Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 10
PRUFUTÍMINN Helen Garðarsdóttir Þar sem ég vissi hvorkihvað ég ætti að fá mér néhvar saltaði ég þessa húð-flúrshugmynd. Reglulega skaut hún sér aftur upp í kollinn á mér og gerði ég mér seinna grein fyrir því að það myndi halda áfram. Þá var einfaldlega að gera eitthvað í málunum. Fyrst þarf auðvitað að hugsa vel um hvað skal húðflúra sem og hvar myndin á að vera. Tók þá við um tveggja mánaða verkefni sem var að móta þessa óljósu hugmynd sem ég var með í kollinum. Svo þarf víst einhvern sem gerir húðflúrið sjálft og eftir miklar hugleiðingar ákvað ég að láta gera húðflúrið á Bleksmiðjunni. Miklu máli skiptir að það sé mjög hreinlegt og snyrtilegt á stofunni sem og að öll leyfi séu til staðar. Vinkona mín benti mér á Bleksmiðjuna og hafði ég einungis heyrt góða hluti um þau hjón, Sig- rúnu Rós og Inga sem þar vinna. Eftir að komin var nokkuð fast- mótuð mynd af því sem ég vildi, fór ég með þær pælingar á húðflúrsstof- una. Þar tók Sigrún Rós vel á móti mér og teiknaði fyrir mig mynd út frá mínum hugmyndum. Hugmyndin fullmótuð Húðflúrarinn getur oft hjálpað fólki að móta hugmyndirnar sem það er með. Það kom sér einkar vel fyrir mig sem gæti ekki teiknað mynd til að bjarga lífi mínu. Um leið og hönn- unarferlinu ógurlega lauk var bara eftir að panta tíma og bíða svo þol- inmóð (eða svona eins og maður get- ur) eftir að dagurinn rynni upp. Þegar ég mætti í Bleksmiðjuna um þremur vikum seinna var ekki laust við að smá stressfiðringur gerði vart við sig. Hann var þó blandaður mikilli tilhlökkun. Áður en húðflúrarinn getur hafist handa Byrjandi fer á Bleksmiðjuna Fyrir rúmlega tíu árum fékk bekkjarsystir mín sér húðflúr. Ég skoðaði húðflúrið með öfundaraugum og hugsaði „vá mig langar að fá mér svona“. Ég lét verða að því fyrir viku og það kom mér á óvart hvað það var lítið mál að láta húðflúra mynd á innanverðan úlnliðinn. Drátthög Sigrún mundar nálina og teiknar útlínur flúrsins af öryggi. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2010 OMG, LOL o.fl. slangur sést oft og iðulega á netinu, sér- staklega Facebook. FML er líka vinsælt en það er ensk skammstöfun á „f*** my life“ og er oft notað þegar fólk segir frá einhverju sem því þykir svekkjandi eða leiðinlegt, t.d. þegar for- eldrar manns gleyma að maður eigi afmæli eða að deyfingin virkaði ekki í endajaxlatökunni. Á fmylife.com getur fólk sent inn stuttar sögur af sér sem falla í þennan flokk og jafnframt lesið sögur frá öðrum. Hægt er að skoða þær nýjustu, þær vinsælustu og jafnframt skoða einstaka flokka, t.d. FML sem tengist ást, peningum, börnum, vinnu, heilsu o.fl. Við hverja og eina sögu er hægt að kjósa, þ.e. klikka á annaðhvort „ég er sammála, líf þitt er ömurlegt“ eða „þú áttir þetta skilið“ og birtist svo teljari við hvorn liðinn þannig að hægt er að sjá hversu margir kusu um hverja sögu. Einna vinsælustu sögurnar eru t.d.: „Í dag virðist sem kærasta mín hafi skoðað síðu á netinu sem heitir „Hvernig á að viðurkenna framhjáhald.“ FML“, „Í dag tókst kettinum mínum ekki alveg borða heilan kalkún þar sem hann var frosinn. Honum tókst hinsvegar að sleikja hann allan. FML,“ og „Í dag fór ég á McDonald’s í hádeginu og pantaði mér salat. Maðurinn á bak við afgreiðslu- borðið horfði á mig og sagði: „Jæja, þú ert þó allavega að reyna.“ FML.“ Vefsíðan www.fmylife.com FML Ætli þessi hafi skrifað um að hafa sofnað á fundi með Barack Obama á fml.com? Leiðindaratvik úr eigin lífi Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla verður haldin í Skagafirði í dag milli kl. 10-18. Sýningin verður bæði inni og úti við Reiðhöllina Svaðastaði. Meðal dagskrárliða eru kálfa- og hrúta- sýning, smalahundasýning, klaufskurður á kúm, keppni í dráttarvélakstri, sveita- markaður, handverkssýning, vélasýning og margt fleira. Um kvöldið er grillveisla og kvöldvaka. Á morgun verða opin bú í Skagafirði frá kl. 13-16. Nánar á www.svadastadir.is Endilega … ...njótið SveitaSælu Sveitasæla Kálfasýning barna. 10 Daglegt líf [ CAPTIVA ] [ CRUZE ] [ CAMARO SS ] Chevrolet - Tangarhöfða 8-12 - Rvk.- 590 2000 - www.chevrolet.is / Spesbílar - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3300 / Bílasalan Ós - Óseyri 5 - Akureyri - 462 1430 BB .2 0. 08 -L jó sm yn d: AD DI .IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.