Morgunblaðið - 13.12.2010, Side 10

Morgunblaðið - 13.12.2010, Side 10
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Gísli B. Björnsson hefurunnið með ljósmyndirannarra í áratugi viðbóka- og blaðagerð, sem hönnuður, fyrir Iceland Review og fleiri útgáfur. Sjálfur byrjaði hann ungur að taka myndir og lét gamlan draum rætast í ár þegar hann gaf út ljósmyndabók um Akureyri og ná- grenni ásamt dóttur sinni, Önnu Fjólu. Bækurnar eru raunar tvær. Sú fyrri kom út í sumar, lítil og hand- hæg fyrir ferðamenn, eins og Gísli orðar það við Morgunblaðið. Í haust, um svipað leyti og menningarhúsið Hof var vígt, kom svo seinni bókin á markað, 240 síður: Akureyri og ná- grenni í Eyjafirði, en hana prýða alls tæplega 500 myndir sem þau feðginin tóku. Eiginkona Gísla, Lena Margrét Rist, er fædd og uppalin á Akureyri en fluttist ung í burtu. Þakka má þrá hennar að eignast afdrep í höf- uðstað Norðurlands að bækurnar urðu að veruleika. Lena Margrét ólst upp í Hlíðargötunni og dreymdi um að endurnýja kynnin við bæinn sinn. Afi hennar var íþróttafröm- uðurinn kunni, Lárus Rist. Hjónin keyptu sér íbúð í Lista- gilinu fyrir fimm árum og Gísli fór fljótlega að skoða bæinn í gegnum myndavélalinsuna. Fyrir þremur ár- um hóf hann síðan að ljósmynda markvisst með bók í huga og Anna Fjóla, dóttir þeirra hjóna sem er ljósmyndari og forstöðumaður ljós- myndadeildar Tækniskólans, kom til liðs við föður sinn. Hún flaug meðal annars yfir bæinn og birtir margar loftmyndir í bókinni. Gísli segir þau hafa fengið ýms- ar gagnlegar ábendingar frá fjölda fólks, ekki síst þegar hjónin dvöld- ust á heilsuhælinu í Hveragerði um tíma. Þar var hann með drög að bókinni í fórum sínum og Akureyr- ingar sem dvöldust á hælinu á sama tíma gáfu þeim góð ráð. Mannlíf og atvinnulíf Þegar spurt er um áherslur í bókinni svarar Gísli því einfaldlega að þau reyni að sýna Akureyri eins og hún kemur þeim fyrir sjónir. „Við vorum ekki að rembast við að búa til listræna ljósmyndabók en vildum þó að myndirnar stæðust kröfur og að bókin yrði góð heild, sem sýndi allt það helsta í bænum. Að helst vantaði ekki neitt.“ Í bókinni eru myndir af mann- lífi, atvinnulífi og flestu sem nöfnum tjáir að nefna. Auk þess lagði Gísli töluverða áherslu á hús og sérkenni Akureyrar á því sviði. Gísli reyndi að kynna sér sögu bæjarins vel vegna bókarinnar. „Ég hef farið í gegnum öll bindi Sögu Akureyrar eftir Jón Hjaltason og fleiri bækur, auk þess að eiga viðtöl við fjölda fólks. Mörgum fannst vanta nýja Akureyrarbók og þess vegna ákváðum við að slá til.“ Eiginkonan tók líka mikinn Vildum sýna Akur- eyri eins og hún er Feðginin Gísli B. Björnsson og Anna Fjóla Gísladóttir gefa út tvær ljósmyndabækur um Akureyri og nágrenni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Samvinna Gísli með bækurnar sem eru sannarlega fjölskylduverkefni. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2010 Situr þú við tölvuna í vinnunni að far- ast úr stressi? Það er ekki bara nóg að gera í vinnunni heldur bíða þín óteljandi verkefni eftir að vinnudeg- inum lýkur; piparkökubakstur með krakkanum í skólanum, tónleikar, jólagjafakaup, þrif eða jólakortaskrif. Áttu kannski orðið erfitt með svefn vegna jólaálags? Þá er nú gott að vef- síður eins og Soundsleeping.com séu í boði. Þar er boðið upp á slakandi tónlist og náttúruhljóð og eru þau vandlega valin til að bæta svefn, draga úr stressi og skapa afslapp- andi andrúmsloft fyrir þá sem stunda jóga eða aðra hugleiðslu. Það er afskaplega gott að setja heyrnartólin upp í vinnunni og hlusta á slakandi hljóð úr tölvunni í staðinn fyrir tuðið í vinnufélögunum. Á forsíðu síðunnar býr maður til sína eigin tónlist, getur t.d valið að hafa pípur sem aðalhljóð og bætt of- an á þær fuglasöng og fossanið eða snarki í arineld. Afskaplega sniðugt og róandi. Fleira róandi er á síðunni, t.d er myndasýning með róandi myndum og svo er róandi tölvuleikur þar sem á að sprengja sápukúlur á bláum grunni. Soundsleeping.com er kannski svarið við þínu vandamáli. Vefsíðan www.soundsleeping.com Morgunblaðið/Golli Arinn Það er slakandi að hlusta á snarkið í arineldinum. Slakandi tónlist og náttúruhljóð Nýlega kom út á íslensku bókin Heilareglur og heil- ræði eftir John Median. Í bókinni fjallar Median á al- þýðumáli um nýjustu rann- sóknir á mannsheilanum. Hann setur fram það sem hann kallar tólf heila- reglur. Hin fyrsta fjallar um áhrif líkamsræktar á heilann. Heilinn er um 2% af líkamsþyngd en óseðj- andi orkugleypir með um 20% af orku líkamans. Meðal þess sem fjallað er um í bókinni er: Hvert fara minningarnar, hvaða áhrif hefur ástríki á greind og þroska barna, af hverju eru konur málsnjallari en karlar og er til Jennifer An- iston-taugafruma? Endilega … … lærið heilareglurnar Morgunblaðið/RAX Mannsheilinn Merkilegt fyrirbæri og fróðlegur eins og lesa má í bókinni Heilareglur og heilræði. Tryggur – mínar síður er rafræn þjón- usta fyrir viðskiptavini Trygginga- stofnunar. Það er auðvelt og öruggt að tengjast og vinna á Trygg – mínum síðum og eru tvær leiðir þar inn: 1. www.tryggur.is 2. www.tr.is Aðgangslykill – tveir möguleikar 1. Kennitala viðskiptavinar og vef- lykill ríkisskattstjóra eða 2. Rafræn skilríki á debetkortum Um er að ræða einkasvæði við- skiptavina Tryggingastofnunar þar sem þeir geta m.a.:  Skoðað sín gögn, t.d. mánaðarleg greiðsluskjöl, greiðsluáætlun árs- ins og uppgjörsbréf.  Skoðað, breytt og skilað tekju- áætlunum á einfaldan hátt.  Framkvæmt bráðabirgðaút- reikning og séð mögulegar greiðslur.  Sent beiðni um samning vegna greiðslu skulda, ef við á.  Skráð og breytt bankareikningum, svo öruggt sé að greiðslur frá Tryggingastofnun berist í réttar hendur.  Sent fyrirspurnir og ábendingar til starfsfólks Tryggingastofnunar. Þinn réttur Tryggur – mínar síður Börn mæðra sem umgengust húsdýr og ketti á meðgöngunni eru ólíklegri til að fá húðsjúkdóma eins og exem fyrstu tvö ár ævi sinnar. Kemur þetta í ljós í nýrri evrópskri rannsókn sem segir frá á vefnum www.babycenter- .com. Exem er langvarandi og sársauka- fullar bólgur í húðinni sem oft koma fram á barnsaldri. Sjúkdómurinn hrjáir allt upp í 20% af börnum í iðn- ríkjunum og er einn algengasti húð- sjúkdómurinn hjá börnum. Rannsóknarteymi frá Háskólanum í Zürich skoðaði 508 evrópsk börn frá fjölskyldum sem bjuggu á sveitabæ og 555 börn sem komu ekki frá bændafjölskyldum. Komu þau frá ákveðnum svæðum í Austurríki, Finn- landi, Frakklandi, Þýskalandi og Sviss. Rannsóknarniðurstöðurnar birtust upphaflega í tímaritinu Journ- al of Allergy & Clinical Immunology. Ásamt ofangreindu fundust tvö gen tengd áhættu barna á að þróa með sér húðsjúkdóma á fyrstu tveim- ur árunum. Styður það kenninguna um að tenging genaumhverfis við þróun ónæmiskerfis hjá börnum hafi áhrif á húðsjúkdóma. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að of- næmi er sjaldgæfara hjá börnum sem alast upp á sveitabæjum eða hjá börnum mæðra sem bjuggu á sveitabæ á meðan þær voru þung- aðar. Börn Húðsjúkdómar sjaldgæfari hjá sveitabörnum Morgunblaðið/Sigurður Sigmund Í sveitinni Það er hollt og gott að umgangast skepnur. Tekið er á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar: Bnr. 101-26-66090 – Kt. 660903-2590. Tökum á móti matvælum og fatnaði að Eskihlíð. Upplýsingar í síma 551-3360 og 892-9603. Jólaúthlutun verður dagana 14, 15, 21. og 22. desember í Eskihlíð 2-4. Skráning í síma 892 9603. Jólasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands er hafin fyrir starfsstöðvar okkar í Reykjavík, á Akureyri og í Reykjanesbæ. Þúsundir einstaklinga eru nú án atvinnu, auk þeirra fjölmörgu sem minna mega sín í þjóð- félaginu og eiga um sárt að binda. Leggjum okkar af mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól. Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2-4 | Sími 551 3360 og 892 9603 fjolskylduhjalpin.net | fjolskylduhjalp@simnet.is Athugið að við erum einu óháðu og sjálfstætt starfandi hjálparsamtökin, áttunda árið í röð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.