Morgunblaðið - 22.09.2010, Page 30
30 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Allt vatn er horfið af yfirborði jarðar þannig að
aðstæður í þessu nýja verki eru aðrar en í Bláa
lóninu í fyrra!“ segir Damien Jalet, fransk-
belgíski dansarinn og danshöfundurinn kunni í
samtali við Morgunblaðið, en nýtt verk hans,
Ernu Ómarsdóttur og Gabríelu Friðriksdóttur
myndlistarmanns verður sýnt á Stóra sviði Borg-
arleikhússins snemma í október. Þar er um að
ræða fyrstu frumsýningu leikársins hjá Íslenska
dansflokknum.
Hið nýja verk, „Transaquania – Into thin Air“
er sjálfstætt framhald af því óvenjulega „Transa-
quania – Out of the Blue“ sem sýnt var í Bláa Lón-
inu vorið 2009 og kynjaverurnar sem hreiðruðu
um sig í Grindavík því enn á ferðinni. Þar skorti
ekki vatnið eins og nærri má geta en betur við
hæfi að setja framhaldið upp á sviði.
Langur fundur – töfrar
Jalet dásamar mjög samstarfið við þær Ernu
og Gabríelu og raunar það að vinna á Íslandi. „Við
unnum fyrst saman 2005 og það gekk strax mjög
vel. Við erum mikið fyrir að gera tilraunir og hóf-
umst strax handa við það. Í okkar hópi starfar
hver listamaður sannarlega ekki í sínu horni held-
ur má segja að verkið verði til á löngum, sameig-
inlegum fundi. Ég myndi lýsa samstarfi okkar
þannig að til verði einhvers konar töfrar. Það er
frábært að vinna með Ernu og Gabríelu. Ég er
upptekinn við mörg verkefni í öðrum löndum en
kem reglulega hingað vegna þess hve hér er gott
að vera og starfa. Náttúran hér hefur mjög sterk
áhrif á mig,“ segir Jalet við blaðamann.
Hann segir öll þrjú raunar hrífast mjög af nátt-
úrunni. „Við hrífumst öll mjög af því afli sem í
náttúrunni býr og verkin okkar snúast mikið um
hana; hvað þarf til þess að lifa af við mismunandi
aðstæður og hvernig brugðist er við í hvert sinn.
Breytingarnar eru augljóslega mjög miklar frá
fyrra verkinu þó svo þau eigi mikið sameiginlegt í
raun,“ segir Jalet.
„Náttúran er gríðarlega áhugavert umfjöll-
unarefni; möguleikarnir eru í raun óendanlegir.“
Samtal við aðra veröld
„Að þessu sinni vildum við fást við eitthvað allt
annað. Og til þess að munurinn yrði sem mestur
var eðlilegt að fara úr veröld vatnsins alla leið
yfir í þurrkinn. Spurningin um það hvernig
verurnar þroskast við þær aðstæður er jafn
spennandi og við fengumst við í fyrra
verkinu. Þar var til að mynda áhuga-
vert að velta fyrir sér önduninni, nú
er þyngdaraflið meira í brennidepli.“
Tónlistin í verkinu er í höndum Ben
Frost og Valdimars Jóhannssonar
sem Jalet hælir einnig í hástert.
Dansinn, myndlistin og tónlistin
skapar mjög sterka heild, segir
hann. „Verk Gabríelu eru til
dæmis afar skúlptúrísk og við
reynum að gæða þau lífi. Verk-
ið er samtal okkar dansaranna
við veröld hennar. Myndlík-
ingar eru margar og
skemmtilegar. Hvað er
það að vera maður?
Hvaðan komum við?
Hvert förum við?“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gott samstarf Dansararnir Damien Jalet og Erna Ómarsdóttir á æfingu á dögunum. Þau semja verkið ásamt Gabríelu Friðriksdóttur myndlistarmanni.
Hrífumst öll mjög af því
afli sem í náttúrunni býr
Samstarfið eins og langur fundur þar sem til verða töfrar, segir Damien Jalet
Damien Jalet sem samdi verkið sem frumsýnt
verður 7. október, Transaquania – Into thin
Air, ásamt Ernu Ómarsdóttur og Gabríelu
Friðriksdóttur, er mjög þekktur dansari. Þessi
kunni listamaður hefur unnið sem dansari og
danshöfundur með helstu flokkum í Evrópu á
því sviði. Damien hefur skapað eigin verk og
einnig verið í nánu samstarfi með Sidi Larbi
Cherkaoui, einum af stærstu nöfnunum í
dansheiminum í dag. Damien hefur einnig
unnið með þekktum listamönnum af öðrum
sviðum.
Gagnrýnendur og blaðamenn Morgun-
blaðsins hrifust af verki Ernu, Jalet og Gabrí-
elu í Bláa lóninu í fyrra og völdu það sýningu
ársins. „Danssýning þar sem svið, umgjörð
og uppspretta verksins var Bláa lónið. Með
samspili danslistar, gjörningalistar, tónlistar
og náttúru náðu aðstandendur sýningar-
innar að nálgast formið á nýjan og áhuga-
verðan hátt, sem ekki hefur sést mikið af
hér á landi,“ sagði í umsögn blaðsins þeg-
ar árið 2009 var gert upp um áramótin.
Litla myndin hér til hliðar er úr sýn-
ingu Ernu, Gabríelu og Jalets í Bláa lón-
inu á síðasta ári.
Ný og áhugaverð
nálgun í fyrra
GÆFURÍKT SAMSTARF
Kínó klúbburinn, sem hefur
verið í samstarfi við Listasafn
Reykjavíkur um nokkurt skeið,
sýnir kvikmyndina Foggy
Mountains Breakdown More
Than Non-Foggy Mountains á
fimmtudag kl. 20:00. Myndin,
sem er eftir Jessie Stead, er
unnin með blandaðri tækni þar
sem fram koma að minnsta
kosti níu afbrigði af bluegrass-
laginu „Foggy Mountain
Breakdown“ eftir Lester Flatt og Earl Scruggs.
Jessie Stead býr og starfar í New York. Kvik-
myndir hennar hafa meðal annars verið sýndar í
Museum of Modern Art, Antohology Film Archi-
ves og á ýmsum kvikmyndahátíðum.
Kvikmyndir
Kínó klúbburinn
sýnir blágresi
Úr Foggy Mount-
ains Breakdown.
Útgáfuhátíð verður haldin á
Korpúlfsstöðum á morgun kl.
18 vegna útgáfu geisladisks
Kammerkórs Suðurlands, Iepo
Oneipo/Heilagur draumur.
Diskurinn er gefinn út af
Smekkleysu en á honum flytur
kórinn verk breska tónskálds-
ins sir John Tavener. Stjórn-
andi kórsins er Hilmar Örn
Agnarsson. Með kórnum
syngja Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir sópran og Hrólfur Sæmundsson barítón.
Diskur þessi hefur hlotið afar jákvæða gagn-
rýni í tónlistarritinu Gramophone. Á disknum
leikur hljómsveit undir stjórn Hjörleifs Valssonar
við söng kórs og einsöngvara.
Tónlist
Iepo Oneipo/
Heilagur draumur
Breska tónskáldið
John Tavener.
Laugardaginn 25. september
mun söngvarinn Þorsteinn
Eggertsson segja frá sjálfum
sér, lífinu í Garðinum og tilurð
lagatexta sinna og óperusöngv-
ararnir Davíð og Stefán munu
syngja lögin við textana. Helgi
Már Hannesson mun leika með
á píanó. Þorsteinn fæddist í
Keflavík en ólst upp í Garð-
inum frá eins árs aldri þar til
hann var fimmtán ára. Þor-
steinn hefur á ferli sínum m.a. sungið með Hljóm-
sveit Guðmundar Ingólfssonar í Keflavík og í kefl-
vísku hljómsveitinni Beatniks. Skemmtunin fer
fram í Miðgarði í Garði, sal grunnskólans þar í
bæ, og hefst kl. 17. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Tónlist
Söngskemmtun
með Þorsteini
Þorsteinn Eggerts-
son söngvari.
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sýnir
nýtt íslenskt leikverk, Bjarni á Fön-
ix, í Slippsalnum á Mýrargötu 2.
Sýningarnar verða næstkomandi
föstudagskvöld og sunnudagskvöld.
Leikritið segir frá Bjarna Þor-
laugarsyni skipherra á skútunni
Fönix sem barðist við hátt í 30
Fransmenn um miðja nítjándu öld.
Bardaginn stóð yfir í heila fjóra
klukkutíma og gekk Bjarni óskadd-
aður af vettvangi.
Skömmu síðar fannst sjórekið lík
af einum Fransmanni og voru uppi
kenningar um að Bjarni hefði orðið
hans bani. Mál var dómtekið og
þurfti Bjarni þá að spyrja sig þeirrar
samviskuspurningar: Drap ég mann
eða drap ég ekki mann?
Verkið er einleikur úr smiðju
Kómedíuleikhússins. Leikari er Ár-
sæll Níelsson sem jafnframt er höf-
undur ásamt leikstjóra verksins,
Elfari Loga Hannessyni. Leikmynd
og búninga gerir Marsibil G. Krist-
jánsdóttir.
Bjarni á Fönix er fyrsta frumsýn-
ing Kómedíuleikhússins á þessu
leikári.
Sagt frá
Bjarna
á Fönix
Kómedíuleikhúsið
sýnir í Slippsalnum
Hetjusaga Ársæll Níelsson sem
Bjarni Þorlaugarson skipherra.
Eins og algengt er
orðið með róman-
tískar gamanmyndir frá
Hollywood er markið sett
lágt 32
»
Kanadíski rithöf-
undurinn Dou-
glas Coupland er
þekktastur fyrir
bækur sínar en
honum er fleira
til lista lagt.
Þannig kynnti
hann fyrir stuttu
nýja fatalínu sem
hann hefur hann-
að og sigraði síð-
an í samkeppni um minnisvarða um
kanadíska slökkviliðsmenn sem far-
ist hafa við skyldustörf.
Coupland lagði stund á eðlisfræði
en fór síðan í hönnunarnám og
starfaði sem hönnuður í Tókýó en
varð að hætta í vinnunni af heilsu-
farsástæðum og sneri sér að rit-
störfum. Hann sló í gegn með
fyrstu bókinni, Generation X, sem
kom út 1991, en af öðrum bókum
hans má nefna Microserfs, Girlfri-
end in a Coma, Hey Nostradamus!
og jPod.
Minnisvarði eftir verðlaunatillögu
Couplands verður reistur í Ottawa.
Coupland hann-
ar minnisvarða
Douglas
Coupland