Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
fljótlegt og gott
ÓDÝRT
OG GOTT
kr.
kg699
Núðlur með kjúkling
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ed Miliband, nýkjörinn leiðtogi
breska Verkamannaflokksins, lýsti
því yfir í gær að „Nýi Verkamanna-
flokkurinn“, eins og hann var oft kall-
aður í valdatíð Tony Blairs, heyrði nú
sögunni til. Hann neitaði þó því að
hann hygðist færa flokkinn til vinstri,
en kvaðst ætla að endurskilgreina
miðjuna og sýna að Verkamanna-
flokkurinn tæki afstöðu með „að-
þrengdri miðjunni“ í breskum stjórn-
málum.
Ed Miliband er nú leiðtogi Verka-
mannaflokksins eftir mjög nauman
sigur á bróður sínum, David, fyrrver-
andi utanríkisráðherra. Meirihluti
þingmanna flokksins studdi David
Miliband í leiðtogakjörinu. Ed naut
hins vegar mikils stuðnings meðal
fulltrúa verkalýðssamtaka og atkvæði
þeirra réðu úrslitum.
„Rauði Ed“ miðjumaður?
Ed Miliband lagði þó áherslu á að
hann væri enginn taglhnýtingur
verkalýðssamtakanna. „Þetta snýst
ekki um það að flokkurinn sé kominn
með vinstri slagsíðu, alls ekki,“ sagði
Miliband í viðtali við breska ríkisút-
varpið, BBC. „Ég er maður miðjunn-
ar í stjórnmálum, en þetta snýst um
að skilgreina hvar miðjan er.“
Miliband kvaðst ætla að veita sam-
steypustjórn Davids Camerons, leið-
toga Íhaldsflokksins, harða en mál-
efnalega andstöðu, berjast m.a. gegn
áformum hennar um stórfelldan
niðurskurð ríkisútgjalda til að
minnka metfjárlagahalla sem stjórn
Verkamannaflokksins skildi eftir sig.
Miliband hét því að sameina Verka-
mannaflokkinn eftir langvinna tog-
streitu milli Blairs og Gordons
Browns, eftirmanns hans í embætti
forsætisráðherra. „Tímabili Nýja
Verkamannaflokksins er lokið. Ný
kynslóð hefur tekið við og gömlu
merkimiðarnir heyra sögunni til,“
sagði Miliband.
Þingmenn Íhaldsflokksins hafa lýst
Ed Miliband sem manni verkalýðs-
samtakanna. Nokkur íhaldssöm dag-
blöð í Bretlandi uppnefndu hann
„Rauða Ed“. Stjórnmálaskýrandi
Sunday Telegraph sagði að með því
að færast til vinstri væri Verka-
mannaflokkurinn í raun að kasta frá
sér möguleikanum á að komast aftur
til valda í næstu kosningum.
Nokkrir stjórnmálaskýrendur
sögðu þó að flokkurinn fengi nú
raunverulegan möguleika á
komast til valda með því að leggjast
gegn sparnaðaráformum stjórnar-
innar. The Sunday Times hvatti
Miliband til að hafna ekki miðju-
stefnu Blairs. „Miliband þarf að end-
urnýja „Nýja Verkamannaflokkinn“,
ekki að losa sig við hann.“
Segir tímabili „Nýja Verka-
mannaflokksins“ lokið
Reuters
Nýr leiðtogi Ed Miliband mætir á fund kvenna í tengslum við flokksþing Verkamannaflokksins í Manchester í gær.
Ed Miliband neitar því að hann hyggist færa Verkamannaflokkinn til vinstri
Bátur aðgerða-
sinna frá Ísrael,
Evrópu og
Bandaríkjunum
lagði af stað frá
Kýpur í gær og
hélt áleiðis til
Gaza-svæðisins
með ýmis
hjálpargögn,
m.a. gervifætur.
Skipverjarnir eru gyðingar og ætla
að freista þess að rjúfa hafnbann
Ísraela á Gaza.
Báturinn, sem nefnist Irene, er
með átta manna áhöfn og tvo blaða-
menn. Í bátnum eru ýmis táknræn
hjálpargögn, svo sem leikföng,
hljóðfæri, kennslubækur, fiskinet
og gervifætur. Áætlað er að ferðin
taki um það bil einn og hálfan sólar-
hring.
Meðal þeirra, sem eru um borð,
er Reuven Moshkovitz, 82 ára gam-
all maður sem lifði af helförina.
Hann sagði við fréttastofuna AFP
að hann teldi það skyldu sína að
fara þessa ferð og mótmæla kúgun
á svo mörgu fólki, þeirra á meðal
800 þúsund börnum á Gaza-
svæðinu.
Ehud Barak, varnarmálaráð-
herra Ísraels, hefur sagt að Ísraels-
her eigi að stöðva ferðir allra skipa
sem nálgast Gaza.
Bátur gyðinga á
leiðinni til Gaza
með hjálpargögn
Báturinn Irene.
Dómara í Kali-
forníu hefur
verið falið að
skera úr um
hver eigi risa-
stóran smaragð
sem fannst í
Bahia-héraði í
Brasilíu.
Smaragður-
inn vegur 380
kílógrömm og áætlað er að verð-
mæti hans nemi 370 milljónum doll-
ara, rúmum 42 milljörðum króna,
að sögn fréttavefjar BBC.
Að minnsta kosti sex menn hafa
gert tilkall til gimsteinsins, þeirra á
meðal Kaliforníumaður sem segist
hafa greitt tveimur brasilískum
gimsteinasölum jafnvirði sjö millj-
óna króna fyrir smaragðinn
skömmu eftir að hann fannst fyrir
níu árum.
Deilt um mjög verð-
mætan smaragð
Bahia-smaragðurinn.
Hylki, sem nota á til að bjarga 33
námumönnum, hefur verið flutt í
San Jose-námuna í Chile þar sem
verið er að bora þrjár holur til að
bjarga mönnum sem urðu innlyksa
í aðalgöngum námunnar þegar þau
hrundu í byrjun ágúst. Vonast er til
að hægt verði að byrja að hífa
mennina upp í hylkinu í byrjun nóv-
ember. Rýmið í hylkinu er 1,9
metra hátt og þvermálið er 53
sentimetrar.
Þrengsli Björgunarhylkið prófað.
Björgunarhylkið
komið í námuna
Reuters
Ed Miliband sigraði eldri bróður sinn, David, fyrrverandi
utanríkisráðherra, mjög naumlega í fjórðu umferð tví-
sýns leiðtogakjörs Verkamannaflokksins. Ed Mili-
band fékk þá 50,65% atkvæðanna en bróðir hans
49,35%.
Ed kvaðst í gær hafa beðið bróður sinn að fara með
fjármál í skuggaráðuneyti Verkamannaflokksins en
hann hefði ekki svarað beiðninni strax. „Hann þarf
tíma til að hugsa um hvað hann geti lagt af mörkum.“
Ed Miliband er fertugur, varð þingmaður árið 2005
og fór með orkumál og loftslagsmál í ríkisstjórn Gord-
ons Browns.
Munurinn aðeins 1,30%
SIGRAÐI BRÓÐUR SINN NAUMLEGA
Ed (t.h.) faðmar
bróður sinn