Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 36
MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 270. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Óttast um lítinn dreng
2. Gunnar vann í 1. lotu
3. Þúsundir á sveitaballi
4. Synti 40 metra í þungum straumi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kría Brekkan heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu í kvöld kl. 22. Tónleik-
arnir eru hluti af dagskrá RIFF.
Á tónleikunum mun Kría flytja
frumsamda tónlist undir kvikmynd-
inni The Fall of the House of Usher
eftir Jean Epstein, en myndin er frá
árinu 1928 og er byggð á sögu eftir
Edgar Allan Poe.
Morgunblaðið/Ernir
Kría leikur eigin tón-
list undir kvikmynd
Söngvarinn góðkunni
Helgi Björnsson syngur í
Salnum 7. október lög
sem Haukur Morthens
gerði vinsæl á sínum
langa ferli. Uppselt er á
þá tónleika og því hefur
verið ákveðið að setja
upp auka-
tónleika,
miðviku-
daginn 6.
október.
Minningartónleikar
um Hauk Morthens
„Í fyrravor fékk
ég þá ágætu hug-
mynd, að því er mér
finnst, að kaupa allt
það efni sem út-
varpið hafði tekið
upp af söng mínum.
Ég var ekkert að
hugsa um útgáfu,
vildi bara eiga þetta fyrir mig,“ segir
Eiður Ágúst Gunnarsson söngvari. Út
eru komnar upptökur með honum
sem voru gerðar í Ríkisútvarpinu
1983 og ’84. »28
Svanasöngur og Ástir
skálds með Eiði Ágústi
Á þriðjudag Suðaustan 8-13 m/s suðvestanlands og við norðausturströndina, en annars
hægari. Talsverð rigning suðaustanlands, en annars úrkomuminna. Hiti 10 til 15 stig.
Á miðvikudag Sunnan 10-15 m/s og rigning, einkum sunnanlands, en úrkomulítið norð-
austanlands. Dregur úr vindi um kvöldið. Hiti svipaður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 3-10 m/s og úrkomulítið, en víða bjart fyrir norðan.
Vaxandi austanátt með rigningu í kvöld. Hiti 8 til 16 stig.
VEÐUR
Kristján Guðmundsson var í
gær ráðinn þjálfari karlaliðs
Vals í fótbolta. Hann tekur við
af Gunnlaugi Jónssyni sem
stýrði liðinu í eitt tímabil.
Kristján þjálfaði HB í Fær-
eyjum á þessari leiktíð en
hann var áður þjálfari Keflvík-
inga. Freyr Alexandersson,
þjálfari kvennaliðs Vals,
hefur ákveðið að hætta
með liðið í haust en hann verð-
ur líklega aðstoðarþjálfari
Kristjáns. »1
Sviptingar í þjálf-
aramálum Vals
Fh-ingar féllu úr efstu deild kvenna í
fótbolta í gær eftir 1:0 tap
gegn Haukum á heima-
velli. Hafnarfjarð-
arliðin féllu bæði.
Þór/KA endaði
í öðru sæti
á eftir Ís-
lands-
meist-
araliði
Vals. Blik-
ar fengu
bronsið.
»8
Þór/KA endaði í öðru
sæti – FH féll í 1. deild
Hólmfríður Magnúsdóttir lék til úr-
slita um bandaríska meistaratitilinn í
fótbolta í gær með liði sínu Phila-
delphia Independence gegn FC Golf
Pride. Hólmfríður var í byrjunarliðinu
að venju en liðið náði sér ekki strik í
Kaliforníu í gærkvöld og tapaði 4:0.
Þetta er fyrsta keppnistímabilið hjá
Hólmfríði í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni. »1
Philadelphia tapaði
4:0 í úrslitaleiknum
ÍÞRÓTTIR | 12 SÍÐUR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Breiðabliksliðið lék góðan fót-
bolta í allt sumar, allt frá fremsta
manni til þess aftasta á vellinum.
Átti góða spretti og þær fáu dýfur
sem komu, eins og þeir fjórir leikir
sem Blikar töpuðu, urðu aðeins til
þess að mönnum hljóp kapp í kinn.
Titillinn er því engin tilviljun enda
var leikgleðin ríkjandi,“ segir Ólafur
Björnsson, formaður meist-
araflokksráðs karla í knatt-
spyrnudeild Breiðabliks.
Fagnað var í Kópavogi á laugar-
dag þegar ljóst var að Breiðabliks-
liðið væri Íslandsmeistari í knatt-
spyrnu. Úrslit réðust endanlega í
markalausum leik Blika og Stjörn-
unnar. Breiðablik og FH voru jöfn
að stigum eftir lokaumferðina en
Kópavogsliðið náði meistaratitli með
hagstæðara markahlutfalli.
Hulda á sinn þátt í sigri
„Ég hef beðið þessa lengi. Á ár-
unum upp úr 1980 áttu Blikar mjög
góðan tíma og voru með eitt besta
knattspyrnulið landsins. Síðan kom
bakslag í þetta en núna höfum við
náð vopnum okkar aftur. Og ég sé
ekki annað í spilunum en við verðum
í fremstu röð á næstu árum,“ segir
Ólafur sem er fæddur árið 1958,
sama ár og knattspyrnudeild
Breiðabliks var stofnuð.
„Það má í raun segja að ég hafi
beðið eftir Íslandsmeistraratitli
minna manna alveg frá fyrstu tíð, en
ég hef verið Blikamaður frá því ég
flutti í Kópavoginn sex ára gamall,“
segir Ólafur.
Hulda Pétursdóttir var í áraraðir
einn helsti stuðningsmaður Breiða-
bliksliðsins og mætti á nánast hvern
einasta leik þess jafnframt því sem
hún gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir félagið. Hulda, sem lést fyrir
fáum árum, var fædd 25. september
1920 og hefði því orðið níræð sl.
laugardag. „Um leið og við gerðum
okkur þessa staðreynd ljósa urðum
við þess fullviss að Hulda yrði ein-
hvers staðar nærri eins og kom á
daginn. Hún á sinn stóra þátt í þess-
um sæta sigri.“
Góður meðbyr
Breiðablik náði í efstu deild knatt-
spyrnunnar árið 2005 og hefur leikið
þar síðan. Árangur liðsins hefur ver-
ið með ágætum og í fyrra náði félag-
ið t.d. bikarmeistaratitlinum og seg-
ir Ólafur áhrifa þess víða hafa gætt í
starfi félagsins. Iðkendum í yngri
flokkum hafi fjölgað jafnt og þétt og
nú séu þeir í kringum þúsund tals-
ins. „Sigurinn gefur okkur gott púst
og við erum í miklum meðbyr,“ segir
Ólafur.
Þessi titill er engin tilviljun
Blikar meist-
arar eftir 52 ára
bið formannsins
Ljósmynd/Geir Guðsteinsson
Sigursæll Ólafur Björnsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, með Íslandsmeistarabikarana tvo. Sá stærri
gengur milli félaganna sem vinna titilinn hverju sinni en þann minni fær sigurliðið til eignar.
Hvernig var gengi Breiðabliks?
Í sumarbyrjun var Blikum spáð 3.
sæti í efstu deild karla á Íslands-
mótinu í knattspyrnu. Íslandsmeist-
aratitill varð þó niðurstaðan en liðið
skoraði 47 mörk og fékk á sig 23.
Flest mörkin skoraði Alfreð Finn-
bogason. Liðið vann þrettán leiki,
gerði fimm jafntefli og varð að játa
sig sigrað fjórum sinnum.
Sigrar í sögunni?
Besti árangur Breiðabliks hingað til
er 3. sæti í úrvalsdeildinni, A-
deildinni, árið 1983. Sex sinnum
urðu Blikar meistarar í B-deild og
unnu sig upp úr henni með sigri ár-
ið 2005. Þá vann Breiðabliksliðið
bikarmeistaratitilinn í fyrra. Stærsti
einstaki sigur Breiðabliks er 13-0
gegn HK árið 1998.
Úrslit helgarinnar?
Fyrir lokaumferðina áttu þrjú félög
möguleika á því að vinna titilinn;
Breiðablik, ÍBV og FH. Öll félögin
léku á útivelli. Fór svo, að eitt stig
dugði Blikum, því ÍBV tapaði í Kefla-
vík. FH vann Fram í Laugardal og
náði þar með Blikum , að stigum en
markatala Kópavogsliðsins var hag-
stæðari og titillinn þeirra.
Spurt & svarað