Fréttablaðið - 14.12.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.12.2011, Blaðsíða 12
14. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR12 VINNINGASKRÁ Vinningaskrá - hausthappdrætti 2011. Dregið 9. desember 2011 1. vinningur: Chevrolet Captiva LT, 2,2 diesel, 184 hö, sjálfskiptur, sjö manna, frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 6.290.000 82545 2. vinningur: Chevrolet Aevo LT, 1,6l, sjálfskiptur, frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 2.990.000 33585 3. vinningur: Chevrolet Spark LS, 1,2l, beinskiptur, frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 1.990.000 131502 4. - 28. vinningur Ferðavinningar að eigin vali frá Heimsferðum. Hver að verðmæti kr. 500.000 2749 32206 79383 105803 124997 3752 44298 83393 113766 127535 8044 51962 91160 115493 132442 20993 62034 93993 116147 133621 30216 76888 98592 122891 147870 29. - 78. vinningur: Ferðavinningar að eigin vali með Heimsferðum. Hver að verðmæti kr. 250.000 3022 29230 52201 61880 69073 81239 99155 118017 127518 137701 7940 36640 56426 62385 72991 82645 103098 120485 134096 144311 9488 39705 57455 64137 76002 83249 103936 123992 134608 144678 15425 40629 59820 64643 76953 85191 111247 124061 136700 147500 28374 43058 60151 66389 79962 92434 111851 124572 136822 150150 79.- 178. vinningur Apple iPad 2 spjaldtölva, 32GB 3G/Wi-Fi svart, frá Epli.is, hver að verðmæti kr. 129.900 523 14514 37196 57195 72821 83311 95984 109258 121879 136569 5279 15903 38977 60441 74416 84353 97380 111694 122451 136878 6438 18374 45007 60949 75434 87457 97746 111742 126628 138314 7159 22645 46877 61903 76610 87788 99721 112580 126742 138672 7535 24429 49122 65076 79774 88792 100977 113739 128788 139119 7646 24748 49317 65922 81191 88892 101775 113743 131119 145973 7878 25605 50700 66532 81249 91059 102464 114639 131513 146524 9457 32477 52022 66538 82507 92266 102652 117801 133230 147982 13101 34931 52699 68547 82728 93655 106557 118272 133747 148024 14062 35327 54973 71064 83293 94229 107851 121631 135313 150757 179. - 208. vinningar Gjafakort Kringlunnar, hvert að verðmæti kr. 25.000 5651 22106 45047 72859 83605 118340 6101 24197 47542 73439 93875 126118 11605 27815 49901 75517 94104 126781 12898 34083 61262 79134 96782 137507 20258 44480 62792 79917 114087 140579 Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17. Upplýsingasími 525 0000 Birt án ábyrgðar FÉLAGSMÁL Stjórn Lögmanna- félags Íslands segir í svari sínu við erindi Agnars Kristjáns Þor- steinssonar og Ísaks Jónssonar vegna ummæla hæstaréttarlög- mannsins Sveins Andra Sveins- sonar að stjórnin fari ekki með mál vegna meintra brota lög- manna á lögum eða siðareglum. Sjálfstæð úrskurðarnefnd félags- ins fer með slík mál. Sveinn Andri skrifaði á Face- book-síðu sína á dögunum að móðir stúlkunnar sem kærði Egil Einarsson og kærustu hans fyrir nauðgun væri áhrifamanneskja innan VG og ætti hann bágt með að trúa því að það væri til- viljun að dótt- ir hennar hefði kært hann fyrir nauðgun, sér í lagi í ljósi þess að femínistar hötuðu Egil. Agnar og Ísak skrifuðu opið bréf til stjórnar Lög- mannafélagsins í kjölfarið, þar sem skorað var á félagið að taka skrif Sveins Andra til umfjöllunar. „Að ákveðnu leyti veldur þessi yfirlýsing okkur vonbrigðum þar sem við töldum fullt tilefni til þess að Lögmannafélagið sjálft tæki afstöðu til þess og léti úrskurða um þessi ummæli [...]“ segja Agnar Kristján Þorsteinsson og Ísak Jónsson við svari stjórnarinnar. Agnar og Ísak segjast í því framhaldi skoða næstu skref og athuga hvort sú leið sé fær að leggja fram formlega kvörtun til úrskurðarnefndar Lögmanna- félagsins. Auk þess skora þeir á þá sem brotið er á í þessu tilviki að gera slíkt hið sama. - sv Lögmannafélag Íslands mun ekki taka erindi vegna Sveins Andra til umfjöllunar: Svar stjórnarinnar vonbrigði SVEINN ANDRI SVEINSSON VÍSINDI, AP Vísindamenn við sterk- eindahraðal evrópsku kjarnorku- rannsóknastöðvarinnar (CERN) á landamærum Sviss og Frakk- lands hafa fundið forvitnilegar vísbendingar um tilvist Higgs- bóseindarinnar. Um er að ræða helsta markmið dýrustu vísinda- tilraunar allra tíma en vísinda- mennirnir vonast til þess að geta svarað spurningunni um tilvist hennar að fullu á næsta ári. Sterkeindahraðallinn hefur verið keyrður með sífellt meiri orku síðustu mánuði og hefur nú tekist að þrengja verulega það orkubil sem eindin kann að leyn- ast á. Þá hafa fundist vísbending- ar um hana á ákveðnum gildum bilsins þótt þær nægi ekki til að kveða upp stóradóm. Í sterkeindahraðlinum er fram- kallaður árekstur róteinda við gríðarlega mikla orku. Vandinn við leitina að Higgs-bóseindinni er að samkvæmt fræðunum verð- ur hún ekki til nema í litlum hluta árekstra. Því meiri orka sem er notuð, því líklegra er hins vegar að hún myndist. Higgs-bóseindin er öreind en eðlisfræðingar spáðu fyrir um tilvist hennar fyrir nærri 50 árum. Síðan hefur staðið yfir leit að vísbendingum um tilvist henn- ar en án árangurs. Einn helsti hvatinn að byggingu sterkeinda- hraðals CERN var að þar var um að ræða tæki sem var talið geta svarað spurningunni um tilvist eindarinnar fyrir fullt og allt. Higgs-bóseindin sjálf er raunar ekki sérlega áhugaverð. Hún er einungis áhugaverð að því leyti að tilvist hennar myndi sanna til- vist hins ósýnilega Higgs orku- sviðs sem er talið fylla alheim- inn. Ekki er hins vegar hægt að nema orkusviðið sjálft þannig að vísindamenn leita heldur að einkenniseind sviðsins sem er Higgs-bóseindin. Samkvæmt staða l l í ka n i öreindafræðinnar ferðuðust massalausar öreindir um alheim- inn á ljóshraða fyrstu örsek- úndu tilveru hans. Þá kviknaði á Higgs-orkusviðinu sem gerði það að verkum að það hægðist á sumum, en ekki öllum, eindanna sem fengu í leiðinni massa. Þetta gerði þeim eindum svo aftur mögulegt að tengjast og mynda þær frum- og sameindir sem allt efni alheimsins er búið til úr. Án orkusviðsins er eðlis- fræðingum vandi á höndum því það hefði í för með sér að þeir hefðu ekki skýringu á því af hverju öreindir ferðast ekki allar massalausar á ljóshraða um alheiminn. Þar með væri komin stór gloppa í staðallíkan eðlisfræðinnar og ljóst að menn þyrftu að leita annað að svör- um við mörgum áhugaverðustu spurningum vísindanna. magnusl@frettabladid.is Á slóð guðs- eindarinnar Vísindamenn við sterkeindahraðal CERN á landa- mærum Sviss og Frakklands hafa fundið vísbend- ingar um tilveru guðseindarinnar svokölluðu en leitin að henni hefur staðið yfir í tæplega 50 ár. RÓTEINDAÁREKSTUR Þessi mynd frá CERN sýnir ummerki um hegðun og hreyfingu öreinda í kjölfar árekstrar tveggja róteinda. Vísindamenn CERN leita nú að ummerkj- um um Higgs-bóseindina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SÆLJÓN Í HREINDÝRSGERVI Í stóru sædýrasafni í Tókýó hafa menn skellt eins konar hreindýrshornum á þetta sæljón til að skemmta gestum í tilefni jólanna sem eru fram undan. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Kannabisræktandi hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maður- inn var með 105 plöntur í ræktun og rúm 150 grömm af kannabis- laufum þegar lögreglan stöðvaði ræktunina. Maðurinn játaði brot sitt en hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Auk plantnanna og laufanna voru gerð- ir upptækir fimm lampar, þrír straumbreytar, fjórar vatnsdælur, 26 blómapottar og tveir plastbakk- ar, sem lögregla lagði hald á. - jss Kannabisræktandi dæmdur: Dæmdur fyrir 105 plöntur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.