Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Jólamarkaður Skógræktarfélags
Reykjavíkur á Elliðavatni í Heið-
mörk verður opinn alla helgar
fram að jólum milli klukkan 11 og
17. Skógræktarfélagið selur
jólatré og tröpputré og ýmsan
annan varning sem á uppruna
sinn í skógum Heiðmerkur. Í
Gamla salnum er hægt að nálgast
kakó og ilmandi vöfflur og yfir
sjötíu handverksmenn og hönn-
uðir bjóða fram vöru sína, bæði í
salnum og jólahúsum sem komið
hefur verið fyrir á hlaðinu við
bæinn á Elliðavatni. Auk jóla-
trjáasölu og íslensks handverks
er nú sem endranær boðið upp á
menningardagskrá á Jólamark-
aðnum.
Opið á Elliðavatni
allar helgar til jóla
Kiwanisklúbburinn Katla í Reykja-
vík gaf Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins (SHS) fjölda bangsa og
mjúkdýra til þess að gleðja börn
sem þurfa að ferðast í sjúkrabíl-
um. Bangsarnir verða í öllum
sjúkrabílum SHS og gefnir börn-
um sem á þjónustu sjúkraflutn-
ingamanna að halda.
Kiwanisklúbburinn Katla, sem
er með elsu Kiwanisklúbbum
landsins, hefur verið iðinn við að
styrkja starfsemi sem sinnir veik-
um börnum, s.s. Barnaspítala
Hringsins og SHS, en klúbburinn
hefur nokkrum sinnum áður gefið
SHS bangsa til að gleðja sína
yngstu viðskiptavini.
Kiwanisklúbburinn
Katla gaf bangsa
Sjálfsbjörg hefur veitt Norðlinga-
skóla í Reykjavík viðurkenningu
fyrir skólastarf án aðgreiningar.
Sjálfsbjörg veitir á hverju ári
slíka viðurkenningu fyrir gott að-
gengi fyrir fatlaða.
Á myndinni eru Sif Vígþórsdóttir
skólastjóri og Grétar Pétur Geirs-
son, formaður Sjálfsbjargar, með
börnum í Norðlingaskóla.
Norðlingaskóla
veitt verðlaun
STUTT
Í dag, laugardag kl. 11-13 stendur
Íslenska vitafélagið fyrir fundi í
Sjóminjasafninu Víkinni í Reykja-
vík. Á fundinum mun Anita Elefsen
sagnfræðinemi lesa valinn kafla úr
nýrri bók Örlygs Kristfinnssonar,
„Svipmyndir úr Síldarbæ.“ Þá mun
Sigurbjörg Árnadóttir, formaður
Íslenska vitafélagsins, kynna Sail
Húsavík – norræna strandmenning-
arhátíð sem verður haldin í júlí
næsta sumar
Á morgun, sunnudag kl. 15-17
verður svo Harmonikkufélag Ís-
lands með harmonikkuball í Betri
stofu safnsins. Að þessu sinni verð-
ur bæði hringdans og marsering.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og eru
allir velkomnir.
Dagskrá í Sjóminja-
safninu Víkinni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Rætt er um að það eigi að setja um
33 milljarða króna inn í Íbúðalána-
sjóð. Það var og er engin ástæða til
þess gagnvart sjóðnum eins og stað-
an er í dag, vegna þess að hann er
með 8,7 milljarða í eigin fé,“ segir
Hallur Magnússon, sjálfstætt starf-
andi ráðgjafi og fv. sviðsstjóri hjá
Íbúðalánasjóði, um þá ætlun stjórn-
valda að setja aukið fé í sjóðinn.
„Það eina sem sjóðurinn þarf að
hugsa um er hvort hann geti staðið
undir afborg-
unum af fjár-
mögnunar-
bréfum, og það
er ekkert sem
bendir til annars
en að hann geti
það.“
Hallur telur að
með þessu sé rík-
ið að tryggja sig
gagnvart fram-
tíðartapi vegna tapaðra útlána.
„Þarna hlýtur skýringin að liggja.
Það vildi enginn gefa upp af hverju
ríkið vildi setja 33 milljarða í sjóð-
inn. Rökin fyrir því að setja 33 millj-
arða inn í Íbúðalánasjóð nú eru þá
líklegast þau að menn séu að setja
inn í sjóðinn fyrirfram greiðslu og
styrkja þannig eigið fé hans til þess
að geta staðið undir niðurgreiðslum
á lánum inn í félagslega kerfið.
Vegna taps á félagslega kerfinu
Þetta sé eina rökrétta ástæðan.
„Með þessu er ríkið búið að leggja
fram ríflega 30 milljarða til að mæta
fyrirsjáanlegu tapi á lánum sjóðsins
vegna félagslega kerfisins og það er
um það bil tapið á Byggingarsjóði
verkamanna árið 1998. Mögulega er
ríkið að setja fjármuni í sjóðinn til
þess að geta staðið undir mismun-
inum á því sem fólk mun greiða fyrir
„félagslega húsnæðið“ og raun-
kostnað fjármögnunar [...] Ef ríkis-
stjórnin ætlar að lækka vexti á fé-
lagslegum lánum umfram það sem
nú er á almennum lánum Íbúðalána-
sjóðs þarf að lækka lögbundna raun-
ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna
sem er 3,5%. Það þýðir minni ávöxt-
un lífeyrissjóðanna,“ segir Hallur
Magnússon.
Sjóðurinn hefur nóg eigið fé fyrir
Fyrrverandi sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði telur 33 ma. framlag ríkisins óþarft
Hallur
Magnússon
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu hitaveitu í heimi www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
52
52
8
12
/1
0
Opið hús hjá
Orkuveitu Reykjavíkur
í dag, 4. desember
Komdu í heimsókn. Í tilefni 80 ára afmælis hitaveitunnar bjóðum við hjá Orkuveitunni
alla velkomna til okkar á Bæjarhálsinn milli klukkan 13:00 og 16:00.
Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna:
• Klukkan 13:15 verður tekin í notkun ný hitaveita frá
Hellisheiðarvirkjun, sem hingað til hefur aðeins framleitt rafmagn.
• Fræðsla um heita vatnið á staðnum.
• Skráðu þig í Orkuna mína og þú gætir dottið í lukkupottinn.
• Teiknisamkeppni fyrir börnin sem fá glaðning fyrir þátttökuna.
Fimm myndir úr teiknisamkeppni barnanna fá sérstök verðlaun.
• Jólasmákökur með kaffinu fyrir gesti og gangandi.
• Skipulagðar ferðir verða um húsið þar sem innviðir fyrirtækisins verða skoðaðir.
Hellisheiðarvirkjun verður opin á sama tíma og þar verður hægt að fræðast um allt varðandi virkjunina.
Einnig eru allir velkomnir í dælustöðina í Öskjuhlíðinni (fyrir ofan bensínstöð Skeljungs á Bústaðarvegi)
og í ventilhúsið í Öskjuhlíðinni (fyrsta beygja til hægri áður en þú kemur á bílastæðin við Perluna).
Nánari upplýsingar um opið hús er að finna á www.or.is.
Hlökkum til að sjá þig,
starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur