Hamar - 17.12.1957, Blaðsíða 25
V 17. desember 1957
HAM AR
25
*■
-\
%
\
'Y
I heimsók hjá hafn
firzkn skáidi
Á öllum öldum hafa lifað
meðal okkar Islendinga mikill
fjöldi manna, sem í frítímum
sínum og næðisstundum hefur
fengist við ljóðagerð. Eitt hef-
ur flestum þessara manna ver-
ið sameiginlegt, þeir hafa yfir-
leitt aldrei litið á sjálfa sig sem
skáld, né ort með það fyrir aug-
um að skáldskapur þeirra yrði
síðar birtur öðrum. Engu að
síður hafa þessir menn skapað
margan gimsteininn í íslenzk-
um bókmenntum og með fleygu
máli bundið mikið mannvit og
djúpa hugsun í hið hefðbundna
ljóðaform okkar Islendinga.
Mörg eru nöfn þessara manna
nú gleymd, en þjóðin hefur
valið þeim sameiginlega heitið
alþýðuskáld.
Enn í dag lifa mörg alþýðu-
skáld meðal okkar Islendinga,
menn sem nota flestar stundir
frá erfiði dagsins, til að yrkja
ljóð og vísur. Yfirleitt er það
þörfin til að tjá tilfinningar sín-
ar og meðfædd skáldhneigð,
sem fær þessa menn til að yrkja,
og víst veitir þjónustan við
Ijóðagyðjuna oft fróun frá erf-
iðu og erilsömu starfi.
Eitt þeirra mörgu alþýðu-
skálda, sem nú eru uppi með
þjóðinni, er Hafnfirðingurinn
Finnbogi J. Arndal. Finnbogi
er öllum Hafnfirðingum vel
kunnur. Hér í bæ hefur hann
verið búsettur síðustu fimm ára-
tugina, en hann fluttist hingað
árið 1909.
Það voru einkum tvennar á-
stæður fyrir því, að Hamar á-
kvað að hitta þennan aldna
borgara að máli, nú að þessu
sinni. Fyrri ástæðan var sú, að
Finnbogi varð áttræður á s. I.
sumri, en sú síðari, að nú á
þessu hausti sendi Finnbogi frá
sér aðra ljóðabók sína, nú á
skömmum tíma.
Finnbogi tók tíðindamanni
blaðsins opnum örmum, er
hann heimsótti hann á heim-
ili hans að Brekkugötu 9. Hann
var hvikur í hreifingum og hress
í bragði, og óneitanlega hefði
verið erfitt fyrir ókunnugan að
geta sér þess til, að þar færi
áttræður öldungur.
Finnbogi Jóhannsson Arndal
er Rangæingur að ætt, en fædd-
ur að Laxárdal í Gnúpverja-
hreppi í Árnessýslu. I föðurætt
er hann kominn af Merkurætt
af Landi, en Víkingslækjarætt
stendur að honum í móðurætt.
Finnbogi ólst upp að Flagbjarn-
arholti í Landssveit, hjá Jóni
Jörundssyni, smið og bónda, og
konu hans Helgu Árnadóttir.
Þegar Finnbogi var 16 ára
að aldri, fór hann til náms í
Flensborgarskólann hér í Hafn-
arfirði. Þaðan útskrifaðist hann
vorið 1895. Prófi við kennara-
deild skólans lauk hann vorið
1897. Sama ár fluttist Finnbogi
ásamt heitmey sinni, Jónínu
Árnadóttur, til Bíldudals. Átti
hann þar heima næstu 11 árin.
Vorið 1908 hóf hann búskap að
Flagbjarnarholti í Landssveit,
en vorið eftir hélt hann til Hafn
arfjarðar. Hefur hann stöðugt
verið búsettur hér síðan. Er
hann því i hópi eldri og kunn-
ari borgara þessa bæjar.
Finnbogi hefur verið mikill
eljumaður um ævina. Fyrsta ár-
ið hér í Firðinum var hann skrif
ari hjá séra Jens Pálssyni, pró-
fasti í Görðum á Álftanesi. Vor-
ið 1910 var hann ráðinn lög-
regluþjónn. Var hann við það
starf fram til ársins 1918, en
þá réðst hann til Magnúsar Jóns
sonar sýslumanns. Árið 1936 var
Finnbogi ráðinn til þess að hafa
á hendi gjaldkera- og fram-
kvæmdastarf fyrir Sjúkrasamlag
Hafnarfjarðar, sem þá var stofn
að. Frá því 1914 hafði hann
hins vegar haft umsjón með
sjúkrasamlagi, sem hér var starf
andi fyrir frjáls samtök manna.
Og enn í dag gengur hinn átt-
að mestu uppseld. í haust kom
út önnur ljóðabók hans. Nefn-
ist hún „Kvöldblær“. Báðar
hafa þessar bækur að geyma
mikinn fjölda ljóða. Er margt
ræði öldungur að vinnu hjá
Sjúkrasamlagi Hafnarfjarðar
nokkra tíma á dag.
Jafnhliða umfangsmiklum, og
oft erilsömum skyldustörfum,
hefur Finnbogi þó jafnan sinnt
ýmsum hugðarefnum sínum.
Hann starfaði mikið innan vé-
banda Góðtemplarareglunnar
bæði vestur á Bíldudal og hér
í Hafnarfirði. En fyrst og fremst
hefur hann þó helgað Ijóðagyðj-
unni frístundirnar. Allt frá
barnæsku hefur Finnbogi feng-
ist við að yrkja. Hafa ljóð hans
víða birzt á prenti. Það var þó
ekki fyrr en árið 1954, sem Finn
bogi fyrst réðst í að gefa út
Ijóðabók. Valdi hann bókinni
heitið „Milli skúra“. Er hún nú
þar prýðilega ort, enda er Finn-
bogi J. Arndal löngu víðkunn-
ur sem prýðilegasti hagyrðing-
(Framhald á bls. 27)
í jólabaðið og jólapakkann:
PING-FREYÐIBAÐ
Rose.
ÆSlr’ Cologne.
„Nr. 26“.
Furunála.
í glösum og plast-pokum.
Athugið hina vinsælu gjafapakkningu
PING- luktina.
Hafnarfjarðar Apotek
Óskum öllum viðshiptavinum vorum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
H.f. Ölgerðin Egill Skallagrímsson,
Reykjavík
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Þökkum fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Verkamannafélagið HHf
SJÓMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR óskar öll-
um sjómönnum og velunnurum sjómannasamtakanna
| gleðilegra og góðs komandi án jól a |
1 GLEÐILEG J ÓL! 1
Farsælt nýár!
Þökkum fijrir viðskiptin á líðandi ári.
Fiskbúð Gísla Sigurðssonar, Suðurgötu 53
Óskum öllum félagsmönnum vorum og velunnurum
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs með þökk fyrir það liðna.
Byggingafélag Alþýðu
Óskum öllu starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og nýárs.
Þökkum störfin og viðskiptin á líðandi ári.
Fiskur h.f.
! GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Ura- og skartgripaverzlun 1
Magnúsar Guðlaugssonar !
SKÓGRÆKTARFÉLAG HAFNARFJARÐAR óskar
öllum unnendum sínum 1
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs.
GLEÐILEG JOL!
Gott og farsælt nijtt ár!
Stebbabúð
Fegrunarfélag Hafnarfjarðar óskar öllum bæjarbúum
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs og þakkar gott samstarf og
áhuga um fegrun bæjarins.