Fréttablaðið - 08.11.2011, Page 14
8. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR14
Okkar yndislegi og elskaði pabbi,
tengdapabbi og afi,
Aðalsteinn Gunnarsson
loftskeytamaður
Hraunvangi 7, áður Grænukinn 1,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn
1. nóvember. Hann verður jarðsunginn frá
Víðistaðakirkju föstudaginn 11. nóvember
og hefst athöfnin kl. 15.00.
Þorsteinn Gunnar Aðalsteinsson Hrund Eðvarsdóttir
Sunna Þorsteinsdóttir
Kolbrún Ragnheiður Kristjánsdóttir
Þorsteinn Gunnlaugsson
Birgir Gunnlaugsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gyðríður Þorsteinsdóttir
áður á Hlíðarbraut 8, Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu laugardaginn 5. nóvember.
Þórir Ingvarsson Edda Jónasdóttir
Hjördís Edda Ingvarsdóttir Jón Vignir Karlsson
Sigríður Ólöf Ingvarsdóttir
Þuríður Guðný Ingvarsdóttir Árni Pálsson
Ingveldur Ingvarsdóttir Benedikt Jónasson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ingibjörg Halldórsdóttir
frá Eyri, Ingólfsfirði,
Nýbýlavegi 80, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum sunnudaginn 30. október,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
10. nóvember kl 13.00.
Ingólfur Guðjónsson
Lára Ingólfsdóttir Jón Leifur Óskarsson
Sigurður Ingólfsson Ingunn Hinriksdóttir
Halldór Kr. Ingólfsson Hrönn Jónsdóttir
Guðjón Ingólfsson Harpa Snorradóttir
Þórhildur H. Ingólfsdóttir Guðmundur J. Jónsson
Ólafur Ingólfsson Svanhildur Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
TILBOÐSDAGAR
Frí uppsetning á höfuðborgarsvæðinu
og frí sending út á land á legsteinum
sem pantaðir eru í nóvember.
MOSAIK
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Bjarney
Jóhannesdóttir
lést á Kristnesspítala þriðjudaginn 1. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
11. nóvember kl. 13.30.
Jónína Hallgrímsdóttir
Heiðbjört Hallgrímsdóttir Ævar Kristinsson
Kristín Hallgrímsdóttir Þórir Tryggvason
ömmu- og langömmubörn
timamot@frettabladid.is
„Einelti er mannleg meinsemd á ábyrgð
okkar allra. Það er ekki hægt að gera þá
kröfu á foreldra að þeir geti ávallt varið
börn sín og á meðan eitt mesta eineltið
viðgengst innan kennarastéttarinnar;
hvernig eiga þá skólayfirvöld að takast
á við einelti barna?“ spyr Helga Björk
Magnúsdóttir Grétudóttir frá Eineltis-
samtökunum og Sérsveit gegn einelti.
Sérsveitin hvetur landsmenn til sjávar
og sveita að hringja skipsbjöllum,
kirkjubjöllum, skólabjöllum, dyrabjöll-
um, hjólabjöllum, spiladósum og í raun
hvaða bjöllum sem er klukkan 13 til að
vekja athygli á eineltismálum.
Helga Björk er sjálf þolandi lang-
vinns eineltis og hefur einnig setið við
borðið sem foreldri og kennari.
„Við getum ekki lengur varpað ábyrð-
inni á lítil börn heldur verðum að virkja
valdið ofan frá. Nú er tímabært að
æðsta menntastofnun landsins, mennta-
málaráðuneytið, móti vinnuna og fari
að standa sig. Eineltisvandinn má ekki
lengur vera niðurþaggað felumál sem
bitnar ævilangt á þolandanum af því
að skólayfirvöld skortir fyrirmæli um
hvernig þau eiga að takast á við hann,“
segir Helga Björk.
Hún segir engan mundu hika við að
bjarga slösuðu barni úr slysi vegna
óvissu um lög og vinnureglur, en slíkt
sé einmitt raunin í eineltismálum.
„Nú eru tvö ár liðin síðan ákveðið var í
samráði við öll ráðuneytin að koma á fót
óháðu fagráði um einelti, en það hefur
enn ekki litið dagsins ljós. Þá vil ég vita
hvað varð um þær níu milljónir sem rík-
isstjórn Íslands lagði í eineltisverkefni
2010, og hvers vegna einstaklingar með
góða fagmenntun, persónulega reynslu
af einelti og ómældan starfa í þágu mál-
efnisins fá ekki að vinna með ráðuneyt-
unum eins og þeim var lofað. Þangað til
óháð fagráð tekur til starfa, og á meðan
stjórnsýslan fer ekki að lögum og lög-
menn stéttafélaga brjóta ítrekað siða-
reglur með því að verja mál þolanda og
geranda á sama tíma, breytist ekkert
til batnaðar í eineltismálum,“ útskýrir
Helga Björk.
Hún segir skólastjóra og kennara fara
í vörn þegar einelti kemur upp í skólum
þeirra.
„Við þær aðstæður þarf olíu sem
liðkar til og sú olía er vitaskuld æðsta
yfirvald menntamála og síðan borgar-
stjórinn og bæjarstjórar sem eru æðstu
yfirmenn sinna bæjarfélaga og setja
þessum stofnunum verklagsreglur. Það
er ekki lengur bjóðandi að setja eineltis-
mál í hendur þeirra sem kunna ekki að
taka á þeim vegna þess að þeir hafa ekki
tekið til í sínu umhverfi.“
Helga Björk segir eineltismál alltaf
sett á byrjunarreit þegar nýtt stjórn-
málaafl taki við. „Falleg orð á tyllidög-
um og verkefni sem fara af stað deyja og
meiða þá sem eftir standa með reynslu
og lausnir. Því væri ósköp gott ef einhver
pólitíkusanna segði hreinskilnislega:
„Ég skil þetta ekki og ég kann þetta
ekki. Settu mig inn í málin“. Að þeir leit-
uðu strax samstarfs og hjálpuðu þar með
börnum sem gubba áður en þau fara í
skólann, sofa ekki vegna kvíða og langar
ekki að lifa vegna eineltis. Höfnun vex
þegar enginn sýnir umhyggju né kær-
leika og lætur einelti liggja á milli hluta.
Það er ekki nógu mikið talað um einelti
sem stríð og stríðsskaða og það er skort-
ur á mannvirðingu þar sem hver og einn
er dýrmæt sköpun Guðs.“
thordis@frettabladid.is
HELGA BJÖRK GRÉTUDÓTTIR: HVETUR LANDSMENN TIL KLUKKNAHLJÓMS Í DAG
Bjöllum hringt gegn einelti
KLUKKNAHLJÓM TIL BJARGAR Árlegur dagur gegn einelti er í dag. Þá verður undirritaður
þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti í Höfða. Klukkan 13 munu kirkjur lands hringja bjöllum
og skipaflotinn þeyta skipsflautur sínar. Helga Björk hvetur fólk til að hringja öllum bjöllum, og
sjálf á hún margar sem tónlistarkennari. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR
1718 Giötheborg, stórt, danskt herskip, strandar á Hásteinum
við ósa Ölfusár. Sjö manns drukkna en bændur í grennd
bjarga 160 skipverjum á land.
1879 Hið íslenska fornleifafélag stofnað.
1949 Umferðarljós tekin í notkun á fjórum fjölförnustu gatna-
mótunum í miðbæ Reykjavíkur.
1978 Friðrik Ólafsson kjörinn forseti Alþjóðaskáksambandsins.
40 HARALDUR ÖRN ÓLAFSSON, pólfari og lögfræðingur, er fertugur.„Það var ómetanlegt að fara þessar ferðir, sem allar gengu vel. Margir reyna það sama án
þess að ná markmiðum sínum og snúa jafnvel ekki lífs til síns heima. Því var yfir mér blessun.“
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Rán,
fórst í Jökulfjörðum og með henni
fjórir menn. Flak vélarinnar fannst
með hjálp neðansjávarmynda-
vélar og náðist af hafsbotni. Það var
rannsakað í þaula og í tilkynningu
Flugmálastjórnar og flugslysanefndar
kom fram að „einhver aðskotahlutur
hafi lent í forþjöppu hægri hreyfils
og laskað hana“. Þá vakti það athygli
að hægri hurð þyrlunnar vantaði á
flakið.
Tíu dögum fyrir slysið hafði
áhöfnin á TF-Rán bjargað þremur
mönnum úr sjávarháska þegar vél-
bátnum Haferninum frá Stykkishólmi
hvolfdi við Bjarneyjar á Breiðafirði.
Heimild: Ísland í aldanna rás
ÞETTA GERÐIST: 8. NÓVEMBER 1983
TF-Rán ferst í Jökulfjörðum
Elskuleg móðir okkar, amma,
tengdamamma, systir og mágkona,
Sigurbjörg
Steindórsdóttir
varð bráðkvödd á heimili sínu föstudaginn
4. nóvember. Útförin fer fram frá Glerárkirkju
Akureyri föstudaginn 11. nóvember kl. 11.00.
Berghildur Erla Bernharðsdóttir Edvard Börkur
Edvardsson
Bernharð Stefán Bernharðsson
Björg Maríanna Bernharðsdóttir Sigurður
K. Blomsterberg.
Steingrímur Magnús Bernharðsson
ömmubörn
Halldóra Steindórsdóttir
Steindór Steindórsson
Sigurgeir Steindórsson