Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.01.2011, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 Ferðamennska á Ís- landi er á miklum tíma- mótum og fjöldi aðila að skipuleggja framtíð hennar eða vinna að verkefnum sem ætlað er að skapa þar betri framtíð. Það mætti ætla að þetta sé allt af hinu góða og muni skapa hina fullkomnu framtíð í ferðamennsku á Íslandi. Ef við skoðum þetta nánar kemur ýmislegt í ljós sem þarf að varast. Hér eru nokkur af þeim mörgu verk- efnum sem eru í gangi. 1. Ný náttúruverndarlög 2. Skipulagsmál vegslóða í tugum sveitarfélaga 3. Lokun landeigenda á vegslóðum 4. Stjórnunar- og verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð 5. Stækkun Þjórsárvera 6. Landnýtingaráætlun 7. Geopark-garðar Í drögum að nýjum náttúruvernd- arlögum er miðað við að fyrir 2013 og 2016 verði allir vegir og slóðar á miðhálendi og láglendi Íslands skráð- ir í kortagrunn. Hvergi er getið um hverjir eigi að vinna þessar skrán- ingu eða hvaðan fjármagnið eigi að koma og margir telja óframkvæm- anlegt að klára ferlamælingar innan þessa tímaramma. Það er sagt að ut- anvegaakstur hafi aukist, en engar mælingar eru til að staðfesta það. Ná umferðarlög yfir vegi sem eru skil- greindir öðruvísi í náttúruvernd- arlögum. Það læðist að manni sá grunur að þetta snúist eingöngu um að skapa lagalegan grunn til að dæma fyrir hugsanlegan utanvegaaksturs á vegum sem ekki verða skráðir í kortagrunn. Skráning vega í korta- grunn er engin trygging fyrir því að þeir verði opnir fyrir umferð. Skipu- lagsyfirvöld í hverju sveitarfélagi sem eru yfir sjötíu talsins, ákveða samkvæmt skipulagslögum hvort vegir innan þeirra marka eru opnir eða lokaðir. Aðalskipulag sveitarfé- laga þarf að staðfesta af umhverf- isráðherra, en erfitt verður að taka fram fyrir hendur sveitarfélaga í þessu. Ferðafólk sér oft skilti með orðinu „Einkavegur“ og flestir snúa þá frá. En hvers vegna eru þessi skilti sett upp og hvað þýða þau? Samkvæmt ein- hverjum lögum eru landeigendur gerðir ábyrgir fyrir tjóni á bíl- um, ef vegur er ekki í lagi og dómar hafa fallið um bótaskyldu. Skiltið „Einkavegur“ er stund- um bara sett upp til að fría sig lagalegri ábyrgð og landeigandi hefur jafnvel ekkert á móti því að ekið sé um veginn. Það er líka til að landeigendur séu að loka vegum fyrir umferð með svona skilti og jafnvel vegum sem óheimilt er að loka. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur sent til umhverfisráðherra tillögur að stjórnunar- og verndaráætlun þar sem gert er ráð fyrir lokunum á ferðaleiðum og takmörkunum á gist- ingu. Vinnuferlið við undirbúning þessara tillagna var lokað, upplýs- ingastreymi og samráð lítið og at- hugasemdaferli virt að vettugi. Þeir aðilar sem áttu að vera fulltrúar al- mennings í þessu verkefni reyndust ganga hagsmuna annarra. Stækkun Þjórsárvera virðist ætla að stefna í sama farveg varðandi skerðingu á ferðafrelsi, en þar er gert ráð fyrir því að banna allan akstur á snjó. Það er líka spurning hvort verndunarsjónarmið ráði þar för. Er hugsanlega verið að nota nátt- úruverndarsjónarmið til að koma í veg fyrir virkjanir og byggingu ál- vera? Allavega væri gaman að taka þá umræðu og skoða rökin sem þarna eru fyrir hendi. Kannski eru það er- lendu formúlurnar um víðerni og einkanotkun gönguelítunnar sem ræður för eins og víða annars staðar. Það liggur fyrir tillaga á Alþingi um að vinna landnýtingaráætlun fyrir ferðamennsku á miðhálendi Íslands. Þar á að leggja mat á þolmörk (fé- lagsleg og umhverfisleg) helstu ferða- mannastaða og hvernig hagstæðast er að nýta hvert svæði á hálendinu fyrir ferðamennsku þannig að nýt- ingin henti umhverfinu sem best og þeirri ferðamennsku sem svæðinu hentar sem og markmiðum þeirra sem reka þar ferðaþjónustu. Þetta hljómar vel, en hvaða áhrif mun þetta hafa á almenna ferðamennsku Íslend- inga? Ekkert er rætt um opna ferða- mennsku almennings í tengslum við þessa landnýtingaráætlun. Verða hömlur í framtíðinni settar varðandi aðkomu hins almenna Íslendings að fallegum náttúrusvæðum? Það nýjasta er „Geopark“, svokall- aðir jarðminjagarðar og ferðaþjón- usta sem víða er verið að skoða hér á landi. Þetta er ennþá spurning- armerki, en hvað gerist með stór landsvæði hér á landi þegar þau hafa verið skilgreind samkvæmt þessu? Mun þetta hafa áhrif á notkun vega og verða svæðin jafnvel lokuð umferð nema með leiðsögn og tilheyrandi kostnaði? Ef það yrði, gæti stór hluti landsins lokast fyrir almennri ferða- mennsku Íslendinga. Eins og sést í þessari upptalningu hér að framan, þá er ferðafrelsi á Ís- landi að ganga í gegnum miklar breytingar og er í mikilli hættu. Það sem gerir þetta allt flókið og erfitt er vöntun á heildarsamræmi í þessum verkefnum og reynsla þeirra sem vinna að þessum verkefnum er kannski ekki alltaf nógu mikil. Auka þarf gegnsæi og efla upplýsingagjöf til almenning ásamt því hafa virka samvinnu við útivistarfélög og ferða- þjónustuaðila. Það er nokkuð ljóst að ef þessi verkefni verða ekki unnin í góðri samvinnu við almenning, útivist- araðila og ferðaþjónustu, munum við standa frammi fyrir styrjöld á milli þeirra og stjórnvalda. Stjórnvöld munu tapa þeirri styrjöld og því væri skynsamlegt að vinna þetta saman. Ferðafrelsi á Íslandi er í mikilli hættu Eftir Guðmund G. Kristinsson »Ef þessi verkefni verða ekki unnin í góðri samvinnu við al- menning, útivistaraðila og ferðaþjónustu, verð- ur styrjöld á milli þeirra og stjórnvalda. Guðmundur G. Kristinsson Höfundur er sölu- og markaðsstjóri, formaður landssamtakanna Ferða- frelsis, er í Ferðaklúbbnum 4x4 og í nefnd Samtaka útivistarfélaga um Vatnajökulsþjóðgarð. Í apríl 2008 samdi Rio Tinto Alcan við norska skipafélagið Wilson Euro Carriers um álflutninga frá Straumsvík. Áhafnir um borð í norsku skip- unum eru frá Arkang- elsk í Rússlandi. Skip- verjar eru á smánarlaunum, aðeins 36% af íslenskum sjómannasamn- ingum og eru þá stórhátíðaálag og tryggingar ekki inni í dæminu. Ég sýndi framkvæmdastjóra sam- skiptasviðs Rio Tinto Alcan kjör rúss- nesku skipverjanna svart á hvítu á dögunum á skrifstofu Sjómannafélags Íslands eftir að ranglega var fullyrt á vef álversins að kjör Rússanna væru „…sambærileg við kjör íslenskra áhafna“. Þau í Straumsvík vita nú betur. Það er sótt að íslenskri alþýðu. Nú þegar 12-15 þúsund manns eru án vinnu og yfir 10 þúsund manns fluttu úr landi árið 2009 er álverið í Straumsvík með útboð um álflutninga til Evrópu. Ál- verinu er í lófa lagið að tryggja 32 ís- lenskum sjómönnum vinnu með því að semja við skipafélag með íslenska sjó- mannasamninga. Með því stæði álverið með íslensk- um sjómönnum. Íslenskir sjómanna- samningar gildi í skip- um frá Straumsvík Félag skipstjórn- armanna, Sjómannafélag Íslands og Félag vél- stjóra og málmtækni- manna fagna út af fyrir sig vilja álversins um að íslenskir sjómenn annist álflutninga til Evrópu. En félögin vilja efndir, ekki innantóm orð. Félögin krefjast þess að álverið geri það að skilyrði að íslenskir sjómannasamn- ingar gildi um borð í skipum á vegum Rio Tinto Alcan frá Straumsvík til Evrópu. Ég er þess fullviss að ekki komi til greina að vísa íslenskum verkamönnum á dyr í Straumsvík fyr- ir verkafólk á rússneskum kjarasamn- ingum. Hið sama á að sjálfsögðu að gilda um flutninga frá Straumsvík. Ál- verinu er í lófa lagið að krefjast þess að íslenskir sjómannasamningar gildi um borð í skipum sem flytja fullunnið ál úr landi. Sjómannafélag Íslands, Félag skip- stjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa vakið athygli á nýlegum ummælum Rannveigar Rist, forstjóra Rio Tinto Alcan, í Við- skiptablaðinu um að sterkur vilji sé til að aðstoða Ísland við uppbygginguna. Félögin hafa líka vakið athygli á siða- reglum Rio Tinto Alcan að tryggja heimamönnum „…sanngjarna hlut- deild í ávinningi og tækifærum“ ál- versins. Og félögin hafa vakið athygli á að Rio Tinto Alcan er aðili að Eþi- kos, íslenskri fræðslu- og rannsókn- armiðstöð um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja innan Global Compact sem er vettvangur innan Sameinuðu þjóð- anna með þátttöku yfir fjögur þúsund fyrirtækja um allan heim. Sjómenn treysta því að þetta séu ekki bara innantóm orð. Þegar álverið hóf starfsemi fyrir rúmum fjörutíu árum kreppti að ís- lenskum sjómönnum þegar síldin hvarf. Þá fengu margir sjómenn vinnu í Straumsvík. Það hafa alltaf verið sterk tengsl milli álversins og sjó- manna. Það er tímabært að styrkja tengslin. Álverið í Straumsvík tryggi íslenskum sjómönnum vinnu Eftir Jónas Garðarsson » Það hafa alltaf verið sterk tengsl milli ál- versins og sjómanna. Jóna Garðarsson Höfundur er stjórnarmaður í Sjómannafélagi Íslands. ✝ Helga Sigurjóns-dóttir fæddist á Vatnsholti í Vill- ingaholtshreppi í Ár- nessýslu 13. sept- ember 1936. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 5. janúar 2011. Foreldrar hennar voru Sigurjón Gests- son, f. 1912, d. 1961, og Herdís Jónsdóttir, f. 1900, d. 1989. Systkini Helgu voru Guðrún Berglind, f. 1932, d. 2001, Guð- rún Jóna, f. 1938, d. 1997, og Her- mann Pálmi, f. 1941, d. 2007. Helga giftist Þóri Gíslasyni, f. 1937, og eignuðust þau Brynjólf, f. 1958, Herdísi, f. 1963, og Gísla Friðrik, f. 1969, d. 2004. Herdís er gift Ingva Kristjáni Guttormssyni, f. 1963. Börn þeirra eru Gutt- ormur Arnar, f. 1985, Eva Írena, f. 1987, Áki Elí, f. 1999, og Hilmir Már, f. 2001. Helga átti heima fyrstu árin á Vatnsholti en árið 1942 flutti fjöl- skyldan á Nýbýlaveg 12 í Kópa- vogi. Helga lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1956. Auk þess hafði hún kennara- próf og BA-próf í íslensku, sál- fræði og sögu við HÍ. Hún stund- aði nám við Háskólann í Gautaborg 1980-1981 og meist- aranám í málfræði við HÍ 1992- 1993. Hún var kennari í Kópa- vogsskóla, Víghólaskóla og Menntaskólanum í Kópavogi 1957-1999. Síðustu 10 árin var hún einnig náms- ráðgjafi í MK og átti frumkvæði að stofn- un deildar fyrir ung- linga, sem höfðu staðið sig illa á loka- prófum úr grunn- skóla. Árið 2000 stofnaði Helga skóla, sem ber nafn hennar. Þar var lögð áhersla á lestrarkennslu. Helga hefur stundað ritstörf og skrifað greinar og bækur um skólamál. Auk þess hef- ur hún skrifað kennslubækur. Helga er aðalhöfundur bókarinnar Sveitin mín Kópavogur. Hún var bæjarfulltúi fyrir Alþýðu- bandalagið árin 1974-1979. Helga átti frumkvæði að stofnun jafn- réttisnefndar í Kópavogi í tilefni kvennaárs Sameinuðu þjóðanna árið 1975 og átti sæti í nefndinni til 1978 en hún var sú fyrsta sinn- ar tegundar á landinu. Árin 1994- 1995 var Helga bæjarfulltrúi Kvennalistans í Kópavogi en frá 1996-1998 sat hún sem óháður bæjarfulltrúi. Hún var formaður stjórnar Kvenfélags Kópavogs 1994-1996 og var einn af stofn- endum Rauðsokkahreyfingarinnar árið 1970. Útför Helgu fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, 13. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Ég veit að vorið kemur og veturinn líður senn. Kvæðið er um konu, en hvorki um guð né menn. Hún minnti á kvæði og kossa og kvöldin björt og löng og hvíta, fleyga fugla og fjaðraþyt og söng. Og svipur hennar sýndi, hvað sál hennar var góð. Það hló af ást og æsku, hið unga villiblóð. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, því hún var mild og máttug og minnti á – jarðneskt vor. (Davíð Stefánsson) Þín dóttir, Herdís Þórisdóttir. Móðir mín Helga Sigurjónsdóttir fæddist í Vatnsholti í Flóanum árið 1936 og ólst þar upp fyrstu árin. Hún var dóttir Sigurjóns Gestssonar og Herdísar Jónsdóttur. Síðan fluttist fjölskylda hennar í Kópavog árið 1942 og voru þau meðal frumbyggja bæj- arins. Helga útskrifaðist frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1956 og lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum ári síðar. Helga aflaði sér síðar frek- ari menntunar við Háskóla Íslands og lauk þar BA-prófi í íslensku og sál- fræði árið 1979 með sögu sem auka- grein. Hún var kennari í 15 ár við Kópavogsskóla, við Víghólaskóla í 5 ár og síðar í 17 ár við Menntaskólann í Kópavogi þar sem hún starfaði einnig sem námsráðgjafi. Hún starfrækti einnig sinn eigin skóla eftir að hún komst á eftirlaun, Skóla Helgu Sig- urjónsdóttur. Þar kenndi hún litlum börnum frá fjögurra ára aldri að lesa. Fyrir utan kennslu samdi hún einnig námsbækur í lestri og stærðfræði handa grunnskólabörnum. Hennar stefna í skólamálum var að allir gætu lært og með góðum aðferðum við lestrarkennslu varð árangurinn eins og við mátti búast. Helga Sigurjónsdóttir var mjög virk í félagsmálastarfi. Hún var ein af frumkvöðlum í kvennréttindabaráttu og var ein af stofnendum rauðsokka- hreyfingarinnar árið 1970 og skrifaði hún þar sína fyrstu blaðagrein af því tilefni sem hét „Hvað er rauðsokka“. Þær hugmyndir sem hún og aðrar meðsystur hennar komu með þóttu mjög róttækar á þeim tíma en þykja sjálfsagðar í dag, eins og dagvistun barna. Einnig stóð hún að kvennafrí- deginum árið 1975. Hún hafði frá unga aldri aldrei þolað félagslegt óréttlæti í nokkurri mynd og mótaðist hennar starf í pólitík og félagsstörfum af því viðhorfi. Hún var einnig virk í pólitík og gekk í Alþýðubandalagið og var bæj- arfulltrúi fyrir það frá 1974 til 1979. Hún var einnig bæjarfulltrúi Kvenna- listans frá 1994 til 1995 og síðar á eig- in vegum frá 1995 til 1998. Í bæjar- stjórnum lét hún aðallega til sín taka í skóla- og félagsmálum. Einnig stofn- aði hún fyrstu jafnréttisnefndina á landinu 27. júní 1975. Fyrir utan félagsmálastörf skrifaði Helga mikið af greinum í dagblöðum og starfaði á Þjóðviljanum á sínum tíma. Einnig skrifaði hún bækur. Í nafni jafnréttis kom út árið 1988. Sumar greinar hennar um skólamál hafa verið gefnar út á bók. Auk bóka um stjórnmál og skólamál skrifaði hún einnig bókina „Sveitin mín – Kópavogur“ sem fjallar um fyrstu ár Kópavogs en hún var ein af frum- byggjum þess eins og áður sagði. Helga var góð móðir og góður fé- lagi, þrátt fyrir mikið annríki þá gaf hún sér góðan tíma fyrir okkur krakkana. Hún var fróð um svo margt og gott að fá góð ráð frá henni. Það var mikið áfall fyrir hana þegar yngri bróðir minn Gísli varð bráð- kvaddur á besta aldri. Leitaði hún mikið til mín í sorg sinni, og reyndi ég af fremsta megni að styðja hana, má segja að sú sorg hafi tengt okkur nán- ari böndum. Ég vil þakka öllum læknum og hjúkrunarfólki á Landspítalanum og á Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir umönnun hennar. Brynjólfur Þórisson. Kveðja frá barnabörnum Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest. Að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði, heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði, sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Guttormur, Eva, Áki og Hilmir. Helga frænka er farin. Ég hef alltaf verið montin og stolt af því að eiga Helga Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.