Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 1
Það er víðar en í Suður-Afríku sem snillingar knatt- spyrnunnar láta ljós sitt skína. Í Vestmannaeyjum kepptu hundruð ungra stúlkna á pæjumóti og þar fóru leikmenn Breiðabliks á kostum. Í Suður-Afríku mættu Þjóðverjar sterkir til leiks og unnu sannfærandi sigur á Áströlum. | Íþróttir Ljósmynd/Sigfús Gunnar Fótbolti, fótbolti, fótbolti … M Á N U D A G U R 1 4. J Ú N Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  136. tölublað  98. árgangur  BÖRNIN MEÐ Í FJALL- GÖNGUR FAGRIR FORNBÍLAR Á SÖFNUM 24 AFMÆLI Á YSTAFELLI 7GÖNGUBÓK BARNA 10 „Við viljum að lögreglan sé mun sýnilegri hér í bænum við hina al- mennu löggæslu. Þar skiptir ekki öllu máli hvar rannsóknardeildin er,“ segir Haraldur Sverrisson bæj- arstjóri í Mosfellsbæ. Öll starfsemi Lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu á því svæði sem er ofan Elliðaáa fluttist um helgina á einn stað við Krókháls í Reykjavík. Um er að ræða lögreglustöð 4 hjá embættinu, en undir hana heyra Kjósarhreppur, Kjalarnes, Mosfells- bær, Grafarholt, Grafarvogur, Norð- lingaholt og Árbær. Nokkuð er síðan almenn löggæsla fluttist á Krókhálsinn og rannsókn- ardeild fór um helgina, en hún var við Völuteig í Mosfellsbæ í húsnæði sem ekki þótti lengur henta. Sam- einuð stöð er undir sama þaki og Lögregluskóli ríkisins. Alls starfa á stöð 4 á milli þrjátíu og fjörutíu lögreglumenn. „Út- kallstími á ekki að breytast neitt með þessu enda erum við með bíla sem er dreift úti á varðsvæðinu,“ sagði Hörður Jóhannesson aðstoð- arlögreglustjóri við Morgunblaðið. Hann minnir hins vegar á að lög- reglan verði aðeins til skemmri tíma á Krókhálsi því áformað sé að starfsemin flytjist í nýja byggingu við Skarhólabraut í Mosfellsbæ, gegnt Skálatúni, eftir um það bil tvö ár. Haraldur Sverrisson segir að Mosfellingar vænti mikils af þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er við Skarhólabraut, þar sem starfsemi lögreglu og slökkviliðs verður á sama reitnum. Með því styttist við- bragðstími slökkviliðs ef hættu ber að höndum í Mosfellsbæ eða á nær- liggjandi svæðum. sbs@mbl.is Vilja sýnilegri lögreglu í Mosfellsbæ  Rannsóknardeild við Völuteig lokað en ný stöð við Skarhólabraut opnuð 2012 Lögregla Starfsemi lögreglu í Mosfellsbæ er núna að breytast. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Ný könnun sýnir að 57,6% þjóðarinn- ar eru fylgjandi því að íslensk stjórn- völd dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka. Þar af segjast 45,9% því mjög fylgjandi og 11,7% frekar fylgjandi. 24,3% eru mjög eða frekar andvíg því að um- sóknin verði dregin til baka. Þar af eru 15,2% mjög andvíg og 9,1% frek- ar andvíg. Spurt var: Hversu fylgj- andi eða andvíg(ur) ertu því að ís- lensk stjórnvöld dragi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka? Markaðs- og miðlarannsóknir (MMR) framkvæmdu könnunina fyr- ir vefsíðuna Andríki.is. Námsmenn eini hópurinn þar sem undir 50% er fylgjandi Séu einstakir hópar skoðaðir má sjá að námsmenn eru eini starfshóp- urinn þar sem minna en helmingur vill að umsóknin verði dregin til baka, en alls segjast 48,8% námsmanna mjög eða frekar fylgjandi því að um- sókn um aðild að ESB verði dregin til baka. 28,7% námsmanna eru því mjög eða frekar andvíg. Alls telja tveir þriðju þjóðarinnar að þeim fjármunum sem falla til sem beinn kostnaður vegna aðildarum- sóknar að ESB sé mjög eða frekar illa varið að því er fram kemur í svörum við annarri af tveimur spurningum könnunarinnar. Spurt var: Í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis, frá því í maí síðastliðnum, kemur fram að gert er ráð fyrir að beinn kostnaður vegna aðildarumsóknar að Evrópu- sambandinu geti numið samtals 990 milljónum króna á tímabilinu 2009- 2012. Hversu vel eða illa telur þú að þeim fjármunum sé varið? Alls töldu 48,6% þeim mjög illa var- ið og 18,3% frekar illa, alls 66,9% svarenda. Samanlagt sögðust 19,9% telja fjármununum vel varið, þar af 7,6% mjög vel. Þá álitu 13,1% að fjár- munum til umsóknar væri hvorki vel né illa farið. Könnunin fyrir andriki.is var gerð 8.-10. júní. Notast var við tilviljana- kennt úrtak úr þjóðskrá. Alls svöruðu 846 einstaklingar könnuninni, þar af tók 761 afstöðu til fyrri spurningar- innar og 730 til þeirrar síðari. Meirihluti vill draga umsókn um aðild til baka  Tveir þriðju landsmanna telja fjár- magni illa varið í umsókn að ESB  Eldur kviknaði í gamla torfbæn- um í Laufási í Eyjafirði á tí- unda tímanum í gærkvöld. Sr. Bolli Pétur Bolla- son prestur í Laufási segir menn hafa brugðist fljótt og rétt við og þann- ig komið í veg fyrir miklar skemmdir. Eldsupptök eru ekki ljós en eldur logaði í hlóðaeldhúsi. Bolli telur auðveldlega mega laga skemmdirnar, en slökkvistarf gekk vel og engin slys urðu á fólki. Eldur í gamla torf- bænum í Laufási Gamli torfbærinn í Laufási í Eyjafirði. Aldrei hafa fleiri Norðmenn verið á móti aðild landsins að Evrópu- sambandinu, en samkvæmt nýrri könnun rannsóknarfyrirtækisins Sentio segjast 62,5% Norð- manna andvíg því að ganga í sambandið. Norskir fjölmiðlar greindu frá því um helgina að í nær öllum stjórnmálaflokkum væri yfir helmingur flokksmanna andvígur aðild. Þá kemur fram í könnuninni að stuðningur við Evrópusambandið er sá minnsti sem mælst hefur, en 26,7% segjast fylgjandi aðild Noregs að ESB. Yfir sex af tíu á móti aðild ANDSTAÐA VIÐ ESB ALDREI VERIÐ MEIRI Í NOREGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.