Morgunblaðið - 27.09.2010, Side 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
1 9 5
2
4 7 6
6 9 7 2
7 2 5 9
4 6
3 5 6 1 2 7 4
1 3 9
3 4 6 9 8
2 8 4
1 3
1
1 8 2
4 6
2 9
1 3 2 6
8 5 6 9
5 2 3 7
7 3 8
6 7
4 5 6 7
2 8 1
2
9 1 2 4
3 1 9 5
1 6 4 9 3 8 5 7 2
7 2 9 6 5 4 1 3 8
8 3 5 1 7 2 9 4 6
6 8 7 4 9 5 3 2 1
5 9 3 2 1 7 6 8 4
2 4 1 8 6 3 7 9 5
3 7 2 5 4 1 8 6 9
4 1 6 3 8 9 2 5 7
9 5 8 7 2 6 4 1 3
1 8 6 5 2 3 4 9 7
2 5 4 7 1 9 8 6 3
3 7 9 6 4 8 2 1 5
9 4 2 8 7 1 5 3 6
8 6 3 4 9 5 1 7 2
7 1 5 3 6 2 9 4 8
5 2 7 9 3 4 6 8 1
4 3 1 2 8 6 7 5 9
6 9 8 1 5 7 3 2 4
1 5 4 9 2 8 3 6 7
3 8 7 6 5 1 2 9 4
6 9 2 3 4 7 8 5 1
4 7 9 1 8 5 6 3 2
8 1 3 4 6 2 9 7 5
5 2 6 7 3 9 4 1 8
9 4 5 8 1 6 7 2 3
2 6 8 5 7 3 1 4 9
7 3 1 2 9 4 5 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 27. september,
270. dagur ársins 2010
Orð dagsins: En nú varir trú, von og
kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er
kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.)
Ný skýrsla sýnir að Íslendingareru í hópi mestu fituhjassa í
heimi.“ Þannig var skrifað í frétt á
textavarpi Ríkissjónvarpsins á laug-
ardag um niðurstöður OECD á of-
fituvandanum. Og fituhjassarnir
skulu vara sig. Víkverja brá nokkuð
við að sjá þetta orð notað í frétt um
sjúklingahóp svo hann ákvað að
fletta í orðabókum. Misskildi hann
þetta kannski, þýðir orðið „hjassi“
kannski sjúklingur?
Nei. Í Íslenskri orðabók stendur:
Hjassi: Þungfær maður, latt og
þyngslalegt dýr, letingi, slóði, þver-
úðarfullur maður, stirðbusi.
Allt eru þetta nú frekar leiðinleg
og ljót orð en ljótast er þó orðið
„hjassi“. Notkun þess felur í sér nið-
urlægingu þess sem talað er um. Vík-
verja finnst að ef Ríkisútvarpinu þyki
eðlilegt að nota orðið „fituhjassi“ yfir
offitusjúklinga geti þeir allt eins not-
að orðið „klikkhaus“ yfir geðsjúkl-
inga, „fyllibytta“ yfir áfengissjúka og
„aumingja“ yfir bakveika. Eða eitt-
hvað í þá áttina. Víkverji mælir þó
ekki með því heldur að talað sé af
virðingu um alla sjúklinga.
x x x
Fjölmiðlar virðast seint ætla aðtala af virðingu um sjúkdóminn
offitu og Víkverji man eftir fleiri
dæmum um sambærilega orðanotk-
un. Fyrir nokkrum áratugum var
hlegið að alkóhólistum og þeir sagðir
aumingjar. Þessi hópur hefur hins
vegar barist fyrir virðingu og fengið
hana. Það gerist þó ekki einn, tveir
og þrír og felur í sér samvinnu
margra. Fjölmiðlar leika þar stóran
þátt.
x x x
Einhverjum kann að þykja þettaóþarfa viðkvæmni í Víkverja.
Gera megi létt grín að offitu-
sjúklingum, kalla þá fyndnum nöfn-
um, sum sé uppnefna þá. Þá kann
öðrum að finnast óþarfi að kenna fjöl-
miðlum um skort á virðingu gagnvart
þessum hópi. Víkverji minnir á að
fyrir ekki svo mörgum áratugum var
sjaldan talað um annað en „aum-
ingja“ og „fávita“ þegar kom að
þroskaheftum. Enginn myndi nota
þessi orð í dag. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 laskaðir, 8 málm-
ur, 9 bakteríu, 10 húsdýr, 11
lóga, 13 smámynt, 15 kalt,
18 logið, 21 stormur, 22 út-
hluta, 23 gróða, 24 ofsalega.
Lóðrétt | 2 eyja, 3 tilbiðja, 4
áreita, 5 sér eftir, 6 flasa, 7
heitur, 12 gljúfur, 14 þangað
til, 15 nokkuð, 16 gera auð-
ugan, 17 kögurs, 18 dapra,
19 skyldmennisins, 20 spilið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hagur, 4 þarfs, 7 fljóð, 8 næðis, 9 agg, 11 rits, 13 gróa,
14 ætlar, 15 slær, 17 áköf, 20 las, 22 koddi, 23 kafli, 24 súrna, 25
ranns.
Lóðrétt: 1 hafur, 2 grjót, 3 ræða, 4 þung, 5 riðar, 6 sessa, 10
gilda, 12 sær, 13 grá, 15 sekks, 16 ældir, 18 kæfan, 19 fliss, 20
lima, 21 skær.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 e5 4. Rf3 Rbd7
5. Be2 Be7 6. O-O c6 7. a4 O-O 8. He1
b6 9. Bf1 a6 10. g3 Bb7 11. b3 b5 12.
Bg2 He8 13. Bb2 Bf8 14. dxe5 dxe5 15.
He2 Dc7 16. Re1 Rc5 17. axb5 axb5 18.
Hxa8 Hxa8 19. f3 b4 20. Rb1 Re6 21.
Rd3 Hd8 22. Rd2 Rd4 23. Bxd4 Hxd4
24. He1 Rd7 25. Bf1 Rc5 26. Rc4 Rxd3
27. Bxd3 Bc5 28. Kg2 Hd8 29. Dd2 De7
30. Ha1 g6 31. Ra5 Ba8 32. Rc4 Kg7 33.
Re3 Bb7 34. Rg4 h5 35. Dh6+ Kg8 36.
Rf2 Bc8 37. Hf1 Be6 38. Dd2 Kg7 39.
Hd1 h4 40. g4 Da7 41. He1
Staðan kom upp á breska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Canterbury í Englandi. Alþjóðlegi
meistarinn Andrew Greet (2451) hafði
svart gegn Gary Senior (2069). 41…
Bxb3! 42. Rh3 Bc4 43. Dg5 f6 44. Dxh4
Bxd3 og svartur vann skömmu síðar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Í árdaga.
Norður
♠96
♥KG962
♦KD10
♣ÁG4
Vestur Austur
♠Á875 ♠DG1042
♥74 ♥3
♦D87543 ♦--
♣65 ♣D1098732
Suður
♠K3
♥ÁD1085
♦ÁG962
♣K
Suður spilar 6♥.
Ely Culbertson og Theodore Light-
ner voru kunningjar og spilafélagar.
Sagan segir að Culbertson hafi íhugað
að innlima Lightner-dobl í kerfi sitt, en
hætt við þegar hann sá höfundinn
dobla slemmu með eyðu og eiga sjálfur
út.
Lightner hafði sínar eigin efasemdir
um ágæti doblsins. Hann var í austur í
spili dagsins og lét á móti sér að dobla
6♥ – átti þó ekki sjálfur út! Ástæðan
var sú að hann vildi ekki reka andstæð-
inga í 6G, sem hann taldi líklegt að
ynnust.
Vestur var vel skólaður í slemmu-
doblum félaga síns. Hann lagði niður
♠Á, uppskar frávísun, en hélt samt
áfram með litinn. Skýringin lét ekki á
sér standa: „Ég vissi að það þýddi ekk-
ert að spila tígli, því þú hefðir Light-
ner-doblað með eyðu, ekki satt.“
27. september 1966
Rússneska skemmtiferðaskip-
ið Baltika lagði af stað frá
Reykjavík áleiðis til Miðjarð-
arhafs og Svartahafs með 421
íslenskan farþega. Ferðin var
umtöluð, m.a. vegna áfeng-
isneyslu.
27. september 1982
Platan Draumur aldamóta-
barnsins kom út. Þar birtist Ís-
land er land þitt, lag Magn-
úsar Þórs Sigmundssonar við
ljóð Margrétar Jónsdóttur, í
fyrsta sinn.
27. september 1999
Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti Íslands datt af hestbaki og
axlarbrotnaði þegar hann var
í útreiðartúr í Landsveit með
vinkonu sinni, Dorrit Moussa-
ieff.
27. september 2005
Davíð Oddsson lét af ráð-
herraembætti, sem hann hafði
gegnt samfellt síðan 30. apríl
1991, eða í rúm fjórtán ár.
Lengst af var hann forsætis-
ráðherra, í rúm þrettán ár,
lengur en allir aðrir.
27. september 2007
Heimildarmyndin Heima var
frumsýnd í Háskólabíói. Hún
fjallar um tónleikaferðalag
hljómsveitarinnar Sigur Rósar
um Ísland sumarið 2006.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins
gaf myndinni fimm stjörnur
og sagði hana „sérlega hug-
hrífandi verk sem fer vel í
augu og eyru“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Óhætt er að segja, að grafíski hönnuðurinn Davíð
Kristófer Young sé meðvitaður um að hann verð-
ur ekki þrítugur aftur. Í tilefni áfangans dugir
ekki minna en þrjár veislur, í þremur löndum en
tveimur heimsálfum. Fögnuðurinn hófst raunar á
laugardag með fjölmennri veislu í húsakynnum
fataverslunar Nikita við Laugaveg sem tókst að
sögn Davíðs vel í alla staði. En það var bara byrj-
unin.
Davíð Kristófer ferðast í dag til Englands –
þaðan sem hann er ættaður – og hefst handa við
undirbúning næstu veislu sem haldin verður
næstkomandi laugardag. Um er ræða hálfgerða endurtekningu á af-
mælisveislu sem haldin var í tilefni 18 ára afmælis Davíðs, en þá leigði
hann sal ásamt vini sínum – sem er jafngamall upp á dag – og héldu
þeir heljarinnar veislu. Vonast hann til að veislan á laugardag verði
ekki síðri, og reiknar satt best að segja alls ekki með því.
Þar með er ekki öll sagan sögð því í kjölfarið heldur Davíð til Kína
á vegum vinnunnar. Þar eru búsettir nokkrir félagar hans sem starfa
hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Því er ekki annað í stöðunni en halda
upp á afmælið þriðja sinni. andri@mbl.is
Davíð Kristófer Young er þrítugur í dag
Stanslaust stuð næstu vikur
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
27. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.06 0,6 8.11 3,9 14.25 0,7 20.25 3,6 7.26 19.13
Ísafjörður 4.10 0,3 10.05 2,0 16.30 0,4 22.15 1,9 7.31 19.17
Siglufjörður 0.37 1,3 6.30 0,3 12.42 1,3 18.51 0,3 7.14 18.59
Djúpivogur 5.25 2,2 11.42 0,5 17.37 1,9 23.46 0,5 6.55 18.42
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einbeittu þér að þeim verkefnum,
sem þú þegar hefur og láttu ógert að skima
eftir fleirum á meðan þau endast. Mundu að
hver hefur til síns ágætis nokkuð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu af öllum ótta um það hvort og
hvernig þú eigir að tjá tilfinningar þínar. Ein-
hver dáist að þér úr fjarlægð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert sjaldan - ef nokkurn tímann
- sakaður/sökuð um stífni. Þú ert með eitt-
hvert verkefni á heilanum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Láttu engan hafa svo mikil áhrif á
þig að þú gerir eitthvað sem stangast á við
réttlætiskennd þína. Að blanda geði við aðra
í dag mun veita þér mikla ánægju.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sá andstæðingur sem þú eitt sinn
hafðir í fullu tré við kemur nú aftur end-
urnýjaður til leiks. Kannski er það enn vond
hugmynd, en þú ert til í að gefa annað tæki-
færi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Kjarni vitneskjunnar liggur í tilfinn-
ingum, ekki hugsun. Vertu bara sjálfum þér
trúr og tillitssamur; þá fer allt vel.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Himintunglin stilla sér upp og hjálpa þér
við að finna út úr því hvað þér finnst um
sjálfa/n þig. Gerðu ekki of miklar kröfur til
þín og gefðu þér lengri tíma.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hlustaðu á þær raddir sem vilja
leiðbeina þér og gefa góð ráð, því þær tala
af reynslu. Þú færð snilldarhugmynd á með-
an þú dormar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur áhyggjur af gangi mála
og það er full ástæða til. Reyndar er það
ekki önnur manneskja sem ber ábyrgð á því,
heldur alheimurinn eins og hann leggur sig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Alvarlegar samræður geta bætt
úr þínum nánustu samböndum í dag.
Sveigjanleiki þinn gerir þig að frábærum
liðsmanni og þitt lið mun sigra.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Allir vilja vera nærri þér. Láttu
óskir þínar allar í ljós, þannig getur þú verið
viss um að fólk skilji þig betur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Margir taka mark á draumum og þú
jánkar því líka. Leggðu óhrædd/ur á djúpið,
þá siglir þú fari þínu heilu í höfn.
Stjörnuspá