. Hann trúði á mátt einstaklingsins, dugnað hans, atorku og til að vera hreyfiafl fram- kvæmda og velsældar. Á sama tíma fór hann ekkert í grafgötur með skoðanir sínar á þeim aðilum sem misnotuðu þau tækifæri sem gátu skapast. Gunnar var vel lesinn, sinnti lestri góðra bóka og fylgdist með stefnum og straumum í þjóð- félagsumræðunni hér og erlendis fram á síðustu daga. Gunnar hafði mikinn áhuga á allri veiði, ekki síst á laxveiði, og naut þess að sinna henni á hverju sumri meðan heilsan leyfði. Ég minnist þess að fyrir mörgum árum hringdi Gunnar í mig og sagði að það hefði losnað holl í Kjarrá og vildi endilega að ég kæmi með sér. Hann hringdi rétt fyrir hádegi og sagði að við „ættum seinni partinn“. Á þessum tíma var ég allsendis óreyndur í þessu sporti og tók Gunnar á orð- inu. Þegar leið að lokum veiðinnar þennan tiltekna dag og ég var að koma mér í stellingar til að hverfa af svæðinu, þá sagði Gunnar mér að eftir væri tveir og hálfur dagur. Þegar lengra líður frá, þá segir þetta mér mikið um Gunnar. Það verður að drífa í hlutunum þegar tækifærin gefast. Það er mér heiður að hafa fengið að kynnast þeim góða dreng sem Gunnar hafði að geyma og læra af honum marga góða hluti. Gunnar var farsæll í starfi og sinnti fagi sínu að mestu í tengslum við einn mesta uppgang í íslenskri flugsögu í nánu samstarfi við Sigurð bróður sinn, sem féll frá snemma á síðasta ári. Ég vil að leiðarlokum votta börn- um Gunnars og öðrum aðstandend- um samúð okkar hjóna. Þórður S. Óskarsson.  Fleiri minningargreinar um Gunn- ar Helgason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. HINSTA KVEÐJA Elsku afi, á kveðjustund er ég þakklátur fyrir allar stund- irnar sem við áttum saman. Veiðiferðirnar, þar sem þú miðlaðir til mín þinni reynslu, ungur nemur gamall temur. Ég minnist ferðalaganna með þér og Gíma frænda, bæði til Svíþjóðar og Bandaríkjanna, og fylltist alltaf stolti þegar þú ávarpaðir mig sem „ferðafélag- ann þinn“. Ég vildi að þú hefðir verið hérna lengur svo ég hefði getað eytt meiri tíma með þér, en minningin um elskulegan afa og vin mun ávallt lifa. Þinn ferðafélagi, Gísli Tómas. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN EIRÍKSSON fyrrverandi aðstoðarslökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að morgni laugardagsins 12. júní. Útförin auglýst síðar. Guðmundur Már Stefánsson, Auður Margrét Möller, Helga Björk Stefánsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Stefán Hrafn Stefánsson, Ása Hrönn Kolbeinsdóttir, Ásta Hrönn Stefánsdóttir, Jón Dan Einarsson, Hrefna Stefánsdóttir, og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN E. GUÐMUNDSSON bifvélavirki, Skálagerði 11, Reykjavík, lést þriðjudaginn 8. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 15. júní kl. 13.00. Guðríður Geira Kristjánsdóttir, Ögmundur Kristinsson, Ásta Hulda Kristinsdóttir, Jóhanna Kristinsdóttir, Guðmundur Bjarni Daníelsson, Jóna Björg Kristinsdóttir, Salómon Þórarinsson, Sigurrós Kristinsdóttir.  Útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, tengdadóttur og ömmu, ÁSGERÐAR JÓHANNESDÓTTUR, Löngumýri 15, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 15. júní kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á MND félagið. Ægir Lúðvíksson, Jóhannes Friðrik Ægisson, Helena Dögg Olgeirsdóttir, Íris Rán Ægisdóttir, Lúðvík Friðrik Ægisson, Guðrún Sæmundsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.