Morgunblaðið - 22.02.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAR EIGUM
VIÐ AÐ KOMA
OKKUR FYRIR?
BARA
HVAR SEM ER
HVAÐ SEGIRÐU UM ÞARNA,
NÁLÆGT VA...
VAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA...
ÞESSI MAÐUR
KANN SIG...
HEITIRÐU
5? HVERS-
KONAR NAFN
ER ÞAÐ?
PABBA FINNST VIÐ VERA AÐ
MISSA SÉRSTÖÐU OKKAR
OG VERÐA EKKERT
ANNAÐ EN NÚMER
ÞANNIG AÐ HANN
ER AÐ MÓTMÆLA?
NEI HANN ER AÐ
SÆTTA SIG VIÐ ÞAÐ
...EF ÞIÐ
LOFIÐ AÐ TAKA
TENGDAMÖMMU
MÍNA Í GÍSLINGU
ÉG SKAL GEFAST
UPP OG LEYFA YKKUR
AÐ TAKA KASTALANN...
VEISTU HVER
ER STÆRSTI
GALLINN VIÐ AÐ
ÖRYGGISPRÓFA BÍLA?
ÞAÐ AÐ
ÞURFA AÐ KEYRA Á
STEINVEGG Á
100 KM HRAÐA?
NEI,
SKORTUR Á
SJÚKRA-
TRYGGINGU
ÞAÐ ER
HRÆÐILEGT AÐ
SJÁ ÞETTA,
HVERNIG LÍÐUR
YKKUR?
VIÐ HÖFUM
ÞAÐ ÁGÆTT. VIÐ
VORUM MJÖG
HEPPIN
KRAKKARNIR VORU Í
SUMARBÚÐUM OG ÉG OG
KONAN VORUM ÚTI AÐ BORÐA
SVO VAR ÉG LÍKA NÝBÚINN
AÐ HÆKKA HEIMILIS-
TRYGGINGUNA OKKAR
ÞAÐ
VAR
SNIÐUGT...
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA,
BRÁÐUM VERÐ ÉG BÚINN AÐ
SARGA ÞETTA SUNDUR
BRÁÐUM
VERÐA ARMARNIR
MÍNIR
ÓBRJÓTANLEGIR
ERT
ÞETTA ÞÚ?!
ÉG HELD AÐ
FÁ SKÁLD HEFÐU
GETAÐ ORÐAÐ
ÞETTA BETUR!MIKIÐ
HLJÓMAR
ÞETTA
B-MYNDALEGA
HJÁ ÞÉR
DOKTOR
Til hamingju með
nýja óvininn
Mikið er hún skamm-
arleg og hrokafull
greinin sem sérfræð-
ingurinn Magnús
Gottfreðsson skrifar í
Fréttablaðið 18. febr-
úar og nefnir „Til
hamingju með nýja
óvininn“. Hann fylgist
greinilega lítið með,
því þessi „nýi óvinur“
er margra ára og eng-
in ný sannindi í dag.
Það er merkilegt með
svona sérfræðinga,
eins og Magnús, þeir
þola alls ekki óhefðbundnar lækn-
ingar og í gegnum skrifin þeirra
birtast fáfræði, hroki, öfund og
hræðsla um sitt eigið skinn. Þeir vita
að sífellt fleiri leita nú óhefðbund-
inna lækninga, enda eru þar líka sér-
fræðingar og vel menntað fólk í þeim
hópi. Niðurlag greinar
Magnúsar er svo dap-
urlegt, ófyndið, hroka-
fullt og dónalegt og hef
ég ekki séð annað eins
á prenti og sæmir ekki
vel menntuðum sér-
fræðingi.
Elín.
Vegna myndar
í Velvakanda
18. febrúar sl.
Sendandi myndar af
Halldóri Jóhannesi
Egilssyni frá Swan
River vill árétta að
netfangið, sem senda skal upplýs-
ingar á (á íslensku), er:
isahultqvist@hotmail.com.
Ást er…
… að baka fyrir
barnaafmæli.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9,
gönguhópar kl. 10.30. Vatnsleikfimi kl.
10.45. Postulínsmálun kl. 13, lestr-
arhópur kl. 13.30, jóga kl. 18.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Botsía kl. 9.45. Handavinna kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefnaður, út-
skurður, línudans, handavinna.
Bústaðakirkja | Mið. 23. febrúar kl. 13.
Handavinna, spil og föndur, Andri Óm-
arsson kennir brjóstsykurgerð, dr. Óttar
Guðmundsson geðlæknir flytur. Ritning-
arlestur og bæn.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9,
framsögn kl. 13, félagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
söngur/upplestur kl. 14 á 2. hæð.
Digraneskirkja | Leikfimi kl. 11. Guðrún
Dóra Guðmannsdóttir hjúkrunarfr. flytur
erindi, Að eldast með reisn.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13. Framsögn kl. 17. Félagsvist kl. 20.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf í Ármúlaskóla kl. 15. EKKÓ-kór æfir
í húsi KHÍ við Stakkahlíð kl. 16.30.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna
kl. 9, gönguklúbb. kl. 13, kínv. leikfimi kl.
13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.15, handavinnustofa, gler- og postulín
kl. 9.30, jóga kl. 10.50, alkort kl. 13.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga, myndlist og tréskurður
kl. 9.30, ganga kl. 10, málm og silf-
ursmíði, kanasta kl. 13. Jóga kl. 18. Tón-
leikar Agnesar Thorsteins kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Qi gong kl. 8.10, trésmíði kl. 9/13,
vatnsleikf. kl. 12.10, kirkja, bútas./
karlaleikf. kl. 13, botsía kl. 14, Bón-
usrúta kl. 14.45, línudans kl. 16.15.
Bingó/kaffi í Jónshúsi kl. 20 í boði
Lions, Stefán Helgi Stefánsson tenór
syngur.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, m.a. glerskurður/perlusaumur.
Stafganga kl. 10.30. Félag heyrnarlausra
á staðnum kl. 11. Postulín kl. 13.
Grafarvogskirkja | Opið hús kl. 13.30.
Helgistund, handavinna spil/spjall.
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-gong
og myndmennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30.
Brids kl. 12.30, gler og myndmennt kl.
13. Bókmenntaklúbbur á morgun kl.
10.30, kvöldvaka Lions fim. 24. febr. kl.
20.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30. Bútasaumur kl. 9. Námsk. í
myndl. kl. 13. Helgistund kl. 14 sr. Ólafur
Jóhannsson. Stólaleikfimi kl. 15.
Hæðargarður 31 | Ný dagskrá. Viltu
taka þátt í hláturjóga, skrautskrift, bók-
menntaklúbb, postulínsmálun, skapandi
skrifum, félagsvist, ömmunni, fram-
sagnarhópnum, afanum, thachi, búta-
saum, myndlist, fá leiðbeiningar í tölvu,
læra að prjóna íslenska ullarpeysu eða
taka þátt í öskupokasýningunni? Uppl.
s. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans í Kópa-
vogsskóla hópur I kl. 14.40, hópur II kl.
16.10, hópur III kl. 17.40. Versalir: Ganga
kl. 16.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl.
13.30 aðalfundur í Hlöðunni í Gufu-
nesbæ.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Postu-
línsmálun kl. 9, vísnaklúbbur kl. 9.15,
leikfimi kl. 11, handverksstofa, kl. 13, op-
ið hús, brids-vist kl. 13, opið verkstæði
– postulínsmálun.
Norðurbrún 1 | Postulín, myndlist,
vefnaður o.fl. kl. 9. Útskurður kl. 9. Frí-
stundastarf fyrir íbúa Norðurbrúnar kl.
13. Sr. Sigurður í Norðurbrún 1 milli kl.
13.30 og 14.
Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll, Garða-
bæ | Bíódagur síðasta þriðjudag í mán-
uði kl. 13.30. Kyrrðarstund í kirkju kl.
12.10, súpa og brauð í hádeginu. Opið
hús – bíó, spil og saumahorn kl. 13.
Seljakirkja | Menningarvaka í kvöld kl.
18. Gréta Guðnadóttir segir frá Helga
Helgasyni, tónskáldi. Matur á eftir. Þátt-
tökutilk. í síma 567 0110.
Vesturgata 7 | Handav. kl. 9.15, spurt/
spjallað og leshópur kl. 13, spil kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bútasaumur
og glerbræðsla kl. 9, morgunstund kl.
9.30, upplestur kl. 12.30, handavinnust.
opin e. hádegi. Félagsvist kl. 14.
Aðalgeir Arason hefur sérhæftsig í slitruhætti í gegnum tíð-
ina, en á dögunum birtust slitrur
eða „andarslitrur“, eins og gárung-
arnir kalla það, um Mubarak, fyrr-
um forseta Egyptalands.
Gísli Sigurðsson sendi Vísna-
horninu kveðju þar sem hann rifj-
aði upp fleiri kostulegar vísur Að-
algeirs um þjóðhöfðingja, sem
ortar eru undir sama bragarhætti:
Mar oft Thatcher mikið grét,
mót So fallin stjórn er vét
Elísa drottning alveg bet
er æðrulaus í landi Bret.
Ssein er heppinn Saddam Hú,
sið hann játar hammeðs Mú,
væt hann mjólka vildi Kú,
van ég hef á þessu trú.
Tehe klerkur ræður ran,
raun er þegnum Ír í an
Rea hann hatar Ronald gan,
ríkja Banda forsetann.
Á vísnavef Héraðsskjalasafns
Skagafjarðar má finna eina vísu,
þar sem forseti Íslands kemur við
sögu. Hún er eftir ókunnan höfund
og í skýringu segir: „Við fyrsta for-
setakjör á Íslandi voru það aðeins
þingmenn sem kusu. Við þá at-
kvæðagreiðslu komu fram 15 auðir
seðlar. Út af þessu var þessi fer-
skeytla ort.“ Og vísan er svona:
Áttu að fella forsetann
fimmtán seðlar auðir.
Höfundunum enginn ann,
allir betur dauðir.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af vísum og þjóðarleiðtogum