Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 2
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR2
FÓLK Nýrri hinsegin vetrarhátíð
verður hleypt af stokkunum í
Reykjavík í febrúar á næsta ári.
„Við skynjum
strax að fólk er
ánægt með að
bjóðast ferð til
Íslands á þess-
um árstíma og
viðbrögðin eru
strax mikil,“
upplýsir Eva
María Þórarins-
dóttir Lange hjá
Pink Iceland,
sem stendur ásamt fleirum fyrir
hátíðinni, en hún ber yfirskriftina
Rainbow Reykjavík. Eva María
segir vetrarhátíðina ekki setta til
höfuðs Gay Pride heldur hreina
viðbót í hátíðarhald hinsegin fólks.
- þlg / sjá Allt í miðju blaðsins
Hýrir efna til hátíðarhalda:
Nýrri hinsegin
hátíð ýtt úr vör
EVA MARÍA
ÞÓRARINSDÓTTIR
GRIKKLAND, AP Gríska stjórnin
segist nú geta fjármagnað laun,
eftirlaun og afborganir af skuld-
um fram í miðjan nóvember, en
áður höfðu þau
sagst komast í
greiðsluþrot um
miðjan október
fengju þau ekki
aðstoð í tæka
tíð.
„Það er ljóst
að þetta verður
ekkert vanda-
mál fyrr en um
miðjan nóvem-
ber,“ sagði Evangelos Venizelos
fjármálaráðherra í gær, nýkominn
af fundum með fjármálaráðherr-
um evruríkjanna í Lúxemborg.
Evruríkin hafa frestað ákvörðun
um frekari aðstoð til Grikklands
vegna óvissu um það hvort
Grikkir geti staðið við skilyrði
aðstoðarinnar. - gb
Grikkir bera sig bærilega:
Segjast nú geta
beðið í mánuð
EVANGELOS
VENIZELOS
VIÐSKIPTI „Við erum auðvitað í
skýjunum yfir því að okkar til-
laga skuli hafa verið valin til
framkvæmda,“ segir Kristján
Örn Kjartans-
son hjá arki-
tektastofunni
KRADS, sem
hannar nýja
sýningar- og
þjónustubygg-
ingu fyrir
bílaframleið-
andann Ford í
Danmörku.
Byggingin
verður 4.400 fermetrar og mun
meðal annars innihalda 2.000
fermetra sýningarsvæði, verk-
stæði og söluskrifstofur. Stefnt
er að því að taka hana í notkun
árið 2013.
- rve / sjá Allt í miðju blaðsins
Arkitektar gera það gott:
Teikna hús
fyrir Ford
KRISTJÁN ÖRN
KJARTANSSON
VIÐSKIPTI Fyrsti viðskiptavinur gagnavers Verne
Holding að Ásbrú í Keflavík hefur skrifað undir
samning við fyrirtækið. Tilkynnt verður um þetta
fyrir hádegi.
Verne Global, sölu- og markaðssvið fyrirækisins,
og Datapipe hafa náð samningum um hýsingu á
gögnum síðarnefnda fyrirtækisins. Datapipe er
bandarískt fyrirtæki sem sérhæfir sig í umhverfis-
vænum lausnum í upplýsingatækni. Umhverfis-
stofnun Bandaríkjanna hefur veitt fyrirtækinu
viðurkenningu vegna umhverfisstefnu þess.
Robb Allen, forstjóri Datapipe, segir í yfirlýsingu
sem gerð verður opinber í dag að Verne gefi
fyrirtækinu kost á því að halda áfram forystu í
umhverfismálum.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá verður á
næstunni sett upp gagnageymsla í gagnaverinu að
Ásbrú. Stefnt er að því að starfsemi fyrirtækisins
geti hafist fyrir árslok. - kóp
Verne Holding semur við bandaríska fyrirtækið Datapipe:
Fyrsti kúnninn kominn í gagnaverið
Vigdís, ertu alveg steinsnar?
„Nei, en ég er alveg steinhissa á því
hvernig fólk lætur.“
Alþingiskonan Vigdís Hauksdóttir hefur
vakið athygli fyrir afbökun á orðtökum.
Hún talaði meðal annars um að stinga
ekki höfðinu í steininn og grjótkast úr
steinhúsi.
VERNE HOLDING Fyrsti viðskiptavinur gagnaversins hefur
skrifað undir samning við fyrirtækið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Tuttugu þingmenn hafa
lagt fram nýja tillögu um stað-
göngumæðrun á Alþingi.
Tillagan er nú lögð fram í
annað sinn, en orðalagi hefur
talsvert verið breytt frá því að
hún var fyrst lögð fram. Nú er
gert ráð fyrir að frumvarp um
staðgöngumæðrun verði lagt
fram „svo fljótt sem verða má“.
Allir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins fyrir utan Árna
Johnsen standa að baki
tillögunni.
Auk þeirra standa Álfheiður
Ingadóttir og Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir í VG, Kristján
Möller Samfylkingu og Einar K.
Guðfinnsson og Gunnar Bragi
Sveinsson í Framsókn að baki
tillögunni. - þeb
Ný tillaga 20 þingmanna:
Vilja flýta fyrir
frumvarpi um
staðgöngu
HEILBRIGÐISMÁL Samningur milli
Sjúkratrygginga Íslands og
læknastofunnar ART Medica um
niðurgreiðslur á tæknifrjóvgun-
araðgerðum rann út um síðustu
mánaðamót. Kostnaður þeirra
sem hefja meðferð nú er því mun
meiri en þeirra sem hófu með-
ferð í september. Steingrímur Ari
Arason, forstjóri Sjúkratrygginga,
segir að ljóst hafi verið í byrjun
september að of mikið bæri í milli
til að nýr samningur yrði gerður.
Samkvæmt samningnum sem
nú er runninn út fór þátttöku-
hlutfall Sjúkratrygginga í tækni-
frjóvgunum eftir því hvort um
fyrstu meðferð var að ræða,
aðra til fjórðu meðferð eða með-
ferðir eftir það. Mest var niður-
greitt fyrir fyrstu meðferð. Þá
var niðurgreiðslan minni hjá
fólki sem á barn fyrir. Nú borga
allir jafn mikið fyrir meðferð-
ina, 376.055 krónur fyrir glasa-
frjóvgun og 449.060 krónur fyrir
smásjárfrjóvgun.
Að sögn Steingríms Ara er búist
við því að ný reglugerð um niður-
greiðslur líti dagsins ljós í þess-
um mánuði. Velferðarráðuneytið
setur reglugerðina, sem nauðsyn-
leg er þegar endurgreiða á fyrir
þjónustu sem veitt er án samnings
við Sjúkratryggingar.
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs
er gert ráð fyrir því að læknis-
kostnaður hjá Sjúkratryggingum
verði lækkaður með því að þrengja
skilyrði fyrir þátttöku trygginga
í kostnaði við tæknifrjóvganir.
„Hvenær það tekur gildi og með
hvaða hætti er á borði ráðuneytis-
ins,“ segir Steingrímur Ari.
„Að lækka lækniskostnað með
því að þrengja skilyrði fyrir þátt-
töku sjúkratrygginga í kostnaði
við tæknifrjóvgun er áfall fyrir
þá sem eru að reyna að eignast
barn með hjálp tækninnar,“ segir
í fréttatilkynningu frá stjórn Til-
veru, samtaka um ófrjósemi. Nú
sjái fjölmörg pör og einhleypar
konur fram á að geta ekki nýtt
sér þessi meðferðarúrræði vegna
aukins kostnaðar.
Stjórn samtakanna hefur óskað
eftir fundi með Guðbjarti Hann-
essyni velferðarráðherra vegna
málsins. Samtökin segjast ekki
munu sætta sig við niðurskurð.
„Greiða þarf fyrir um samninga
milli SÍ og ART Medica, tryggja
að þær hækkanir sem þegar hafa
orðið falli ekki á sjúklingana og að
ekki komi til neinna skerðinga.“
thorunn@frettabladid.is
Tæknifrjóvganir ekki
lengur niðurgreiddar
Samningur milli Sjúkratrygginga og ART Medica um niðurgreiðslu tækni-
frjóvgana rann út um mánaðamót. Kostnaður við meðferðina hefur því aukist
mikið. Aðgengi að niðurgreiðslunni verður þrengt samkvæmt fjárlögum.
AÐ LEIK Þar til ný reglugerð kemur frá velferðarráðuneytinu þurfa allir að borga 376
þúsund til 449 þúsund krónur fyrir aðgerðir. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Ríkislögreglustjóri á
að stíga strax til hliðar. Þetta sagði
Róbert Marshall, þingmaður og
varaformaður nýrrar stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar Alþingis,
á Rás 2 í gær.
Róbert vill að Haraldur Johann-
essen víki á meðan rannsókn fer
fram á kaupum embættisins á
óeirðabúnaði af fyrirtækjum í eigu
lögreglumanna og tengdra einstak-
linga. Hann segist ekki geta fellt
dóm um sekt eða sakleysi, en trú-
verðugleiki stofnunarinnar skipti
mestu máli. - þeb
Róbert Marshall í viðtali:
Vill að Harald-
ur víki í bili
STJÓRNSÝSLA Ólafur Örn Ingólfs-
son hagfræðingur, einn þeirra
umsækjenda um starf forstjóra
Bankasýslu ríkisins sem ekki
hlutu náð fyrir augum stjórn-
arinnar, er afar ósáttur við
vinnubrögð í ráðningarferlinu
og hyggst kalla eftir frekari
rökstuðningi.
„Það sem mér finnst standa
upp úr er að það virðist sem
stjórnin hafi ekki farið að lögum
um Bankasýslu ríkisins varð-
andi hæfniskröfur og reynslu af
störfum fyrir fjármálastofnanir
og banka þegar kemur að ráðn-
ingu forstjóra,“ segir Ólafur Örn
í samtali við Fréttablaðið.
Aðspurður sagðist hann óviss
um hverjar málalyktir yrðu,
„en mér finnst fyrst og fremst
að maður eigi ekki að láta svona
nokkuð líðast“.
Páll Magnússon, bæjarritari
hjá Kópavogsbæ og fyrr-
um aðstoðarmaður Valgerðar
Sverrisdóttur viðskiptaráðherra,
var ráðinn úr hópi fjögurra
umsækjenda þrátt fyrir að hann
hafi minnsta reynslu að baki í
störfum fyrir fjármálastofnanir.
Ráðningin hefur kallað á hörð
viðbrögð en í samtali við Bylgj-
una í gær sagðist Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra bæði
treysta því og vona að faglega
hafi verið staðið að ráðningu Páls.
- þj
Ósáttur umsækjandi um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins:
Finnst svona ekki eiga að líðast
ÓLAFUR ÖRN
INGÓLFSSON
PÁLL MAGNÚSSON
… það virðist sem
stjórnin hafi ekki farið
að lögum um Bankasýslu
ríkisins varðandi hæfniskröfur
og reynslu af störfum fyrir
fjármálastofnanir og banka
þegar kemur að ráðningu
forstjóra.
ÓLAFUR ÖRN INGÓLFSSON
UMSÆKJANDI UM STÖÐU FORSTJÓRA
BANKASÝSLU RÍKISINS
SPURNING DAGSINS