Morgunblaðið - 03.03.2011, Side 6

Morgunblaðið - 03.03.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 Björn Gíslason bjorngis@gmail.com „Þetta var ljótt. Ég tel mig vera mjög heppinn. Það var einhver sem hélt verndarhendi yfir mér þarna. Það er alveg á hreinu,“ segir Sigmundur Guðmundsson flutningabílstjóri. Hann slapp ótrúlega vel þegar fulllestaður flutningabíll sem hann ók valt á Norðausturvegi skammt frá bæn- um Hraunbrún í Kelduhverfi um hálffjögurleytið í fyrrinótt. „Ég var að koma frá Raufar- höfn og var að fara með þorsk inn á Ólafsfjörð. Ég var kominn í Kelduhverfið við Hraunbrún og þá lenti ég í krapi á veginum, bíllinn fór á flot og ég réð ekkert við hann. Það var sama þótt ég reyndi að beygja, það gerðist ekki neitt,“ segir Sigmundur og bætir við að einnig hafi verið hvasst. Bíllinn hafnaði utan vegar og rann stuttan spöl á hliðinni áður en hann stöðvaðist. Við byltuna skekktist stýrishúsið það mikið að Sigmundur festist undir stýri bíls- ins og var nokkurn tíma að losa sig. Aðspurður hvað hafi farið í gegnum huga hans þegar hann áttaði sig á því að hann væri fast- ur í bílnum segir Sigmundur að sér hafi að sjálfsögðu brugðið. „Ég hafði mestar áhyggjur af því að það myndi kvikna í bílnum. Þess vegna brasaði ég við að snúa upp á löppina á mér og reyna að losa mig. Ég braut svo fram- rúðuna til þess að komast út,“ segir Sigmundur. 30 spor í höndina Sigmundur týndi símanum sín- um í veltunni og gat því ekki hringt á hjálp. „Ég var að tala við félaga minn sem var líka að keyra þegar þetta gerist og hann heyrir bara dynkinn og hringir í Neyðar- línuna,“ bætir Sigmundur við. Hann gekk þó sjálfur að bænum Hraunbrún sem er skammt frá slysstaðnum. Þar hlúði heimilis- fólk að honum og lét Neyðarlínuna vita af því hvar hann væri niður- kominn. Sigmundur skarst illa á hendi og var fluttur á sjúkrahúsið á Húsavík. Þar voru saumuð 30 spor í höndina á honum. Hann er einn- ig nokkuð lemstraður eftir veltuna og reiknar með að vera frá vinnu í einhvern tíma. „Vonandi sem styst,“ bætir hann við. Arnar Ólafsson, framkvæmda- stjóri Nesfraktar, sem á flutninga- bílinn sem valt í óhappinu, segir Sigmund ótrúlega heppinn að sleppa með minni háttar meiðsl. „Bílstjórastóllinn brotnaði frá og mælaborðið gekk alveg í fangið á honum þannig að hann er ótrúlega heppinn. Þegar maður horfir á þetta skilur maður ekki hvernig var pláss fyrir hann þarna,“ sagði Arnar sem var staddur á vett- vangi slyssins ásamt Sigmundi í gær þegar Morgunblaðið náði tali af honum. Björgunarsveitarmenn frá Húsavík unnu að hreinsun á vettvangi í gærdag. „Það var einhver sem hélt verndarhendi yfir mér“ Ljósmynd/Björn Gíslson. Slys Af vettvangi veltunnar í Kelduhverfi þegar verið var að bjarga farminum úr bíl Sigmundar.  Flutningabílstjóra tókst að losa sig úr flaki bíls síns og ganga eftir hjálp Meirihluti Samfylkingarinnar og óháðra borgara í Sandgerði hefur ákveðið að skipta um einn af fulltrúum sínum í atvinnu- og hafnarráði. Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og fyrrverandi alþing- ismaður, yfirgefur þar með ráðið eftir 29 ára samfellda setu í hafn- arstjórn. Samfylkingin og K-listi óháðra borgara hafa meirihluta í bæjar- stjórn Sandgerðisbæjar. Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórn- ar, staðfestir að vilji sé til þess innan framkvæmdaráðs listans að skipta Grétari Mar út. Það sé þó á valdi bæjarstjórnar og var málið ekki á dagskrá bæjarstjórnarfund- ar í gær. „Við teljum mikilvægt að öll ráð séu vel starfhæf og menn geti unnið saman. Það hefur komið í ljós, að minnsta kosti í einu máli, að menn eru með mismunandi áherslur,“ segir Ólafur Þór. Heldur áfram að skrifa Vísar Ólafur þarna til afgreiðslu máls í hafnarstjórn í haust þar sem Grétar Mar studdi tillögu frá minnihlutanum sem raunar var ekki samþykkt í bæjarstjórn. Grétar Mar hefur að undanförnu skrifað greinar um fjárhag bæj- arins á fréttavefinn 245.is og gagn- rýnt ákvarðanir meirihlutans á síð- asta kjörtímabili, meðal annars sölu á eignarhlut í Hitaveitu Suð- urnesja og samstarf við Fasteign hf. Grétar Mar segir að þessar greinar hafi komið við kaunin á einhverjum sem telji sig bera ábyrgð á þessum málum. „Ég er hvorki sár né svekktur og mun halda áfram að finna að því sem ég tel aðfinnsluvert,“ segir hann. helgi@mbl.is Grétari Mar skipt út í hafnarstjórn Grétar Mar Jónsson Ólafur Þór Ólafsson Farmur flutningabílsins, um níu tonn af þorski, er að mestu leyti ónýtur. Hann verður þó metinn að sögn Arnars Ólafssonar, framkvæmdastjóra Nesfraktar, eiganda bílsins. Arnar segir lán í óláni að kalt hafi verið í veðri þannig að fiskurinn hélst kaldur „en hann dreifðist út um móann þarna og stórum hluta af honum verður hent“. Aðspurður segir Arnar erfitt að meta tjónið. Hann viti þó að bíllinn verði ekki notaður aftur því flutningakass- inn og stýrishúsið séu hvor tveggja ónýt. „Þetta eru nokkrar milljónir ef ekki tugir,“ segir Arnar um tjónið en bætir við að bæði bíll og farmur hafi verið tryggðir. Farmurinn að mestu ónýtur FRAMKVÆMDASTJÓRI NESFRAKTAR Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Skýrsla og tillögur starfshóps Reykjavíkurborgar um hagræðing- armöguleika í skólamálum verða kynntar í borgarráði í dag. Fjöl- miðlar hafa nú þegar greint frá nokkrum tillögum hópsins en inni- haldi skýrslunnar, sem er trúnaðar- mál, var lekið til fjölmiðla í fyrradag. Þrjátíu leikskólar í borginni verða sameinaðir í fjórtán, verði af tillög- unum, og yfirstjórnir sex grunnskóla sameinaðar í þrjár. Umræddir skól- ar eru Álftamýrar- og Hvassaleitis- skóli í Austurbæ borgarinnar og Grafarvogsskólarnir Korpu- og Vík- urskóli og Borga- og Engjaskóli. Bíða niðurstaðna Talsverð óvissa ríkir á meðal stjórnenda og starfsfólks skólanna sex vegna tillagnanna og var hljóðið þungt í þeim viðmælendum sem Morgunblaðið náði tali af í gær. Nokkrir þeirra sögðust hafa verið búnir að heyra af tillögunum um sameiningu skólanna áður en greint var frá þeim í fjölmiðlum, en hug- mynd menntaráðs um að segja upp skólastjórnendum kom þeim í opna skjöldu. Fæstir vildu tjá sig um mál- ið áður en niðurstöðurnar úr borg- arráði lægju fyrir, enda „hafi enginn fengið rökstuðning fyrir þessum ákvörðunum,“ eins og einn viðmæl- andinn komst að orði. Ólík hugmyndafræði Guðni Kjartansson, aðstoðar- skólastjóri Álftamýrarskóla, telur sameiningu við Hvassaleitisskóla ekki vænlega þar sem skólarnir tveir séu mjög ólíkir, þrátt fyrir að vera landfræðilega séð stutt frá hvor öðrum. Hann segir að með sameiningunni yrði ólíkri hugmyndafræði steypt saman. „Hvassaleit- isskóli og Álftamýrarskóli eru svo ólíkir að mér liggur við að segja að það eigi að fara að segja upp skipstjóranum á Herjólfi og Goðafossi og láta einn mann stjórna þessum ólíku skipum.“ 18% barna í Álftamýrarskóla eru nemendur af erlendu bergi brotnir og margir nemendur, sem víkja frá í þroska, fá þar stuðningsúrræði. Að sögn Guðna eru nokkur börn við nám í Álftamýrarskóla sem ekki geta ver- ið í Hvassaleitisskóla eða öðrum skólum af ákveðnum ástæðum. Hann segir óöryggi nú ríkja meðal foreldra þessara barna. Skýrslan fer á netið Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, segir trúnaðarbrestinn hafa verið sér nokkuð áfall. „Maður á að geta rætt hluti í nefndum og ráðum borgarinnar og treyst því að fólk haldi trúnað, en hann hélst ekki,“ segir hún. Að sögn Oddnýjar eru stjórnend- ur skólanna sárir yfir því að hafa frétt af tillögunum í gegnum fjöl- miðla, enda séu mannlegar tilfinn- ingar tengdar öllum breytingum. „Það var búið að segja stjórnendum að þeir myndu verða látnir vita með öðrum hætti.“ Skýrsla starfshópsins verður gerð aðgengileg á rafrænu formi á vef Reykjavíkurborgar í dag. Óvissa ríkir meðal stjórnenda  Tillögur um hagræðingu í skólum kynntar í borgarráði í dag  Skólastjórnendur sárir yfir því að hafa frétt af tillögunum í fjölmiðlum  Trúnaðarbresturinn áfall, segir formaður menntaráðs Morgunblaðið/Árni Sæberg Skólabörn Yfirstjórnir sex grunnskóla verða sameinaðar í þrjár verði til- lögur starfshóps borgarinnar samþykktar í borgarstjórn í dag. Í kjölfar fundarins í borgarráði í dag verða tillögurnar kynntar borgarbúum með fundum í hverju hverfi. Að þeim loknum fara þær í umsagnarferli til menntaráðs, íþrótta- og tóm- stundasviðs, skólaráða og for- eldrafélaga. Aðspurð hvort búið sé að ákveða hvenær ráðist verði í sameiningarnar, ef af þeim verður, segir Oddný: „Við gerum tillögur að tímasetningu, en það er misjafnt eftir til- lögum. Þetta eru margar mis- munandi tillögur og breytingar og það fer þá bara eftir eðli breytinganna hvort það er næsta haust eða haustið 2012.“ Að sögn Oddnýjar er ekki um tímabundnar sam- einingar að ræða. Kynntar borgarbúum SAMEININGARTILLÖGUR Oddný Sturludóttir Ljósmynd/RÚV Bílstjóri Sigmundur Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.