Morgunblaðið - 24.09.2010, Síða 24

Morgunblaðið - 24.09.2010, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010 ✝ Óli Fossberg Guð-mundsson fæddist á Akureyri 13. maí 1936. Hann andaðist á Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað 18. september 2010. For- eldrar hans voru Guð- rún Árnadóttir frá Akureyri, f. 23.6. 1912, d. 27.7. 2001, og Guðmundur Pét- ursson frá Blönduósi (dáinn). Bræður Óla eru Reynir Bergmann Skaftason, f. 13.7. 1941, maki Jóhanna Cronin, f. 23.3. 1945, og Hákon Eiríksson, f. 13.10. 1942, d. 26.7. 1982. Fóstursystir Óla er Hulda Yodice, f. 14.9. 1938, maki John Yodice, f. 3.3. 1940. Óli kvæntist Báru Guðmunds- dóttur frá Eskifirði 26. janúar 1957. Foreldrar hennar voru Guðmundur Karl Stefánsson, f. 2.4. 1895, d. 15.6. 1976, og Jóhanna Kristín Magn- úsdóttir, f. 15.3. 1904, d. 8.2. 1996. Börn Óla og Báru eru: 1) Jóhanna 9.12. 1965, þau eiga tvö börn. 9) Þórey Mjöll, f. 26.4. 1971, maki Mar- jan Cekic, f. 18.12. 1970, þau eiga tvo syni. 10) Erla Rut, f. 18.3. 1975, maki Davíð Örn Helgason, f. 30.5. 1978, þau eiga þrjú börn. 11) Alda Björk, f. 14.6. 1977, maki Haraldur Harðarson, f. 12.3. 1975, þau eiga þrjú börn. Óli var fæddur og uppalinn á Ak- ureyri. Hann fluttist til Eskifjarðar um tvítugt og bjó þar upp frá því. Hann hóf störf í síldarbræðslu hrað- frystihúss Eskifjarðar, en starfaði mestan hluta ævi sinnar við múr- verk. Óli hafði mikinn áhuga á íþróttum og spilaði fótbolta á sínum yngri árum með Þór á Akureyri og Austra á Eskifirði. Eftir að hann lagði skóna á hilluna gerðist hann knattspyrnudómari og síðar eft- irlitsdómari KSÍ. Hann var mikill tónlistarmaður og mjög virkur í tónlistarlífi alla tíð. Sem ungur maður á Akureyri spilaði hann í hljómsveit Ingimars Eydals en eftir að hann fluttist austur spilaði hann í ýmsum hljómsveitum og seinna mikið einn á harmonikkuna. Á næstu dögum kemur út geisladiskur með lögum og textum sem hann hef- ur samið í gegnum tíðina. Útför Óla fer fram frá Eskifjarð- arkirkju í dag, 24. september 2010, og hefst athöfnin kl. 14. María (dóttir Báru), f. 16.9. 1953, maki Jónas Wilhelmsson, f. 21.7. 1954, þau eiga þrjá syni og níu barna- börn. 2) Árni Sæbjörn, f. 26.10. 1957, maki Fanney Linda Krist- insdóttir, f. 30.1. 1957, þau eiga tvo syni. 3) Matthildur, f. 17.8. 1959, maki Benedikt Jón Hilmarsson, f. 21.5. 1957, þau eiga þrjú börn. 4) Guðný Harpa, f. 31.3. 1961, fyrrverandi maki Ali Ragnar Mete, f. 8.2. 1954, þau eiga tvo syni. 5) Ragnar Þór, f. 7.6. 1962, maki Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, f. 21.4. 1972, þau eiga þrjú börn. 6) Óli Fjalar, f. 18.5. 1964, maki Anna Kristín Magnúsdóttir, f. 25.1. 1966, þau eiga þrjú börn. 7) Guðmundur Karl, f. 7.4. 1968, maki Elín Hauksdóttir, f. 1.9. 1968, þau eiga fjögur börn. 8) Hulda Kristín, f. 24.10. 1969, maki Andrés Kolbeinn Steingrímsson, f. Elsku pabbi minn, þá er kallið komið og langar mig að segja nokkur orð um hversu mikil hetja þú varst í þessum miklu veikindum. Það var ekkert lítið á þig lagt undir það síð- asta og veit ég að það var gott fyrir þig, elsku pabbi, að fá hvíldina. Við tvö áttum áttum ógleymanleg- ar stundir í ferðum okkar suður til Reykjavíkur, bæði erfiðar og gleði- legar, og þótt þú værir mjög veikur kvartaðir þú aldrei, það var hreint ótrúlegt. Langar mig að þakka guði fyrir það að þú náðir að hlusta á geisladiskinn þinn sem verið er að gefa út með lögunum þínum og er ég ekkert smá þakklát öllum þeim sem gerðu það mögulegt að þú fengir að heyra endanlegu útgáfuna. Það var dásamlegt að bruna með geisladisk- inn og græjurnar til þín á sjúkra- húsið í Neskaupstað og sjónin sem birtist mér þegar ég setti diskinn þinn í gang mun aldrei hverfa úr huga mér. Pabbi, það var dásamlegt að sjá hvað þú brostir út að eyrum, svo dásamlega stoltur, eins og við öll systkinin, með útkomuna og verð ég ævinlega þakklát að við náðum að ræða hann aðeins áður en þú varst of veikur til að tala. En þú sýndir mér þessar síðustu þrjár nætur þínar sem ég var hjá þér á spítalanum að þótt þú gætir ekki rætt meira um diskinn undir það síðasta þá veit ég að þú hlustaðir á hann því ég sá að þú slóst taktinn með löppinni og putt- anum. Elsku pabbi, ég veit að þú ert í góðum höndum og ég veit að þú varst að bíða eftir disknum þínum og er ég svo glöð í hjartanu að það skyldi tak- ast. Takk fyrir allt, pabbi minn, nú veit ég að þér líður vel. Yndislegar kveðj- ur frá Adda Steina og Hjördísi Báru. Þín dóttir, Hulda. Elsku besti pabbi minn, mér finnst alltof snemmt að kveðja þig núna eft- ir erfiða baráttu við krabbamein. Aldrei kvartaðir þú, hetjan mín. Þú ætlaðir bara á spítala í 2-3 daga til að fá þau lyf sem þú þurftir en kallið kom alltof snemma og þú varst tekinn frá okkur. En eftir sitjum við og huggum hvort annað. Elsku pabbi minn, við pössum mömmu fyrir þig sem var kletturinn í þínu lífi. Elsku pabbi, þú kallaðir mig alltaf Peltingu þegar ég var lítil og ég svar- aði því nafni og þykir vænt um það nafn enn í dag og stundum kalla ég Hörpu og Báru það. Þær voru ófáar fótboltaferðirnar sem við fórum á sumrin þegar þú varst að dæma og voru það skemmti- legar ferðir. Þú varst alltaf tilbúinn að setjast niður með mér og hjálpa mér að læra og stundum kom Harpa mín til þín til að fá hjálp við lærdóminn.Við systur tókum upp Fossberg-nafnið þitt árið 1996 og varst þú ánægður með það, svo bera börnin okkar Halla það nafn líka. Þegar við Halli kynntumst og fór- um að búa saman þá fór ég ekkert of langt frá ykkur, við bjuggum í næsta nágrenni við ykkur mömmu fyrstu árin. Er Harpa Mjöll fæddist þá varst þú tilbúinn við símann að hringja út fréttir um að Peltingin væri búin að eiga stúlku og það kom stoltur afi að heimsækja okkur á spítalann. Þegar við Halli giftum okkur þá leiddir þú okkur Hörpu inn kirkju- gólfið og spilaðir á nikkuna lag sem Óðinn Valdimarsson vinur þinn gerði frægt, Augun þín blá. Þeim degi gleymi ég aldrei, ég er svo ánægð með hvað þú tókst mikinn þátt í þess- um degi með okkur. Þegar við Erla systir ásamt mök- um keyptum húsin okkar inni í dal þar sem þú, elsku pabbi, múraðir húsin fyrir okkur og gamall vinur þinn, Rúnar Halldórsson, aðstoðaði þig, þá varst þú svo stoltur og við ennþá stoltari að þú skyldir hafa get- að það. Þetta sama ár óx enn ríki- dæmi ykkar mömmu þegar þrjú ný barnabörn bættust í hópinn, þau Telma, Hildur Bára mín og Daníel. Það voru komnir fjórir Ólar í fjöl- skylduna en bara þrjár Bárur svo ég jafnaði það með Báru minni, þér fannst alltaf svo gott að hafa nóg af Bárum í kringum þig. Ég sagði við þig, pabbi, að ég myndi koma með þrítugasta barna- barnið og stóð ég við það er Hörður Breki fæddist og þú hélst honum undir skírn. Þegar Harpa byrjaði að læra á harmonikkuna varst þú svo stoltur og ánægður yfir því. Ég man að þeg- ar þið spiluðuð saman fyrst var mjög stutt í tárin, ég var svo glöð með það. Elsku pabbi, það er svo mikill missir að þér, þú varst eini afinn sem börnin mín þekktu því föðurafi þeirra var látinn áður en þau fædd- ust. Ég mun halda minningu þinni á lofti með því að segja þeim sögur af þér og sýna þeim myndir. Ég var svo stolt af þér þegar þú vannst sjómannalagakeppnina á Rás tvö í sumar, enda yfirburðalag þar á ferð. Þú varst svo spenntur fyrir út- komu disksins þíns í lok september og var disknum komið til þín og fékk hann að hljóma síðustu dagana þína á spítalanum. Elsku pabbi, ég kveð þig með miklum söknuði, þú munt alltaf eiga stað í mínu hjarta. Ég mun alltaf elska þig, pabbi minn. Þín Alda Björk Fossberg Óladóttir. Nú ert þú fallinn frá, elsku pabbi minn, og eftir situr stórt tómarúm í mínu hjarta, sem enginn mun fylla. Hér sit ég og minningarnar um okk- ur hrannast upp. Til dæmis allar dómaraferðirnar sem við fórum sam- an þegar þú varst að dæma knatt- spyrnuleiki um allt Austurland og allar stundirnar þegar þú varst að spila fyrir okkur krakkana á harm- onikkuna og orgelið og við sungum með. Uppáhaldslögin mín voru þau sem þú samdir sjálfur, til dæmis um Jóhann Veigar son minn sem var sól- argeislinn þinn, enda skírðir þú lagið Sólargeislinn og lagið um Jóu ömmu sem þú samdir fljótlega eftir andlát hennar 96. Já, og lagið sem þú samd- ir um ykkur mömmu þegar þið kynntust í Egilsstaðaskógi. Ég var svo ánægð og stolt af þér þegar lagið þitt Blikandi bárur vann sjómannalagakeppni Rásar 2 nú í sumar en þú áttir það svo sannarlega skilið, elsku pabbi. Þegar ég varð ófrísk að mínu fyrsta barni þá stóðuð þið mamma eins og klettar við bakið á mér og hafið alltaf gert. Þegar sól- argeislinn þinn leit dagsins ljós mættir þú á spítalann til mín, tókst drenginn í fangið og frá þeirri stundu bundust þið órjúfandi bönd- um. Segja má að þú hafir gengið drengnum í föður stað. Þegar ég kom með Jóhann Veigar heim þá var barnið svo ríkt að hafa þig, pabbi minn, mömmu Öldu og Þóreyju en öll tókum við virkan þátt í uppeldinu. Ég man hversu glaður þú varst að það skyldi koma drengur á heimilið en í honum fannst þú banda- mann til móts við allt kvennaríkið sem þú á þeim tíma bjóst við. Þú varst svo glaður þegar ég skírði Jóhann Veigar Fossberg en hann er sá fyrsti sem skírður er Fossberg í höfuðið á þér en seinna tókum við fjórar systurnar nafnið þitt upp. Þegar ég kynnti eiginmann minn Davíð fyrir þér þá varstu mjög glað- ur og eftir því sem kynni ykkar urðu meiri sagðir þú mér hvað þú værir ánægður með hversu heppin ég væri að hafa náð mér í mikinn afbragðs- mann sem væri Jóhanni svo góður faðir Minnisstætt er það, elsku pabbi, þegar við Alda systir keyptum húsin inni í dal. Það þurfti að múra og það þurfti að gera allt mögulegt annað. Þrátt fyrir að þú værir farinn að reskjast þá var ekki við annað kom- andi en að þú múraðir húsið allt, það skyldi sko enginn annar gera. Það gerðir þú svo í félagi við gamlan vin þinn, Rúnar Halldórsson. Síðan bættist í barnahópinn þegar ég átti Thelmu Rún Fossberg 2004 og síðan Daða Örn Fossberg 2005. Þú, elsku pabbi, tókst þessi börn upp á arma þína og varst þeim svo miklu meira en bara afi. Þú komst oft í Skammadal til að sækja þau, stund- um eitt og stundum tvö til að fara í fjöruferð út á Mjóeyrina. Ég ætla að minnast á diskinn með lögunum þínum. Þú lagðir á það mikla áherslu að þú fengir að hlusta á lagið um Akureyri, fæðingarbæ þinn sem þú elskaðir og dáðir. Það gekk eftir en þú náðir að hlusta á hann skömmu áður en þú fórst yfir móðuna miklu. Elsku pabbi, ég gæti sagt svo ótal margt fleira en læt þessi fátæklegu orð duga. Ég veit að nú ertu laus undan þjáningum þínum og að vel verður tekið á móti þér þar sem þú ert. Erla Rut Fossberg Óladóttir. Elsku pabbi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. ( Valdimar Briem) Ég man þegar ég var lítill drengur heima á Túngötunni fullur fótbolta- áhuga og þú dómari. Þú dæmdir marga leiki hjá mínu liði en það var sjaldnast sem ég fékk að njóta vaf- ans, en það var farið vel yfir leikinn þegar heim var komið. Það var ým- islegt notað í fótboltaleik í holinu á Túngötunni og yfirleitt ekki hætt fyrr en tár féllu eða eitthvað brotn- aði. Þessu sameiginlega áhugamáli okkar deildum við alla tíð og gátum endalaust spjallað um þessa skemmtilegu íþrótt. Ég er líka stolt- ur af því að hafa millinafnið mitt í höfðið á uppeldisfélagi þínu, Þór Ak- ureyri. Ég byrjaði snemma að vinna með þér og félögum þínum í múrverkinu, það var góður skóli. Þú kenndir mér með góðri fyrirmynd; stundvísi, dugnað og ósérhlífni. Þessa þætti hef ég haft að leiðarljósi í lífinu og það hefur reynst mér vel. Þú sagðir mér oft hvað tónlist væri mannbætandi og stór þáttur í lífinu. Þegar eitthvað bjátaði á eða þú áttir ekki góðan dag, settist þú oft með nikkuna eða við orgelið og spilaðir þig frá því. Lögin þín og textar sem þú samdir í gegnum tíðina hafa oft kætt okkur fjölskylduna. Á undan- förnu ári hefur farið fram mikil og óeigingjörn vinna með lögin þín og er afraksturinn að líta dagsins ljós um næstu mánaðamót, þ.e. 13 laga geisladiskur. Það hefur styrkt þig og glatt í veikindum þínum að taka þátt í þessari vinnu og þú fékkst að heyra endanlega útkomu áður en þú kvadd- ir – varst stoltur og fullkomlega sátt- ur. Það er mér mikils virði að hafa átt þátt í því að koma þessum gersemum í útgáfu og ómetanlegt fyrir okkur sem eftir stöndum að geta hlustað á músíkina þína um ókomna tíð. Hvíldu í friði, elsku pabbi minn. Ragnar Þór Ólason. Elsku pabbi, ég hefði ekki getað ímyndað mér að ég ætti eftir að skrifa minningargrein um þig tveim- ur mánuðum eftir að ég kom heim úr sex vikna sumarfríi í Serbíu. Ég var svo glöð að sjá hvað þú leist vel út. Ég var að rifna úr stolti og sat tímunum saman við tölvuna úti og hlustaði á viðtölin við þig þegar þú vannst sjómannalagakeppni Rásar 2 með lagið þitt Blikandi bárur. Þú varst bara flottastur í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, hvort sem var markvarsla, múrverk, spila á nikkuna, orgelið eða að dæma. Fót- bolti átti stóran sess í lífi þínu, þú byrjaðir sem markvörður hjá Þór Akureyri og síðan hér hjá Austra á Eskifirði eftir að þið mamma kynnt- ust. Þegar þú hættir í markinu gerð- ist þú dómari og eru þær ófáar ferð- irnar sem við fórum með þér, misskemmtilegar vegna innákalla. Oft fékk ég tár í augun eftir innáköll áhorfenda til þín en þú lést þessi læti ekki hafa nein áhrif á þig. Ég hef líka orðið þess aðnjótandi að keppa í leik sem þú dæmdir og í þeim leik rakstu mig af leikvellinum fyrir brot, en það var nú allt í góðu. Þegar þú hættir að dæma gerðist þú eftirlitsdómari og starfaðir við það í mörg ár. Þeir voru ófáir leikirnir sem við fórum á saman. Ég man þegar ég var eitt sinn í sumarfríi erlendis og hringdi heim að þú sagðir mér að það væru komnir tveir nýir Serbar í liðið okkar KVA, annar væri markmaður og hinn framherji, rosaleg marka- maskína og með alveg þvílíka tækni, hann varð síðar tengdasonur þinn. Þegar við fórum að draga okkur saman varst þú svo stoltur af Marjan og alltaf að dásama hann, hann væri alltaf langbesti maðurinn á vellinum, en þér þótti verst hvað hann tuðaði alltaf í dómurunum! Pabbi talaði alltaf íslensku við Marjan og það furðulegasta var að þeir skildu alltaf hvor annan, enda var Marjan fljótur að ná að tala og skilja íslensku. Síðan þegar við Mar- jan fórum að búa saman á Strandgöt- unni aðstoðuðuð þið mamma okkur samviskusamlega við að standsetja íbúðina. Árið 2001 fæddist Stefán en það var í Reykjavík og 2004 Daníel Þór í Neskaupstað og alltaf varst þú við símann til að hringja út fréttirnar áð- ur en þú komst sjálfur í heimsókn til okkar. Elsku pabbi minn, mikið voru samverustundirnar dásamlegar með strákunum okkar Marjans. Þú varst óþreytandi að spjalla við þá en fót- boltinn átti hug þinn allan og Þór og Austri. Oft fóru rauð og gul spjöld á loft hjá drengjunum þegar þeim sinnaðist eitthvað við foreldrana. Það var alltaf svo frábært þegar þú settist með nikkuna og spilaðir fyrir okkur systkinin og sungum við með. Diskurinn með lögunum þínum er rétt ókominn út en þú fékkst hann þó til þín á sjúkrahúsið og gast hlustað á hann og slóst taktinn áður en þú fórst. Þú hafðir mestar mætur á lag- inu um Akureyri en það er fæðing- arbær þinn. Elsku pabbi minn, það er svo erfitt að kveðja þig svona í hinsta sinn og minningarnar streyma taumlaust fram. En ég veit að nú ert þú laus undan þjáningum og kominn á góðan stað þar sem vel hefur verið tekið á móti þér. Við stórfjölskyldan munum hugsa vel um mömmu. Þórey Mjöll Fossberg Óladóttir. Elsku afi, sakna þín mikið enda mikill afastrákur. Það var svo gaman að fara í bílinn þinn og taka rúnt með þér. Sakna þín, elsku besti afi minn. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hörður Breki Fossberg. Elsku afi, mér finnst leiðinlegt að ég mátti ekki koma á spítalann að heimsækja þig því þú varst veikur. Mér fannst gaman þegar þú fórst með okkur í hesthúsið, fjöruna og sjoppuna. Það var gaman að koma heim til þín og ömmu að teikna og lita myndir, þú varst alltaf að segja okkur sögur af þér litlum strák á Ak- ureyri. Ég elska þig, afi minn, og sakna þín mikið. Þú vakir, faðir vor, og verndar börnin þín, svo víð sem veröld er og vonarstjarna skín, ein stjarna hljóð á himni skín. (Sigurbjörn Einarsson.) Hildur Bára Fosssberg. Óli Fossberg Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi, við söknum þín svo mikið. Það er skrítið að koma á Tún- götuna og þú ekki þar til að taka á móti okkur með því að klappa okkur á höfuðið og stundirnar okkar sem við sát- um og teiknuðum, lituðum og hlustuðum á sögur hjá þér, þú áttir nú nóg af þeim. Og þegar þú stóðst uppi á palli og dæmdir hjá okkur þeg- ar við vorum í fótbolta í garð- inum þínum, þú nenntir alltaf að leika við okkur. Takk fyrir að gera allt þetta með okkur. Við skulum passa ömmu fyrir þig. Stefán Bjarki Cekic og Daníel Þór Cekic.  Fleiri minningargreinar um Óla Fossberg Guðmundsson bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.