Morgunblaðið - 24.09.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.09.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010 Atlaga pólitískra vina Baugs drapfjölmiðlalögin. Það skemmdar- verk varð afdrifaríkt.    Páll Vilhjálmssonskrifar: „Jón Ásgeir Jóhannesson eignaðist fjölmiðla í byrjun aldar til að stýra umræðunni í sína þágu annars vegar og hins vegar að auka völd sín gagnvart stjórn- málaflokkum.    Stjórnmálamenneru háðir fjöl- miðlum og komast ekki í samband við kjósendur án þeirra. Björn Bjarnason skrifar ítarlega grein í nýjasta hefti Þjóðmála um vöxt fjöl- miðlaveldis Jóns Ásgeirs. Í grein Björns er m.a. rakið shvernig Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings hafði milli- göngu um að Jón Ásgeir keypti árið 2004 Norðurljós (Stöð 2, Bylgjuna o.fl.) af Jóni Ólafssyni sem kenndur er við Skífuna og var kominn með allt niðrum sig.    Viðskiptafélagsskapur Jóns Ás-geirs og Kaupþings hélt áfram og það var Kaupþing sem leyfði Jóni Ásgeiri að gera undarlegustu fléttur við hrunið til að bjarga eigin skinni.“    Stöð tvö og einkum Fréttablaðiðvoru og eru notuð til að rugla umræðuna og falsa fréttir í þágu Baugshagsmuna. Nokkrum sinnum urðu ritstjóraskipti á Fréttablaðinu, en aldrei batnaði framganga blaðs- ins.    Aðalritstjórinn var alltaf hinnsami og er enn. Fréttir voru falsaðar eftir sem áður og sam- felldar árásir gerðar á meinta óvini Baugs, stuðningsmenn þeirra og jafnvel ættingja. Þar lagðist margur lágt. Björn Bjarnason Ömurlegur þáttur STAKSTEINAR Páll Vilhjálmsson Veður víða um heim 23.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 5 skýjað Akureyri 7 skýjað Egilsstaðir 7 skýjað Kirkjubæjarkl. 7 rigning Nuuk 8 skýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló 12 alskýjað Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 13 skýjað Helsinki 12 skýjað Lúxemborg 22 léttskýjað Brussel 18 þrumuveður Dublin 15 skúrir Glasgow 13 léttskýjað London 17 léttskýjað París 22 léttskýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 22 léttskýjað Berlín 22 heiðskírt Vín 21 léttskýjað Moskva 12 skýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 22 léttskýjað Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 10 alskýjað Montreal 12 alskýjað New York 24 heiðskírt Chicago 27 skýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:17 19:24 ÍSAFJÖRÐUR 7:22 19:29 SIGLUFJÖRÐUR 7:05 19:12 DJÚPIVOGUR 6:46 18:53 Andri Karl andri@mbl.is Í ljósi þess að ágreiningur hefur verið um tilgang og tæknileg áhrif vegna notkunar fjölfosfata og þess að EES- ríki hafa ekki tekið endanlega afstöðu eða gripið til víðtækra aðgerða ákvað Matvælastofnun (MAST) að fresta áður boðuðum aðgerðum gegn salt- fiskframleiðendum. Fiskverkun Karls Sveinssonar á Borgarfirði eystra sagði um miðjan mánuð upp öllu starfsfólki. Bar for- svarsmaður fyrirtækisins því við að hann hefði ekki viljað nota þessi fjöl- fosföt og telur hann sig hafa orðið fyr- ir miklu fjárhagstjóni vegna þess að Matvælastofnun framfylgi ekki banni við notkun þeirra. Jóhannes Arason, sem hefur verið við ráðgjafarstörf í matvælaiðnaði í fjörutíu ár, fylgist vel með þróuninni í saltfiskframleiðslu. Í bréfi til blaðsins segir hann að fyrirtæki hans hafi ný- lega aðstoðað franskt saltfiskfyrir- tæki sem átti í vandræðum vegna samkeppninnar við saltfisk ólöglega framleiddan á Íslandi, þ.e. notkunar áðurnefndra efna og með fulltingi eft- irlitsstofnana. Hann segir jafnframt að Matvælastofnun og nátengd til- raunarannsóknarstofa hafi mikla ábyrgð á herðum sér, þegar rannsókn á störfum þeirra hafi farið fram, en Karl Sveinsson hefur einmitt farið fram á opinbera rannsókn ríkislög- reglustjóra. Matvælastofnun bendir á, að notk- un fjölfosfata við framleiðslu á salt- fiski sé ekki bara bundin við Ísland. MAST hafi gefið út að hún telji óheimilt að nota fjölfosfat við saltfisk- vinnslu, en hins vegar hafi verið ákveðið að bíða eftir niðurstöðu sér- fræðinganefndar Evrópusambands- ins sem fjallar um ósk framleiðenda efnanna um að heimila þau. „Niðurstaða sérfræðinefndarinnar mun skýra hvort líta beri á fjölfosföt sem tæknileg hjálparefni eða aukefni, en hagsmunaaðilar bæði í Noregi og á Íslandi hafa talið að notkun væri heimil sem tæknilegt hjálparefni, á meðan stjórnvöld í báðum ríkjum hafa fært rök fyrir því að um notkun efnanna skuli farið samkvæmt auk- efnareglum.“ Beðið eftir niðurstöðu nefndar  MAST segir notkun fjölfosfata við saltfiskframleiðslu ekki bundna við Ísland  Hagsmunaaðilar bæði í Noregi og á Íslandi hafa talið notkunina heimila Morgunblaðið/Ómar Barcelona Mikil og hörð samkeppni er um saltfisk á Spánarmarkaði. Stjórnvöld í báðum ríkjum hafa fært rök fyrir því að um notkun efnanna skuli farið sam- kvæmt aukefna- reglum. Varað hefur verið við sykursýk- islyfjum sem innihalda rósíglítazón og verður dreifingu þeirra hætt hér á landi, þótt þau verði ekki inn- kölluð, að sögn Hjörleifs Þórarins- sonar, framkvæmdastjóra Glax- oSmithKlein á Íslandi. Um er að ræða lyfin Avandia, Avandamet og Avaglim. Um 300-400 manns gætu notað það hérlendis. Áfram til sölu í Bandaríkjunum Í tilkynningu frá fyrirtækinu seg- ir að sérfræðinefnd Lyfjastofnunar Evrópu hafi komist að þeirri nið- urstöðu að ávinningur af notkun lyfja sem innihalda rósíglítazón sé ekki lengur talinn meiri en áhættan af notkun þeirra. Hefur sölu á lyfinu verið hætt í Evrópu. Hjörleifur segir að lyfið verði tek- ið úr dreifingu hér á landi en áréttar að fólk sem notar lyfið ætti ekki að hætta notkun þess skyndilega held- ur ráðfæra sig við lækni um næstu skref og ákveða aðra valkosti. Í tilkynningunni segir að frá því fyrst var veitt leyfi fyrir Avandia hafi legið fyrir að rósíglítazón tengd- ist vökvasöfnun og aukinni hættu á hjartabilun. Í Bandaríkjunum verð- ur áfram hægt að kaupa lyfið en ein- ungis ef sjúklingar og læknar eru sammála um að aðrar meðferðir hafi ekki gert gagn. Hætta sölu á sykursýkis- lyfjum vegna aukaverkana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.