Morgunblaðið - 15.07.2010, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.07.2010, Qupperneq 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 ✝ Þrúður Þórhalls-dóttir fæddist 9. september 1957 í Reykjavík. Hún lést 26. júní 2010 á Land- spítalanum í Kópa- vogi. Foreldrar hennar eru Þórhallur Ein- arsson frá Djúpalæk, f. 30.7. 1930, og Þóra Þorsteinsdóttir, f. 20.8. 1930. Þórhallur og Þóra slitu sam- vistir. Þórhallur býr með Jónínu Þor- steinsdóttur, f. 14.8. 1932. Systkini Þrúðar eru 1) Þórdís G. Þórhalls- dóttir, f. 1950, maki Flosi Krist- insson, f. 1929. 2) Þorsteinn Þór- hallsson, f. 1955, d. 1991, maki Sigurlaug Sigurðardóttir, f. 1959. Árið 1978 giftist Þrúður Sigurði Reyni Magnússyni, f. 1952, d. 2009. Börn þeirra eru: 1) Eva Sædís, f. hún saumaklúbb ásamt sex sam- starfskonum sínum sem hún hélt mikla tryggð við. Saumaklúbbinn nefndu þær „Það lagast í þvotti“. Árið 1999 flutti hún ásamt fjöl- skyldu sinni til Sönderborg í Dan- mörku. Þar starfaði hún í Br. Möll- er-verksmiðjunni til ársins 2009. Í nóvember 2009 fluttist Þrúður til Kaupmannahafnar og bjó þar nán- ast til dánardags. Í Danmörku ákvað Þrúður að taka sér millinafn sökum erfiðleika Danans við að bera fram nafnið hennar. Valdi hún nafnið Anna og gekk undir því í samskiptum sínum við Dani. Aðrir þekktu hana sem Þrúði. Þrúður lagði mikla stund á útivist og hreyf- ingu og var um tíma meðlimur í gönguhópi í Sönderborg. Einnig hafði hún mikla unun af alls kyns föndri og handavinnu. Hún lagði mikla rækt við fjölskyldu sína og vini. Hún kom reglulega til Íslands í heimsóknir. Barnabörn Þrúðar veittu henni mikla gleði og naut hún þeirra stunda sem hún átti með þeim. Útför Þrúðar hefur farið fram. 29.10. 1976, maki Snorri Marteinsson, f. 1976, börn þeirra eru Júlíus Patrik, f. 2005, og Hilmir Örn, f. 2007. 2) Davíð Sindri, f. 12.8. 1979. 3) Magn- ús, f. 4.2. 1989. Þrúð- ur og Reynir skildu árið 2003. Þrúður flutti til Ak- ureyrar fimm ára gömul og eyddi þar uppvaxtarárum sín- um. Hún lauk gagn- fræðaprófi og einni önn í framhaldsdeild gagnfræða- skólans 1975. Þrúður fór til Seyð- isfjarðar 17 ára gömul þar sem hún kynntist Sigurði Reyni, fyrrverandi eiginmanni sínum. Árin 1975-1982 bjuggu þau á Akureyri. Lengst af bjó hún á Egilsstöðum þar sem hún starfaði sem afgreiðslumaður hjá Pósti og síma. Á þeim tíma stofnaði Elsku mamma. Minningarnar streyma fram í stríðum straumum og tárin brjóta sér leið í gegnum skelina. Ó hve sárt ég sakna þín. Ég trúi því ekki enn að þú sért farin. Þú sem varst í blóma lífsins og áttir svo margt eftir að upplifa og gera. Ég minnist allra góðu stundanna. Yndislegu ferðarinnar þegar við fór- um saman til Tenerife þar sem við flatmöguðum á ströndinni og reynd- um eftir bestu getu að prófa alla veit- ingastaðina við strandlengjuna. Einn- ig má nefna óteljandi búðarferðirnar í Danmörku og ósjaldan fórum við og skönnuðum búðirnar hinum megin landamæranna í Þýskalandi. Ævin- lega drógumst við heim seint að kvöldi með fangið fullt af pokum og ónýta fótleggi. Ógleymanleg er stundin þegar þú leiddir mig upp að altarinu. Þú varst svo glæsileg í fallega kjólnum þínum og brosunum rigndi yfir okkur. Stolt- ið var mikið þann dag og dagurinn yndislegur í alla staði. Ég gleymi því aldrei hversu stolt amma þú varst þegar barnabörnin þín fæddust. Þú elskaðir litlu pjakk- ana þína eins og þú kallaðir þá, Júlíus Patrik og Hilmi Örn. Þið lékuð ykkur saman löngum stundum. Mér þykir svo sárt að vita til þess að litlu dreng- irnir þínir munu ekki alast upp með ömmu Þrúði. En þeir munu muna þig og elska þig, ömmu Þrúði sem kunni svo sannarlega að leika. Júlíus Patrik ber mikinn svip af ömmu sinni og svipbrigði. Hann segir þig núna vera flogna upp til Guðs þar sem þú hafir lifnað við og sért ekki lengur lasin. Þig langaði til að gera svo margt með ömmugullunum þínum og það síðasta sem þú talaðir um var að fara í útilegu, kveikja bál og grilla brauð á spjóti. Við gerum það til minningar um þig. Við ætluðum okkur svo margt sam- an, við ætlum að taka þátt í jólamark- aði í Kaupmannahöfn fyrir næstu jól og framleiða alls kyns dót eins og okk- ur var einum lagið. En vittu til ég stefni enn á það. Ég veit að þú verður með mér. Elsku mamma mín. Ég vona að þér líði vel í nýju lífi, lítir til okkar annað slagið og vakir yfir okkur. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir, þá líður sem leiftur úr skýjum, ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgrímur Pétursson) Ég sakna þín ætíð og elska þig eilíf- lega. Þín dóttir, Eva Sædís. Elskuleg systir mín, hún Þrúður, er látin eftir stutt en erfið veikindi. Það er svo ótrúlegt og erfitt að sætta sig við það, en svona er lífið. Hún var mikill gleðigjafi og áttum við mjög skemmtilegar samverustundir bæði sem börn og ekki síður fullorðnar. Hún og Steini bróðir voru hjá mér sem unglingar í sveit, tóku upp kart- öflur og snerust í kringum mig. Nú eru þau bæði horfin. Þrúður var hörkudugleg og mikill húmoristi, það var engin lognmolla kringum hana og sá mátti vera dauðyfli sem ekki hreifst með. Við eignuðumst dætur með mánaðarmillibili árið 1976 og urðum á þeim tíma enn nánari vin- konur. Þrúður hafði mikla þörf fyrir breytingar, hún bjó á Akureyri í nokkur ár, á Seyðisfirði, í Noregi og síðan lá leiðin í Egilsstaði þar sem fjölskyldan bjó lengi. Við heimsóttum þau þangað flest sumur og þá var ým- islegt brallað og oft lyft glasi. Árið 1999 var enn komið að flutningum, í þetta sinn til Danmerkur. Við minn- umst sérstaklega mjög skemmtilegra bréfa þar sem Þrúður lýsti ferðalag- inu frá Íslandi til Sönderborgar á sinn einstaka hátt. Við þessa búferla- flutninga fækkaði samfundum en ómetanleg eru öll bréfin hennar Þrúðar sem hún sendi til fjölskyld- unnar heima á þessum árum. Við heimsóttum hana 2007 í tilefni af fimmtugsafmælinu, þá bauð Þrúður til mikillar veislu og ættingjarnir frá Íslandi fjölmenntu á staðinn. Þá kom eðlislæg gestristni hennar vel í ljós, þar sem hún snerist kringum fólkið í fleiri daga, reddaði gistingu, mat og skemmtunum fyrir hópinn. Hún lagði sig svo sannarlega alla fram við að gera öllum dvölina sem ánægjuleg- asta og naut þess mjög að hafa allt fólkið sitt hjá sér. Þetta var ógleym- anleg ferð og allir fóru heim með hlýj- ar og góðar minningar. Eftir að Þrúð- ur eignaðist ömmustrákana sína kom hún oftar og var hér heima um jól og áramót. Þrúður var hjá mér um áramótin 2007-08 og fengu barnabörnin mín að njóta samvista við hana, það var farið í pakkaleik sem lengi verður í minn- um hafður og verður örugglega end- urtekinn. Á nýársdaginn gengum við Þrúður kringum Höfðann og rifjuð- um upp gamlar endurminningar og nutum fegurðar Eyjafjarðar. Sumar- ið 2009 fórum við austur í Egilsstaði með Þrúði og áttum góða daga þar. Þá var Þrúður sjálfri sér lík, hress og skemmtileg. Fyrrihluta vetrar fór hún að kenna sér meins og kom fljót- lega í ljós að við veikindin yrði ekki ráðið. Og kannski er það við hæfi að manneskja sem elskaði lífið líkt og Þrúður gerði, kveðji þetta líf einmitt þegar náttúran öll iðar af lífi. Við fjöl- skyldan þökkum fyrir allar yndislegu samverustundirnar. Ég er svo angurvær og einmana í kvöld. En við þig, vina kær, er vona minna fjöld tengd, og ást mín öll er einni helguð þér. Svo mild og hrein sem mjöll þín mynd í hug mér er. Ég hrópa gegnum geim. Ég græt í húmið svart. Ó, komdu, komdu heim í kvöld, svo aftur bjart verði, vina kær. Ég veit þú kemur. Þó er ég svo angurvær en ætla að bíða í ró. (Kristján frá Djúpalæk) Þórdís Guðrún og fjölskylda. Elskulega Þrúður mín, yndislega mágkona. Ég kveð þig með djúpum söknuði og þessum línum. Það er svo óraunverulegt að þú sért dáin. Ég spyr mig hvað veldur en fæ fá svör, en hugga mig við að þú sért í góðu hlut- verki, nú laus við þjáningar. Á milli okkar hefur ætíð ríkt traust og ein- lægni sem er nú gott fyrir mig að eiga í hjarta mínu. Þú gekkst í gegnum ýmsar hindranir og stundum í dimm- um dal, samt náðir þú að vinna já- kvætt upp á við með þinni góðu sann- færingu. Elsku Þrúður mín, ég gleymi aldrei kökuboðunum þínum í afmælum, á jólum og við hin ýmsu tækifæri. Þú varst driffjöðrin í að halda afmæli fyrir tengdamömmu þína er hún varð 60 ára á heimili þínu á Egilsstöðum. Gerðir þetta mest ein, bara að vakna snemma eins og þú orðaðir það. Ég heimsótti þig oft í Danmörku á meðan þú bjóst þar og alltaf var mjög gaman að hittast, hlæja og ræða málin. Það gastu að- eins gert líka eftir að þú komst til Ís- lands 3. júní síðastliðinn. Alltaf stutt í húmorinn þinn. Ég hef margs að minnast og mikils að sakna. Geymi það í huga mínum. Vinur minn hvar sem í heiminum er heyrðu mitt ákall og liðsinntu mér reynum að uppræta angur og kvöl afnema stríðsins böl. Stöndum við saman og störfum sem eitt stefnunni ef til vill getum við breytt smíðum úr vopnunum verkfæri þörf verum í huga djörf. Burt með hræðslu sem byrgð er inni, burt með hatrið úr veröldinni, burt með sprengjur sem brenna svörð, biddu með mér um frið á jörð. Burt með hungur og burt með sorgir, burt með deilur og hrundar borgir, burt með sprengjur sem brenna svörð biddu með mér um frið á jörð. Berum upp alls staðar bænina um frið, bænina stærstu sem nú þekkjum við, bænina einu sem bjargað nú fær barninu frá í gær. Elskulegum ástvinum votta ég mína dýpstu samúð. Minningin lifi. Þín Anna K. Magnúsdóttir. Ekki grunaði mig það fyrir rúmum þremur mánuðum að ég ætti eftir að sitja hérna í dag og skrifa minning- argrein um þig elsku frænka. Það kom fljótt í ljós þegar læknarnir voru búnir að finna út hvers kyns var að engin lækning væri til og að þú ættir ekki langt eftir. Þegar ég hugsa til baka man ég eft- ir því þegar við heimsóttum þig á Eg- ilsstaði í „gamla daga“. Það voru alltaf allir velkomnir á Faxatröðina og þú varst ætíð hrókur alls fagnaðar. Það var eitt sem var pottþétt að þegar þú varst annars vegar þá leiddist engum. Í dag get ég huggað mig við þær minningar sem ég á um þig elsku frænka og þá sérstaklega þegar við fórum öll fjölskyldan út til Danmerk- ur í fimmtugsafmælið þitt. Það var yndislegur tími og gaman að koma til Sönderborgar og sjá hvernig þú bjóst. Að sjálfsögðu var mikið stuð í afmælinu og ég held að allir hafi verið hæstánægðir með þennan tíma sem við áttum saman stórfjölskyldan. Mikið var ég ánægð að þú skyldir geta komið heim til Íslands og átt síð- ustu vikurnar hérna heima með okk- ur sem þykir svo vænt um þig. Það var svo gott að hitta þig dúllan mín og þú varst nú bara nokkuð lík sjálfri þér, alltaf sama gellan og húmorinn í lagi þrátt fyrir veikindin. Nú er erfiður tími framundan án þín elsku Þrúður mín og skal ég gera mitt besta til að standa við bakið á þeim sem eiga um sárt að binda. Því okkar missir er mikill og er erfitt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta þig aftur. En ég veit að það hef- ur verið tekið vel á móti þér þarna hinum megin og ef ég þekki ykkur rétt eigið þið systkinin eftir að skemmta ykkur vel saman og passa vel hvort upp á annað. Að lokum langar mig að biðja góð- an Guð að styrkja Evu, Snorra, Júl- íus Patrik, Hilmi Örn, ömmu Þóru, Dísu, afa og Ninnu og alla þá sem eiga um sárt að binda. Þín bróðurdóttir, Þóra Guðrún. Síðast er ég sá þig sastu meðal rósa er þú eigin höndum annast mjúklátt hafðir. Frostnótt hefur fölva fegurð þeirra slegið eins og aldurtili ásýnd þína bjarta. Himinninn á hæli handa hverju barni sínu, sérhvers hnattar. Sól er allra móðir. Grátum eigi, gleðjumst, gata hver er heimleið, villugjörn, en vörðuð vitum, Drottins orði. (Kristján frá Djúpalæk) Fjörkálfur er farinn. Við þökkum allar samverustundirnar, umhyggju, hlátur og skemmtun. Ásta, Þorkell og krakkarnir. „Það lagast í þvotti“ kveður nú góðan félaga. Þrúður stofnaði sauma- klúbbinn ásamt öðrum starfsmönn- um Pósts og síma á Egilsstöðum fyr- ir 23 árum. Inngönguskilyrði voru að hafa starfað hjá póstinum og vísar nafnið til þess að með þvotti mátti laga prjónlesið. Þrúður var næstelst okkar en aldursmunurinn spannar 12 ár. Vináttan nær langt út fyrir klúbb- inn og samgangur er mikill. Við höf- um gengið saman í gegnum súrt og sætt og kallaði Þrúður það „að eiga fortíð saman“. Þegar einhver hefur þurft á hjálp að halda er það sjálfsagt að aðrir meðlimir mæti og bjóði fram aðstoð. Nú síðast var það Þrúður sem háði erfitt en stutt stríð við illvígan sjúkdóm. Klúbburinn reyndi að koma til aðstoðar eins og hægt var til stuðnings dóttur hennar, móður og systur sem stóðu vaktina til síðustu stundar. Það er ekki nema ár síðan börn hennar kvöddu föður sinn einn- ig eftir erfið veikindi. Ýmsar fastar hefðir hafa skapast með árunum í saumaklúbbnum eins og t.d. árlegar helgarferðir í sumarbústað þar sem makar og börn eru skilin eftir heima. Þrúður setti þá kröfu strax í upphafi að makar fengju ekki að vera með nema örsjaldan; „þeir geta verið svo leiðinlegir þessir karlar“. Þrúður og fjölskylda flutti til Danmerkur fyrir 11 árum, hún hélt samt áfram að starfa með klúbbnum eins og kostur var og var alltaf í góðu sambandi. Þá fór klúbburinn einnig í heimsóknir til hennar og síðast mætti hópurinn í fimmtugsafmæli hennar fyrir þrem- ur árum. Að sjálfsögðu voru karlarn- ir ekki með en þeir sendu henni þó gjöf, þ.e. fjöl úr hverjum rúmstokki þeirra. Hún átti það nefnilega til að heimsækja þá á rúmstokkinn þegar svo bar undir „svona rétt til að spjalla aðeins“. Eftir eitt slíkt tilvik þegar hún hafði vakið einn bóndann upp um miðja nótt lýsti hún því þannig: „Það var skelfing í augunum á honum!“ Sl. sumar kom Þrúður til Egilsstaða og varð þá glatt á hjalla að vanda. Setið var fram undir morgun úti í garði og hlegið mikið, truflaði það fegurðar- blund tilvonandi brúðar í næsta húsi sem ætlaði að gifta sig morguninn eft- ir. Vakti það mikla kátínu þegar Eva dóttir Þrúðar kom með þessi tíðindi úr brúðkaupi vinkonu sinnar. Margar góðar minningar tengjast Þrúði og má þar t.d. nefna óveðursbrókina hennar. Í hvert sinn sem hún skellti sér í stuttbuxurnar rauðu breyttist veðrið til hins verra. Þá reyndi hún að „vippa“ myndarlegum mönnum að ólofuðu konunni í klúbbnum. Hún vildi láta taka mynd af betri fókusn- um en meinti prófílnum. Þrúður skildi ekki alltaf strax tvíræða brandara og er fræg sagan af henni þar sem hún skildi ekki einn slíkan fyrr en hún löngu síðar var að undirbúa kleinu- bakstur og akkúrat þegar hún togaði hornið í gegnum gatið á kleinunni átt- aði hún sig á brandaranum. Upp úr því kom máltækið okkar „æ farðu að snúa í kleinum“. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (Vald. Briem) Sendum börnum Þrúðar, þeim Evu, Davíð og Magnúsi, foreldrum og öðrum vandamönnum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sólveig, Málfríður Ó., Þóra Sigríður, Málfríður B., Svanfríður og Sigurlaug. Kær vinkona mín og fyrrverandi svilkona Þrúður Þórhallsdóttir hefur nú kvatt eftir stutta en erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Þann tíma sem Þrúður dvaldist hér heima eftir að hún veiktist gafst mér tækifæri til að eiga með henni stundir nánast dag- lega. Fyrir þessar stundir er ég óend- anlega þakklát. Þær hafa orðið til þess að vekja hjá mér hugleiðingar um tilgang lífsins. Það er svo erfitt að skilja hvers vegna okkur er ætlaður mislangur tími hér á jörð og hversu auðvelt er að upplifa það sem órétt- læti, þegar fólk er tekið frá fjölskyldu og vinum allt of snemma. Ég kýs að trúa því að okkur séu ætluð ákveðin hlutverk hér og þegar þeim er lokið þá kveðjum við og tökumst á við æðri hlutverk sem okkur eru ætluð á öðr- um stað. Þrátt fyrir trú mína finn ég fyrir depurð og söknuði, en um leið er ég þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Þrúði og að leiðir okkar skyldu liggja saman um tíma. Ég kynntist Þrúði þegar við vorum ungar, að stofna heimili austur á landi. Þar sem við vorum giftar bræðrum voru samskipti töluverð milli heimila okkar og margar minn- ingar hafa leitað á hugann síðustu daga og vikur. Við fluttum síðan á svipuðum tíma frá Austurlandi, ég til Reykjavíkur en Þrúður til Danmerk- ur. Þar sem fjarlægðin var mikil hitt- umst við lítið fyrst eftir að við fluttum en héldum þó alltaf tengslum. Svo skrítið sem það nú er, þá hafa tengsl okkar og vinátta styrkst á síðustu ár- um. Þrúður kom reglulega til Íslands að heimsækja fjölskyldu og vini. Þeg- ar við hittumst ræddum við um lífið og tilveruna, deildum gleði og sorg- um, sigrum og ósigrum. Þrúður var hjartahlý, glaðlynd, trygg vinum sínum og bar mikla um- hyggju fyrir fjölskyldu sinni, ekki síst litlu ömmustrákunum tveim. Hún tal- aði oft um að hún vildi gjarnan að það væri styttra á milli Íslands og Dan- merkur svo hún gæti hitt þá oftar. Heimsóknum hennar fylgdu skemmtilegar frásagnir, gleði og hlát- ur. Þrúður fékk sinn skammt af erf- iðum verkefnum og mótlæti í lífinu en hún tókst á við hvert þeirra af æðru- leysi og eftir bestu getu. Minning um einstaka konu er ljós sem lifir með okkur, sem nutum þess að verða samferða henni hér á jörð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ég og fjölskylda mín kveðjum Þrúður Þórhallsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.