Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 24
aður Rússa í landinu sætti þá harðri
gagnrýni vestrænna leiðtoga. Silvio
Berlusconi hefur tekið málstað Rússa
í deilunni um hverjir hafi átt upptökin
að átökunum og sagt að Georgíumenn
beri ábyrgð á því að nokkur hundruð
óbreyttra borgara lágu í valnum í
Suður-Ossetíu.
Treystir Berlusconi mest
Talið er að Berlusconi sé í nánari
tengslum við Pútín en nokkurn annan
ráðamann í heiminum. „Það er erfitt
að segja til um hvað liggi að baki vin-
áttunni, en margir viðmælendur okk-
ar segja að Berlusconi telji að Pútín,
„hinn auðjöfurinn“, treysti Berlusconi
meira en nokkrum öðrum leiðtoga,“
segir í skeyti frá bandaríska sendi-
ráðinu í Róm. „Hann þráir það heitt
að vera í náðinni hjá Pútín og hefur
oft látið í ljósi skoðanir og gefið út yf-
irlýsingar sem komu beint frá Pútín.“
Bandarísku embættismennirnir
telja að auk þess sem Ítalir hafi haft
fjárhagslegan ávinning af þessari vin-
áttu hafi hún gagnast Berlusconi
sjálfum í þeirri viðleitni hans að auka
áhrif sín innan Evrópusambandsins
og á alþjóðavettvangi. Utanríkis-
stefna hans er „mjög móttækileg fyrir
tilraunum Rússa til að auka áhrif sín á
Evrópusambandið og fyrir stuðningi
við tilraunir Rússa til að grafa undan
öryggishagsmunum Bandaríkjanna í
Evrópu,“ segir í skeyti frá bandaríska
sendiráðinu. „Það á ekki síst rætur að
rekja til þess að Berlusconi forsætis-
ráðherra er umhugað um að litið sé á
hann sem mikilvægan evrópskan
áhrifamann í
utanríkis-
málum, það
fær hann til
að gera það
sem aðrir
þora ekki.“
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Líklegt er að stjórnvöld í Bandaríkj-
unum hafi fylgst grannt með viðræð-
um Silvios Berlusconis, forsætiráð-
herra Ítalíu, og Dmítrís Medvedevs
Rússlandsforseta þegar þeir hittust í
Moskvu í gær. Fram höfðu komið
upplýsingar um að bandarískir emb-
ættismenn hefðu miklar áhyggjur af
tengslum Berlusconis við ráðamenn í
Moskvu og þá einkum við Vladímír
Pútín, forsætisráðherra Rússlands.
Fundur Berlusconis og Medved-
evs í gær var sá sjöundi sem ítalski
forsætiráðherrann hefur átt með for-
seta Rússlands. Flestir leiðtoga-
fundanna voru haldnir þegar Pútín
gegndi forsetaembættinu.
Í skeytum, sem lekið var í upp-
ljóstrunarvefinn WikiLeaks, kemur
fram að Bandaríkjamenn virðast hafa
mestar áhyggjur af nánum tengslum
Berlusconis við Pútín.
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, er á meðal
þeirra sem hafa látið í ljósi áhyggjur
af vinfengi Berlusconis við Pútín. Í
tölvuskeyti sem hún sendi – undir
yfirskriftinni „beiðni um upplýsingar
um tengsl Ítalíu og Rússlands“ – leit-
ar hún svara við því hvað liggi að baki
vináttunni. Hún spyr hvort ríkis-
stjórn Berlusconis hafi „tekið ákvarð-
anir til að hygla ítölskum fyrirtækjum
eða í þágu viðskiptahagsmuna á
kostnað pólitískra úrlausnarefna
varðandi orkustefnuna“.
Töluðu saman daglega
Talið er að hér sé einkum skír-
skotað til orkurisans ENI, sem
ítalska ríkið á stóran hlut í og hefur
haft mjög ábatasamt samstarf við
Gazprom, ríkisrekna orkurisann í
Rússlandi. Embættismenn í Moskvu
sögðu að samstarfið í orkumálum
hefði verið ofarlega á baugi á fundi
forsetanna í gær, meðal annars áform
Gazprom um nýja gasleiðslu til
aðildarríkja Evrópusambandsins í
samstarfi við ENI og fleiri fyrirtæki.
Í skeytunum kemur fram að
Bandaríkjamenn hafa fylgst grannt
með vinfenginu við Pútín og Berlus-
coni er sagður líta á svo á þeir eigi
báðir það „sammerkt að vera auðjöfr-
ar“. Hermt er að þeir hafi talað saman
á hverjum degi þegar stríðið í
Georgíu geisaði árið 2008, en hern-
Reuters
Virktavinir Silvio Berlusconi „þráir það heitt að vera í náðinni hjá Pútín og hefur oft látið í ljósi skoðanir og gefið út
yfirlýsingar sem komu beint frá Pútín,“ að því er fram kemur í skeyti frá bandaríska sendiráðinu í Róm.
Vinátta við Pútín
vekur þeim ugg
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa illan bifur á nánum
tengslum Silvios Berlusconis við ráðamenn í Moskvu
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Í einu skeytanna frá bandaríska
sendiráðinu í Róm er Silvio
Berlusconi sagður vera „póli-
tískt veikur“ forsætisráðherra,
„hégómlegur“ og „ábyrgðar-
laus“.
Í skeyti frá Ronald Spogli,
fyrrverandi sendiherra Banda-
ríkjanna í Róm, er jafnvel ýjað
að því að Berlusconi hafi hagn-
ast fjárhagslega á vináttunni
við Vladímir Pútín, forsætisráð-
herra Rússlands. Í skeyti frá 26.
janúar á síðasta ári hefur Spogli
eftir heimildarmönnum í flokki
forsætisráðherrans að þeir telji
„að Berlusconi og virktavinir
hans hafi sjálfir hagnast drjúgt
á mörgum orkusamningum milli
Ítalíu og Rússlands. Sendiherra
Georgíu í Róm hefur sagt okkur
að Georgíumenn telji að Pútín
hafi lofað Berlusconi prósentu
af hagnaðinum af öllum gas-
leiðslum sem Gazprom leggur í
samvinnu við [ítalska orkuris-
ann] ENI.“
Berlusconi neitaði þessum
ásökunum, kvaðst aldrei
hafa hagnast á samn-
ingum eða tengsl-
unum við Pútín.
Hann hefði aðeins
haft hagsmuni
Ítalíu að leiðar-
ljósi.
Neitar því að
hafa hagnast
á vináttunni
BORINN ÞUNGUM SÖKUM
Reuters