Morgunblaðið - 22.02.2011, Page 32

Morgunblaðið - 22.02.2011, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2011 Vesturport setur stefnuna á Broadway Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Eins og greint var frá á vef Morg- unblaðsins 9. febrúar sl. hefur ís- lenski leiklistarhópurinn Vesturport gert samning við Hollendinginn Rob- in De Levita, þekktan leikhúsfram- leiðanda sem átt hefur góðu gengi að fagna með uppsetningum sínum á Broadway í New York, West End í Lundúnum og víðar um Evrópu. De Levita hefur m.a. hlotið bandarísku leiklistarverðlaunin Tony, fyrir söng- leikinn Titanic, leikritin 42nd Street og Into the Woods og Laurence Oli- vier-verðlaunin fyrir Tommy, rokk- söngleik hljómsveitarinnar The Who. Markmiðið með samningnum er að vinna að uppfærslum með Vest- urporti og fyrsta verkefnið er Ham- skiptin eftir Franz Kafka. Vesturport hlaut Evrópsku leiklistarverðlaunin í fyrra og verða þau afhent í Péturs- borg í apríl næstkomandi. Hamskiptin á Broadway Gísli Örn Garðarsson er listrænn stjórnandi Vesturports og blaðamað- ur sló á þráðinn til hans í liðinni viku og spurði hann út í samstarfið við De Levita. „Það er komið formlegt sam- komulag og það sem hann ætlar sér að gera er að taka sýningar sem við höfum verið að gera og ætlum okkur að gera og koma þeim inn í com- mercial heiminn þarna úti í Ameríku, fyrst og fremst. En það er ekkert í hendi með það ennþá, það er nátt- úrlega bara eins og alltaf. Það þurfa einhverjir að koma að fjármögn- uninni að því, eins og það er,“ segir Gísli. „Það sem verið er að setja fók- usinn á er að koma Hamskiptunum á Broadway og hann er þá að leiða þann hest. Það þarf náttúrlega að vera formlegt og frágengið í samn- ingum til að menn geti gert það. Það mætti því segja í rauninni að hann sé með „first look deal“, eins og menn kalla það og hann er náttúrlega mjög reyndur á Broadway, hefur gert heil- an helling, þannig að þetta er bara mjög skemmtilegt,“ segir Gísli. De Levita hafi að mestu unnið í heima- landi sínu Hollandi hin síðustu ár en vilji nú greinilega snúa aftur á Broad- way og þá með Vesturporti. Fjárfestar dregnir á sýningar – Hvernig kom þetta til? „Ég hitti hann þegar við vorum að gera Hamskiptin í London á sínum tíma, árið 2006. Þá kom hann og sá sýninguna. Svo kom hann til Íslands, var að gera sjónvarpsþætti sem voru teknir upp hér á landi og þá hafði hann samband. Einhvern veginn í kjölfarið, í umræðunni um hvað við værum að gera, fékk hann brennandi áhuga á því sem við værum að setja upp og síðan þá hefur hann komið og séð allar sýningarnar okkar; Faust, Rómeó og Júlíu og Hamskiptin og í kjölfarið bað hann okkur um að gera þennan samning,“ segir Gísli. „Þegar við vorum með Hamskiptin í BAM í New York um daginn nýtti hann það tækifæri mjög vel til þess að draga mikið af peningaliði og fjárfestum á Broadway á sýninguna. Allt lítur mjög vel út og þetta er allt mjög sennilegt en þetta kostar náttúrlega ógeðslega mikla peninga og þetta er gríðarleg áhætta að fara inn á mark- aðinn.“ Gísli segist halda að það kosti um tvær milljónir dollara að frumsýna stykki eins og Hamskiptin á Broad- way, þó að sýningin sé tilbúin, aðeins með fimm leikurum og frekar einföld í uppfærslu. „Ég myndi ekki þora í þessa fjárfestingu en ég hef ekki svona peninga á milli handanna. En ef eitthvað hittir vel á Broadway þá líka hittir það mjög vel.“ Gísli segir þrjár fjölskyldur eiga öll leikhúsin á Broadway og þær hafi áhuga á Ham- skiptunum. Leikhúsin séu því opin fyrir verkinu en fjármagnið vanti. „Þetta er á einhverri leið sem er ennþá raunhæf,“ segir Gísli en ómögulegt að segja hvenær sýningin geti mögulega farið á fjalirnar, Vest- urportshópurinn sé þétt bókaður fram í tímann. Hópurinn frumsýndi Hamskiptin laugardaginn sl. í borg- arleikhúsinu í Malmö í Svíþjóð.  Tony-verðlaunahafinn Robin De Levita sóttist eftir samstarfi Kafka Gísli Örn í hlutverki Gregors Samsa í hinu þekkta verki Franz Kafka, Hamskiptunum. www.robindelevitaproduc- tions.com/ Véfrétt Apollons í Delfí héltleynispjaldskrá er gerðihofprestum kleift að sam-ræma svör goðsins við sömu spurningum þótt áratugir liðu á milli. Og jafnframt öðlast yfirsýn er ugglaust hefur komið í hagnýtustu þarfir. E.t.v. eitthvað í líkingu við nú- tíma hugveitur er spá í ástand og horfur um víða veröld. Því er frá þeirri hugrenningu greint, er upp kom við nánast fullt hús á sinfóníutónleikunum á fimmtu- dag, að á dyragæzludömu mátti skilja að rauða tónleikaröðin væri vinsælust meðal áskrifenda. Hversu mikið að- sókn kvöldsins átti að þakka aðdrátt- arafl stjórnanda og einleikara var svo önnur spurning. Engu að síður þætti manni viðeigandi að stofnun eins og SÍ hefði marktæka hugmynd um ósk- ir íslenzkra hlustenda, allavega með- an ekki verður úr botnlausum fjár- veitingum ausið. Yrði afar fróðlegt að frétta nánar af því, sérstaklega þegar óðum styttist í tilkomu eins stærsta tónleikahúss Norðurlanda. Ég hef áður ýjað að slíku. En ef hin aðsteðjandi tímamót n.k. maí eru ekki fullgilt tilefni til að kanna smekk og vilja baklandsins, þá veit ég varla um önnur betri í fyrirsjáanlegri framtíð. Alltjent ættum við að eiga nógu marga menningarfélagsfræðinga til að kanna þau mál af sæmilegu viti – s.s. hverjir vilja hvað – og jafnvel hvers vegna! Slík könnun kæmi reyndar fleirum en SÍ að gagni. T.d. útvarpsstöðvum, skólum og minni tónleikahöldurum. Og vitanlega ber ekki að skilja sem svo að flaggskip tónlistarflutnings hér á landi þurfi að einskorða sig við vinsældalista. En óneitanlega fló manni fyrir þetta kvöld hvað gamlir erkimeistarar á við Brahms og Schu- mann (hafi s.s. ekki tiltölulega „heitt“ sólistanafn eins og Kirill Gerstein gert útslagið í Brahms) virðast enn geta safnað fullum húsum – meðan yngri jafningjar á við Hindemith hafa verið í lægð, og aðrir eldri að sama skapi. Í þessu sem öðru verða jafnt ris sem hnig, ósjaldan háðari kynn- ingu en gæðum. Meistaraverksstaða 2. Píanókons- erts Brahms er enn óumdeild, og líf- leg, aflþrungin en samt dýnamískt fjölbreytt túlkun Gersteins skerti hana í engu þrátt fyrir einstaka gösl- arafinku. Mótspil hljómsveitar var í bezta formi, og tvíleikurinn við selló- leiðarann í III. þætti draup ljúfu sméri af hverju strái. Hitt fannst mér þó verulega trufl- andi – að hve miklu leyti megi svo rekja til setu yzt til hægri á 20. bekk, ef ekki líka til kvefrænnar slímsöfn- unar undirritaðs – hvað slagharpan hljómaði skringilega marflöt; nánast án bassafyllingar og engu líkari en strengd væri á straubretti. Var hljóð- færið í óvenjuslöku ástandi – eða var það ömurleg akústík hússins eina ferðina enn? M.a.s. mátti stundum heyra n.k. „tinsuð“, líkt og undan teiknibólu á stökum hamri þá fastast var slegið. Á móti vó seiðandi aukalag Gersteins, Álfakonungur Schuberts í umritun Liszts, og hlaut það storm- andi undirtektir að verðleikum. 4. Sinfónía Schumanns var manni gamall kunningi aftan úr mennta- skólaárum, þótt óhemjulangt væri um liðið frá síðustu heyrn. Hvað sem um orkestrunarhæfileika höfundar má segja, þá býr verkið oft yfir nærri Mendelsohnskum lagrænum töfrum þrátt fyrir nokkurt margtekning- arhjakk. Sveitin lék af innlifun, og smitandi kraftur lokaþáttar kallaði fram verðskulduð bravóköll frá þakk- látum áheyrendum. Smér af hverju strái Háskólabíó Sinfóníutónleikarbbbmn Schumann: Sinfónía nr. 4. Brahms: Pí- anókonsert nr. 2. Kirill Gerstein píanó og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórn- andi: Louis Langrée. Fimmtudaginn 17. febrúar kl. 19:30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Einleikarinn „Meistaraverksstaða 2. Píanókonserts Brahms er enn óum- deild, og lífleg, aflþrungin en samt dýnamískt fjölbreytt túlkun Gersteins skerti hana í engu þrátt fyrir einstaka göslarafinku.“ –– Meira fyrir lesendur . Morgunblaðið gefur út ÍMARK fimmtudaginn 3. mars og er tileinkað íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK stendur fyrir en hann verður haldinn hátíðlegur 4. mars. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, fimmtudaginn 24. febrúar. Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: ÍMARK íslenski markaðsdagurinn S É R B L A Ð MEÐAL EFNIS: Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar Viðtal við formann Ímark Saga og þróun auglýsinga hér á landi Neytendur og auglýsingar Nám í markaðsfræði Góð ráð fyrir markaðsfólk Tilnefningar til verðlauna Hverjir keppa um Lúðurinn Viðtöl við fólkið á bak við tjöldin Ásamt fullt af öðru spennandi efni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.