Skátablaðið


Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 6

Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 6
Hlutverk skáta í loftárásum. íslenzka þjóðin er fámenn og fátæk. Hún hefir engan her, ef á liana skyldi ráðizt. Því hefir veriS treyst að fjarlægð landsins frá öðrum löndum og hið yfirlýsta, ævarandi hlutleysi, myndi frelsa hana frá ógnum styrj- ar. Enda þótt þjóðin öll trúi því og treysti, að henni verði hlíft við styrjaldarógnum, verður hún samt, að gera sér ljóst, að slík von byggist eingöngu á trausti því, er hún ber í garð ófriðaraðila. Þess vegna ber öll- um borgurum skylda til að gera sér ljóst, livernig þeim beri að hegða séb, ef óvænta atburði ber að. Skátafélag Reykjavíkur hefir um nokkurra vikna skeið, æft sérstaka hjálparsveit til ým- iskonar aðstoðar, ef loftárásir, jarðskjálfta eða meiriháttar eldsvoða ber að höndum. Hjálparsveitin er skipuð Róversskátum og nokkrum yngri skátum. Hefir hluti af sveit- inni verið æfður sérstaklega í sjúkrahjálp og hefir sá hluti sveitarinnar með höndum hjálp allra sjúkra og særðra. Hinum hluta sveitarinnar er ætlað að aðstoða almenning á ýmsum öðrum sviðum, t. d. að loka fyrir gasleiðslur og vatnsæðar, leiðbeina húsráð- endum í ýmsu er máli skiptir, aðstoða hrædd börn og konur o. m. fl. Hjáiparsveitin mun starfa í nánu samneyti við lögreglulið bæjarins. Aðalbækistöð sveit- arinnar mun verða í miðbænnm og er henni ætlað að standa í nánu sambandi við lög- reglustjóra, og koma boðum út lil hinna al- mennu bækistöðva, er verða munu víðsveg- ar um bæinn. Almenningi mun síðar tilkynnt, bæði i út- varpi og blöðum, á hvern hátt eigi að komast í samband við bækistöðvar hjálparsveitar- innar og hverskonar hjálpar þar er að vænta. Þetta mun tilkynnt af Loftvarnanefndinni. Skátablaðinu þykir rétt að birta leiðbein- ingar Skátafélags Reykjavíkur, ef vera kynni, að þær gætu orðið hinum einstöku skáta- félögum úl um landið, svo og alþýðu manna, til leiðbeiningar. Skátablaðið vill þó taka fram: að leiðbeiningar þessar, sem sniðnar eru eftir erlendum fyrirmyndum, ber aö- eirts aö skoöa sem fróðleik um þessi efni. Öllum fyrirskipunum og reglugerðum Loft- varnanefndarinnar ber að hlýða umsvifa- 6 laust, alveg án tillits til þess, sem stendur í eftirfarandi upplýsingum. Kennslan fer fram á þrem flokksæfing- um og einni útiæfingu. 1. Æfing. Viðbúnaður og nauðsynleg tæki. Öryggisráðstafanir í heimahúsum. 1. spurning: Hvaða tæki álítur þú nauð- synleg í heimahúsum til þess að minnka hættu af loftárásum og ikviknun? Svar: Fötur með vatni í, á lofthæðum. Kassar með þurrum sandi, einnig á lofthæðum. Enn- fremur skóflur, vasaljós og ýms verkfæri til þess að komast að eldi, sem kviknað hefir innanþilja. 2. spurning: Hverjar öryggisráðstafanir á- lítur þú að þurfi i íbúðarhúsum, ef hætta er á loftárásum. Svar: Varast aö birtu leggi út um glugga eða dgr, ef dimmt er„ með því að láta svört (dökk) gluggatjöld fyrir glugga, opna dyr sem minnst, nema að áður hafi verið slökkt í herberginu, ef ljós er í húsinu, eða eitthvað forhengi hengt upp í dyrnar. Mjög miklu máli skiptir, aö brunahætta sé minnkuð á efstu hæðum húsa, með þvi að flytja þaðan óþarfa hluti, sem eldhætta stafar af, einnig þarf að vera greiðfært um efstu hæð hússins til þess að hægt sé að k'omast að þeim stað. sem eldur hefir kviknað i. Nauðsynlegt er að á lofthæðum séu geymd slökkvitæki ásamt þeim tækjum, sem nefnd eru í 1. spurningu. Yfirleitt er afar nauðsyn- legt að á efstu hæð húsa sé ekki geymt neitt, sem eldhætta getur stafað af, einkum ef fólk gengur þar um með óbyrgð Ijós. 3. spurning. Hvar á fólkið að hafast við sé hætta á loftárás? Svar: í kjallara hússins, en þó aðeins i hornum, við útveggi (alls ekki i miðju húsi). Hægt er að styrkja veggina með sandpokum, sem hlaða skal í glugga herbergisins og helzt meðfram útveggjunum. Loftin má styrkja með tréstoð- um, sem minnka hættuna á hruni. Nauðsyn- legt er að skátinn þekki alla herbergjaskip- an hússins. SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.