Morgunblaðið - 15.07.2010, Qupperneq 30
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
KAFFISTOFA
Í ANDLEGU
JAFNVÆGI
KAFFI
HÁLFFULLUR BOLLI
150 kr.
HÁLFTÓMUR BOLLI
75 kr.
BÍDDU, ER ÞETTA NÝJA PLATAN
HANS JONNA SVEINS?
ÉG SKAL SJÁ
UM ÞETTA
HÆKKAÐU
ÞETTA
ALLT Í
LAGI! ÉG
SKAL GERA
ÞAÐ!
ÞÚ ÞARFT EKKI ALLTAF
AÐ MINNA MIG Á ÞETTA!
LÁTTU MIG Í FRIÐI!
ÉG SAGÐIST ÆTLA
AÐ GERA ÞETTA!
KÆRA AMMA,
TAKK KÆRLEGA FYRIR
GJÖFINA SEM ÞÚ
SENDIR MÉR,
EKKI LJÚGA AÐ MÉR, ANNARS
DETTA AF ÞÉR HORNIN!
SEGÐU MÉR
HVAÐ ÞÚ
VARST AÐ
GERA Í KVÖLD!!
OG SLEPPTU
HORNUNUM ÞÍNUM!
ALLT Í
LAGI! ALLT
Í LAGI!
KARL? VIÐ
ERUM HLJÓM-
SVEITIN GRÁI
FIÐRINGURINN
GANGIÐ
Í BÆINN,
STRÁKAR
ÞAÐ ER ANSI MIKIÐ
AF FÓLKI KOMIÐ TIL
AÐ HORFA Á OKKUR
JÁ, ÞETTA ERU
EKKI FYRSTU TÓN-
LEIKARNIR MÍNIR. ÉG
KANN AÐ KYNNA ÞÁ
HVAÐ
GERÐIR
ÞÚ?
ÉG BEINTI
FÓLKI Á
MYNDBAND
MEÐ YKKUR Á
„YOUTUBE“
ERUM
VIÐ MEÐ
MYNDBAND
ÞAR?
LONDON
CALLING,
BEIBÍ!
NEI, ÉG TÓK
MYNDIR AF
HEIMASÍÐUNNI
YKKAR OG SETTI
ÞÆR SAMAN
VIÐ LAG MEÐ
„THE CLASH“
NÝTT LÍF HJÁ PETER PARKER...
TIL AÐ ENDURSPEGLA ÞÆR
BREYTINGAR SEM MARVEL
HEFUR GERT Í SÖGUM SÍNUM,
HÖFUM VIÐ ÁKVEÐIÐ AÐ FARA
MEÐ KÓNGULÓARMANNINN
AFTUR Í TÍMANN. HANN ER
EINHLEYPUR OG Í HÁSKÓLA.
GÓÐA SKEMMTUN!
HVAÐ
ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA Í DAG?
ÉG ÆTLA AÐ
ATHUGA HVORT M.J.
ER LAUS Í HÁDEGINU
MARY
JANE
WATSON
ER GÓÐ,
UNG
STÚLKA
TAKK FYRIR
AÐ LEYFA MÉR
AÐ GISTA
TILKYNNING TIL
RINGLAÐRA LESENDA!
Lyklakippa tapaðist
Lyklakippa með Ís-
lenska fánanum tap-
aðist 13. júlí síðastlinn
á Laugarásvegi eða í
Laugardalsgarðinum.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 865-4642.
Fundarlaun.
Þjófar í
Laugarnesinu
Ég bý í fjölbýlishúsi
Laugarneshverfinu og
svo gerðist það sunnu-
daginn 4. júlí milli kl.
20 og 21 að ræningjar
gerðu sig heimakomna
í þvottahúsi okkar. Þeir stálu þvotta-
vél, þurrkara, þvotti og reiðhjóli,
einnig stálu þeir og rótuðu í nokkr-
um geymslum. Mér þótti furðulög
tilsvör lögreglukonu sem mætti á
staðinn, er ég tjáði henni að þvotta-
vélinni minni hefði verið rænt, þá
sagði hún, var hún ekki ónýt? ég
neitaði því hún var mjög lítið notuð.
Þá bætti lögreglan við það fer nú
margt nýtt á haugana. Það er alveg
nýtt að þjófar steli beinlínis til að
flytja góssið á haugana.
Guðrún Magnúsdóttir.
Trjágróður í
Reykjavík
Ég vil taka undir með
húsmóður í Fossvog-
inum sem skrifar um
trjágróður í Reykjavík,
í Velvakanda í Morg-
unblaðinu 14. júlí síð-
astliðinn. Vona ég að
borgarstjóri láti fella
aspirnar sem fyrst og
bíði aðeins með að
planta nýjum trjám.
Ég bý nálægt KR-
vellinum sem okkur
þykir flestum vænt um
sem búum í Vestur-
bænum en þar er kom-
ið svo mikið af trjám að þetta er eins
og frumskógur og skyggir á útsýni
sem ég áður hafði og sakna.
Húsmóðir í Vesturbænum.
Lyklakippa tapaðist
Lyklakippa með Íslenska fánanum
tapaðist 13. júlí síðastlinn á Lau
arásvegi eða í Laugardals-
garðinum. Finnandi vinsamlega
hringið í síma 865-4642, fundarlaun.
Ást er…
… þegar hann skilur
eftir ástarbréf til þín, hér
og þar um húsið.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opið kl. 9-16, vinnu-
stofa opin, hádegismatur.
Árskógar 4 | Leikfimi kl. 11.
Dalbraut 18-20 | Vídeóstund kl.
13.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist á morgun kl. 20.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, matur og kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16,
botsía kl. 10, félagsvist kl. 13.30, kaffi-
sala í hléi. Böðun fyrir hádegi, hár-
snyrting, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50, Stefánsganga kl. 9, listasmiðjan
er opin, gáfumannakaffi kl. 15. Matur
og kaffi alla virka daga. Sími 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Botsía
kl. 13.30, veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | handa-
vinnustofan opin, spilað. Stóladans kl.
13.15. Matur og kaffi.
Hér í Vísnahorni hefur verið rifj-að upp sitthvað af því sem
Guðmundur á Sandi skrifaði um
þingeysk skáld um aldamótin 1900
og rekur Indriði Þórkelsson á Fjalli
restina, en Guðmundur sagði að
hann sameinaði best gamla hagyrð-
inginn og unga skáldið, – „lausavís-
ur hans eru nærri því óteljandi,“
segir hann, „og er honum víst við-
líka létt um að gera þær eins og að
tala mælt mál. En þó er hann stund-
um heilt ár með eitt kvæði. Þetta er
vandvirknin.“
Þessar vísur orti Indriði á skips-
fjöl fyrir Austurlandi og var þá um
tvítugt:
Mjúkan gang sem ör af ý
úlfur ranga hefur.
Dalatangi dimmu í
Drafnarfangi sefur.
Þessar vísur segir Guðmundur að
séu yngri að aldri:
Yfir fölva fold og höf
feigðarbyljir hvína;
haust og vetur, helja og gröf
heimta inn skatta sína.
Út um bleika og bera fold
börn sér leika án kvíða.
Her sinn eykur helja og mold.
Hugurinn reikar víða!
Eina þá, er aldrei frýs,
úti á heljarvegi,
kringda römmum álnarís
á sér vök hinn feigi.
Indriði er heimiliselskur maður:
Hugurinn aftur hraður snýr,
heima finnur sína,
þótt’ú allar brjótir brýr
bak við hæla þína.
Indriði hefur þótt vera lítið bæn-
rækinn um dagana en þó er til ein
bæn eftir hann sem Guðmundur
segist vita um:
Listamannsins lengdu töf,
líkn þín, drottinn, um hann svífi.
Sá sem tekur Gröndals gröf
gefðu hann sé í móðurlífi.
Þótt Indriði væri orðvar og góð-
máll við náungann og um hann gat
brugðið út af því:
Maðurinn, sem úti er,
undrun vekur mína:
heilanum úr höfði sér
hann er búinn að týna.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Indriða á Fjalli