Morgunblaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2010  Friðrik Örn ljósmyndari opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu í langan tíma á morgun, laugardag, klukkan 15:00 á Bárugötu 21, í hús- bíl. „Já, ég er búinn að vera í dvala en hrökk í gang um daginn því mig vantaði pening fyrir jólin. Sýningin er í húsbíl fyrir utan hjá mér. Hús- bíllinn er einsog hann hafi verið geislaður frá Bandaríkjunum og hingað. En inní honum eru myndir frá ferð sem ég fór síðasta sumar, en þá var ég trukkabílstjóri í Bandaríkjunum í þrjá mánuði. Þetta sýnir lífið í neysluæðinu þar,“ segir Friðrik Örn. Ljósmyndasýning hjá Frikka á Bárugötunni Fólk Fyrir þrjátíu árum kom bíómyndin The Empire Strikes Back, önnur myndin í Star Wars bálkinum út. Af því tilefni verður hún heiðruð með sýningu í Crymo galleríi þar sem hópur listamanna tekur þátt. Leikstjóri myndarinnar, Irwin Kershner, lést á árinu. „Já, greyið, hann lifði ekki að sjá hana verða þrítuga,“ segir Ómar Hauksson með hluttekningu en hann er einn þeirra sem verða með verk á sýn- ingunni. Daníel Örn Halldórsson og Hugleikur Dagsson standa að sýningunni og hafa fengið um 25 listamenn til að vera með verk á henni. „Já, þetta er stór samsýning,“ segir Daníel. „Við Hug- leikur erum svoddan fyrirmyndarnördar að okkur fannst upplagt að minnast þessa verks með svona framlagi,“ segir hann. „Ég er fæddur 1976, þannig að maður elst upp í miðju stjörnustríðsæðinu. Þetta er mikilvægur hluti af persónuleika manns. Þetta er líka góð mynd. Dramatíkin í henni, maður engist um því það lítur út fyrir að hið illa sé að sigra en svo ná þeir því ekki. Það er fjölbreytt umhverfi í myndinni, hún byrjar á ísplánetu og fer síðan mjög víða. Það er af nógu að taka hvað „inspírasjón“ varðar í þessari mynd. Þetta er hálf-furðulegur brandari hjá okkur að tileinka heila sýningu ein- hverri bíómynd frá 1980 en ég held að þetta virki. Allir listamennirnir eru að hamast í sínu horni og þetta er búið að vera að koma inn í hús undanfarna daga. Menn tækla þetta misjafnlega, en ég verð með málverk og málaðan skúlptúr,“ segir Daníel. Sýningin verður opnuð í dag kl. 17 og stendur til 13. janúar. borkur@mbl.is Hið illa snýr aftur í Crymo gallerí Grimmd Hið góða og hið illa eru alltaf í baráttu.  Rithöfundurinn og blaðamað- urinn Hrafn Jökulsson heldur út- gáfuteiti á Hressó í Austurstræti í dag klukkan 17. Hrafn er höfundur margra kunnra bóka og síðast gaf hann út bókina Þar sem vegurinn endar sem innihélt söguþætti úr hans eigin lífi en hann var þá farinn að lifa því í Árneshreppi á Strönd- um. Í þetta skiptið er hann með ljós- myndabók sem er þaðan og nefnist Við ysta haf – Mannlíf og náttúra í Árneshreppi á Ströndum. Bókin kostar 5.000 krónur og kemur út í takmörkuðu upplagi og verður ekki endurprentuð. Hrafn Jökuls á Hressó Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Á hverju ári veitir tónlistarsjóðurinn Kraumur plötuverðlaun vegna verka í íslenskri plötuútgáfu sem þótt hafa framúrskarandi og spennandi á árinu. Dómnefnd Kraumslistans er skipuð 12 aðilum sem hafa verið liðtækir við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar. Nefnd- in hefur gefið út hvaða plötur hún hef- ur valið sem mögulegar til verð- launanna en tuttugu plötur eru í þeim hópi. Þar á meðal eru plötur Amiinu, Ólafar Arnalds, Retro Stefsons, Agent Fresco og fleiri. Af þessum tuttugu verða fimm valdar til verð- launa. Markmið Kraumslistans er að kynna og styðja við plötuútgáfu ungra listamanna og hljómsveita, verðlauna og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist ár hvert. Verðlaununum er fylgt eftir með því að kynna verðlaunaverkin með dreif- ingu til ýmissa starfsmanna tónlist- arbransans erlendis, á tónlistarhá- tíðir, til plötuútgáfu, umboðsskrifstofa og fleiri. Aðspurður hvort þetta geti verið áhrifavaldur fyrir íslenskar hljóm- sveitir á erlendum vettvangi, segir Eldar Ástþórs- son, fram- kvæmdastjóri Kraums, að svo geti verið. „En það er mjög margt sem kemur til þegar hljóm- sveitir ná árangri á erlendum vettvangi, en þetta er einn liður sem getur hjálpað til,“ seg- ir Eldar. Formaður dómnefndarinnar er Árni Matthíasson en í stjórn og fagráði Kraums er fólk með mikil tengsl við erlenda áhrifamenn í tón- listarbransanum, eins og Björk Guð- mundsdóttir, Árni Heimir Ingólfsson og Kjartan Sveinsson. Niðurstaða dómnefndarinnar verð- ur kynnt á næstunni. „Við höfum mið- að við að kynna úrslitin um miðjan desember. Í fyrra kynntum við þær 16. desember. Ætli dómnefndin nái ekki niðurstöðu einhvern tímann eftir helgi og hún verður kynnt strax. Það er ekki stefnan að setja mikið púður í verðlaunahátíð, heldur bara að gera sér glaðan dag með verðlauna- höfum,“ segir Eldar. Kraumur velur bestu plöturnar  20 plötur tilnefndar til verðlauna Tilnefndir Tónlistarmenn tilnefndir af Kraumi í ár fyrir plötur sínar. Eldar Ástþórsson Agent Fresco - A Long Time Listening Amiina - Puzzle Apparat Organ Quartet - Pólyfónía Daníel Bjarnason - Processions Ég - Lúxus upplifun Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað Kammerkór Suðurlands - Iepo Oneipo Miri - Okkar Momentum - Fixation, At Rest Moses Hightower - Búum til börn Nolo - No-Lo-Fi Ólöf Arnalds - Innundir skinni Prinspóló - Jukk Retro Stefson - Kimbabwe Samúel Jón Samúelsson Big Band - Helvítis Fokking Funk Seabear - We Built a Fire Sóley - Theater Island Stafrænn Hákon - Sanitas Valdimar - Valdimar Quadruplos - Quadroplos Fjölbreyttur listi PLÖTUR TILNEFNDAR TIL KRAUMSLISTANS 2010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.