Morgunblaðið - 27.09.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.09.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 Steingrímur J. Sigfússon fjár-málaráðherra, sá örþreytti maður, er óþreytandi við að koma Icesave-klafanum á íslensku þjóðina.    Nú hefur lítið sem ekkert heyrstaf Icesave-málum um nokkra hríð. Einhverjir hafa haldið í þá von að það þýddi að Steingrímur hefði látið af því að reyna að knýja Breta og Hollendinga til að taka við greiðslu frá íslensk- um skattgreið- endum.    Svo er þó ekki þvíað Steingrímur hefur upplýst að við- ræður standi enn yf- ir og að hann vonist til að honum takist að gera nýjan samning við Breta og Hollendinga.    Þessi afstaða Steingríms er mjögathyglisverð, ekki síst í miðri landsdómsumræðunni. Það er alveg sama hversu oft Bretar og Hollend- ingar standa upp frá samningaborð- inu, Steingrími tekst alltaf að draga þá þangað aftur.    Afstaða Steingríms, og rík-isstjórnarinnar í heild, sýnir hve nauðsynlegt það er að rannsókn fari fram nú þegar á Icesave-málinu og hvernig haldið hefur verið á hagsmunum Íslendinga.    Meirihluti Atlanefndarinnar svo-kölluðu telur að slík rannsókn sé ekki tímabær fyrr en samningar hafi náðst við Breta og Hollendinga, sem er öfugsnúin afstaða.    Nauðsynlegt er að rannsaka ántafar framgöngu Steingríms og félaga til þess meðal annars að koma í veg fyrir að þeir geti með áframhaldandi blekkingarleik reynt að þröngva nýjum samningum upp á íslenska skattgreiðendur. Steingrímur J. Sigfússon Rannsókn án tafar á Icesave STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 14 skýjað Akureyri 16 alskýjað Egilsstaðir 11 skýjað Kirkjubæjarkl. 10 rigning Nuuk 5 skúrir Þórshöfn 8 skýjað Ósló 8 heiðskírt Kaupmannahöfn 15 alskýjað Stokkhólmur 11 skýjað Helsinki 10 heiðskírt Lúxemborg 8 skýjað Brussel 12 skúrir Dublin 11 léttskýjað Glasgow 13 léttskýjað London 12 skýjað París 12 skúrir Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 12 skúrir Berlín 11 skúrir Vín 11 skúrir Moskva 15 léttskýjað Algarve 23 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 22 skýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 16 léttskýjað Montreal 10 súld New York 21 heiðskírt Chicago 13 skýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:26 19:13 ÍSAFJÖRÐUR 7:31 19:17 SIGLUFJÖRÐUR 7:14 18:59 DJÚPIVOGUR 6:55 18:42 Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@mbl.is Tveir jarðskjálftar urðu seint á laugardagskvöld við Hamarinn, undir norðvestanverðum Vatnajökli. Sá fyrri klukkan 21.11, að stærð 3,5 en sá síðari klukkan rúm- lega hálftólf, 3,7 að stærð, og fylgdu tugir eftirskjálfta í kjöl- farið. Að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings er ekki óal- gengt að þarna verði skjálfta- hrinur enda sé að hefjast óróa- tímabil í Vatnajökli. Hins vegar tengist þessi skjálftahrina ekki beinlínis Grímsvötnum og ekki um gosóróa að ræða eins og bú- ast megi við á þessu svæði á næstunni. Páll hélt ein- mitt fyrirlestur í tengslum við Vísindavöku í síð- ustu viku undir yfirskriftinni „Hvar gýs næst?“ Þar sagði Páll vísindamenn telja yfirgnæfandi líkur á því að næsta eldgos á Íslandi yrði í Grímsvötnum, og þá fyrr en síðar. Þar kom einnig fram að ekkert benti til þess að eldfjallið Katla væri að lifna við í framhaldi af eldgosinu í Eyjafjallajökli, óróinn í Mýrdalsjökli væri svipaður og verið hefði síðustu ár. Spár vísindamannanna byggjast á vöktun og mælingum síðastliðna áratugi og telja þeir mjög líklegt að gjósa muni í Grímsvötnum á næstunni. Páli brá þó ekki við þegar hræringarnar hófust í Vatnajökli um helgina og segir skjálftana á laug- ardagskvöld ekki hafa verið stóra og ekki hægt að leggja mikla merkingu í þessa skjálftahrinu. Þó sé hún eftirtektarverð í ljósi þess að vísindamenn telji vaxandi líkur á gosi undir Vatnajökli. „Þetta verður allt að skoðast í samhengi. Til dæmis kom skjálfta- hrina við Hamarinn um 8-9 mánuðum áður en gosið hófst í Gjálp 1996, og er litið svo á að hún hafi verið hluti af aðdraganda þess goss.“ Hamarinn er sérstök eldstöð sem stendur í jaðr- inum á Vatnajökli og er í röð fyrirbrigða sem mynda virka svæðið í jöklinum, ásamt t.d. Gríms- vötnum og Skaftárkötlum. Hrinan ekki gosórói í Grímsvötnum Páll Einarsson Hvar gýs næst? » Næsta eldgos á Íslandi verður í Gríms- vötnum á næstunni, segja vísindamenn. » Skjálftahrina við Hamarinn eftirtekt- arverð í ljósi aðdraganda gossins í Gjálp 1996. » Hrinan nú bendir þó ekki til að gosórói sé að hefjast. » Katla er enn róleg en undarlegar hreyf- ingar í Austmannabungu í Mýrdalsjökli sem fylgst er með. Þessa dagana eru staddir hér á landi um þrjátíu krakk- ar á ellefta ári sem eru úr fámennustu byggðunum á austurströnd Grænlands. Þau eru hér í sundkennslu í laugunum í Kópavogi en bæjaryfirvöld þar hafa lengi verið bakhjarlar þessa verkefnis sem Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, stendur fyrir. Sökum skilyrða í heimalandinu er sundkunnátta Grænlendingum mikil- væg og eru laugarnar stundaðar grimmt meðan á Ís- landsdvölinni stendur. Í gær var hins vegar gert hlé á náminu og farið í bíó og á pitsastað í Smáralind og bragðað á flatbökum sem eru ólíkar þeirri matarhefð sem er við lýði meðal Grænlendinga. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grænlandsbörnin gæða sér á pitsum Stund milli stríða í sundkennslunni Meirihluti þátttakenda í könnun Gall- up fyrir RÚV vill að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði ákærðir fyrir lands- dómi. Fram kom í fréttum Útvarps að fólk með lægri tekjur vill frekar ákæra en hinir tekjuhærri. Einnig vilja yngri kjósendur frekar ákæra en þeir eldri. Úrtakið í könnuninni, sem var net- könnun, gerð 16. til 23. september, var 1200 manns. Svarhlutfall var 65%. Afstaða þeirra sem svöruðu fór mjög eftir því hvaða flokka þeir styðja. Þannig sögðust 30% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks vilja að Geir H. Haarde yrði ákærður, 26% sögðust vilja að Árni M. Mathiesen yrði ákærður, 33% vilja að Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir verði ákærð og 31% segist vilja að Björgvin G. Sigurðsson verði ákærður. 69% kjósenda Samfylkingar vilja að Árni verði ákærður, 65% vilja ákæra Geir, 45% Ingibjörgu og 31% vill ákæra Björgvin. Um 2/3 kjósenda Framsóknarflokks vilja að Geir, Árni og Ingibjörg verði ákærð. Um helmingur vill ákæra Björgvin. Um 84% kjósenda VG sögð- ust vilja að Árni yrði sóttur til saka, 82% vilja að Geir verði ákærður, 76% sögðust vilja að Ingibjörg yrði ákærð og um 60% vilja að Björgvin sæti ákæru. Meirihluti vill ákæra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.