Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 40

Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 40
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Mætti með kornabarn á þingfund 2. Tældi unga stúlku með gjöfum 3. Lést í slysi á Grænlandi 4. Jörðin er í hættu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fylgst er með dönskum herflokki í Helmand-héraði í Afganistan í heim- ildarmyndinni Armadillo en hún fær fullt hús stiga hjá gagnrýnanda í blaðinu í dag. Þá er einnig rætt við höfund myndarinnar. »34/36 Áhrifamikil stríðs- heimildarmynd  Smásagna- safnið Tvisvar á ævinni, eftir rit- höfundinn Ágúst Borgþór Sverr- isson, kemur út á ensku hjá bresku útgáfunni Comma Press í maí á næsta ári. Bókin kom út árið 2004, gefin út af Skruddu. Enska útgáfan hlaut þýð- ingarstyrk frá Evrópusambandinu og er unnið að þýðingunni. Smásagnasafn Ágústs gefið út á ensku  Söngvarinn Eiríkur Hauksson mun annað kvöld syngja með hljómsveit- inni Von á Sauðárkróki á árlegu Lauf- skálaréttarballi í reiðhöllinni Svaða- stöðum. Þar munu einnig troða upp Magni Ásgeirsson og Sigríður Bein- teinsdóttir. Frá þessu segir á vefnum Feyki. Húsið verður opn- að kl. 23 og er ald- urstakmark 16 ár. Eiríkur Hauksson á Laufskálaréttarballi Á laugardag Suðaustan 10-15 m/s og rigning, en 5-10 m/s og úrkomulítið norðaustan- lands. Hiti 8-13 stig. Á sunnudag Hvöss suðaustanátt og rigning, en hægari vindur og yfirleitt þurrt norð- austantil á landinu. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 m/s við SV- og V-ströndina síðdegis. Súld eða dálítil rigning, en þurrt á NA- og A-landi. Hiti 7 til 12 stig að deginum. VEÐUR Kvennalið Vals og Breiða- bliks eru í erfiðri stöðu eftir fyrri leiki liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Valur tap- aði 3:0 á Spáni gegn Rayo Vallecano og Breiðablik tap- aði með sama mun gegn franska liðinu Juvisy Es- sonne á Kópavogsvelli. Síð- ari leikirnir fara fram 13.-14. október en samanlagður árangur úr báðum leikjum reiknast. »3 Valur og Breiða- blik í erfiðri stöðu Guðmundur Guðmundsson mun stýra íslenska landsliðinu í hand- knattleik á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð þrátt fyrir að hann hafi skrif- að undir fimm ára samning við þýska liðið Rhein Neckar- Löwen í gær. »1 Guðmundur tekur við þjálfun RN-Löwen „Það hefur verið markmið okkar síð- ustu ár að rífa FH upp og koma því í fremstu röð á nýjan leik. Tvö síðustu ár hefur nokkuð verið rætt um reynsluleysi en ég held að við getum ekki notað það sem afsökun lengur,“ sagði Ólafur Guðmundsson, hand- knattleiksmaður hjá FH. „Nú þurfum við að stíga skrefið fram á við og ná árangri.“ »4 FH-ingar vilja komast í fremstu röð á ný ÍÞRÓTTIR Kvikmyndahátíðin RIFF var opnuð í Þjóðleik- húsinu í gærkvöldi við hátíðlega athöfn. Var það Jón Gnarr borgarstjóri sem setti hátíðina með formlegum hætti. Opnunarmyndin í ár var bandaríska myndin Cyrus en alls voru 22 myndir sýndar þetta fyrsta kvöld hátíðarinnar. Segja má að Þjóðleikhúsið hafi loks uppfyllt eitt hlutverka sinna, en það var á sínum tíma teiknað með það í huga að hægt væri að sýna þar kvikmyndir. RIFF rúllar af stað í Þjóðleikhúsinu Morgunblaðið/Ernir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Klúbbur matreiðslumeistara gengst fyrir matarhátíð í Vetrargarðinum í Smáralind um helgina og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Matardagar 2010 nefnist við- burðurinn og er stefnt að því að hann verði árlega. Hafliði Hall- dórsson, forseti Klúbbs matreiðslu- meistara, segir að í mörg ár hafi ver- ið keppt um sæmdarheitið Matreiðslumaður ársins. Fé- lagsmenn hafi tekið þátt í keppni og sýningum víða og til dæmis lengi tekið þátt í matarhátíð í Fífunni í Kópavogi. Nú hefði hins vegar verið ákveðið að halda eigin hátíð með það að leiðarljósi að halda hana árlega. Keppni á ýmsum nótum Í gær var forkeppni tíu manna í keppninni um Matreiðslumenn árs- ins og keppa fimm þeirra til úrslita á sunnudag. Í dag mæta sjónvarpskokkar til leiks. Jóhannes Felixson frá Stöð 2, Hrefna Rósa Sætran frá Skjá einum og Magnús Ingi Magnússon frá ÍNN hefja keppni klukkan 16.00. Hver kokkur hefur það verkefni að útbúa afmælisveislu á heilsusamlegum nót- um fyrir tíu ára krakka og hafa þeir einn og hálfan tíma til þess að útbúa veisluna en úrslit verða tilkynnt klukkan 18.00. Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir hjá Sjónvarpinu fékk boð um að keppa en ekki er víst að hún geti mætt vegna anna í vinnunni. Tvö tíu ára börn verða í dómarasæt- inu ásamt fullorðnum leynidómara. Á morgun sýnir kokkalandsliðið keppnishlaðborð fyrir heims- meistaramótið í matreiðslu frá klukkan 12 til klukkan 18. Auk þess keppa kraftlyftingamenn í hamborg- araáti. Ljósmynd/Matthías Þórarinsson Lostæti Forkeppni tíu manna hófst í Vetrargarðinum í Smáralind í gær og úrslit verða á sunnudag. Sjónvarpskokkar keppa  Matardagar 2010 verða í Smáralind um helgina  Kokkalandsliðið sýnir keppnishlaðborð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.