Morgunblaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 34
34 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2010 Sudoku Frumstig 8 7 7 5 6 2 1 4 1 9 2 5 1 8 4 6 4 7 9 2 4 8 1 1 5 9 6 9 1 3 5 9 4 4 6 3 1 1 7 6 3 4 9 7 5 9 4 6 8 6 4 9 7 5 3 4 2 2 8 1 3 5 6 1 7 4 3 7 5 1 9 8 2 6 1 8 5 4 9 7 3 2 2 5 3 8 1 7 6 9 4 4 7 9 3 2 6 1 8 5 8 2 1 9 6 3 5 4 7 3 4 7 1 5 2 8 6 9 9 6 5 4 7 8 3 2 1 1 3 6 7 9 4 2 5 8 5 8 4 2 3 1 9 7 6 7 9 2 6 8 5 4 1 3 2 9 5 4 7 1 6 8 3 6 7 8 5 3 9 2 4 1 1 3 4 6 8 2 5 9 7 4 8 3 9 1 5 7 2 6 9 1 6 3 2 7 8 5 4 5 2 7 8 4 6 1 3 9 3 5 9 1 6 8 4 7 2 8 6 2 7 9 4 3 1 5 7 4 1 2 5 3 9 6 8 7 2 4 3 9 8 1 5 6 1 9 6 5 7 4 3 2 8 8 5 3 2 1 6 7 4 9 3 8 5 4 6 2 9 1 7 6 1 7 8 5 9 4 3 2 9 4 2 7 3 1 8 6 5 5 3 8 6 4 7 2 9 1 4 7 1 9 2 5 6 8 3 2 6 9 1 8 3 5 7 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 17. desember, 351. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.) Víkverji hefur að mestu eytt frí-tíma haustsins í bókaflóðinu og sökkt sér í lestur krimma. Um jólin taka fræðin síðan völdin á milli mála með tilheyrandi kræsingum. x x x Fjórar nýjar fræðibækur vekjahelst áhuga Víkverja. Tvær þeirra eru eftir vinnufélaga, Sögu- staðir - Í fótspor W.G. Collingwoods eftir Einar Fal Ingólfsson og Veiði- menn norðursins eftir Ragnar Axelsson. Auk þess hefur Víkverji gluggað í Sovét-Ísland óskalandið eft- ir Þór Whitehead og bíður spenntur eftir að lesa ævisögu Gunnars Thor- oddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson. x x x En það er enginn lestur án matarog þar sem jólin falla á helgi styttist frítíminn sem því nemur. Vegna þessa hóf Víkverji lestur jóla- bóka fyrr en á tímum stóru branda- jóla og ekki hefur verið slegið slöku við jólaátið samfara lestrinum. Inni- hald þriggja kg Machintosh- sælgætisdollunnar, sem keypt var í liðnum mánuði, er auðvitað löngu bú- ið og sama má segja um heimabökuðu smákökurnar, þó deig hafi verið hrært í tvígang. Súkkulaðið sem átti að fara í smákökurnar þurfti að kaupa tvisvar. Búið er að taka út jóla- hlaðborðin, helstu kökuveislurnar eru að baki, skötuveislan var í fyrrakvöld og annar í danskri jólastemningu verður á Jómfrúnni í kvöld. Hrein- dýrssteikin er tilbúin og andabring- urnar bíða færis áður en bjöllurnar hringja inn jólin. x x x Ef vel á að vera er það meira enfull vinna að sinna bókalestri og viðeigandi áti. Þegar Víkverji var nær drukknaður úr aukavinnu fór lítið sem ekkert fyrir lestri að ekki sé tal- að um ýmislegt góðgæti. Þá var hann gugginn og grár og ekkert nema beinin. Nú er öldin önnur. Víkverji hefur sjaldan lesið eins margar bæk- ur í aðdraganda jóla og nú, hefur aldrei verið bústnari og hefur senni- lega sjaldan liðið betur. Það vantar ekkert nema jólagjafirnar en þær koma. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hvassviðri, 4 vitur, 7 tré, 8 glyrna, 9 duft, 11 þráður, 13 skjótur, 14 kven- mannsnafn, 15 bráðin tólg, 17 ófríð, 20 óhreinka, 22 er til, 23 kvendýrið, 24 færa úr skorðum, 25 hamingja. Lóðrétt | 1 dáin, 2 fuglar, 3 laupur, 4 jó, 5 tuskan, 6 ást- fólgnar, 10 sjaldgæft, 12 veiðarfæri, 13 herbergi, 15 ljósleitur, 16 amboðið, 18 viðurkennt, 19 áma, 20 siga, 21 skynfæri. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hljóðlátt, 8 rósum, 9 týnir, 10 una, 11 fiður, 13 nárum, 15 hadds, 18 salla, 21 tík, 22 svera, 23 úfinn, 24 skyldulið. Lóðrétt: 2 losið, 3 ólmur, 4 lútan, 5 tínir, 6 hróf, 7 hrum, 12 und, 14 ála, 15 hæsi, 16 drekk, 17 stagl, 18 skútu, 19 leifi, 20 agna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 c5 6. Rf3 d5 7. 0-0 dxc4 8. Bxc4 b6 9. De2 Bb7 10. Hd1 Dc8 11. Bd3 Rbd7 12. Bd2 cxd4 13. exd4 Bxc3 14. bxc3 Dc6 15. He1 Hfe8 16. Hac1 a6 17. Bf4 Rh5 18. Be3 e5 19. Bf5 Rhf6 20. Bc2 exd4 21. cxd4 Dd6 22. Bb3 Bd5 23. Bxd5 Rxd5 24. Dc4 b5 25. Db3 Hac8 26. Hxc8 Hxc8 27. Bd2 R7b6 28. a3 Dc6 29. Bb4 f6 30. Bc5 Ra4 31. Hc1 De6 32. He1 Df7 33. Bd6 Hc3 34. Da2 Hc6 35. Bb4 He6 36. Hc1 Staðan kom upp á Friðriksmótinu árið 1995. Sjálft afmælisbarnið, hinn sextugi Friðrik Ólafsson, hafði svart gegn Svetozar Gligoric. 36. … Rac3! 37. Bxc3 Rxc3 svartur vinnur nú óhjá- kvæmilega lið. 38. Hxc3 He1+ 39. Rxe1 Dxa2 40. Kf1 a5 41. Rc2 b4 42. axb4 axb4 43. Hc8+ Kf7 44. Hc7+ Kg6 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Kantar lítur um öxl. Norður ♠G1098 ♥G1032 ♦D83 ♣83 Vestur Austur ♠K52 ♠D76 ♥D984 ♥Á765 ♦96 ♦4 ♣KG76 ♣D10952 Suður ♠Á43 ♥K ♦ÁKG10752 ♣Á4 Suður spilar 5♦. „Þetta var á þeim árum þegar allar svíningar gengu,“ rifjar Eddie Kantar upp í formála sínum að spilinu hér að ofan. „Ég endaði í fáránlegum 5♦ og fékk út lauf. Hér var verk að vinna. Stela þyrfti hjartaslag og tvísvína í spaða, en til þess þurfti ég þrjár innkomur í borð. Ég drap á ♣Á, spilaði ♦7 og svínaði áttunni, fullur sjálfstrausts. Hún hélt. Næst kom ♥G úr borði og kóngurinn heima átti slaginn. Innkomur blinds á ♦D3 voru loks notaðar til að svína tvisvar fyrir spaðahjónin. Ellefu slag- ir.“ Og Kantar heldur áfram: „Það er ekki af því ég sé bitur, eða svoleiðis, en ef þetta hefði spil hefði komið upp í dag hefði austur átt ♦9 eða farið upp með ♥Á. Alla vega hefði vestur legið á eftir með spaðahjónin …“ 17. desem- ber 1928 Davíð Stef- ánsson hlaut fyrstu verð- laun í sam- keppni um ljóð til flutn- ings á Al- þingishátíð- inni sumarið 1930. Það er nú einkum þekkt fyrir ljóðlín- urnar „Þú mikli, eilífi andi, sem í öllu og alls staðar býrð“. 17. desember 1942 Bæjarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti að skilgreina níu götur í Reykjavík sem aðalbrautir „og gengur umferð um þær ætíð fyrir umferð frá hliðar- götum,“ eins og Þjóðviljinn orðaði það. Meðal þessara gatna voru Aðalstræti, Aust- urstræti og Bankastræti. 17. desember 1943 Amerískt smjör var flutt inn til að koma í veg fyrir að landsmenn yrðu smjörlausir um jólin. 17. desember 1995 Göngubrú yfir Kringlumýr- arbraut var formlega tekin í notkun. Þetta er hundrað metra stálbitabrú sem tengir saman göngustíga frá Sel- tjarnarnesi upp í Elliðaárdal. 17. desember 1998 Umdeilt frumvarp um gagna- grunn á heilbrigðissviði var samþykkt á Alþingi með 37 at- kvæðum gegn 20. Stjórnar- andstæðingar sökuðu ríkis- stjórnina um gerræði í málinu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Kristján Sigurjónsson, fréttamaður á RÚV, er fimmtíu og fimm ára í dag. Kristján segist þó ekki ætla að halda veislu. „Nei, ég bauð fjölskyldunni í mat í fyrradag en konan mín ætlar að stjana við mig í dag. Í sjálfu sér held ég ekki veislu. Maður gerir bara vel við sig í mat og drykk. Það er bara yfirleitt nánasta fjölskylda sem kemur til mín. Ég hélt veglega upp á fimmtugsafmælið en þetta er nú ekki það stórt,“ segir Kristján en hann mætir til vinnu á undan öllum öðrum vinnufélögum sín- um og engin undantekning gerð þrátt fyrir af- mæli. „Ég vakna fimm á morgnana. Ég mæti bara í vinnuna í fyrramálið. Þá syngur stimpilklukkan afmælissönginn en ég losna við að allir heyri það.“ Margir sem eiga afmæli í lok desember kannast við að fá sameig- inlega jóla- og afmælisgjöf. Mörgum þykir það heldur ómerkileg hag- ræðing. Kristján segist þó ekki kannast við þetta algenga vandamál. „Ekki lengur. Það gerðist stundum þegar ég var yngri en þá voru það yfirleitt veglegri gjafir. Foreldrar mínir pössuðu samt upp á það að ég fengi sitt hvora gjöfina, allavega frá þeim.“ jonasmargeir@mbl.is Kristján Sigurjónsson er 55 ára í dag Syngjandi stimpilklukka Flóðogfjara 17. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.23 3,2 9.43 1,4 15.44 3,1 21.55 1,2 11.19 15.30 Ísafjörður 5.20 1,8 11.37 0,8 17.35 1,8 23.51 0,6 12.06 14.53 Siglufjörður 1.03 0,4 7.24 1,1 13.47 0,4 19.57 1,1 11.50 14.34 Djúpivogur 0.21 1,8 6.46 0,8 12.43 1,6 18.46 0,7 10.58 14.50 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það eyðileggur bara meira fyrir þér að þverskallast við að viðurkenna mistök þín. Mundu bara að orða hlutina þannig, að engin hætta sé á misskilningi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Gerðu það upp við þig hvað það er sem þú raunverulega vilt en hlustaðu ekki bara á skoðanir annarra. Gættu þess þó að þú gang- ir ekki of langt og þar með á eigin hlut. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér er að takast að þykja vænt um leiðinlegustu hliðarnar á vinnunni þinni. Hver segir að það þurfi að baka 7 tegundir af smá- kökum fyrir jólin? (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú elskar oft skilyrðislaust. Hvað sem þú gerir mun það verða til þess að þú hækkar í áliti hjá félögum og vinum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert jákvæð/ur og hress svo fólk sæk- ir í nærveru þína. Þú gerir þitt besta til að halda friðinn heima fyrir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú hefur unnið þér til óbóta á þessu ári og enginn veit það betur en þú. Einhver eltir þig á röndum, þú veist bara ekki af því. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er eins og einhver afturkippur hafi komið í starfsgleði þína. Ástarsamband er komið að endapunkti. Þú skakkar leikinn hjá vinum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert í fínu formi þessa dagana og átt einkar auðvelt með allt samstarf við aðra. Búðu til nýjar reglur í samskiptum við ástvini, það má alveg. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert undir miklu álagi og kannt illa að verja þig. Vertu opin/n fyrir nýjungum og mundu að maður getur alltaf lært eitthvað nýtt og spennandi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Fegurðarskyn þitt er óvenju næmt í dag. Treystu því og þá muntu gera það sem rétt er þótt allt orki tvímælis núna. Farðu eftir uppskriftum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert í essinu þínu núna og geng- ur auðveldlega í augun á fólki án þess að leggja nokkuð á þig. Hlustaðu á samviskuna. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft á aukinni einveru að halda til að hugsa um lífið og tilveruna og til að ná átt- um. Gættu þess að takmarka þig ekki of mik- ið. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.