Morgunblaðið - 07.01.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011
„Illsmalanlegu kettirnir“ eða
„órólega deildin í VG“ kann að
spekjast um hríð, en næsta
mánudag heldur stríðið áfram.
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Áfram heldur svikalognið í þing-
flokki Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs, eftir mikinn
átakafund sem stóð með hléi frá há-
degi í fyrradag og fram á kvöld.
Að vísu heitir það nú opinberlega
að fundurinn hafi verið „góður.
Hreinskiptnar og opinskáar um-
ræður“ hafi farið þar fram.
Þetta þýðir á mannamáli að
flokksforystan beitti flokkssvipunni
óspart á fundinum og þeir sem
haldið hafa uppi opinberri gagnrýni
á störf og stefnu ríkisstjórnarinnar
voru hundskammaðir, einkum og
sér í lagi fyrir að bera raunir sínar á
torg og gefa þannig fjölmiðlum
tækifæri til þess að „blása upp
ágreining innan flokksins og gera
að sérstöku umfjöllunarefni“.
Formaðurinn og stjórn þing-
flokksins voru ómyrk í máli og
kröfðust þess að þingmenn héldu
sig við það að takast á málefnalega
á eigin fundum og um efni þeirra
funda ætti að ríkja trúnaður. Allt
annað væri stórskaðlegt fyrir flokk-
inn.
Enginn friður í sjónmáli
Það ríkti alls enginn friður í VG
fyrir þennan þingflokksfund og við-
mælendur Morgunblaðsins úr röð-
um VG sögðu í gær, að það væru
engar horfur á friði í flokknum á
næstunni. Sá friður næðist einvörð-
ungu með breytingum á áherslum í
Evrópusambandsmálum, samstarf-
inu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,
ríkisfjármálum og vinnubrögðum
flokksforystunnar.
Stjórn þingflokksins, þau Árni
Þór Sigurðsson, starfandi þing-
flokksformaður, Lilja Rafney
Magnúsdóttir og Þuríður Backman
lögðu fram tillögu að bókun á fund-
inum, sem ákveðið var eftir all-
nokkrar umræður að skoða betur
og ræða nánar á næsta þingflokks-
fundi sem verður haldinn nú á
mánudag, þann 10. janúar.
Árni Þór var í gær spurður hvers
eðlis þessi tillaga að bókun hefði
verið: „Við lögðum fram hugmynd
að ákveðnu vinnulagi í mörgum lið-
um. Meðal annars að gerð yrði bók-
un um árangur af starfi ríkisstjórn-
arinnar til þessa, hver væru helstu
verkefni næstu vikna og mánaða.
Við gerðum tillögu um að settir
yrðu á laggirnar ákveðnir starfs-
hópar á vegum þingflokksins vegna
þeirra mála sem verða fyrirferðar-
mikil á næstunni, svo sem ESB-
málið, sjávarútvegsmálin og fleira.
Þá lögðum við til að skipulögð yrði
fundaherferð flokksins í samvinnu
við stjórn flokksins og fleira í þess-
um dúr.“
Tillaga ekki dregin til baka
Árni Þór segir það ekki rétt að
stjórn þingflokksins hafi dregið
bókun sína til baka, vegna þess að
þau Ásmundur Einar Daðason, Atli
Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafi
lýst því yfir að þau gætu ekki stutt
slíka bókun. Tillagan hafi alls ekki
verið dregin til baka. Þingmenn hafi
einfaldlega sagt, eftir að tillögunni
hafi verið dreift á fundinum, að þeir
þyrftu tíma til þess að skoða hana
og gera sínar eigin athugasemdir,
ekki síst hvað varðaði þann þátt er
laut að ríkisfjármálum og end-
urmótun efnahagsstefnunnar. Við
því hafi að sjálfsögðu verið orðið og
málið verði áfram rætt á næsta
þingflokksfundi á mánudaginn.
Fullyrt var af VG-félögum í gær,
að þremenningarnir, þau Atli, Ás-
mundur Einar og Lilja hafi verið
múlbundin á þessum þingflokks-
fundi og því hafi þau talað með þeim
hætti sem þau gerðu eftir þing-
flokksfundinn í fyrrakvöld, þ.e.a.s.
þau Ásmundur Einar og Lilja, en
Atli hefur enn ekki sagt eitt orð eft-
ir fundinn. „Það má kannski segja
að tímabundið hafi þau þrjú verið
barin til hlýðni með svipum flokks-
agans, en ég fæ ekki séð að sú
hlýðni muni vara lengi, því ekkert
breyttist á þessum fundi og þau lof-
uðu engu – hvorki því að skipta um
skoðun, né því að láta af gagnrýni á
það sem þau telja gagnrýnivert.
Enda væru þau með slíku að bregð-
ast bæði sjálfum sér og kjósendum
VG,“ segir gamalreyndur VG-
félagi.
Viðmælendur segja, að þótt stað-
an sé þessi nú, þá muni hún vart
vara lengi, því sama undiralda og
ólga óánægju kraumi áfram undir
yfirborðinu og muni vafalítið brjót-
ast upp á yfirborðið á ný, áður en
varir.
Þessi þingflokksfundur hafi í
raun ekki verið annað en veik til-
raun flokksforystu og þingflokks-
forystu til þess að þjappa þing-
flokknum saman á málefnalegum
grunni og sú tilraun hafi mistekist.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun stórum hluta fund-
artímans hafa verið varið í umræð-
ur og deilur um það aðlögunarferli
að regluverki Evrópusambandsins,
sem „órólega deildin“ og raunar
mun fleiri telja að sé löngu hafið.
Það sé einfaldlega ferli, sem aldrei
hafi verið samþykkt af VG að yrði
hafið og því sé augljóslega um ský-
laus svik við stefnu flokksins að
ræða.
Án heimildar frá þjóð og þingi
Raddir í þá veru að þeim farvegi
sem Evrópusambandsmálin eru nú
komin í verði að breyta, eru langt í
frá þagnaðar. Umræðum um ESB
verður fram haldið á þingflokks-
fundi á mánudaginn og menn voru í
gær ekkert sérstaklega bjartsýnir á
að á þeim fundi fengist einhver botn
í umræðuna sem allir í þing-
flokknum gætu unað við.
Menn eru ekki á einu máli um
það hvað beri að gera, en meðal
þess sem rætt hefur verið um í
þingflokki VG er möguleikinn á
þjóðaratkvæðagreiðslu strax, draga
umsóknina um aðild að Evrópusam-
bandinu til baka og/eða láta reyna
sérstaklega á okkar helstu og
stærstu hagsmunamál strax, eins
og sjávarútvegs- og landbún-
aðarmál. Í þeim efnum sé brýnt að
setja fram skilyrði Íslands gagn-
vart ESB, því skilyrði ESB liggi
klár fyrir. Koma verði málinu upp
úr því aðlögunarferli sem það er
komið í og hefur verið í um skeið og
tryggja meira gegnsæi í ferlinu en
verið hefur. Hægt og bítandi sé ver-
ið að nudda Íslandi inn í Evrópu-
sambandið, án þess að þjóð og þing
hafi nokkurn tíma heimilað slíkt.
Morgunblaðið/Ómar
Átök Þingflokksfundur VG í fyrradag var mikill átakafundur, hvað sem orðum flokksforystunnar líður. Evrópusambandsmál voru helsta deiluefnið og ekki er búist við að þar verði breyting á í bráð.
Agasvipum flokksins beitt af
hörku gegn órólegu deildinni
Engar líkur eru taldar á því að hörðum átökum í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði linni í bráð
Þeir í VG sem reynt hafa að gera
lítið úr málefnalegri andstöðu
þingmanna flokksins við stefnu
ríkisstjórnarinnar í Evrópusam-
bandsmálum og ýmsum öðrum
málum, vísa gjarnan til þess að
hér sé einungis um lítið brot af
þingflokknum að ræða, þrjá
þingmenn af fimmtán.
Þetta er ekki nema hálfur
sannleikur, því hið sanna er, að
það eru a.m.k. sex þingmenn
flokksins, eða 40% þingmann-
anna, sem eru þeirrar skoðunar
að rangt sé að halda áfram því
aðlögunarferli sem Ísland er nú
komið í, í aðildarviðræðunum
við ESB. Þetta eru þau sem Jó-
hanna Sigurðardóttir nefndi
„illsmalanlega ketti“, Atli Gísla-
son, Ásmundur Einar Daðason
og Lilja Mósesdóttir. En auk
þeirra eru sömu skoðunar ráð-
herrarnir Jón Bjarnason og Ög-
mundur Jónasson og svo Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir,
formaður þingflokks VG, sem er
í barneignarfríi.
Er 40%
andstaða
lítið brot?
EKKI MIKILL MUNUR Á MILLI FYLKINGA
Lilja MósesdóttirJón Bjarnason
Ögmundur
Jónasson
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Atli
Gíslason
Ásmundur
Einar Daðason
Steingrímur J.
Sigfússon
Árni Þór
Sigurðsson
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Þuríður
Backman
Flokkssvipur eru þekkt fyrirbæri í breskum stjórnmálum og er
ætlað að hafa aga á eigin flokksmönnum. Formaður VG og stjórn
þingflokksins brugðu sér í gervi flokkssvipna í fyrradag.