Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 30

Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 30
30 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010 Sudoku Frumstig 7 2 3 5 4 6 1 7 8 3 2 3 5 6 4 1 8 6 4 1 6 3 4 5 2 1 4 2 6 8 6 1 4 4 6 3 9 1 1 7 8 9 6 3 8 7 5 3 8 5 9 7 6 4 1 9 5 3 1 4 1 3 8 1 7 5 2 6 7 6 2 4 5 2 3 1 9 8 3 7 5 4 6 2 2 5 3 8 6 4 1 9 7 4 7 6 1 2 9 5 3 8 8 3 5 7 4 1 9 2 6 7 6 1 2 9 8 3 4 5 9 2 4 5 3 6 8 7 1 5 4 9 6 1 2 7 8 3 6 8 7 4 5 3 2 1 9 3 1 2 9 8 7 6 5 4 6 1 4 7 5 9 2 8 3 9 2 3 1 6 8 7 4 5 7 5 8 3 4 2 1 9 6 4 9 2 5 8 7 6 3 1 1 8 7 6 2 3 4 5 9 5 3 6 4 9 1 8 2 7 3 4 5 8 7 6 9 1 2 8 6 9 2 1 5 3 7 4 2 7 1 9 3 4 5 6 8 4 2 7 5 1 8 3 6 9 9 3 1 4 6 2 8 5 7 6 5 8 9 7 3 2 1 4 5 1 6 7 2 9 4 3 8 7 8 4 3 5 1 6 9 2 2 9 3 6 8 4 1 7 5 8 4 9 1 3 7 5 2 6 1 6 2 8 9 5 7 4 3 3 7 5 2 4 6 9 8 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 24. september, 267. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I.Kor. 8, 2.) Íslenski boltinn í Sjónvarpinu erbesti þátturinn sem gerður hefur verið um íslenska knattspyrnu. Ekk- ert er verið að flækja hlutina heldur er rætt um þá á einfaldan hátt enda eðlilegt þar sem fótboltinn er í eðli sínu einfaldur leikur. x x x Í þætti vikunnar var áhersla lögð átvö atriði. Gula spjaldið, sem Eyjamaðurinn Tryggvi Guðmunds- son fékk á móti Stjörnunni, og víta- spyrnuna sem dæmd var á KR undir loks leiks liðsins í Grindavík. Tryggva var sýnt gula spjaldið fyrir meintan leikaraskap en allir nema dómarinn sáu að hann datt eft- ir samstuð við mótherja. Menn veltu því meira segja upp í þættinum hvort ekki hefði verið um augljósa vítaspyrnu að ræða. Dómurinn þýðir að Tryggvi verð- ur í leikbanni í síðustu umferð á morgun, þegar ÍBV sækir Keflavík heim. Þess má geta að mörgum þótti mjög hæpið að veita Blikanum Al- freð Finnbogasyni, besta leikmanni Íslandsmótsins, gult spjald á móti KR fyrir viku sem þýðir bann á morgun. Þessi spjöld geta ráðið úr- slitum um Íslandsmeistaratitilinn. x x x Vítaspyrnan, sem Grindvíkingarjöfnuðu úr, tryggði þeim áfram- haldandi veru í Pepsi-deildinni. Að mati Víkverja eiga þeir þar heima, en dómurinn var vafasamur svo vægt sé til orða tekið. Fram kom í umræddum þætti að línuvörðurinn fjær, eða aðstoðardómarinn eins og þeir eru nú nefndir, dæmdi vítið og af öllum var hann sísti maðurinn til þess að sjá hvað gerðist. Hugsanlega tók hann Evrópusæti af KR, þó það sé nokkuð langsótt að Fram komist upp fyrir KR. x x x Út af með dómarann, söng Ómarfyrir margt löngu. Reyndar fer enginn leikur fram án dómara og því miður eigum við bara einn Kristin Jakobsson. Íslandsmeistarar verða krýndir á morgun og vonandi verða það ekki dómarar sem ráða úrslit- um. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hjúskapur, 8 drekkur, 9 dylja, 10 reyfi, 11 skyldmennið, 13 flýtinn, 15 húsgagns, 18 óhamingja, 21 fúsk, 22 veika, 23 stefnan, 24 tíminn um kl. 18. Lóðrétt | 2 margtyggja, 3 líffærin, 4 blaðra, 5 þvinga, 6 fugl, 7 forboð, 12 óhróður, 14 mergð, 15 tuddi, 16 drasli, 17 fiskur, 18 dapurt, 19 reiðan, 20 heimskingi. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 firra, 4 gisin, 7 Jónas, 8 uggur, 9 ann, 11 taða, 13 bráð, 14 gabbi, 15 farg, 17 ljót, 20 hik, 22 lyfta, 23 rætin, 24 remma, 25 síðla. Lóðrétt: 1 fljót, 2 ránið, 3 ansa, 4 grun, 5 sigur, 6 nýrað, 10 nebbi, 12 agg, 13 bil, 15 fálur, 16 rófum, 18 játað, 19 tinda, 20 hata, 21 krús. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Be2 dxe5 5. dxe5 Rc6 6. Rf3 Bf5 7. c3 e6 8. O-O Be7 9. Bb5 Bg4 10. Rbd2 O-O 11. He1 Bh5 12. Bxc6 bxc6 13. Re4 Hb8 14. De2 c5 15. a3 De8 16. b4 Rb6 17. Be3 Ra4 18. Hac1 Dc6 19. Bg5 Bxg5 20. Rexg5 Hfd8 Staðan kom upp á breska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Canterbury í Englandi. Stórmeist- arinn Stuart Conquest (2523) hafði hvítt gegn Pólverjanum Rafal Tymra- kiewicz (2301). 21. Rd4! cxd4 22. Dxh5 Rxc3 23. Dxh7+ Kf8 24. Dh5 De8 25. Dh8+ Ke7 26. Dxg7 hvítur hefur nú unnið tafl. 26…Rd5 27. Hed1 Dg8 28. Dh6 Rc3 29. Df6+ Ke8 30. Hd2 Rd5 31. Dh6 a5 32. Hxd4 axb4 33. axb4 Hxb4 34. Hxb4 Rxb4 35. Re4 Rd5 36. Hxc7 Df8 og svartur gafst upp um leið. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Hittingur. Norður ♠ÁG95 ♥ÁK5 ♦K6 ♣KD108 Vestur Austur ♠763 ♠KD1042 ♥62 ♥G10 ♦D9532 ♦G107 ♣G94 ♣Á72 Suður ♠8 ♥D98743 ♦Á84 ♣653 Suður spilar 6♥. Þegar upp er staðið snýst slemman um það eitt að hitta í laufið: Á að spila tvisvar á hjónin eða svína tíunni í síð- ara skiptið? Útspilið er smár tígull. Það er sterkur leikur að taka fyrsta slaginn heima og spila strax laufi að blindum. Slíkur hraði hefur ýmsa kosti: (1) Vestur gæti farið á taugum með ásinn. (2) Vestur gæti gefið heið- arlega talningu, til dæmis með háu spili til að sýna þrílit. (3) Austur gæti fipast með ásinn og eytt of miklum tíma í að skoða talningu makkers. Í stuttu máli: báðir mótherjar gætu talað af sér, hvor með sínum hætti. Spilið er frá úrslitaleik bikarkeppn- innar og slemman fór niður á öðru borðinu. Sagnir höfðu verið upplýsandi og AV fylgdu fumlaust með lægsta laufi á hvorumtveggja vígstöðvum. Taugalausir andskotar. 24. september 1930 Lokið var við byggingu fyrsta sæluhúss Ferðafélags Íslands. Það er í Hvítárnesi, skammt frá Langjökli, í 425 metra hæð. Síðan hefur félagið reist á annan tug sæluhúsa. 24. september 1963 Mjólk og mjólkurvörur hækk- uðu í verði um fjórðung, sem var mesta hækkun sem þekkst hafði. Daginn eftir hækkaði kjöt um þriðjung. Verðbólga á þessu ári var þó aðeins 14%. 24. september 1966 Menntaskólinn við Hamrahlíð var settur í fyrsta sinn. Guð- mundur Arnlaugsson var rekt- or, fastráðnir kennarar voru sex og nemendurnir 160, allir í 3. bekk. 24. september 1968 Fyrsta skurðaðgerðin var gerð á Borgarspítalanum í Fossvogi. Aldarfjórðungi síð- ar var þess minnst með því að taka í notkun nýja skurðstofu. 24. september 1970 Todor Zhivkov forsætisráð- herra Búlgaríu kom í fjögurra daga opinbera heimsókn til Ís- lands. „Við leyfum aldrei að kommúnísku skipulagi sé steypt,“ sagði ráðherrann á blaðamannafundi. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Mér fannst þetta alveg hræðilegt svona framan af árinu og ég var búin að kvíða því að verða svona gömul, en svo var ég beðin um skilríki í ríkinu í Reykjavík í apríl og það bjargaði þessu alveg, – ég lifi eiginlega ennþá á því,“ segir Berglind Lilja Þorbergsdóttir, sem er þrítug í dag. Auk afgreiðslukonunnar í ríkinu hefur sam- starfsfólk Berglindar hjá Sýslumanni Snæfellinga, þar sem hún er skrifstofustjóri, auðveldað henni að venjast tilhugsuninni um fertugsaldurinn með því að dekra við hana síðustu daga. „Þetta er búin að vera afmælisvika í vinnunni, þau hafa fært mér alls kyns litlar gjafir og ég er búin að vera algjör prinsessa. En þau fá eitthvað fyrir vikið,“ segir Berglind, sem býður til stórveislu í kvöld og má búast við talsverðri fólksfjölgun í Stykkishólmi á meðan. „Já ég ætla sko að halda upp á þetta, það verður rúmlega 100 manna veisla og hún verður svolítið öðruvísi því mig langaði að gera eitthvað annað en þetta hefðbundna.“ Gestunum verður því boðið fyrst í brugghúsið Mjöð þar sem boðið verður upp á fiskisúpu og bjórinn Jökul sem þar er bruggaður. Svo verða gestirnir ferjaðir með langferðabíl upp á hótel þar sem veislan heldur áfram fram á nótt. una@mbl.is Berglind Lilja Þorbergsdóttir 30 ára Var spurð um skilríki í ríkinu Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 24. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.44 0,4 6.47 3,9 12.56 0,5 19.00 3,9 7.17 19.24 Ísafjörður 2.43 0,2 8.36 2,1 14.54 0,3 20.49 2,1 7.22 19.29 Siglufjörður 4.59 0,2 11.09 1,2 17.12 0,2 23.28 1,3 7.05 19.12 Djúpivogur 3.59 2,2 10.12 0,4 16.14 2,1 22.18 0,4 6.46 18.53 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þér fallast hendur gagnvart þeim verkefnum, sem bíða þín. Leystu eitt í einu, þá er þetta ekkert mál. (20. apríl - 20. maí)  Naut Reyndu að rífa þig upp úr gamla farinu þótt ekki sé nema að gera hlutina í annarri röð en í gær. Láttu aðra heyra hversu mikils virði þeir eru þér. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú nærð árangri í vinnunni í dag, ekki síst vegna þess að þú hefur trú á þér núna. Safnaðu vitneskju í sarpinn. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Taktu þátt í djúpum samræðum við maka og vini á næstunni. Tíminn hefur unnið með þér svo allt reynist auðveldara en þú bjóst við. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú hefur ekki komist ýkja langt áleiðis að takmarki þínu. Hafðu hugfast að aldrei er hægt að gera svo öllum líki. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Sinntu vinnu þinni í friði - slökktu á farsímanum og einbeittu þér. Sumir dagar líða án átaka, aðrir ekki. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þótt þú getir verið sveigjanleg/ur þýðir það ekki að þú eigir að láta stjórnast af til- finningum annarra. Ekki ráðast í stór- innkaup. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þessi dagur er frábær til þess að blanda geði við náungann. Reyndu ekki einu sinni að útskýra það þó þig langi út - aðrir munu ekki skilja það. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú átt auðvelt með að setja þig í annarra spor og tala þeirra máli. Nýttu tím- ann sem best þú getur. Vertu róleg/ur því þú munt njóta árangurs erfiðis þíns. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú þarft að gæta þess að vera sérstaklega háttvís í samtölum við stjórn- endur eða foreldra í dag. Stundum þarftu bara að reka þig á til að vera beint í rétta átt. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Sumir segja að þessi tilvera okkar sé draumur. Gættu þess að leggja traust þitt á verðug verkefni og jákvæðar hugsanir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Vinkona kemur þér á óvart í dag. Hlustaðu því vel á líkama þinn og hunsaðu ekki það sem hann segir þér. Hin jákvæðu áhrif dagsins eru svo sterk að hægt er að umbreyta neikvæðu í jákvætt. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.