Fréttablaðið - 08.11.2011, Blaðsíða 21
KYNNING − AUGLÝSING Skartgripir & úr8. NÓVEMBER 2011 ÞRIÐJUDAGUR 3
Við kynntum línuna Upp-steyt fyrir jólin 2008, þá í Jens í Kringlunni en nú fæst
hún um allt land,“ segir Berglind
Snorra, gullsmiður og vöruhönn-
uður hjá Jens, en hún er höfund-
urinn að línunni ásamt Jóni Snorra
Sigurðssyni gullsmið.
„Við Jón Snorri höfum unnið
mikið saman og þekkjum okkar
viðskiptavini og hverju þeir sækj-
ast eftir,“ útskýrir Berglind en línan
inniheldur grófa silfurskartgripi
fyrir dömur og herra. „Við vinnum
mikið með hrjúfa og brennda áferð
í bland við slétta f leti og höfum
myndað okkar ákveðna stíl. Þessi
grófleiki er vel þekktur hérna á
Íslandi en sker sig úr erlendis.
Við seljum línuna til að mynda í
London og Manchester og gengur
vel. Hönnun okkar tveggja fer vel
saman og oft hef ég hannað háls-
menið og hann eyrnalokkana í setti
og það smellpassar saman,“ segir
Berglind.
Línan Uppsteyt er breið og inni-
heldur allt frá litlum og fíngerðum
hlutum, upp í stóra og grófa muni.
Í henni er að finna nælur, hringa,
armbönd og hálsmen en einn-
ig bindisnælur, ermahnappa og
plötur um hálsinn fyrir herrana.
Allir munirnir eru með rhodium-
húð svo síður fellur á þá. En hvað-
an kemur nafnið Uppsteyt?
„Við erum að gera uppsteyt gegn
hefðbundinni skartgripasmíði og
förum út fyrir rammann. Í línunni
gerum við öðruvísi hluti en fólk er
vant,“ segir Berglind og bætir við:
„Fólk getur myndað sinn eigin stíl
með því að velja saman muni og
skapað þannig sinn eigin karakt-
er. Við erum einnig sífellt að bæta
við nýjungum í línuna, enn meira
uppsteyt,“ segir hún.
Uppsteyt-línan er þó fjarri því
að vera það eina sem Jens býður
upp á, því fyrirtækið er þekktast
fyrir Jens-skartgripalínuna sem
eru handsmíðaðir gull og silfur
skartgripir með íslenskum stein-
um. Einnig eru sérsmíðaðar stærri
gjafavörur að finna í hillunum.
„Við notum mikið íslenska
steina í sérsmíðuðu skartgripina
þar sem aðeins eitt eintak er til af
hverjum skartgrip. Gjafa vörulínan
okkar er úr eðalstáli og í henni eru
t.d. tertuspaðar, salatáhöld og
f leira. Þá muni skreytum við
líka oft með íslenskum stein-
um,“ segir Berglind. „Við erum
með verslun í Kringlunni og á síð-
asta ári opnuðum við nýja verslun
og gallerý í Síðumúla 35. Þar bjóð-
um við einnig aðrar vörur svo sem
skúlptúra eftir Jón Snorra, málverk
eftir Rúnu Gísladóttur listmálara
og glermuni frá Sigrúnu í Bergvík
ásamt margs konar hönnunarvöru.
Þar er einnig opið inn á verkstæð-
ið svo fólk getur séð okkur vinna og
fylgst með hvernig hlutirnir verða
til. Það er mikil fjölbreytni hjá Jens
og allir ættu að finna sér eitthvað
við sitt hæfi,“ segir Berglind.
Enn meiri uppsteyt hjá Jens
Gullsmiðirnir Berglind Snorra og Jón Snorri Sigurðsson eru hönnuðirnir að baki skartgripalínunni Uppsteyt. Línan inniheldur grófa og óhefðbundna
silfurskartgripi fyrir bæði dömur og herra.
Berglind Snorra gullsmiður hannaði línuna Uppsteyt ásamt Jóni Snorra Sigurðssyni gullsmiði fyrir Jens. MYND/STEFÁN