Morgunblaðið - 07.01.2011, Page 26

Morgunblaðið - 07.01.2011, Page 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011 Sudoku Frumstig 3 9 1 2 6 2 9 7 4 6 7 3 2 9 1 9 8 7 3 8 7 4 2 9 1 2 6 7 4 5 8 3 2 4 1 5 4 8 6 3 7 7 4 6 8 8 2 5 1 4 8 4 8 1 7 1 5 1 5 6 9 2 4 7 1 4 9 8 2 4 1 5 9 7 8 2 4 5 9 1 8 6 2 3 7 1 7 2 4 9 3 8 6 5 6 3 8 2 5 7 1 4 9 7 6 5 8 1 2 3 9 4 2 9 3 5 6 4 7 1 8 8 4 1 7 3 9 5 2 6 5 8 4 6 2 1 9 7 3 9 2 7 3 4 5 6 8 1 3 1 6 9 7 8 4 5 2 9 4 2 1 8 7 6 3 5 5 1 7 6 9 3 2 4 8 8 6 3 5 4 2 1 9 7 1 9 4 8 7 6 5 2 3 6 7 8 2 3 5 4 1 9 2 3 5 4 1 9 7 8 6 7 5 1 9 2 8 3 6 4 3 2 9 7 6 4 8 5 1 4 8 6 3 5 1 9 7 2 3 2 5 6 9 7 1 4 8 8 7 9 1 4 3 2 5 6 6 4 1 5 2 8 9 3 7 1 5 8 4 6 2 3 7 9 7 6 4 3 1 9 5 8 2 2 9 3 8 7 5 4 6 1 4 3 6 2 8 1 7 9 5 5 1 7 9 3 6 8 2 4 9 8 2 7 5 4 6 1 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 7. janúar, 7. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð. (Ok. 10, 32) Ekki er auðvelt að velja íþrótta-mann ársins hverju sinni og valið verður erfiðara eftir því sem af- reksíþróttamönnum fjölgar. Sitt sýnist hverjum en kjör íþróttafrétta- manna er lýðræðislegt og sá besti er valinn hverju sinni. Handboltakapp- inn Alexander Petersson var út- nefndur íþróttamaður ársins 2010 í fyrrakvöld og er svo sannarlega vel að sæmdinni kominn. x x x Alexander er rúmlega þrítugur,fæddist í Lettlandi 1980, en flutti til Íslands 1998 til að leika handbolta með Gróttu/KR. Hann hefur verið atvinnumaður með þýsk- um liðum frá 2003, varð íslenskur ríkisborgari 2004 og hefur leikið með íslenska landsliðinu frá árs- byrjun 2005. „Íslenski þjóðsöng- urinn er fallegur en erfiður. Þegar ég heyri „Íslands þúsund ár“ fyllist ég stolti,“ sagði hann stoltur við Morgunblaðið eftir útnefninguna enda mesta persónulega viðurkenn- ingin á ferlinum. x x x Allir sem þekkja Alexander, ekkisíst þjálfarar og samherjar, bera honum einstaklega vel söguna. Hann er góð fyrirmynd í einu og öllu, hefur alla tíð lagt mikið á sig, jafnt á æfingum sem í vinnu, til þess að ná árangri og láta drauma sína rætast. Hann hefur verið lykilmaður í liðum sínum, maður sem allir vilja hafa með sér. x x x Peningum til styrktar afreks-íþróttamönnum er vel varið vegna þess að afreksíþróttafólk skil- ar gjarnan miklu til samfélagsins. Alfreð Gíslason var kjörinn íþrótta- maður ársins 1989. Hann var lengi vel einn besti handboltamaður í heimi og hefur verið í hópi bestu og virtustu þjálfara heims um árabil. Alfreð heldur erindi á hádegisverð- arfundi Þýsk-íslenska verslunar- ráðsins á Hilton Reykjavík Nordica í dag og fróðlegt verður að hlusta á hann tala um hvernig nýta má að- ferðafræði íþrótta við rekstur fyrir- tækja. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ljóstíra, 4 vangi, 7 naut, 8 skáru, 9 viðkvæm, 11 ögn, 13 fall, 14 hafna, 15 þarmur, 17 geð, 20 fjallsbrún, 22 kirtill, 23 rýma, 24 myrkvi, 25 venja. Lóðrétt | 1 varkár, 2 gubb- aðir, 3 lengdareining, 4 sorg, 5 sumir, 6 gyðja, 10 þjálfun, 12 greinir, 13 mann, 15 málms, 16 þekja, 18 mátt- um til, 19 toga, 20 geð- vonska, 21 lýsisdreggjar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 koppalogn, 8 kaggi, 9 tefja, 10 sel, 11 rolla, 13 annað, 15 leggs, 18 stáls, 21 enn, 22 ómaði, 23 Ævars, 24 hafurtask. Lóðrétt: 2 orgel, 3 peisa, 4 litla, 5 gæfan, 6 skar, 7 sauð, 12 lag, 14 nót, 15 ljót, 16 glata, 17 seinu, 18 snætt, 19 árans, 20 sess. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 a6 7. O-O Rf6 8. Kh1 Rxd4 9. Dxd4 Bc5 10. Dd2 d6 11. Bd3 O-O 12. Dg5 Rd7 13. Re2 Re5 14. Dg3 b5 15. Bh6 f5 16. exf5 exf5 17. Bd2 Bb7 18. Rf4 Rxd3 19. Rxd3 Bd4 20. c3 Be5 21. Bf4 Hae8 22. Hfe1 Be4 23. Had1 Bxd3 24. Bxe5 Bc2 25. Hc1 Hxe5 26. Hxe5 dxe5 27. Hxc2 Dc4 28. h3 Dxa2 29. He2 e4 30. Dd6 f4 31. De7 f3 32. gxf3 Db1+ 33. Kh2 exf3 Staðan kom upp í fyrstu deild Ís- landsmóts skákfélaga en fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla sl. októ- ber. Jón L. Árnason (2.490), hvítt, hafði staðið lakar að vígi framan af í skák sinni gegn Hannesi Hlífari Stef- ánssyni (2.585) en nú sneri hann taflinu við. 34. De6+! Kh8 svartur hefði einnig tapað eftir 34. … Hf7 35. Dc8+ Hf8 36. He8. 35. Df7! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Bergen og fleira. S-AV. Norður ♠G764 ♥85 ♦ÁD10 ♣K983 Vestur Austur ♠3 ♠KD10 ♥DG103 ♥Á9742 ♦K7652 ♦94 ♣D74 ♣G52 Suður ♠Á9852 ♥K6 ♦G83 ♣Á106 Suður spilar 4♠. „Við notum Bergen sagnvenjuna,“ útskýrði suður hátíðlega, án þess að þó að nokkur hefði spurt. „Þrjú lauf sýnir fjórlit í spaða og 10-12 punkta,“ hélt suður áfram. „Ollræt,“ sagði austur. „Þá veit mað- ur það.“ Suður vakti á 1♠, norður sagði 3♣ í skilningi Bergens og suður 4♠. Út kom ♥D upp á ás og meira hjarta. Sagnhafi lagði niður ♠Á, lét svo ♦G rúlla. Hann svínaði aftur í tígli og spilaði ♦Á. Austur er nú í vondum málum, því fyrr eða síðar mun hann neyðast til að hreyfa laufið. Og sagnhafi sem þekkir Bergen sagnvenjuna fer ekki að falla fyrir laufgosa. Eða hvað? Besta tilraun austurs er að trompa ♦Á með ♠K og spila strax ♣G. Ef sagnhafi ályktar að vestur sé með ♠D mun hann drepa á ♣K og spila spaða. 7. janúar 1730 Árni Magnússon handritasafn- ari og prófessor lést, 66 ára. Ásamt Páli Vídalín sá hann um manntalið 1703 og samningu jarðabókar en þekktastur er hann fyrir söfnun og vörslu norrænna handrita, einkum ís- lenskra. 7. janúar 1906 Ungmennafélag Akureyrar var stofnað. Það hefur verið talið fyrsta ungmennafélagið hér á landi og beitti sér fyrir stofnun UMFÍ. 7. janúar 1942 María Markan söng hlutverk greifafrúarinnar í sýningu á Brúðkaupi Fígarós í Metropo- litan-óperunni í New York. Hún var þar með fyrsti Íslend- ingurinn sem kom fram í aðal- hlutverki í þessu fræga óperu- húsi. 7. janúar 1944 Helgi Hjörvar hóf lestur út- varpssögunnar Bör Börsson eftir Johan Falkberget. Sagan segir frá nýríkum sveitastrák og gerist í Noregi eftir heims- styrjöldina fyrri. Lesturinn stóð fram í maí og vakti mikla athygli. „Fólk lét allt annað víkja til að geta hlýtt á þennan lestur. Götur tæmdust og ekki þýddi að auglýsa kvikmynda- sýningar,“ sagði í bókinni Út- varp Reykjavík. 7. janúar 1999 Jólin voru lengd um einn dag á Blönduósi vegna nýrra íbúa frá Júgóslavíu sem tilheyrðu grísku rétttrúnaðarkirkjunni, en jóladagur hjá þeim var þennan dag. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… Kolbrún Ósk Sæmundsdóttir, bóndi og veðurathug- unarmaður á Hjarðarlandi í Biskupstungum, fagn- ar 50 ára afmæli sínu í dag. Skammt er á milli stór- afmæla á Hjarðarlandi því eiginmaður hennar, Egill Jónasson, varð fimmtugur 11. desember síðast liðinn. „Það telst nú ár á milli okkar þó það sé ekki nema tæpur mánuður,“ segir hún. Kolbrún Ósk og Egill eru með sauðfjárbúskap á Hjarðarlandi og hafa einnig umsjón með veðurathugunum fyrir Veðurstofu Íslands. Þar hefur verið veðurathug- unarstöð í tvo áratugi, sem vöktuð er alla daga. Kolbrún Ósk segist ekki ætla að gera neitt sér- stakt til tilbreytingar í dag í tilefni af afmælinu. „Þetta er ósköp venju- legur dagur og breytir svo sem ekki miklu,“ segir hún en þvertekur ekki fyrir að þau hjónin muni halda upp á tímamótin einhvern tíma síð- ar á árinu. Eftir samtalið við Kolbrúnu Ósk bárust blaðamanni hins veg- ar þær upplýsingar frá fjölskyldu hennar að í tilefni dagsins ætlaði Egill að bjóða eiginkonunni í leikhús í kvöld og gistingu á hóteli yfir helgina. Á laugardagskvöldið fara þau svo út að borða með börnunum sínum, mökum þeirra og barnabörnum, tveimur ömmustelpum sem hún á. omfr@mbl.is Kolbrún Ósk Sæmundsdóttir er 50 ára í dag Stutt á milli stórafmæla Nýirborgarar Reykjavík Bryndís Ása fæddist 18. október kl.17.51. Hún vó 3.155 g og var 48,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Þór Theódórsson og Edda Hrönn Hannesdóttir. Flóðogfjara 7. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.12 0,9 11.27 3,5 17.43 0,9 11.12 15.57 Ísafjörður 1.14 1,9 7.19 0,6 13.25 2,0 19.55 0,6 11.50 15.29 Siglufjörður 3.44 1,2 9.31 0,3 15.56 1,2 22.11 0,3 11.34 15.10 Djúpivogur 2.15 0,5 8.24 1,9 14.36 0,6 20.57 1,9 10.49 15.19 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það má vera að þú þurfir að gera nokkrar tilraunir áður en þú dettur ofan á hagkvæmustu lausnina á þeim vanda sem þú glímir við. Svörin eru þó ekki alltaf aug- ljós. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er eitthvað að angra þig, en þú vilt ekki hlusta. Lestu góða bók og láttu ekkert verða til þess að trufla þig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Til þín verður leitað í sambandi við lausn á viðkvæmu vandamáli. Þú hittir ein- hvern sem þykist vera samúðarfullur en er það alls ekki þegar betur er að gáð. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Menn hafa misjafnar skoðanir á mál- um og þurfa að virða það ef gott samstarf á að geta haldið áfram. Beindu athyglinni að peningum og eigum og taktu hugmyndir þín- ar alvarlega. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Með réttri hugarfari geturðu látið næst- um allt gerast. Gleymdu vandamálunum í 24 tíma og þau gætu þess vegna horfið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Einhver platar þig hugsanlega í dag. Hafðu dómgreindina til hliðsjónar, þannig verður þú góður leiðtogi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert margbrotin/n og fjölbreytileg/ur. Sýndu skilning og vertu til staðar þegar að- stæður breytast. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Kannaðu vel verð og gæði áður en þú festir kaup á nýjum hlutum. Einhver gleðskapur er framundan hjá þér sem þú hlakkar mikið til. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Oft eru það einföldustu hlutirnir sem gefa manni mest. Orkan er til staðar og við þurfum að vera opin gagnvart henni. Sinntu máli sem leitar sterkt á þig. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Á undanförnum árum hefurðu verið að læra að standa á eigin fótum. Haltu þig við heilsuprógrammið. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það skiptir engu máli hvernig viðrar hið ytra ef þið gætið þess að hafa sól í sinni. Sá tími kann að koma, að þú þurfir sjálf/ur á hjálp að halda. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það standa á þér mörg spjót og þú verður að gefa þér tíma til þess að leysa þau verkefni, sem þú hefur tekið að þér. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.