Morgunblaðið - 22.02.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Þrítugur karlmaður var í gær
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir fjöldann allan af brotum. Það
væri ekki í frásögur færandi nema
fyrir þær sakir að Símon Sigvalda-
son, dómari í málinu, taldi næg rök
fyrir því að binda refsingu mannsins
skilorði með þeim fyrirvara að hann
gengist undir dvöl á „hæli“ í allt að
eitt ár í því skyni að komast yfir
áfengis- og vímuefnafíkn.
Líkt og Morgunblaðið greindi frá
snemma í þessum mánuði er þessu
ákvæði sárasjaldan beitt. Formaður
Lögmannafélags Íslands sagði við
það tækifæri að ekki væri nóg að
hafa heimildina, eitthvað yrði að taka
við. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er maðurinn sem um ræðir
á leið í meðferð hjá SÁÁ. Samkvæmt
dómnum skal hann hefja meðferðina
eigi síðar en viku eftir dómsupp-
kvaðningu.
Brjóta ekki af sér edrú
Stefán Karl Kristjánsson, verj-
andi mannsins, lagði til að dómari
málsins skoðaði hvort ástæða væri til
að dæma manninn í skilorðsbundna
refsingu, bundna því skilyrði að hon-
um yrði gert að dvelja á hæli í tiltek-
inn tíma til að venjast af neyslu
áfengis eða deyfilyfja. Hann fékk
sálfræðing, með samþykki ákæru-
valdsins, til að vinna skýrslu en hann
lagði til það úrræði í ljósi sjúkdóms-
sögu mannsins. Á grundvelli þessa
vottorðs féllst dómarinn á tillögu
verjandans. Dómurinn hljóðaði ann-
ars upp á tveggja og hálfs árs fang-
elsisvist.
Skjólstæðingur Stefáns Karls er í
réttargæslukerfinu nefndur síbrota-
maður. Stefán segir betur á því fara
að tala um neyslubrotamenn, enda
fremji þeir engin afbrot edrú. Þegar
þeir eru í vímu teppa þeir hins vegar
fangaklefa, enda hefja þeir brota-
starfsemi stuttu eftir að þeir losna
og hafa forgang í kerfinu því þá verð-
ur að taka úr umferð. „Með þessu
móti er verið að taka á vandamálinu
og um leið létta á biðlistum Fangels-
ismálastofnunar,“ segir Stefán og
bætir við: „Dómarinn er með þessu
að setja dálitla pressu á heilbrigð-
isyfirvöld að finna úrræði. Og það
kæmi mér ekki á óvart ef eitthvert
úrræði yrði fundið.“
Skilorð dóms bundið við meðferð
Þrítugur karlmaður fer í meðferð
en sætir ella fangelsi í tvö og hálft ár
Morgunblaðið/Golli
Neysla Vímuefnafíklar brjóta oft af sér, s.s. innbrot og fjársvik, til að verða
sér úti um fjármuni. Oftar en ekki til að verða sér úti um meiri fíkniefni.
Ný skoðanakönnun sem Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands
gerði fyrir ASÍ sýnir að 94%
þeirra sem taka afstöðu vilja sam-
bærilegar launahækkanir fyrir
alla í komandi samningum en 6%
vilja meiri launahækkanir til
þeirra sem starfa í útflutnings-
greinum.
Í tilkynningu frá ASÍ kemur
einnig fram að 48% vilji að verka-
lýðshreyfingin leggi mesta áherslu
á að tryggja kaupmátt launa í yf-
irstandandi kjaraviðræðum en 24%
vilji að áherslan sé á að tryggja
atvinnuöryggi.
Skoðanakönnunin var lögð fyrir
1200 manna slembiúrtak úr þjóð-
skrá og var nettósvarhlutfall
62,9%. Spurningarnar tvær voru
þó aðeins lagðar fyrir þá sem eiga
aðild að stéttarfélögum.
Fyrri spurningin hljóðaði svo:
„Nú standa yfir viðræður um nýja
kjarasamninga. Hvort ertu hlynnt-
ari því að verkalýðshreyfingin
leggi áherslu á sambærilegar
launahækkanir fyrir alla, eða
meiri launahækkanir til þeirra
sem starfa í útflutningsgreinum,
sem njóta nú góðs af gengi krón-
unnar?“
Í seinni spurningunni var spurt
hvað verkalýðshreyfingin ætti að
leggja mesta áherslu á í kjara-
viðræðunum. Eins og fyrr segir
vildu 48% tryggja kaupmátt, 24%
að áherslan yrði á atvinnuöryggi
en 19% vilja beinar launahækk-
anir.
Krónur 94% vilja sameiginlega
launastefnu skv. könnun ASÍ.
Vilja sam-
eiginlega
launastefnu
Niðurstöður könn-
unar fyrir ASÍ
Það eimir enn eftir af snjó í höfuðborginni en
vorið er byrjað að minna á að það sé á næsta
leiti. Sólin rís í dag kl. 9:01 og því farið að birta
um það leyti sem margir eru á leið til vinnu.
Daginn lengir um rúma sex og hálfa mínútu dag
hvern og nýtur birtunnar við í dag í tæpan níu og
hálfan tíma. Í takt við þetta hefur hitastigið
hækkað smám saman og eru rauðu tölurnar
farnar að verða æ algengari í veðurkortunum.
Morgunblaðið/RAX
Enn ummerki um vetur þótt vorið liggi í loftinu
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Samninganefndir Alþýðusambands Íslands og
Samtaka atvinnulífsins funduðu í húsnæði Rík-
issáttasemjara kl. 10 í gærmorgun en að sögn
Gylfa Arnbjörnssonar, formanns ASÍ, var að-
allega rætt um vinnulag næstu daga.
Á dagskránni eru sameiginleg réttindamál
sem ASÍ lagði fram við SA, svo sem um veikindi,
slys, lífeyrismál, vaktavinnukerfi og yfirvinnu. Á
fundinum voru skipaðir vinnuhópar sem voru að
störfum í gær og munu að sögn Gylfa starfa fram
í vikulok en búið er að boða til næsta fundar ASÍ
og SA næstkomandi föstudag. „Þessir vinnuhóp-
ar verða að vinnu næstu daga og við ætlum að
keyra þessi mál áfram og ég á
ekki von á öðru en að þessi
vika fari svolítið í það.“
Gylfi segir að til hafi staðið
að funda með ríkisstjórninni
um kjaramálin um miðja síð-
ustu viku en að Icesave hafi
orðið til þess að því var frest-
að.
„Næsta skref er að ýta af
stað viðræðum við stjórnvöld
um þeirra þátt í þessu,“ sagði Gylfi í gær. „Bæði
viljum við setja þessa vinnu í gang almennt en ég
tel líka ótækt annað en að ná fundi með rík-
isstjórninni útaf Icesave-málinu, til að glöggva
okkur á því.“
Sameiginleg réttindamál
rædd og vinnuhópar skipaðir
Vilja funda með ríkisstjórninni um kjaramálin og þróun Icesave-málsins
Kennitöluflakk og réttindamissir
» Eitt þeirra mála sem ASÍ hefur á sinni
könnu um þessar mundir er réttindamissir
starfsfólks við gjaldþrot fyrirtækja.
» Skv. lögum yfirfærast áunnin réttindi við
aðilaskipti en ekki við gjaldþrot. Starfsmenn
þeirra fyrirtækja sem skipta nú um kennitöl-
ur missa því kjararéttindi á borð við orlofs-
rétt, veikindarétt og uppsagnarfrest.
» ASÍ hefur komið þeirri kröfu á framfæri við
ríkisstjórnina að lögum verði breytt.
Gylfi Arnbjörnsson
„Gleðilegt er að þessi leið skuli
reynd sem getur örugglega
gagnast mjög mörgum,“ segir
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi. Hann segir að nokkuð erf-
itt hafi verið að koma þessu í
gegn og allt annað en sjálfgefið
að dómarar tækju þessa afstöðu.
Spurður hvernig SÁÁ séu í
stakk búin til að takast á við
fjölgun sjúklinga fari svo að
dómarar beiti heimildar-
ákvæðinu oftar segir Þórarinn
auðséð að þar liggi sóknarfæri
hjá SÁÁ, þ.e. þegar kemur að því
að sækja fjármuni inn í ráðuneyti
dómsmála, þ.e. innanríkisráðu-
neyti.
Ætti að létta
á kerfinu
SÓKNARFÆRI FYRIR SÁÁ