Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Systurfélag Saga Capital, Hilda ehf.,
seldi meðal annars hlutabréf í Fær-
eyjabanka til að kaupa íslensk, rík-
istryggð skuldabréf af erlendum
bönkum. Bréfin voru keypt með
miklum afföllum, og andvirði þeirra á
heimamarkaði síðan notað til að
greiða inn á skuld við Seðlabanka Ís-
lands. „Við höfum greitt fjóra millj-
arða inn á höfuðstól lánsins, tveimur
árum á undan áætlun,“ segir Þor-
valdur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri
Saga Capital, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann segir að bókfærð staða
lánsins sé í dag um 13 milljarðar
króna. Saga Capital endurfjármagn-
aði 19,6 milljarða veðlán hjá Seðla-
banka Íslands snemma árs 2009 og
þarf að greiða upp á fimm árum. Lán-
ið er með 2% verðtryggðum vöxtum.
„Eins og kunnugt er skulduðu sex
íslenskir bankar Seðlabankanum
samtals um 270 milljarða eftir hrunið
vegna sambærilegra veðlánavið-
skipta. Allir nema Saga Capital eru
farnir í þrot, sem er einn banka að
greiða sitt lán til baka,“ segir Þor-
valdur Lúðvík.
Líkist Avens-samningi
„Við seldum hluta af erlendum
eignum Hildu, aðallega hlutabréf í
Færeyjabanka. Í staðinn keyptum
við aðrar eignir, til að mynda skulda-
bréf með ábyrgð íslenska ríkisins.
Við keyptum þessi bréf með miklum
afslætti, þegar umtalið um Ísland var
einna neikvæðast. Þessi bréf fást
ekki á sama verði lengur, þannig að
við náðum að nýta okkur þennan
glugga. Með þessu gátum við greitt
fjóra milljarða inn á höfuðstól láns-
ins,“ segir Þorvaldur Lúðvík.
Greint var frá því í Morgunblaðinu
í síðustu viku að eigið fé Hildu hefði
verið neikvætt um fjóra milljarða um
síðustu áramót. Í ársreikningi félags-
ins kemur fram að stjórn þess und-
irbúi aðgerðir til að bæta eiginfjár-
stöðuna. Þorvaldur segir að þær
aðgerðir hafi meðal annars verið
kaupin á íslensku skuldabréfunum.
Seldu kröfur á Glitni
„Neikvætt eigið fé Hildu skýrist að
mestu leyti af milljarðs niðurfærslu
vegna kröfu á Aska Capital. Einnig
færðum við væntar heimtur á skulda-
bréfum sem við áttum á gamla Glitni
niður í 28%, eftir að við seldum er-
lendum aðilum hluta krafnanna á því
verði, en síðan var fjármagnskostn-
aður vegna lánsins hjá Seðlabankan-
um mjög hár,“ segir Þorvaldur Lúð-
vík.
Afstaða slitastjórnar Icebank
gæti skipt máli fyrir Saga
Þorvaldur segir að afstaða slita-
stjórnar Icebank gagnvart 200 millj-
arða kröfu Seðlabankans vegna svo-
kallaðra ástarbréfaviðskipta geti
skipt máli fyrir Saga Capital: „Nið-
urstaða þess máls mun mögulega
hafa áhrif á okkur og við fylgjumst
því grannt með,“ segir hann.
Keyptu ríkistryggð
bréf til að greiða lán
Saga hefur greitt rúmlega fjóra milljarða til Seðlabankans
Skapti Hallgrímsson
Seðlabankalán Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri, segir Saga Capi-
tal hafa greitt rúmlega fjóra milljarða inn á skuld við Seðlabanka Íslands.
● Borghildur Erlingsdóttir hefur verið sett í embætti forstjóra
Einkaleyfastofu til tveggja ára. Borghildur er með meistara-
gráðu frá Stanford Law School á sviði hugverkaréttar og emb-
ættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað á
Einkaleyfastofu frá árinu 1997, m.a. sem deildarstjóri vöru-
merkja- og hönnunardeildar, sviðsstjóri lögfræðisviðs og nú
síðast sem yfirlögfræðingur stofnunarinnar.
Borghildur er fædd 1969, gift Viðari Lúðvíkssyni hæstarétt-
arlögmanni og eiga þau fjögur börn. Borghildur tekur við sem
forstjóri Einkaleyfastofu frá 1. október nk., að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.
Nýr forstjóri Einkaleyfastofu
Borghildur Er-
lingsdóttir
ONE, góðgerðarsamtök Bonos, söngvara hljómsveit-
arinnar U2, sæta nú gagnrýni. Í ljós hefur komið að ár-
ið 2008 ánöfnuðu samtökin aðeins 1,2% af tekjum sín-
um til góðgerðarmála, eða 118.000 sterlingspundum
(sem svara til 21 milljónar króna). Alls námu framlög
til samtakanna 9,6 milljónum sterlingspunda, eða 1,7
milljörðum króna.
New York Post birti á dögunum frétt um þetta mál,
en þar kom einnig fram að laun og launatengd gjöld
góðgerðarsamtakanna námu 5,1 milljón punda á sama
ári, eða 923 milljónum króna.
Talsmaður samtakanna, Oliver Buston, segir að pen-
ingarnir séu notaðir við áróður og kynningu til að
vekja fólk til umhugsunar um vandamál þeirra sem
minna mega sín, frekar en til beinna fjárframlaga til
þeirra. ivarpall@mbl.is
Aðeins 1,2% til góðgerðarmála
Reuters
Bono Samtök hans sæta vaxandi gagnrýni fyrir kostnað og lítil framlög.
Í FYRIRTÆKJAVIÐSKIPTUM
H
a
u
ku
r
0
4
.1
0
Guðni Halldórsson
viðskiptalögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Arnór H. Arnórsson
rekstrarhagfræðingur,
arnor@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hdl.
sigurdur@kontakt.is
Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum.
Verðmat fyrirtækja.
Viðræðu- og samningaferli.
Gerð kaupsamninga og tengdra samninga.
Fjármögnun fyrirtækjaviðskipta.
Við teljum að eftirfarandi fyrirtæki geti
verið fáanleg:
•
•
•
•
•
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
SÉRFRÆÐINGAR
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Lítið bakarí í góðu hverfi. Ársvelta 40 mkr.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki sem þjónar mest matvælaiðnaðinum.
Ársvelta 60 mkr.
• Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli). EBITDA 80 mkr. Engar skuldir.
• Þjónustufyrirtæki með yfir 500 fyrirtæki og stofnanir í föstum viðskiptum.
Ársvelta 150 mkr.
• Rótgróið glerfyrirtæki. Ársvelta 80 mkr.
• Framleiðslufyrirtæki með eigin verslanir. Með yfir 50% markaðshlutdeild og
góða vaxtamöguleika. Ársvelta um 400 mkr.
• Grænlenskt byggingarfélag með góða verkefnastöðu.
• Þekkt heimilisvöruverslun með eigin innflutning. Ársvelta 80 mkr.
• Meirihluti í stóru iðnfyrirtæki. EBITDA 75 mkr.
• Rótgróin heildverslun sem selur tæknivörur og rekstrarvörur til opinberra
stofnanna. EBITDA 15 mkr.
• Tvö iðnfyrirtæki sem henta vel til sameiningar. Sameinuð ársvelta um 150 mkr.
og EBITDA um 25 mkr. Viðkomandi kaupandi þyrfti að leggja fram um 20
mkr. í peningum og um 20 mkr. fasteignaveð til að ná meirihluta í báðum
fyrirtækjunum.
og flottir fundir
–– Meira fyrir lesendur
Auðlindin í sjónum
• Hvaða nýju tækni og lausnir er verið að þróa til að búa til betri vöru?
• Hvernig er rekstrarumhverfi þeirra sem veiða og hverjar eru framtíðarhorfurnar?
• Hverjir eru að gera skemmtilega nýja hluti og skapa nýjar afurðir og nýja markaði?
Næstkomandi fimmtudag skoðar Viðskiptablað Morgunblaðsins íslenska
fiskiðnaðinn. Við lítum á fyrirtækin sem vinna verðmætlin úr hafinu og
tökum stöðuna á þessari undirstöðuatvinnugrein.
Allt þetta og meira til í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 30. september.
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Hvönn í síma 569-1134 eða sigridurh@mbl.is