Morgunblaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 33
Menning 33FÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 Það var mikil stemning í kínverska kvikmyndahúsinu Grauman’s í Hollywood síðastliðinn þriðjudag þegar stórmyndin Inception var frumsýnd. Gagnrýnendur halda vart vatni yfir henni og hefur hún nú þeg- ar hlotið 9,6 stjörnur af 10 mögu- legum á kvikmyndavefnum IMDB. Það var hinn breski Christopher Nolan sem leikstýrði og sá um hand- rit myndarinnar en hann hefur leik- stýrt myndum á borð við The Dark Knight og The Prestige. Myndin In- ception skartar meðal annars stór- stjörnunum Leonardo Di- Caprio, Michael Caine, Joseph Gordon-Levitt, Ell- en Page og Marion Cotil- lard. Myndin verður frum- sýnd hér á landi hinn 23. júlí næstkomandi. hugrun@mbl.is Reuters Stórstjörnur Nolan er þekktur fyrir að fá fræga leikara til liðs við sig. Inception-æði í Hollywood Rómantík Myndin er ekki bara byssur og hasar. Meistari Michael Caine hefur leikið í 4 myndum Nolans.Svalir Gordon-Levitt og DiCaprio með byssurnar á lofti. Sæt Leikstjórinn Christopher Nol- an og kona hans mættu í sínu fín- asta pússi. Flottur Tom Hardy leið vel í sviðsljósinu. Carrie-Anne Moss Matrix leikkonan á dreglinum. Svartur Lukas Haas ekki beint sumarlegur.Bláeygður Cillian Murphy er fagureygður. Bítillinn Paul McCartney fagnar nú sigri sínum á skyndibitakeðj- unni McDonald’s, en hann krafðist þess nýlega að plaköt af hljóm- sveit hans, Bítlunum, yrðu fjar- lægð úr útibúi hennar í heimaborg þeirra, Liverpool. McCartney hefur verið græn- metisæta frá árinu 1971 og segist ekki vilja leggja nafn sitt við neitt sem viðkemur kjötvinnslu. McCartney hefur verið iðinn við að kynna málstað sinn og léði meðal annars heimildarmynd dýraverndunarsamtakanna PETA, Kentucky Fried Cruelty, rödd sína. Þá setti hann á laggirnar bresku herferðina „Kjötfríir mánudagar,“ sem hvetur fólk til að sniðganga kjöt einn dag í viku. Enga Bítla á McDonald’s McCartney Bítillinn margfrægi hefur ekki borðað kjöt í tæplega 40 ár. Í fyrsta sinn sem Daniel Radcliffe tók þátt í Broadway-sýningu var hann mestmegnis nak- inn í leikritinu Equus. Í þetta skiptið verður hann hins vegar í fötum og mun þurfa að syngja heilmikið. Harry Potter-stjarnan tekur þátt í söngleik í fyrsta sinn á fimmtugustu afmælisuppsetningu sýningarinnar How to Succeed in Business Without Really Trying á Broadway sem myndi útleggjast „Hvernig á að ná árangri í við- skiptum, eiginlega án þess að reyna það.“ Sýningar hefjast í febrúarmánuði á næsta ári og mun Daniel leika J. Pierrepoint Finch, ungan mann sem rís fljótt í viðskiptaheiminum, úr póstdeildinni yfir í skrifstofu aðstoðarforstjór- ans. Söngleikurinn var síðast settur á svið árið 1995 með hinum góðkunnu leikurum Matthew Broderick og Megan Mullally í aðalhlutverkum. Þá mun Tony- og Emmy-verðlaunahafinn Rob Ashford sjá um leikstjórn og dans sýning- arinnar sem verður frumsýnd þann 26. febrúar. Daniel Radcliffe á Broadway Broadway Daniel Radcliffe tekur þátt í uppsetningu þekkts söngleiks á Broadway.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.