Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.10.2011, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 05.10.2011, Qupperneq 34
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR26 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Björnsdóttir Blöndal frá Siglufirði, andaðist að morgni 28. september á St. Franciskus- spítalanum í Stykkishólmi. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00. Ólöf Birna Blöndal Sveinn Þórarinsson Jósep Ó. Blöndal Erla Harðardóttir Ásbjörn Ó. Blöndal Jóhanna Guðmundsdóttir Sigurður Ó. Blöndal Linda Björk Guðmundsdóttir Guðrún Ó. Blöndal Friðrik Jón Arngrímsson ömmubörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þorvarður Magnússon byggingameistari, Álfaskeiði 71, Hafnarfirði, lést mánudaginn 26. september á Líknardeild Landspítalans, Landakoti. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 6. október kl. 15.00. Áslaug Einarsdóttir Sigurður Þorvarðarson Vigdís Victorsdóttir Guðríður Þorvarðardóttir Þóra Þorvarðardóttir Þorvarður Árni Þorvarðarson Anna Dagbjört Hermannsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Haraldsdóttir sem lést þriðjudaginn 27. september, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00. Þórður Þórðar Kristjánsson Kristján Þórðarson Guðrún Þórarinsdóttir Helga Þórðardóttir Kristján Guðmundsson Unnur Þórðardóttir Valdimar Erlingsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, Sigurður Ásgeirsson húsasmíðameistari, Dalhúsum 91, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 6. október kl. 13.00. Guðrún Björt Zophaníasdóttir Heiða Lind Sigurðardóttir Bjarni Ágúst Sigurðsson Hildur Eva Sigurðardóttir Ásgeir Jóhann Ásgeirsson Aldís Sigríður Sigurðardóttir Ólafur Steingrímsson Ásta Fanney Sigurðardóttir Ívar Zophanías Sigurðsson Ásta Sigurðardóttir og barnabörn. Ástkær móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma okkar, Guðrún A. Bæringsdóttir Miðvangi 41, Hafnarfirði, lést á Borgarspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 28. september. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00. María Halldórsdóttir og Einar G. Jónsson Einar Halldórsson Ólafur Þ. Halldórsson Ásgeir Valhjálmsson og Sigurlína Kristjánsdóttir ömmubörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Ísaks Valdimarsson Víðilundi 20, Akureyri, lést á Borgarspítalanum mánudaginn 26. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 6. október kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalarheimilið Hlíð. Gréta Halldórs Helga Sigríður Kristjánsdóttir Jón Þór Guðjónsson Árni V. Kristjánsson Ragnheiður Skúladóttir Sverrir Þór Kristjánsson Guðrún Hörn Stefánsdóttir Margrét Jónína Kristjánsdóttir Páll Pálsson Kristján Ísak Kristjánsson Sigríður G. Pálmadóttir Gunnar Freyr Kristjánsson Margrét Dögg Bjarnadóttir Elín Íslaug Kristjánsdóttir Kristinn Ágúst Ingólfsson afa- og langafabörn. Fjórðu og síðustu tónleikar í tónleika- röð Félags íslenskra tónlistarmanna, Klassík í Vatnsmýrinni, eru haldnir í Norræna húsinu í kvöld klukkan 20. Tónlistarmenn kvöldsins eru norsk- ir, þeir Johannes Martens sellóleikari og Joachim Kwetzinsky píanóleikari. Af ungum tónlistarmönnum Noregs þykja þeir meðal þeirra efnilegustu. Á efnisskrá eru verk eftir finnska tónskáldið Jean Sibelius, rússneska tónskáldið Dmitri Sjostakovitsj og Joachim Kwetzinsky leikur einleiks- verk eftir íslenska tónskáldið Gunnar Andreas Kristinsson, Brainstorm in a Tea Cup. Norsku tónlistarmennirnir hafa leikið saman frá árinu 2004 og hafa gefið saman út geisladisk þar sem þeir leika tónlist er spannar 250 ára tímabil. Kwetzinsky hefur spil- að á tónlistarhátíðum um allan heim og hefur hlotið virt norsk tónlistarverðlaun. Martens leikur með Fílharmóníusveitinni í Ósló auk þess sem hann hefur leikið sem ein- leikari með fjölmörgum norskum hljómsveitum. Tónleikarnir eru haldnir með stuðningi frá Norska menningar- ráðuneytinu og Norska sendiráðinu í Reykjavík. - jma Norskir tónlistarmenn í Vatnsmýrinni TÓNLIST Þekktir norrænir tónlistarmenn koma fram á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld. Dagskrá með íslenskri tónlist, helguð íslenskum skáldum, verður í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag frá klukkan 12.30 til 13. Hún ber yfirskriftina Skáld í landslagi og er haldin í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands. Doktor Svanhildur Óskarsdóttir, sérfræðingur á Árna- stofnun, les þar ljóð eftir íslensk skáld, með og án und- irleiks, og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigurður Ingvi Snorrason klarínettuleikari leika verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Þórarinsson, Jón Nordal, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur. Þetta eru jafnframt fyrstu háskólatónleikar hausts- ins. Enginn aðgangseyrir er að dagskránni og allir eru velkomnir. Ort í hundrað ár LISTAFÓLK Sigurður Ingvi, Svanhildur, Þuríður og Anna Guðný. Í tilefni af opnun sýningarinnar The Pleasure Principle í Kling og Bang galleríi efnir myndlistardeild Listaháskóla Íslands til málþings föstudaginn 7. október. Þar verður meðal annars rædd spurningin „hvað er það sem málarinn gerir þegar hann gerir það sem hann gerir?“ The Pleasure Principle er samsýning þriggja mynd- listar manna, þeirra Birgis Snæbjörns Birgissonar, Marcusar Eek og Jukka Korkeila. Sýningarstjóri er finnski fræðimaðurinn, rithöfundurinn og gagnrýnandinn Mika Hannula. Hannula mun leiða umræður listamann- anna þriggja um möguleika málverksins í samtímanum og deila eigin reynslu af sýningarstjórn. Áhersla verður á vinnuferli listamannanna og leitast við að skilgreina í hverju ánægjulögmál málverksins er falið. Málþingið fer fram á ensku í fyrirlestrarsal á Laugar- nesvegi 91 klukkan 16 til 18 og er opið öllu áhugafólki um samtímamyndlist. - rat Málþing um samtímalist SAMTÍMAMYNDLIST RÆDD Málþingið fer fram á Laugarnesvegi 91 á föstudag milli klukkan 16 og 18. Málstofa um ýmsar hliðar hagfræðinnar sem tengjast daglegu lífi verður á Háskólatorgi í dag milli klukkan 15 og 17. Tveir fyrirlesarar koma þar fram. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild, ræðir samskipti kynslóða á mismunandi æviskeiðum út frá fræðilegum grunni hagfræðinnar. Helgi Tómasson, dósent við Hag- fræðideild, fjallar um birtingarmyndir ýmissa mældra hagstærða, svo sem hjónabandsstöðu og launa- og eigna- þróunar yfir æviskeiðið. Málstofan er skipulögð í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands. Hagfræði tilverunnar rædd á Háskólatorgi LEKTOR Í FÉLAGSVÍSINDA- OG HAGFRÆÐIDEILD Tinna Laufey ræðir samskipti kynslóða út frá hagfræðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.