Morgunblaðið - 22.09.2010, Síða 1
KYNJAVERUR
FARA AFTUR
Á STJÁ
SLÆM KJÖR SÍGAUNA
FISKAR MEÐ
FERÐAMÖNNUM
Í SKERJAFIRÐI
MISRÉTTI Í EVRÓPU 15 NÝ ÞJÓNUSTA 10NÝTT DANSVERK 30
Fréttaskýring eftir Boga Þór Arason
Stofnað 1913 221. tölublað 98. árgangur
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. S E P T E M B E R 2 0 1 0
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Sumum
liggur reiðinnar ósköp á en öðrum þykir í góðu
lagi að bíða stundarkorn. Þessir ungu leik-
skólasveinar sem ljósmyndari hitti í gær tóku
öllu af stóískri ró. Sátu með nestið sitt á bekk og
biðu eftir næsta vagni – og framtíðinni sjálfri.
Morgunblaðið/Ernir
Horft til framtíðar
Líklegt er að Seðlabanki Íslands
lækki vexti í dag. Greiningardeildir
Arion banka og Íslandsbanka spá
því að lækkunin verði eitt prósentu-
stig, en Landsbankinn 0,75 pró-
sentustig.
Þær forsendur sem tilgreindar
voru fyrir vaxtalækkun í síðasta
mánuði, stöðugt gengi krónunnar
og verðbólguhjöðnun, eru fyrir
hendi og því líklegt að niðurstaða
peningastefnunefndar bankans
verði sú að lækka beri vexti. Verði
lækkunin heilt prósentustig fara
stýrivextir niður í 6% og hafa ekki
verið lægri í sex ár. Verðbólga
mælist nú um 4,5%, en var 4,8% við
síðustu vaxtaákvörðun, hefur
hjaðnað nokkuð.
Nokkur óvissa ríkir þó um þróun
verðbólgu í framhaldinu, meðal
annars vegna veikingar krónunnar
undanfarið og þess að kjarasamn-
ingar eru víða lausir. »14
Vaxtalækkun lík-
legasta útkoman
1,0
0,5
0
-0,5
-1,0
-1,5
-2,0
-2,5
%
Verðtryggð
Óverðtryggð
14.
sept.
15.
sept.
16.
sept.
17.
sept.
20.
sept.
21.
sept.
Heimild: GAMManagement hf.
Ungum konum hefur fjölgað mjög í
hópi þeirra kvenna sem leita skjóls
hjá Konukoti. Ísabella Björnsdóttir,
nemi í félagsráðgjöf og starfskona
Konukots, segir að þótt ýmislegt sé
í boði fyrir þessar konur sé stund-
um eins og vanti sérsniðin úrræði
fyrir ungar konur í neyslu. „Því það
er svo mikil von ennþá í þeim, þetta
eru flottar stelpur, þær eru bara á
slæmum stað í lífinu og þurfa
hjálp.“
Sjálfboðaliðar gegna mikilvægu
hlutverki í rekstri Konukots en Ísa-
bella byrjaði einmitt sem sjálf-
boðaliði hjá athvarfinu og segir það
bæði gefandi og skemmtilegt starf
þótt stundum sé það líka strembið.
Þær yngri sækja í fíkniefni
Hún segir að kynslóðabil sé í
neyslunni og séu yngri konurnar
frekar háðar eiturlyfjum en þær
eldri glími við áfengisvanda. Þó séu
ekki allir skjólstæðingar Konukots í
neyslu en flestar konurnar eigi við
félagsleg og andleg vandamál að
stríða.
Ísabella telur fólk almennt ekki
gera sér grein fyrir þörfinni fyrir
athvarf af þessu tagi. „Hingað hafa
komið nýjar konur í hverjum mán-
uði það sem af er árinu. Yfirleitt eru
þær mjög þakklátar fyrir það sem
fyrir þær er gert og það er yndis-
legt að fá að kynnast þeim.“ »9
Vantar úrræði fyrir ungar konur í neyslu
Konukot Aldrei meiri aðsókn.
Ungar konur verða frekar háðar fíkniefnum – þær eldri háðar áfengi
Talið er að yfir
milljón tonn af
makríl hafi verið
í íslenskri lög-
sögu í sumar,
meira en nokkru
sinni fyrr. For-
ystumenn Haf-
rannsóknastofn-
unar kynntu
rannsóknir á útbreiðslu makríls í
lögsögunni á fundi með fulltrúum
frá Evrópusambandinu í gær og
þar komu þessar upplýsingar fram.
Minna hefur orðið vart við makríl
síðustu daga og virðist hann á leið
út úr lögsögunni eins og gerist á
haustin. Norsk-íslenska síldin virð-
ist hafa hopað fyrir makríl á hefð-
bundnum slóðum sínum í sumar.
Eins var síldin seinni að fita sig en
síðustu ár. »12
Yfir milljón tonn af
makríl í lögsögunni
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Verði þingsályktunartillögunum
tveimur frá þingmannanefndinni um
ákærur á hendur fyrrverandi ráð-
herrum vísað til allsherjarnefndar
eru taldar ákveðnar líkur á að ekki
náist að ljúka afgreiðslu þeirra á
þessu haustþingi og verður þá málið
komið aftur á upphafsreit.
Þetta er mat ákveðinna þing-
manna sem telja að vendipunktur
verði í málinu í dag þegar greidd
verða atkvæði um hvort vísa beri
málinu til þingmannanefndarinnar
eða til allsherjarnefndar líkt og
Ragnheiður Elín Árnadóttir gerði
tillögu um í gær.
Mikill óróleiki hefur verið á meðal
stjórnarþingmanna í kjölfar gagn-
rýni Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra á málsmeðferð þing-
mannanefndarinnar og efasemda
hennar um hvort Alþingi ætti að
samþykkja tillögur um að ákæra
þrjá eða fjóra fyrrverandi ráðherra.
Gaf þingflokkur VG út tilkynningu í
gær þar sem lýst var yfir fullu
trausti til nefndarinnar.
„Ef Alþingi nær ekki að klára mál-
ið með atkvæðagreiðslu, á hvorn veg
sem hún fer, tel ég að Alþingi sé þar
með að bregðast skyldum sínum og
þá beri að rjúfa þing og efna til kosn-
inga,“ sagði Atli Gíslason.
Gæti sofnað í nefnd
Atkvæðagreiðsla í dag um til hvaða nefndar tillögunum
verður vísað Óróleiki innan raða stjórnarþingmanna
MVar forsætisráðherra »4
Ögmundur Jónasson dóms-
málaráðherra horfir til þess að
nýtt fangelsi verði reist á Hólms-
heiði. Hann telur það að reisa nýtt
fangelsi á höfuðborgarsvæðinu
hagfelldara en samsvarandi upp-
bygging á Litla-Hrauni, meðal
annars vegna tíðra flutninga fanga
til yfirheyrslna. Gert er ráð fyrir
því að framkvæmdir við byggingu
fangelsisins verði boðnar út í
haust. Þegar hefur verið fengin
lóð og gengið frá skipulagi á
Hólmsheiði. »2
Hólmsheiðin er
talin hagfelld lausn
Kenningar eru um að Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
hafi með gagnrýni sinni á þing-
mannanefndina verið að reyna
að koma í veg fyrir klofning inn-
an flokksins ef þingflokkurinn
styddi allur að draga þrjá ráð-
herra fyrir landsdóm.
Klofningi
afstýrt?
ORÐ FORSÆTISRÁÐHERRA