Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010
... verk- og tæknifræðingum til starfa. Í boði eru spennandi störf í alþjóðlegu
umhverfi. Mikil erlend samskipti. Mjög góð laun. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík
bjóða nám sem veitir ungu fólki aðgang að þessum störfum.
Íslenskt atvinnulíf árið 2015
óskar eftir...
Dixie Flyer
frá 1919
sýndur í
Ystafelli
Glæsibifreið Samgönguminjasafnið sýnir Dixie Flyer árgerð 1919.
Atli Vigfússon
Þingeyjarsveit | Söfnin í Þingeyj-
arsýslu hafa verið að undirbúa
sumarvertíðina að undanförnu
enda ferðamannatíminn fram-
undan. Aðsókn hefur verið vax-
andi og áhugi fólks á söfnunum er
mjög mikill.
Samgönguminjasafnið í Ystafelli
er eitt þingeysku safnanna og
fagnar það tíu ára afmæli sínu í
næsta mánuði. Haldið verður upp
á þessi tímamót og er Sverrir Ing-
ólfsson safnvörður mjög bjartsýnn
því nokkrir gamlir bílar og tæki
sem komið hafa í safnið í vetur og
vor munu líklega vekja mikinn
áhuga þeirra sem leið eiga um.
Þarna má nefna Dixie Flyer ár-
gerð 1919, en um mjög sjaldgæfan
grip er að ræða, því talað er um
að aðeins séu til þrír svona bílar
uppistandandi í dag í heiminum,
einn í Ástralíu og annar í Texas.
Bíll þessi kom fram í myndinni
„Land og synir“ og var á Akureyri
til ársins 1984 er hann fór til
Reykjavíkur. Hann lenti svo aftur
til Akureyrar þegar Arngrímur
Jóhannsson keypti hann en bílinn
lánaði hann safninu nú í vor.
Dixie Flyer-bílarnir voru fluttir
inn af Espholin Co. á Akureyri og
voru fluttir inn tveir eða þrír
svona bílar, en þeir voru einungis
framleiddir á árunum 1916-1923.
Bíll bankastjórans
og fréttaritarans
Þá skal geta þess að Samgöngu-
minjasafnið hefur gert samning
við Þjóðminjasafnið um varðveislu
á Ford Zephyr Zodiac árg. 1955
en hann var eign Silla þ.e. Sig-
urðar Péturs Björnssonar, banka-
stjóra og fréttaritara Morgun-
blaðsins á Húsavík. Það var árið
1991 sem þjóðminjavörður, Þór
Magnússon, ók honum suður en
síðan þá hefur bíllinn verið í
geymslum safnsins. Vel þykir við
hæfi að gripur þessi sé í Ystafelli
og er hann gangfær og í góðu
ásigkomulagi.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Í góðu standi Ford Zephyr Zodiac frá árinu 1955.
Áhugi á söfnunum
og aðsókn vaxandi
Nokkur erill var hjá lögreglu á
höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.
Þrjár líkamsárásir komu upp um
og eftir klukkan sex í gærmorgun,
árásarþolar eru með áverka á
höfði s.s. nefbrot. Málin voru að-
skilin, aðeins einn var fluttur á
slysadeild til skoðunar.
Átta ökumenn voru handteknir
grunaðir um að hafa ekið undir
áhrifum áfengis/fíkniefna í fyrri-
nótt í embættinu. Sjö reyndust
hafa ekið ölvaðir og tveir voru
undir áhrifum fíkniefna. Tveir
voru sviptir ökuréttindum til
bráðabirgða að lokinni rannsókn
lögreglu. Þrír þessara einstaklinga
höfðu lent í umferðaróhöppum og
í einu tilvikanna reyndist ökutæk-
ið stolið.
Erill hjá lögreglu á
höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Júlíus