Morgunblaðið - 13.12.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 13.12.2010, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 3. D E S E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  291. tölublað  98. árgangur  Stúfur kemur í kvöld www.jolamjolk.is dagar til jóla 11 FJÖLSKYLDA STENDUR AÐ LJÓSMYNDABÓK DREGIÐ ÚR ÞRÓUNAR- AÐSTOÐ GETUR EKKI HRÆTT SJÁLFA SIG FRÉTTASKÝRING 14 YRSA MEÐ HROLLVEKJU 24AKUREYRI EINS OG HÚN ER 10 Þess var minnst í Hafnarfirði í gær með Hamarskotshátíðinni að 104 ár voru þá liðin frá því fyrsta rafveita landsins var sett í gang í bænum. Liður í hátíðinni var ljósaganga frá efri stíflu Hamarskotslækjar að minnismerki um rafvæðinguna við neðri stíflu lækjarins við Austurgötu. Rafvæðingu fagnað Morgunblaðið/Kristinn Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Gengisveiking krónunnar um 10-20% gæti kostað ríkissjóð tugi milljarða króna, ef ríkisábyrgð á skuldbinding- um tengdum Icesave verður fest í lög. Þetta er mat stærðfræðingsins Sigurðar Hannessonar. Krafa Tryggingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta í þrotabú Landsbankans nemur um 674 milljörðum króna og er fest í krónum. Skuldbinding sjóðs- ins gagnvart innistæðutrygginga- sjóðum Breta og Hollendinga er hins vegar í erlendri mynt. Sigurður bendir á að ef krónan veikist muni endurheimtur á kröfum Tryggingasjóðs ná 100%. Heimtur umfram 100% renni hins vegar til al- mennra kröfuhafa Landsbankans en ekki íslenska ríkisins. Bentu á áhættuna „Á þetta atriði var bent þegar rætt var um síðustu Icesave-samninga og það hefur ekkert breyst með þessum nýju sem kynntir voru í síðustu viku. Það er ennþá mikil gjaldeyrisáhætta sem ríkissjóður gengst undir með þessum samningum. Þó svo að samið hafi verið um lægri vexti á láninu frá Bretum og Hollendingum þá er gjaldeyrisáhættan ennþá hin sama,“ segir Sigurður í samtali við Morgun- blaðið. MGjaldeyrisáhættan »6 Gengisáhætta óbreytt í nýjum samningum  Veikist gengi krónunnar um 10-20% gæti það kostað ríkissjóð tugi milljarða  Refir hafa komið inn í Reykjavík í nokkur ár. Þann- ig fóru tófur og tófuslóðir að sjást við og á Reykjavíkur- flugvelli fyrir fimm til sex ár- um. Maður sem vann við að ryðja flugbrautirnar og fór því oft til vinnu eldsnemma á morgnana skaut ref við Kringlu- mýrarbraut og annan í Hádegis- móum. Haraldur Sigurðsson hefur kom- ið upp fuglafriðlandi í Núpskötlu á Melrakkasléttu og varið gegn ref og mink. Honum er farið að blöskra ástandið vegna stöðugrar fjölgunar í refastofninum í landinu. »9 Refurinn er kominn til Reykjavíkur Yrðlingur Refir eru taldir ógna fuglalífi.  Fyrsta verkefni í vegagerðar- átaki ríkisstjórnar verður að bjóða út tvo kafla af þremur sem eftir eru við breikkun Suðurlandsvegar. Það eru kaflinn norðan við Rauðavatn og vegurinn um Hellisheiði. Einnig er unnt að hefja forval vegna Vaðlaheiðarganga. Veggjöld eiga að standa undir framkvæmdum en þau liggja ekki fyrir. Rætt er um að rukka 700-800 krónur fyrir akstur um Vaðlaheið- argöng og 400 krónur frá Reykja- vík og austur fyrir Selfoss. »4 Haldið áfram með Suðurlandsveg Vegir Fljótlega verður byrjað að grafa. „Ríkisstjórnin verður að standa á eigin fótum við framlagningu málsins og hafi hún ekki burði til þess þá erum við með ríkisstjórn sem getur ekki samið við aðrar þjóðir og slíkri ríkisstjórn er ekki stætt,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins. „Við munum taka afstöðu til þessa máls þegar við höfum fengið umsagnir, út- reikninga og okkur hefur gefist tóm til að ígrunda lagalegar áhættur og fengið góða yfirsýn yfir þá efnahagslegu þætti sem menn telja að muni drag- ast verði málið enn í ágreiningi,“ segir Bjarni. Stjórnin standi á eigin fótum BJARNI MUN EKKI FLYTJA FRUMVARPIÐ MEÐ RÍKISSTJÓRNINNI Bjarni Benediktsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Árásarmennirnir skipuðu okkur að leggja frá okkur símana. Tveir félaga minna neituðu því og fengu þá þétt högg í andlitið. Símalausir gátum við ekki gert vart við okkur og enginn í húsinu varð áskynja um neitt,“ segir Fannar Bogason, sem varð fyrir þeirri lífsreynslu á laugardags- kvöld að þrír ungir menn réðust inn í íbúð sem hann leigir í fjölbýlishúsi ásamt félaga sínum. Þar voru þeir staddir, og tveir aðrir, þegar árás- armennirnir birtust. Drógu skyndilega upp hnífa Fannar segir mennina þrjá hafa verið afar ógnandi í tilburðum og tali. „Þeir gengu beint hingað inn og fyrst töldum við þetta vera eitt- hvert grín. En svo drógu þeir skyndilega upp hnífa og þá varð okkur alvara málsins fyrst ljós. Við fórum að hríðskjálfa og sátum lengi undir for- mælingum strákanna um að þeir ætluðu með okkur út í sveit og drepa okkur,“ segir Fannar, sem telur mennina hafa verið inni í íbúðinni í um það bil fjörutíu mínútur. Á meðan létu þeir greip- ar sópa. Höfðu með sér á brott tölvur og ýmsan tilheyrandi búnað, fatnað og fleira. Á leiðinni út úr húsinu misstu þeir farsíma en með honum gátu þeir sem urðu fyrir árásinni gert vart við sig. Kannaði aðstæður Fannar var skólafélagi eins árásarmann- anna á sínum tíma en þráðurinn slitnaði fyrir löngu. „Þessi gamli skólabróðir kom hingað fyrir nokkrum dögum, var mjúkur á manninn og talaði um hvað ég byggi fallega. Nú er mér ljóst að hann var að kanna aðstæður til innbrots, sem hann lagði þó ekki í nema undir áhrifum vímuefna en svo virtust félagar hans einnig vera.“ Lögregla náði árásarmönnunum á laugar- dagskvöld, tveimur á Selfossi og einum við veg- artálma lögreglunnar við Rauðavatn. Sá hafði húkkað sér far með konu á leið til Reykjavíkur en hann var sofnaður þegar bíllinn kom að tálm- anum. Lögregla hefur krafist fjögurra vikna gæsluvarðhalds yfir mönnunum. „Fengu þá þétt högg í andlitið“  Hótuðu og veifuðu hnífum  Haldið föngnum í íbúðinni í um 40 mínútur Morgunblaðið/Júlíus Teknir Árásarmennirnir náðust fljótlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.