Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 11

Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 11
arsálina. „Það er dauðasynd að geta ekki unnið, það liggur við að það sé sagt upp í opið geðið á manni; þú ert nú meiri auminginn að geta ekki séð fyrir þér, án þess að fólk geri sér í hugarlund ástæðurnar sem kunna að liggja þar að baki,“ segir Ingibjörg. „Þjóðin hugsar svolítið ennþá: hvað flakar þú marga þorska á klukku- stund?“ segir ónefnda konan og bros- ir út í annað. – Er hægt að brjótast úr viðjum fátæktarinnar? „Ekki í okkar tilvikum, þ.e. okk- ar sem erum af andlegum eða lík- amlegum orsökum öryrkjar. Það er helst möguleiki fyrir þá sem komast aftur út á vinnumarkaðinn en það er afar fátítt,“ útskýrir Ingibjörg. „Það vantar allan hvata í kerfið. Sumir vilja vera í hlutastarfi en þá er þeim refsað á öðrum vígstöðum. Ég fékk t.d. 30% starf hér í Hlutverkasetrinu en ég er verr staddur fjárhagslega fyrir vikið og bætur mínar eru skert- ar. Þetta eru augljósar brotalamir á íslenska velferðarkerfinu. Auk þess er upplýsingaflæðið svo slæmt að það liggur við að ætlast sé til að maður fái hugskeyti,“ segir Jens og hristir höf- uðið. Börn fátækra berast í tal. Dæmi eru um að hér sé að vaxa úr grasi þriðja kynslóð atvinnulausra. Konan hefur orðið: „Allt sem börn alast upp við er þeim eðlilegt. Ef fyrirmynd- irnar, í þessu tilviki foreldrar, ömmur og afar, eru ekki útivinnandi er ekki ólíklegt að börnin fari sömu leið. Þetta viðheldur fátæktinni enn frek- ar og sýnir að vegurinn út úr henni er torveldur.“ – Hefur fátækt orðið sýnilegri eftir efnahagshrunið? „Fólk er ekki beinlínis að bera það á borð en til marks um ástandið þá hefur götubetl aukist gríðarlega, og þar eru börn á aldrinum 10-14 ára og útigangsfólk í miklum meirihluta,“ segir Jens. – Er stéttaskipting innan stétt- arinnar. Er það botninn að betla? „Verst setta fólkið situr bara heima. Þeir sem af einhverjum or- sökum fara út á götu og betla, þeir hafa þá a.m.k. þor til þess,“ segir Ingibjörg og yppir öxlum. „Sumir hafa fordóma gagnvart eigin fátækt. Margir veigra sér við því að þiggja matargjafir og ölmusu og líta á það sem mikla smán,“ bætir Andrea við. Að vera ekki samkeppnishæfur Félagsleg einangrun er algeng- ur fylgifiskur fátæktarinnar. Í verstu tilvikum verður fólk sem fangar á eigin heimili. Þetta kannast viðmæl- endur mínir vel við. „Þetta er vítahringur sem bygg- ist upp hægt og rólega, maður heltist úr lestinni af því maður hefur ekki tækifæri til þess að vera þátttakandi. Fordómarnir standa oft í vegi fyrir því að maður nenni að blanda geði við fólk. Ég þekkti eitt sinn mann sem sagði að það ætti að skjóta alla ör- yrkja. Ég sagði: Þakka þér fyrir, ætl- arðu að byrja á mér?“ segir Jens og ósjálfrátt skellum við hin upp úr en honum er dauðans alvara. Hann heldur áfram og segir: „Fjölskyldan, þinn innsti tengslahringur og jafnvel maki snúast gegn manni. Upplifunin er sú að maður hefur ekkert að bjóða og úr því er kannski best að halda sig innandyra, það kostar líka minnstan pening. Maður er hreinlega ekki samkeppnishæfur á neinum sviðum.“ Þegar blaðamaður spyr um fjöl- skylduhagi þeirra kemur í ljós að öll búa þau einsömul. Jens og Ingibjörg eiga börn sem þau eru í góðum sam- skiptum við. „Ég á sex börn og sjö barna- börn. Aðstæður mínar gera það að verkum að ég hef ekki getað veitt börnum mínum það sem ég vil. Það getur t.d. sett allt á annan endann ef afmæli er í uppsiglingu og maður hef- ur ekki efni á afmælisgjöf,“ segir Ingibjörg. Lykillinn að bata og auknum lífsgæðum er fólginn í mannlegum samskiptum. Þeim hefur verið gefið færi á að virkja samskiptaþáttinn í Hlutverkasetrinu. Þar fá þau að vera með á eigin forsendum án kvaða og hvatningin fyrir virkri samfélags- þátttöku er fyrir hendi. Auk þess er þar gefinn kostur á að stunda fjöl- breytt námskeið fyrir lítinn sem eng- an pening. Þau eru afskaplega þakk- lát fyrir það starf sem þar fer fram og segja að það hafi gefið sér mikið. „Þetta bjargar bara lífi manns,“ segir Andrea, „og andlegri heilsu“, skýtur Ingibjörg inn í. „Ég get tekið undir þetta. Ég hef aðeins stundað starfsemina í þrjár vikur en finn mik- inn mun. Ég hef alla tíð þjáðst af mik- illi félagsfælni, ég fór ekki út úr húsi í tvö ár. Bara það að koma hingað er skref upp á við í bataferlinu. Á menn- ingarnótt stóð ég frammi fyrir því að faðma ókunnugt fólk, sem var mikil áskorun,“ segir Árni en Hlutverka- setur stóð fyrir trommuslætti á Laugaveginum á menningarnótt þar sem gestum og gangandi var boðið upp á ókeypis faðmlög við mikinn fögnuð viðstaddra. – Finnst ykkur opinber umræða um fátækt hér á landi vera á villigöt- um? „Umræðan einskorðast við fá- mennan hóp vel menntaðra ein- staklinga sem fæstir hafa komist í tæri við fátækt. Þetta fólk er bjart- sýnt um stöðu fátækra á Íslandi. Því er öðruvísi farið þegar talað er við þá sem þurfa að berjast í bökkum dag- lega,“ segir Ingibjörg. „Fátækt er þjóðarskömm sem er vel falin og flestir vilja sem minnst af henni vita. Við erum svona huldufólk. Samfélag okkar verður að vakna og verða sýni- legra,“ segir huldukonan og öll kinka þau kolli til samþykkis og vonast til þess að umræða framtíðarinnar verði opnari og fleiri raddir fái að njóta sín. Þess má geta að Andrea vinnur að gerð heimildarmyndar um birting- armyndir fátæktar á Íslandi. Hún hvetur fólk til þess að deila reynslu sinni eða annarra sem það þekkir og senda línu á sogur@hlutverkasetur.is. „Fátækt á ekki að vera einkamál,“ segir Andrea að lokum og vonast til að sem flestir leysi frá skjóðunni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 MARKMIÐIÐ MEÐ STARFINU Hlutverkasetur hefur sinnt at- vinnulegri endurhæfingu frá árinu 2007. Þar er boðið upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni á markvissan hátt eða auka lífs- gæðin. Markmiðið með starfinu er að þátttakendur komist út á al- mennan vinnumarkað, fari í nám eða brjótist út úr félagslegri ein- angrun. Þar er unnið marvisst að því að nýta þekkingu og reynslu fólks og draga úr fordómum. Þar gefst öllum kostur á að stunda eða prófa ýmis námskeið, s.s. myndlist, leirlist, ljósmyndun, öndunarjóga og íslensku fyrir útlendinga svo fátt eitt sé nefnt. Allir eru velkomnir í Hlutverkasetrið en það er til húsa í Borgartúni 1. Nánari upplýsingar má finna á www.hlutverkasetur.is. Málverkið Von úr seríunni Skref fyrir skref eftir Andreu sif Jónsdóttur. Um Hlutverkasetrið Í ár var átakinu Evrópa gegn fátækt og félagslegri einangrun hrint í framkvæmd undir yfirskriftinni „Stöðvum fátækt!“ Samkvæmt Evrópuráðinu berst sjötti hver Evrópubúi daglega við að ná endum saman og fátækt hefur víðtæk áhrif á allt sam- félagið. Markmiðið með átakinu er að rjúfa einangrun og auka virkni þeirra sem glíma við langtíma- atvinnuleysi. Evrópuárinu er ætlað að vekja athygli og leggja áherslu á baráttuna gegn fátækt og félagslegri einangrun um alla álfuna og er Ísland meðal þátttakenda en félags- og tryggingamálaráðu- neytið stýrir verkefninu. Öll Evrópusambandslöndin 27 taka þátt, auk Ís- lands og Noregs. Í tengslum við átakið er verið að gera myndband á vegum Evrópusam- bandsins um stöðu fátækra og þau úrræði sem þeim bjóðast í heimalöndum sínum. Kona sem stundar Hlutverkasetur segir sína sögu og er fulltrúi okkar Íslendinga í þessu verkefni. Evrópa gegn fátækt STÖÐVUM FÁTÆKT OG FÉLAGSLEGA EINANGRUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.