Morgunblaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Aukin virkni og meiri vellíðan hjá ungu fólki á atvinnuleysisskrá er meðal þess sem næst fram með átaki Vinnumálastofnunar Ungt fólk til athafna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrstu skýrslu Félags- vísindastofnunar um árangur af átakinu. Alls voru 2.438 ungmenni á aldrinum 16-24 ára á atvinnuleys- isskrá í lok júnímánaðar og svarar það til um 18% af heildarfjölda at- vinnuleitenda. Það hlutfall hefur haldist óbreytt frá því í ágúst á síð- asta ári, þó að einstaklingum á at- vinnuleysisskrá hafi fækkað sam- kvæmt upplýsingum frá Karli Sighvatssyni, sviðsstjóra vinnu- málasviðs Vinnumálastofnunar. Hátt hlutfall ungs fólks á atvinnu- leysisskrá undanfarin misseri virð- ist þó ekki hafa í för með sér áhættuhegðun sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af. Ekki er búið að gera skýrslu Fé- lagsvísindastofnunar opinbera, en að sögn Hrafnhildar Tómasdóttur, verkefnisstjóra Ungs fólks til at- hafna, staðfestir skýrslan hve vel átakið hefur gengið. „Það hefur far- ið fram úr mínum björtustu von- um,“ segir hún. Erlendar rann- sóknir hafa sýnt að ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir afleið- ingum langtímaatvinnuleysis og geta afleiðingar þess að hefja starfsferilinn í atvinnuleysi haft áhrif starfsævina á enda. Skýrslan sýni hins vegar að unga fólkið meti líðan sína betri en óttast var. Það sé líka ánægt með þjónustuna og líti á átakið sem tækifæri. Þetta skili sér í aukinni virkni í atvinnuleit og betri líðan. „Okkur barst bréf í tengslum við fyrirmyndarátakið sem efnt var til fyrr í sumar. Það var frá ungum manni sem þakkaði okkur fyrir að hafa breytt viðhorfi ungs fólks til þessarar stofnunar og þjónustunnar sem hún veitir,“ segir Hrafnhildur. Finna sína hillu Vinnumálastofnun berast reglu- lega jákvæðar fréttir. „Við fáum sól- skinssögur daglega og þetta hefur breytt lífi margra. Sumir hafa t.a.m. farið í nám sem þeir töldu sig áður ekki hafa tækifæri til.“ Hrafnhildur nefnir sem dæmi að ungur maður hafi í fyrradag komið í heimsókn. „Honum hafði boðist starf við ferða- þjónustu í sumar eftir að hafa verið á ferðaþjónustunámskeiði og þetta var nokkuð sem hann hafði alltaf langað að vinna við.“ Að sama skapi hafi tveir ungir menn haft samband eftir að hafa sótt námskeið í kerfisstjórnun hjá NTV. „Þeir voru búnir að fara í tvö atvinnuviðtöl í vikunni og voru bjartsýnir á framhaldið.“ Annar hafi aukinheldur ákveðið að mennta sig frekar á þessu sviði fengi hann ekki vinnuna. „Þetta breytti lífi hans, því þarna fann hann sína hillu.“ Stórir hópar hafa þegar lokið þátttöku í átakinu, en um 3.000 ung- menni á landinu öllu voru virkjuð í upphafi. Þar af voru um 2.000 ein- staklingar af höfuðborgarsvæðinu. Vilja aftur í skóla „Við vorum að taka saman upp- lýsingar um daginn og sáum þá að hér á höfuðborgarsvæðinu hafa ver- ið rúmlega 600 afskráningar, þar af um 400 vegna þess að fólk var kom- ið í vinnu.“ Þetta séu ánægjulegar fréttir, en um 70% atvinnuleitenda á aldrinum 16-24 ára hafa ekki lokið námi eftir grunnskóla. „Þess vegna höfum við líka litið á þetta sem hæfnisuppbyggingu og tækifæri fyrir þau til að styrkja stöðu sína til framtíðar.“ Margir hafi líka sýnt því áhuga að fara í skóla á ný. Brottfallið úr ís- lenskum framhaldsskólum er mikið áhyggjuefni og telur Hrafnhildur ástæðu þess að hluta þá að skól- arnir hafi verið í samkeppni við at- vinnulífið um unga fólkið. „Þess vegna erum við með stóran hóp sem hvarf frá námi af því honum bauðst starf sem honum fannst spennandi. Margir af þeim vilja komast í nám á ný og hafa alla burði til þess.“ Niðurskurður í menntakerfinu geti hins vegar komið illa niður á þessum hópi. „Við höfum miklar áhyggjur og óttumst að margir hafi fengið synjun vegna niðurskurð- arins.“ Stofnuninni hafi enda þegar borist fregnir af nokkrum sem ekki komust inn. Reynt sé að hjálpa því fólki í gegnum fullorðinsfræðslu- kerfið. „Það eru ákveðnar leiðir þar í boði sem gera fólki þá kleift að ljúka framhaldsskólanámi eftir öðr- um leiðum.“ „Fáum sólskinssögur daglega“  Vel gengur að virkja ungt fólk í átaki Vinnumálastofnunar  Flestir taka tækifærinu fagnandi  Stór hópur tekinn af skrá eftir að hafa fengið vinnu  Margir vilja komast í skóla á nýjan leik 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Vangaveltur eru uppi um hvort of- greidd lán fáist endurgreidd fari fjármögnunarfyrirtækin í þrot. Margir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa í ljósi erfiðrar stöðu fjármögnunarfyrirtækisins Avant. „Ég óttast um hag og rétt þeirra lántakenda sem kunna að hafa of- greitt lánagreiðslur,“ sagði Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, í samtali við Morgunblaðið í gær. Gísli segist ætla að beita sér í málinu með hagsmuni lántakenda að leiðarljósi. Almennar kröfur Þeir lögfræðingar sem Morgun- blaðið hafði samband við eru sam- mála um að umræddar kröfur séu al- mennar kröfur. Þeir sem telji sig hafa ofgreitt afborganir af lánum verða þá að leggja inn almenna kröfu fari lánveitandinn í þrot. Þær komi svo eins og hver önnur krafa á félag- ið. Eignastaða fyrirtækisins ráði því hve mikið fáist borgað upp í kröf- urnar. Til glöggvunar er bent á að kröfur njóta ekki forgangs nema þær séu launakröfur, veð- kröfur, búskröfur eða varði inni- stæður, orlof eða þess háttar. Starfsemi Avant helst óbreytt Taka skal fram að ekki hefur verið far- ið fram á gjaldþrota- skipti fjármögnunar- fyrirtækisins Avant. Fram hefur komið að Fjármálaeftirlitið skipaði bráðabirgðastjórn yfir félaginu sem mun lögum samkvæmt stjórna fyr- irtækinu næstu þrjá mánuðina á grundvelli 100. gr. laga um fjármála- fyrirtæki. Friðjón Örn Friðjónsson, formað- ur bráðabirgðastjórnarinnar, segir að starfsemi fyrirtækisins verði óbreytt fyrst um sinn. Engin breyt- ing hafi verið gerð á starfsmanna- haldi og reynt verði að huga að hags- munum viðskiptavina Avant eins og kostur sé. Friðjón sagði í samtali við Morgunblaðið að reynt verði að taka ákvarðanir með hagsmuni bæði starfsfólks og lántakenda að leiðar- ljósi. Í ljósi þeirrar óvissu sem skapast hefur í kjölfar gengislánadóms Hæstaréttar hefur Avant ekki sent út greiðsluseðla í júlí og mun svo einnig vera í ágúst. Innheimtuað- gerðum annarra fjármögnunarfyrir- tækja hefur sömuleiðis verið frestað. Hafa áhyggjur af stöðu lántakenda  Ofgreiddar afborganir á lánum eru almennar kröfur og njóta ekki forgangs Stjórnendur Aska Capital og Av- ants segja dóm Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána hafa skipt sköpum fyrir efnahag félagsins. Virði eigna Avants rýrn- aði verulega eða úr 23 milljörðum króna í 9 til 13 milljarða eftir dóm Hæstaréttar. „Ef þeir hefðu farið að lögum og ekki boðið gengistryggð lán þá hefðu þessar afstæður ekki skapast,“ segir Marínó G. Njálsson stjórnarmaður í Hagsmuna- samtökum heim- ilanna. Hann segir að samtökin hafi um nokkurt skeið haft áhyggjur af því að sú staða kæmi upp að lántakendur fengju ekkert fyrir ofgreiddar greiðslur sínar. Ekki hafi sér- staklega verið horft til Avants í þessu samhengi heldur til fjár- mögnunarfyrirtækjanna almennt. Hann segir að hagsmuna- samtökin hafi lagt það til eftir dóm Hæstaréttar að þau fyrirtæki sem buðu upp á gengistryggð lán yrðu skikkuð til að leggja trygg- ingu inn á reikning í Seðlabank- anum. Sú upphæð myndi þá nýtast þeim sem ofgreitt hafi afborganir af lánum fari lánveitandinn í þrot. Marínó segir að lítið hafi verið hlustað á þessar tillögur. Sköpuðu aðstæðurnar HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA Hundrað-og-tólfan er atvinnuátaksverkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Hundrað-og-tólfan samanstendur af tólf framhaldsskólanemum á aldrinum 16-20 ára, sem voru án atvinnu, og fengu fyrir vikið það hlutverk að kynna frístundamiðstöðina Gufunesbæ í Grafarvogi. Magnús Sigurjón Guðmundsson, starfsmaður ÍTR, sem stýrir hópnum, segir starf krakkanna að stórum hluta hafa falist í viðburðastjórnun. „Þau hafa lært hug- myndafræðina, hætturnar og tækifærin,“ segir hann. Krakkarnir hafi upplifað viðburðina sem sína eigin. Byrjað hafi verið á smáum viðburðum og verkefnin svo orðið stærri og stærri. „Þau hafa fengið til sín leik- skólahópa, grunnskólakrakka og nú í dag [gær] hittust ólíkar kynslóðir þegar rúmlega 80 eldri borgarar komu í samkomuhús okkar Hlöðuna til að spila vist, borða vöffl- ur og hlýða á harmonikkuleik.“ Sá viðburður tókst vel. „Þau eru alveg í skýjunum,“ segir Magnús, en hópurinn hefur haft gaman af vinnunni sem nú er að ljúka. „Þetta hafa verið þeirra hugmyndir sem þau hafa útfært og fylgt eftir alveg frá upphafi.“ Fylgja frá hugmynd til framkvæmdar Spilað og spjallað Krakkarnir í Hundrað-og-tólfunni fengu ríflega 80 eldri borgara í heimsókn til að spila vist. Morgunblaðið/Ernir 12.988 einstaklingar voru að meðaltali atvinnulausir í júnímánuði síðastliðnum. 2.438 ungmenni á aldrinum 16-24 ára voru á atvinnuleysisskrá í lok júnímánaðar. 3.024 ungmenni á aldrinum 16-24 ára voru á atvinnuleysisskrá í lok apríl. 3.734 ungmenni á aldrinum 16-24 ára voru á atvinnuleysisskrá í lok maí í fyrra og voru það um 1.000 fleiri ungmenni en voru á skrá á sama tíma í ár. 18% þeirra sem eru á skrá yfir atvinnuleitendur í dag eru á aldrinum 16-24 ára og hefur það hlutfall haldist óbreytt frá því í ágúst í fyrra. ‹ ATVINNULEYSISTÖLUR › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.