Fréttablaðið - 08.11.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.11.2011, Blaðsíða 12
12 8. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Börn eiga að njóta þess að vera börn og barnæskan á að vera áhyggjulaus tími. Það eru þó allt of margir sem upp- lifa þá tíma ekki jákvæða. Fjölmiðlar hafa verið ötulir við að segja frá tilvik- um þar sem einelti hefur varanleg áhrif á framtíð þeirra barna sem fyrir því verða. Eftir að hafa fengið ábendingar frá börnum og unglingum um að einelti sé þungt og fráhrindandi hugtak hefur umboðsmaður barna ákveðið að nálgast þetta vandamál með því að leggja áherslu á vináttu og samkennd. Einelti getur bæði verið orsök og afleiðing ýmissa vandamála en með því að bæta brag skólans sem og samfélagsins í heild og leggja áherslu á vináttu og kærleika fyrir náunganum er hægt að vinna gegn einelti og vinaleysi og bæta líðan almennt. Undanfarnar vikur og mánuði hefur umboðsmaður barna farið í grunnskóla landsins og vakið athygli á mikilvægi vináttu og samkenndar. Virðing fyrir mannhelgi og samlíðan eru hlutir sem allir ættu að tileinka sér. Ábyrgð foreldra skiptir vissulega miklu máli þegar kemur að því að kenna börnum þessar dyggðir en það er einnig mikilvægt að samfélagið í heild sinni leggi sitt af mörkum til að þjálfa jákvæð samskipti og að fullorðnir séu börnum góðar fyrirmyndir. Það er einnig mikilvægt að brýna fyrir börnum að þau gæti þess að taka ekki þátt í því að koma illa fram við aðra og að þau láti vita þegar eitthvað er gert eða sagt sem skað- ar eða særir einhvern. Það er auðvitað aldrei hægt að gera þá kröfu um að allir verði bestu vinir en bara það eitt að geta sýnt það að við berum virðingu fyrir hvert öðru getur haft mikil áhrif. Að heilsa einhverjum sem er oft einn getur verið nóg til að bjarga deginum fyrir viðkomandi. Með því að koma fram við aðra af virð- ingu og samkennd og umfram allt að tala ekki niðrandi um annað fólk verðum við að betri fyrirmyndum fyrir börnin okkar. Þannig getum við stuðlað að góðu og heil- brigðu samfélagi. Verum vinir Samfélags- mál Eðvald Einar Stefánsson sérfræðingur hjá umboðsmanni barna Að heilsa einhverjum sem er oft einn getur verið nóg til að bjarga deginum fyrir viðkomandi. A ðstaða til íþróttaiðkunar á Íslandi hefur tekið gríðarlegum stakkaskiptum á undanförnum árum. Ný fjölnota íþróttahús og gervigrasvellir sem nota má allt árið hafa komið til sögu í fjölda- mörgum sveitarfélögum. Þetta hefur komið öllum íþróttaiðkendum til góða, ekki sízt börnum og unglingum. Þótt mörg þessara mannvirkja hafi risið í samstarfi íþróttafélaga og sveitarfélaga hafa skattgreiðendur borið mest af kostnaðinum og glæsileg uppbygging íþróttamannvirkja á sinn þátt í fjárhags- stöðu margra sveitarfélaga, sem er ekki alveg eins glæsileg. Stundum hefur verið gagnrýnt hversu miklu fé hefur verið varið til íþróttamannvirkja, til dæmis í samanburði við menningarhús. Ábendingar um að stjórnmála- menn séu líklegir til að beita sér fyrir háum fjárframlögum til íþróttamannvirkja vegna þess hvað íþróttafélög séu gagnlegir bak- hjarlar í prófkjörs- og kosningabaráttu eru heldur ekki út í bláinn. Ef marka má áfangaskýrslu starfshóps sveitarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu, sem var falið að skoða breytingar á rekstri íþrótta- mannvirkja, hefur verið farið fram með meira kappi en forsjá í uppbyggingunni. Niðurstaða starfshópsins er sú að í Kópavogi sé „mikil umframafkastageta fyrir hópíþróttir“, enda voru bæjaryfir- völd þar í bæ stórtækust í uppbyggingunni í góðærinu. Starfshópurinn leggur til að íþróttamannvirkin í Kópavogi verði fullnýtt áður en ráðizt verði í byggingu fleiri íþróttahúsa og -valla á höfuðborgarsvæðinu. Í því skyni verði meðal annars komið á sam- ræmdri gjaldskrá á milli sveitarfélaganna þannig að þau geti leigt tíma í íþróttamannvirkjum sín á milli, komið verði upp gagnabanka um áhöld og tæki sem leigja megi á milli íþróttahúsa svo ekki þurfi að kaupa margt af hverju og tekið verði upp sameiginlegt kerfi til að fylgjast með nýtingu og aðsókn í íþróttamannvirkjum sveitar- félaganna. Þá er lagt til að skoðaðir verði möguleikar á sameigin- legum innkaupum og útboðum. Loks leggur starfshópurinn til að staðsetning dýrustu mannvirkj- anna, með mesta afkastagetu, verði framvegis ákveðin í samvinnu sveitarfélaganna til að tryggja sem bezta nýtingu til framtíðar. Allt hljómar þetta býsna skynsamlega. Það hljóta að vera hags- munir skattgreiðenda að sveitarfélögin vinni saman og samnýti dýr mannvirki. Þáttur í því er það sem starfshópurinn leggur líka til; að nýta megi frístunda- og íþróttastyrki í einu sveitarfélagi til að stunda íþróttir í öðru. Hópurinn bendir á að börn og unglingar þurfi oft að ferðast um langan veg til að stunda íþróttir eða tómstundir í eigin sveitarfélagi, þótt stutt sé í íþróttamannvirki í nágranna- sveitarfélagi. Í slíku fyrirkomulagi er auðvitað ekkert vit. Nú þegar harðnar á dalnum þurfa sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu, sem að mörgu leyti eru runnin saman í eina samfellda borg, að sýna vilja til samstarfs og samnýtingar dýrra fjárfestinga. Það á ekki eingöngu við um íþróttamannvirkin. Skynsamlegar tillögur um samnýtingu íþrótta- mannvirkja á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins of glæsileg uppbygging Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Maður að meiri Birni Bjarnasyni var stundum legið á hálsi fyrir að bíta sig fastan í ákveðna skoðun og hvika í engu frá henni, óháð rökum. Þá kenningu hefur hann nú afsannað rækilega. Björn ritaði nýlega færslu á bloggi sínu þar sem hann bar saman almennings- samgöngur í Brussel og Berlín og komst að þeirri niðurstöðu að Brussel hefði vinninginn. Nú hefur Björn hins vegar dvalið í viku í Berlín og breytt um skoðun. „Mér er ljúft að draga til baka efasemdir mínar um ágæti almenn- ingssamgangna í Berlín. Þær byggðust á hreinni vanþekkingu. Kerfið er til mikillar fyrirmyndar eins og ég hef sannreynt á einni viku.“ Björn er maður að meiri fyrir vikið og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar. Endurvinnsla hugmynda Lilja Mósesdóttir hyggur á stofnun nýs flokks. Það ætti að ríma við ákall margra um endurnýjun á flokkakerfinu. Lilja hyggst hins vegar ekki koma fram með nýjar hug- myndir og gildi, heldur endurvinna ákveðnar hugmyndir gömlu flokkanna. Kristilegi samvinnuum- hverfisjafnaðarflokkurinn Og áhugavert er að sjá hvað Lilja velur. Frá Sjálfstæðisflokknum réttlæti „sem er svona kristilegt“, frá Framsókn valddreifingu, ekki S-hópsins og SÍS heldur allt aftur í upphaf samvinnuhreyfingarinnar, frá Alþýðuflokknum jöfnuð og frá Vinstri grænum sjálfbærni. Þarna virðist þróun íslenskra stjórnmálahug- mynda á þessari og síðustu öld birtast í nýja flokknum, sem gæti fengið heitið Kristilegi samvinnuumhverfisjafnaðar- flokkurinn. Nú vantar bara lógó. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.