Fréttablaðið - 14.12.2011, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 14.12.2011, Blaðsíða 51
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2011 39 Verð frá 5.690.000 kr. SUND Anton Sveinn McKee og Eygló Ósk Gústafsdóttir voru sigursæl á Norðurlandameistaramóti ung- linga sem fram fór í Laugardals- höllinni um helgina, unnu saman sjö einstaklingsgull og náðu bestu afrekum mótsins. Anton vann fjóra Norðurlandameistaratitla og setti tvö Íslandsmet en Eygló Ósk vann þrjá Norðurlandameistaratitla og setti tvö Íslandsmet. Bæði hafa þau verið að bæta sig mikið undir stjórn Frakkans Jacky Pellerin sem var að sjálfsögðu himinlifandi með árangur helgarinnar. „Þetta var mjög gott hjá þeim báðum. Ég er mjög ánægður enda lögðu þau mikið á sig fyrir þetta mót. Við gerðum með okkur samn- ing fyrir mótið og þau stóðu við hann,“ segir Jacky Pellerin og útskýrir samninginn nánar. „Anton átti að ná 15:15 í 1500 metrunum og hann fór næstum því fimmtán sekúndum hraðar en það og Eygló átti að ná 2:07 í 200 metra baksundi sem og hún gerði. Þetta er mitt fimmta tímabil með þau og þau hafa lagt mikið á sig til að ná þess- um árangri. Þessi árangur kemur mér því ekki á óvart,“ segir Pell- erin sem setti Norðurlandamótið í forgang. „Ég sagði við þau fyrir Íslands- meistaramótið að þau myndu ekki toppa þar. Við settum stefnuna á það að þau myndu synda hraðar á Norðurlandamótinu því að mínu mati var það mót stærra og mikil- vægara. Núna vitum við hvað þau geta gert,“ segir Pellerin sem er bjartsýnn á enn frekari bætingar. „Þau geta bæði bætt sig meira. Aðalmarkmiðið hjá Eygló núna er að ná að synda 200 metrana á 2:10 í löngu lauginni og ná A-lágmark- inu fyrir Ólympíuleikana og fyrir Anton að ná að synda 1500 metrana á 15:15 í löngu brautinni sem myndi líka nægja honum til að komast inn á Ólympíuleikana,“ segir Pellerin. „Þessir krakkar eru frábærar fyrirmyndir fyrir önnur börn á Íslandi. Þau búa á Íslandi, æfa á Íslandi og standa sig frábærlega. Þau berjast alltaf til enda og gef- ast aldrei upp,“ segir Pellerin og hann vill halda áfram að vinna með þeim. „Margir erlendir þjálfarar koma til Íslands og fara síðan aftur eftir aðeins eitt til tvö ár. Þegar ég sá þessa krakka þá sagði ég við sjálf- an mig: Ég er með gull í höndun- um og þess vegna ætla ég að halda áfram að vinna með þeim. Ég er mjög stoltur af þeim,“ segir Pell- erin. Anton og Eygló fá bæði rólega viku eftir ævintýri helgarinnar. „Þau fá að taka því svolítið rólega í þessari viku því ég get ekki allt- af pressað á þau,“ segir Pellerin að lokum. - óój Jacky Pellerin var ánægður með árangur Antons Sveins og Eyglóar Óskar á NM unglinga í sundi um helgina: Sá strax að ég var með gull í höndunum ANTON SVEINN MCKEEEYGLÓ ÓSK GÚSTAFSDÓTTIR Norðurlandameistararnir Ísland eignaðist alls tíu Norðurlanda- meistara á NM unglinga í sundi sem fram fór í Laugardalslauginni um helgina. Anton Sveinn McKee 400 metra skriðsund 3:52.06 mín. 50 metra bringusund 28,22 sek. 400 metra fjórsund 4:18,12 mín. 1500 metra skriðsund 15:01,35 mín. Eygló Ósk Gústafsdóttir 200 metra baksund 2:07,10 mín 50 metra baksund 28,23 sek. 100 metra baksund 59,75 sek. Inga Elín Cryer (sjá mynd fyrir neðan) 400 metra fjórsund 4:49,03 mín. 800 metra skriðsund 8:41,79 mín. Orri Freyr Guðmundsson 50 metra skriðsund 23,07 sek.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.