Fréttablaðið - 14.12.2011, Blaðsíða 10
14. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR10
arionbanki.is — 444 7000
Glæsileg gjöf fylgir
Framtíðarreikningi
Við stofnun eða innlögn á Framtíðarreikning
barns að upphæð 5.000 kr. eða meira fylgir
Stóra Disney Köku- & brauðbókin með*.
Tilvalin jólagjöf sem vex með barninu.
Komdu við í næsta útibúi Arion banka.
Framtíðarreikningur — gjöf til framtíðar
*Á meðan
birgðir endast
1. Hvað heitir sigurvegari þáttarins
Dans dans dans?
2. Hverjir stóðu fyrir jólahlaðborði
um síðustu helgi þar sem tveir
menn voru handteknir í kjölfarið?
3. Hver átti flest mörk hjá íslenska
liðinu í HM í handbolta í Brasilíu?
SVÖR
1. Berglind Ýr Karlsdóttir 2. Hells Angels
3. Karen Knútsdóttir
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra segir Íslend-
inga myndu verða engu nær ef
aðildarumsókn að Evrópusam-
bandinu yrði dregin til baka nú.
Hann vill ekki að taugaveiklun
yfir ástandinu í Evrópu nú hafi
áhrif á það sem Alþingi samþykkti
á vordögum 2009. Þetta kom fram í
umræðum á Alþingi í gær.
„Þá fyrst væri sá leiðangur til
lítils og við værum bókstaflega
engu nær ef við allt í einu hættum
nú eða slægjum viðræðum á frest.
Ég vil fá efnislega niðurstöðu sem
þjóðin getur notað til að móta
stefnu sína varðandi Evrópusam-
bandið,“ sagði Steingrímur.
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
maður Framsóknarflokksins,
og Illugi Gunnarsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, spurðu
Steingrím út í afstöðu hans varð-
andi umsóknina. Báðir töldu þeir
að efnahagsástandið í Evrópu
og þær aðgerðir sem grípa á til
vegna þess sýndu að réttast væri
að draga umsóknina til baka.
„Nú þegar liggur fyrir að
umsókn að Evrópusambandinu
þýðir jafnframt aðild að samstarfi
evruþjóða, er þá ekki eðlilegt að
stöðva viðræðuferlið, leggja mat á
stöðuna og leyfa þjóðinni síðan að
leggja sitt mat á stöðuna um hvort
haldið verði áfram?“ spurði Illugi.
Steingrímur sagðist ósammála
því að umsókn nú þýddi aðild að
evrusamstarfi. Ekki væri sjálf-
gefið að þau lönd sem nú gengju
inn í ESB myndu nokkru sinni
taka evruna upp. Hann vísaði í
Svía sem felldu evruna í þjóðar-
atkvæðagreiðslu og að krafan
um slíka þjóðaratkvæðagreiðslu í
Danmörku væri þögnuð.
„Að sjálfsögðu fylgjumst við
grannt með hvernig menn glíma
við vandann og hvaða skorður það
setur, til dæmis varðandi sjálf-
stæðan gjaldmiðil,“ sagði ráð-
herra.
Hann sagðist talsmaður auk-
ins aga í fjármálum, en vildi ekki
skrifa upp á það pólitískt að missa
sveiflujöfnunartæki ríkisins úr
höndunum, með sjálfstæðum
gjaldmiðli.
Illugi vísaði í reglur Evrópusam-
bandsins og sagði að þeim ríkjum
sem gangi í sambandið beri að taka
upp evruna. Steingrímur sagði
málið ekki svo einfalt og taldi Ill-
uga gera ítrekaðar tilraunir til að
fá velþóknun hans yfir niðurstöðu
landsfundar Sjálfstæðisflokksins;
að kjósa um áframhaldandi við-
ræður. Hann sagðist hafa skýrt
afstöðu sína til Evrópusambands-
ins fjórum sinnum á einni viku og
hún hefði ekkert breyst.
kolbeinn@frettabladid.is
Vill klára að
semja og þjóð-
in fái að kjósa
Fjármálaráðherra segir ekki sjálfgefið að þau lönd
sem gangi inn í ESB muni taka upp evru. Hann
vísar í þjóðaratkvæðagreiðslu Svía. Segir Íslendinga
engu nær ef þeir slitu aðildarviðræðum nú.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Segir ekki sjálfgefið að ný aðildarríki að Evrópusambandinu
þurfi að taka upp evru. Hann vill ljúka samningum og bera undir þjóðina; annars
væri til lítils farið í þann leiðangur sem aðildarviðræður eru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ILLUGI
GUNNARSSON
GUNNAR BRAGI
SVEINSSON
EVRÓPUSAMBANDIÐ Herman van Rompuy, forseti
leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segist vera
bjartsýnn á framtíð evrunnar þrátt fyrir erfið-
leikana sem nú steðja að.
Þegar litið verði til baka muni menn sjá að
árið 2011 var ekki neitt „annus horribilis“, eða
hræðilegt ár, eins og flestum sýnist nú vera,
heldur hafi það verið ár kraftaverkanna, „annus
mirabilis“, nefnilega árið þegar grunnur var
lagður að nýju fyrirkomulagi fjármála sem
tryggir að kreppan endurtaki sig aldrei.
Hann sat fund Evrópuþingsins í gær ásamt
José Manuel Barroso, forseta framkvæmda-
stjórnar ESB, þar sem þeir gerðu grein fyrir
ákvörðunum leiðtogaráðsins í síðustu viku og
svöruðu spurningum þingmanna. Barroso sagði
Breta hafa gert kröfur á leiðtogafundinum í síð-
ustu viku sem hefðu stefnt innri markaði ESB-
ríkjanna í voða. Því hefði ekki verið hægt að
ganga að þeim. Hins vegar hafi tekist að koma í
veg fyrir klofning Evrópusambandsins, því leið-
togar allra aðildarríkjanna hafi lýst yfir vilja til
að vera með í væntanlegu fjármálabandalagi.
„Þeir sýndu að þeir vilja meira Evrópusam-
band, ekki minna,“ sagði Barroso. Þetta verði
því ekki samkomulag sautján ríkja að nokkrum
viðbættum, heldur samkomulag 27 ríkja að einu
undanskildu. - gb
Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins segir árið 2011 vera ár kraftaverkanna:
Bjartsýnn á framtíð evrusvæðisins
GERÐU EVRÓPUÞINGINU GREIN FYRIR LEIÐTOGAFUNDI
José Manuel Barroso fylgist með Herman van Rompuy
flytja ávarp sitt. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Hjálpræðisherinn
verður ekki með jólaaðstoð í
formi matargjafa fyrir þessi jól.
Ástæðan er erfið fjárhagsstaða
samtakanna.
Hjálpræðisherinn útdeildi
matarpökkum allt árið í fyrra og
tæmdi það sjóði hans. Því hafa
samtökin ákveðið að vera í sam-
starfi við aðra sem sinna hjálpar-
störfum og styrkja þá með ýmsum
hætti.
Áfram verður þó jólamatur í
húsakynnum Hjálpræðishersins
á aðfangadag. 200 manns koma að
jafnaði í jólamatinn á aðfangadag.
Fyrir þeim mat er safnað með jóla-
pottum sem eru víða um borgina
fyrir jólin. - þeb
Engin mataraðstoð fyrir jól:
Hjálpræðisher-
inn einbeitir sér
að jólamatnum
VEISTU SVARIÐ?