Morgunblaðið - 27.09.2010, Side 28
28 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
son hafði samband við mig og spurði
hvort ég væri tilbúinn að syngja
þessa lagaflokka á íslensku. Ég játti
því samstundis,“ segir Eiður Ágúst.
„Ég hafði lært þessa lagaflokka á
þýsku þegar ég var í námi í Þýska-
landi, þar er nánast skylda að söngv-
arar kunni þá, og svo lærði ég ís-
lenska textann fyrir þennan flutning
sem var hljóðritaður hér heima. Það
voru ekki gerðar margar upptökur af
hverju lagi því ég hafði alltaf fyrir sið
á mínum söngferli að kunna textann
og vanda mig við sönginn svo ekki
þyrfti að eyða tíma, peningum og fyr-
irhöfn í að taka sama lagið upp nokkr-
um sinnum. Þannig að þetta var nán-
ast tekið upp eins og um konsert væri
að ræða. Ég man að mér fannst
frammistaða mín alveg sómasamleg
og hugsaði með mér að ég þyrfti ekk-
ert að skammast mín fyrir hana.“
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Á árunum 1983 og 1984 var hljóðrit-
aður hjá Ríkisútvarpinu söngur Eiðs
Ágústs Gunnarssonar á ljóðaflokk-
unum Svanasöngur eftir Franz Schu-
bert og Ástir skálds eftir Robert
Schumann. Einar Ágúst söng ljóða-
flokkana í íslenskri þýðingu Daníels
Á. Daníelssonar, fyrrverandi héraðs-
læknis á Dalvík. Ólafur Vignir Al-
bertsson var við píanóið. Eftir flutn-
ing í útvarpi fóru upptökurnar upp í
hillu í geymslu hjá stofnuninni. En
nú, svo mörgum árum síðar, eru upp-
tökurnar komnar út á tveimur hljóm-
diskum og sér fyrirtækið 12 tónar um
sölu og dreifingu.
„Í fyrravor fékk ég þá ágætu hug-
mynd, að því er mér finnst, að kaupa
allt það efni sem útvarpið hafði tekið
upp af söng mínum. Ég var ekkert að
hugsa um útgáfu, vildi bara eiga þetta
fyrir mig,“ segir Eiður Ágúst. „Ég
komst svo í samband við Garðar
Cortes sem hlustaði á upptökurnar,
hrósaði þeim gríðarlega og sagði mér
að það yrði að gefa þær út. Ég leyfði
fleirum að hlusta og þeir sögðu það
sama. Nú er þetta komið út á geisla-
diski og það er Garðari Cortes að
þakka því hann skipaði mér að gera
það.“
Sómasamleg frammistaða
Á þeim árum sem upptökurnar
voru gerðar var Eiður Ágúst búsett-
ur í Þýskalandi þar sem hann starfaði
sem söngvari. „Ólafur Vignir Alberts-
Svanasöngur og ástir skálds
Endurútgáfa á söng Eiðs Ágústs
Gunnarssonar á tveimur hljómdiskum
Morgunblaðið/Golli
Eiður Ágúst „Nú er þetta komið út á geisladiski og það er Garðari Cortes að
þakka því hann skipaði mér að gera það,“ segir Eiður Ágúst Gunnarsson.
Ferill
» Eiður Ágúst Gunnarsson er
fæddur í Reykjavík árið 1936.
» Hann var í söngnámi hér
heima og í Þýskalandi. Hann
starfaði í mörg ár við óperuhús
í Þýskalandi og Austurríki.
» Eiður Ágúst fluttist aftur til
Íslands haustið 1987 og starf-
aði frá þeim tíma sem söng-
kennari við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar og Söngskólann
í Reykjavík.
Skoska kvikmyndin Neds í leikstjórn
Peter Mullan var valin sú besta á San
Sebastian-kvikmyndahátíðinni á
Spáni sem lauk á laugardaginn.
Hampaði Mullan því Gullnu skelinni,
aðalverðlaunum hátíðarinnar.
Neds gerist á sjöunda áratugnum í
Glasgow í Skotlandi og segir frá gáf-
uðum dreng sem þarf að kljást við
gengjastríð, stéttarskiptingu og
drykkfelldan föður. Mullan skrifaði
handritið auk þess að leika í kvik-
myndinni, hann segir myndina vera
persónulega en ekki sjálfsævi-
sögulega.
Neds var ekki aðeins valin besta
myndin því Conor McCarron, sem fer
með hlutverk piltsins, var valinn besti
leikarinn. Hann hefur fengið mjög
góða dóma fyrir frammistöðu sína í
myndinni.
Myndin var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto fyrr í mán-
uðinum. Þetta er fyrsta myndin sem
Mullan leikstýrir síðan The Magda-
lene Sisters árið 2002. Hann fékk
Gullna ljónið fyrir hana á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum.
Verðlaun fyrir bestu leikstjórn á
San Sebastian fóru til Raoul Ruiz fyr-
ir Misterios de Lisboa og spænska
leikkonan Nora Navas var valin sú
besta fyrir leik í Pa Negre.
Reuters
Verðlaun Peter Mullan með Gullnu
skelina fyrir bestu myndina, Neds.
Gullna
skelin
afhent
Mynd Mullan valin sú
besta á San Sebastian
Harpa, tónlistar- og ráðstefnu-
húsið, verður aðsetur Íslensku
óperunnar frá opnun þess í
maí 2011. Samningur þess efn-
is var undirritaður á laug-
ardaginn á milli Íslensku óp-
erunnar og rekstrarfélagsins
Ago ehf. Samningurinn er til
næstu fimm ára og mun Ís-
lenska óperan standa fyrir
reglulegum óperusýningum,
ásamt öðrum söng- og tónlist-
arviðburðum í Hörpu. Er þetta mikilvægur og
spennandi áfangi í sögu óperuflutnings á Íslandi.
Til hefur staðið í nokkurn tíma að Íslenska
óperan flytji í Hörpu, en ekki hefur verið hægt að
undirrita samning þess efnis fyrr en nú.
Tónlist
Íslenska óperan
verður í Hörpu
Frá uppsetningu á
Ástardrykknum.
Úrval franskra hreyfistutt-
mynda verður sýnt í Ný-
listasafninu í kvöld og annað
kvöld. Það er Alliance Fran-
çaise í Reykjavík sem tekur
þátt í RIFF 2010 með því að
bjóða upp á úrval hreyfistutt-
mynda með stuðningi Cult-
uresFrance.
Dagskráin inniheldur úrval
mynda frá Alþjóðlegu hreyfi-
myndahátíðinni í Annecy. Þær
sýna hvað heimur hreyfimyndanna er margslung-
inn og lifandi. Allar myndirnar eru franskar, fyrir
utan eina ísraelska og aðra indverska.
Nýlistasafnið er á Skúlagötu 28 og hefjast sýn-
ingarnar kl. 20 bæði kvöldin.
Kvikmyndir
Franskar
hreyfistuttmyndir
Hreyfistutt-
myndahátíð.
Elva Hreiðarsdóttir myndlist-
armaður opnaði grafíksýningu
í Jónas Viðar Gallery í Lista-
gilinu á Akureyri um helgina.
Elva hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga í gegnum
tíðina en hún hefur m.a. lokið
námi frá Myndlistaskólanum í
Reykjavík og Listaháskóla Ís-
lands.
Elva gerir plötur með svo-
kallaðri collagraph-tækni. Flest verka hennar eru
þrykkt bæði með sk. djúpþrykksaðferð og há-
þrykksaðferð. Hugmyndir að verkum sínum fær
hún í íslenskri náttúru og undanfarið hafa línur og
fletir í bergi verið henni óþrjótandi uppspretta.
Myndlist
Elva sýnir í
Jónas Viðar Gallery
Elva Hreið-
arsdóttir
Fossasería Ólafs Elíassonar seldist
fyrir nærri hálfa milljón dala, eða 53
milljónir ísl. króna á uppboði hjá
Sothebýs í New York á laugardag-
inn. Verkin sem boðin voru upp, 142
talsins, voru öll úr eigu bandaríska
bankans Lehman Brothers og fóru á
samtals 1,4 milljarða króna. Mun
andvirði sölunnar renna til kröfu-
hafa bankans sem varð gjaldþrota í
september 2008.
Flest verkanna seldust og mörg
þeirra langt yfir matsverði, meðal
annars verk Ólafs Elíassonar, The
Waterfall Series, en áætlað söluverð
var 60-80 þúsund dalir. Fossaserían
er frá 1996, um er að ræða fimmtíu
ljósmyndir af fossum, hver 38 sinn-
um 26 sentimetrar að stærð. Lehm-
an Brothers keypti verk Ólafs árið
1998 af galleríi í New York.
„Ég held að fáir íslenskir lista-
menn hafi komist nálægt þessu. Tvö
önnur verk eftir Ólaf hafa farið á
hærra verði. 458.500 dollarar er
mikið verð fyrir þetta verk sem var
metið á 60-80 þúsund dollara. Ég var
búinn að spá því að þetta færi á 150-
200 þúsund dollara. Þetta er talsvert
hærra,“ segir Börkur Arnarson hjá
i8 galleríi sem er umboðsaðili Ólafs
Elíasson og bætir við: „Þetta er líka
sérstakt að því leytinu til að þetta er
„edition“ verk af þremur.
Það er líka gaman að þessu því nú
er verið að sýna nýjar ljós-
myndaseríur eftir Ólaf í Lisasafni Ís-
lands og dýrustu verkin þar eru á
um 200 þúsund dollara.“
Markaðurinn að taka við sér
Börkur segir söluna á uppboðinu í
New York vera góðar fréttir fyrir
markaðinn, sem virðist vera að taka
við sér.
„Þetta uppboð var búið að fá
ákveðna gagnrýni á sig, það er sett á
laugardegi en það er mjög sjaldan
sem góð uppboð eru á laugardögum,
þau eru yfirleitt í miðri viku. Menn
voru fullir efasemda um að eitthvað
myndi koma út úr þessu en flest
verkin fóru á yfirverði. Það er líka
verið að borga svolítið fyrir hvaðan
þessi verk koma, að þau hafi verið í
safni Lehman Brothers þykir gott og
menn eru tilbúnir að borga aukalega
fyrir það. Það mun alltaf fylgja sögu
verksins að það hafi verið hjá þessu
fyrirtæki sem er ekki til lengur. Það
skiptir vissulega máli hvar verk hafa
verið, það hefur oft mikil áhrif á
verðgildi þeirra,“ segir Börkur.
Það verk sem fór á hæsta verði á
uppboðinu var málverkið Án titils 1
eftir eþíópísku listakonuna Julie Me-
hretu. Það var metið á 6-800 þúsund
dali en seldist fyrir rúma milljón dala.
Það vakti hins vegar athygli, að verk
eftir Bretann Damien Hirst, sem var
metið á rúma milljón dala, seldist
ekki.
Annað uppboð á listaverkum
Lehman Brothers mun fara fram í
Lundúnum á miðvikudag og þar
verða meðal annars seld verk eftir
Lucian Freud og Gary Hume.
ingveldur@mbl.is
Fossasería Ólafs fór á metverði
Börkur Arnarson hjá i8 galleríi segir söluna á Lehman Brothers-listaverkauppboðinu benda til þess
að markaðurinn sé að taka við sér Fossasería Ólafs Elíassonar frá 1996 seldist á 458.500 dollara
Fossaserían Eitt af þremur eintökum var í eigu Lehman Brothers.
Við þekkjum þessa
menn vel, erum góðir
vinir þeirra, við höfum verið
eins og lítil fjölskylda saman
32
»