Fréttablaðið - 08.11.2011, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
VIÐSKIPTI Íslenska ríkið og Reykja-
víkurborg hafa samþykkt að lána
730 milljónir króna til Austurhafn-
ar-TR, eiganda tónlistar- og ráð-
stefnuhússins Hörpu. Austurhöfn
er í 54% eigu íslenska ríkisins, sem
mun lána 394 milljónir króna, og
46% eigu Reykjavíkurborgar, sem
mun lána 336 milljónir króna.
Borgarráð samþykkti lánveit-
inguna síðastliðinn fimmtudag.
Til viðbótar við lánið nema fram-
lög ríkis og borgar vegna Hörpu
960 milljónum króna á ári á núver-
andi verðlagi.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að lánið sem eigendur Austurhafn-
ar eru að veita beri 7% fasta vexti.
Lánið er veitt til 12 mánaða og á að
endurgreiðast þegar Austurhöfn
hefur tryggt sér endurfjármögn-
un. Fréttablaðið greindi frá því í
gær að ráðast á í hana á fyrsta árs-
fjórðungi 2012 með skuldabréfa-
útgáfu. Til að ljúka að fullu fjár-
mögnun þeirra félaga sem eiga og
reka Hörpu og annarra bygginga-
reita á svæðinu þarf sú skulda-
bréfaútgáfa að vera upp á 18,3
milljarða króna.
Eigendalánið er meðal annars
veitt vegna þess að sambankalán
sem átti að fjármagna byggingu
Hörpu, og var tekið í janúar 2010,
dugði ekki til að fjármagna verk-
efnið að fullu. Eigendalánið sem
nú hefur verið samþykkt að veita
mun brúa það bil ef frá er talinn
lokafrágangur á nokkrum rýmum.
Auk þess mun hluti lánsins renna
til Situs, dótturfélags Austur-
hafnar sem á aðra byggingareiti
á svæðinu, og hluti mun renna til
rekstrarfélagsins Ago.
Í minnisblaði Austurhafnar til
eigenda sinna, sem lagt var fram
í borgarráði, kemur fram að með
því að bíða fram á næsta ár geri
forsvarsmenn félagsins sér vonir
um að kjör á endurfjármögnuninni
muni batna. Borgarráð samþykkti
lánveitinguna með fjórum atkvæð-
um gegn einu. Kjartan Magnússon
greiddi atkvæði gegn henni.
Til stóð að ráðast í endurfjár-
mögnun á sambankaláninu, sem
Landsbankinn, Arion banki og
Íslandsbanki, veittu á þessu ári.
Í minnisblaðinu kemur fram að
17.093 milljóna króna þak hafi
verið á sambankaláninu. Áætlað-
ur heildarkostnaður vegna bygg-
ingar Hörpu, reksturs hennar fram
að endurfjármögnun og kostnaðar
vegna annarra byggingarreita er
hins vegar áætlaður hærri en sem
því þaki nemur.
Heildarkostnaður vegna Hörpu
og tengdra verkefna, að meðtöld-
um afskrifuðum kostnaði, er áætl-
aður 27,7 milljarðar króna. Þegar
samningar um byggingu hússins
voru undirritaðir í apríl 2002 var
áætlaður kostnaður um sex millj-
arðar króna. - þsj
Frá mér
til þín
800,-
Þriðjudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Skartgripir
og úr
8. nóvember 2011
261. tölublað 11. árgangur
milljarðar
króna er
heildarkostn-
aður vegna Hörpu og tengdra
verkefna, að meðtöldum
afskrifuðum kostnaði.
27,7
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓTBITAFISKUR-næring fyrir líkama og sál
NÝTTH
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Opið mán.-fös. 10-18.Opið á laugardögum 10-14.þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.is
Bætiefni er best að taka eftir máltíðir. Vítamín eru
lífræn efni sem nýtast best þegar þeirra er neytt með
mat og steinefnum. Vatnsleysanleg vítamín eins og b-
og c- vítamín skiljast fremur hratt út með þvaginu og
því er gott að taka þau þrisvar yfir daginn. Heimild: Ný og betri bætiefnabiblía
Bryndís Ólafsdóttir var hlutskörpust í keppninni um Sterkustu konu Íslands sem fram fór um helginaKemur sterk inn á nýKynningarblað gull, silfur, platínum, armbandsúr, vasaúr, glæsileiki, fegurð, armbönd, hálsmen, hringar.
SKARTGRIPIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2011
&ÚR
UMHVERFISMÁL Forsvarsmenn Vestmannaeyja-
bæjar hafna því að sveitarfélaginu beri að greiða
háar dagsektir sem Umhverfisstofnun (UMST)
hefur lagt á vegna ófullnægjandi mengunarvarna
Sorp orkustöðvar Vestmannaeyja. Dagsektirnar, á
bilinu 25 til 50 þúsund á dag, hafa reiknast síðan
1. júlí.
Ágreiningsefnið er tvíþætt. Annars vegar hvort
ákvörðunarorð í bréfi UMST um dagsektir og tak-
mörkun á starfsemi nái aðeins til rykmengunar
frá sorpbrennslunni eða einnig til úrgangsvatns.
Hins vegar hvort dagsektir eigi að reiknast yfir
allt tímabilið frá 1. júlí eða aðeins þá daga sem
sorpbrennslan er sannarlega starfrækt.
Sveitarfélagið telur sig ekki skulda ríkissjóði
neitt, þar sem búið var að uppfylla kröfur starfs-
leyfis um ryk í útblæstri.
Standist rök UMST hafa þegar fallið á Eyja-
menn á fimmtu milljón króna, eftir því sem næst
verður komist. - shá / sjá síðu 10
Umhverfisstofnun og Vestmannaeyjabær deila um dagsektir vegna sorpbrennslu:
Dagsektir hrúgast á Eyjamenn
Ríki og borg þurfa að lána
Hörpu 730 milljónir króna
Sambankalán sem tekið var í fyrra dugði ekki fyrir stofnkostnaði Hörpu. Íslenska ríkið og Reykjavíkurborg
hafa samþykkt að lána 730 milljónir króna til að brúa bilið. Lánið mun bera 7% vexti og er til 12 mánaða.
PÓKER „Þeir fengu að kenna á því
greyin og fengu á sig skot; að sú
gamla væri að
slá þeim við,“
segir Ragnheið-
ur Sigurðar-
dóttir, sem tók
þátt í Íslands-
meistaramótinu
í póker um
helgina fyrir
tilstilli sona
sinna.
Ragnheiður
er komin í níu manna úrslit á
mótinu, en synirnir duttu út á
fyrsta degi. Lokarimman verður
háð á laugardag. Ragnheiður er
fyrsta konan til að ná þessum
árangri og viðurkennir að spil-
arar á mótinu hafi verið undrandi
á gengi hennar. „Strákarnir eru
ofsalega kurteisir, en þeim finnst
verst að tapa fyrir kvenmanni,“
segir hún. - afb / sjá síðu 30
Íslandsmeistaramótið í póker:
Mamman sló
sonunum við
RAGNHEIÐUR
SIGURÐARDÓTTIR
LÆGIR Í DAG og síðdegis verður
yfirleitt fremur hæg suðlæg eða
suðaustlæg átt. Skúrir syðra en
annars úrkomulítið. Hiti víða 5-10
stig.
VEÐUR 4
7
7
10
8
7
Gera jaðaríþróttum skil
Þættirnir Shadez of
Reykjavík fjalla um
jaðarsport á Íslandi.
fólk 30
Helga Björk
Grétudóttir
Hringir bjöllum gegn einelti
og hvetur aðra til að gera
slíkt hið sama.
tímamót 14
Þarf ekkert að
sanna
Guðjón
Þórðarson er
nýr þjálfari
knattspyrnuliðs
Grindavíkur.
sport 26
RIGNING OG ROK Það var sannkallað haustveður víðast hvar á landinu í gær. Í miðborginni sáust
vegfarendur hlaupa á milli húsa og upp í bíla til að sleppa undan rigningunni en eins og sjá má veittu ekki einu
sinni regnhlífar almennilegt skjól. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN