Morgunblaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 ✝ Jóhannes Ing-ólfur Hjálm- arsson fæddist 28. júlí 1930 á Þórs- höfn. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi sunnudaginn 20. febrúar 2011. Foreldrar Jó- hannesar voru Hjálmar Hall- dórsson, f. 5. maí 1904, d. 5. mars 1978 og Ólöf Sólveig Albertsdóttir, f. 5. des- ember 1903, d. 22. júní 1991. Systkini Jóhannesar eru Hall- dór, f. 1928, d. 1949, Kristín, f. 1935 og Stella, f. 1940. Jóhannes kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni Ólöfu Páls- dóttur, f. 11. júlí 1935, þann 27. júní 1953. Börn þeirra eru: 1) Halldór, maki Inga Þ. Gunn- arsdóttir, börn þeirra eru a) Telma; b) Bjarmi, sambýliskona Berglind Gunnarsdóttir, barn þeirra er Katrín Þóra. c) Bjarki Þór. 2) Anna, hennar börn eru: a) Vigfús Már, maki Margith Eysturtún, börn þeirra, Andri- as, Arndis og Sebastian, b) Sig- þór Viðar, sambýliskona Jóna S. Svavarsdóttir, börn þeirra eru Adam, Kristófer, Eydís, Þórhall- ur og Alexander Máni, sonur hannes með foreldrum sínum að Hallandsnesi á Svalbarðsströnd og sleit þar barnskónum. Jó- hannes fór snemma til sjós og starfaði lengi á síðutogurum ÚA. Þegar Jóhannes hætti sjó- mennsku hóf hann sjálfstæðan atvinnurekstur á smurstöð Shell. Eftir það starfaði hann við ýmis verkamannastörf, m.a. hjá Möl og Sandi, Ofnasmiðju Odda, Slippstöðinni og Íslensk- um skinnaiðnaði. Samhliða þessu starfaði Jóhannes sem dyravörður í Borgarbíói á Ak- ureyri. Jóhannes var virkur í hinum ýmsu félagasamtökum. Hann starfaði um árabil með Góðtemplarareglunni, Reglu musterisriddara og síðustu 20 árin var hann virkur félagi í reglu Oddfellowa. Jóhannes var mikill stuðningsmaður íþrótta- félagsins Þórs. Á síðustu 20 ár- um er óhætt að segja að það hafi varla farið fram íþrótta- viðburðir á vegum Þórs þar sem hann var ekki meðal áhorfenda. Jóhannes tók virkan þátt í starfi Skíðaráðs Akureyrar um nokk- urra ára skeið, Lyftingaráði Ak- ureyrar þar sem honum voru veitt heiðursverðlaun fyrir störf sín þar. Jóhannes var gerður að heiðursfélaga í íþróttafélaginu Þór á 90 ára afmæli félagsins. Jóhannes náði undraverðum ár- angri í kraftlyftingum og var heimsmeistari öldunga í tví- gang. Útför Jóhannesar verður gerð frá Glerárkirkju í dag, 3. mars 2011, kl. 13.30. Sigþórs og Elsu Sigfúsdóttur er Haukur Ingi, c) Jó- hannes Óli, sam- býliskona Lena Rögnvaldsdóttir, dóttir þeirra er Ca- milla Rós, d) Ragn- ar Þór. 3) Páll, maki Margrét H. Pálmadóttir, börn þeirra: a) Dagbjört Elín, maki Jóhann Jónsson, þeirra börn Margrét Birta, Elín Alma, Jón Páll og Hólmfríður Lilja, b) Sölmundur Karl, c) Sædís Ólöf. 4) Hrönn, maki Ágúst S. Hrafnsson, þeirra börn: a) Hrafnhildur S., maki Jeffrey, börn þeirra, James Haukur og Kristín Rae, b) Ágúst, sambýliskona hans er Margrét S. Hilmarsdóttir, sonur þeirra er Róbert Hilmar, c) Aníta, sambýlismaður hennar er Davor Lucic, börn þeirra eru Birna, Emilía og Ivan Freyr, d) Ævar Már, e) Sævar Örn. 5) Jó- hannes Mar, maki Björg Theo- dórsdóttir, börn þeirra: a) Ólöf Kristín, b) Theodór, c) Samúel Þór, d) Ingibjörg Eva, sambýlis- maður Hörður Már, e) Karl Ant- on. 6) dóttir Jóhannesar, Una, sambýliskona Ásdís Egilsdóttir. Ungur að árum fluttist Jó- Elsku pabbi. Ekki grunaði mig frekar en aðra að þú kæmir ekki aftur lifandi heim. Þið mamma ákváðuð að fara suður í afmæli og skírn hjá barnabarna- börnum ykkar. En þú náðir því ekki þar sem þú veiktist alvar- lega á laugardagsmorgni og varst dáinn á sunnudagsmorgni. Það voru forréttindi að eiga þig sem föður. Þú varst hörkutól bæði í vinnu og öðru sem þú tókst þér fyrir hendur. Minning- arnar hrannast upp, hægt væri að skrifa heila bók um allt sem hefur verið gert og brallað um ævina. Til dæmis sumrin sem fjölskyldan fór í ferðalög, berja- ferðir og skíðaferðirnar. Síðast- liðið sumar er mér ofarlega í huga, þar sem við áttum góðar stundir saman. Eins og í garð- inum hjá ykkur mömmu þegar við söguðum niður stóru rósirn- ar og litum út eins og við hefðum lent í villiköttum. Síðan var farið upp á háaloftið og tókum við þar aldeilis til hendinni. Hrönn og Ágúst komu norður og hjálpuðu okkur við að fara í gegnum hlut- ina sem þar voru. Þar var ým- islegt að finna og við skemmtum okkur konunglega. Síðan en ekki síst þegar haldið var upp á 80 ára afmælið þitt sem var stór- kostlegt. Takk fyrir samveruna, elsku pabbi minn. Kveðja. Þín dóttir, Anna. Þegar ég lít um öxl til þess að gera upp samleið okkar feðga í lífinu í stuttri minningargrein er manni vandi á höndum. Við þá staðreynd að faðir manns var sannkölluð goðsögn í lifanda lífi verður verkið enn vandasamara. Fyrir mig voru það alger for- réttindi að eiga föður með svo breitt bak, stórar og þykkar hendur með krafta í kögglum, pabba sem var fær í flestan sjó. Til að byrja með stóð hann vakt- ina í lífisins ólgusjó í orðsins fyllstu merkingu, hann var ein af hetjum hafsins. Hann var þann- ig maður að sem barni í uppvexti vildi maður ólmur feta í fótsport hans, vera eins og pabbi. Kæm- ist maður með tærnar þar sem hann hafði hælana gat maður talist bara nokkuð góður. En að ætla sér að feta í öll hans fótspor var einfaldlega ekki á hvers manns færi. Pabbi var í orðsins fyllstu merkingu ótrúlegur mað- ur hvernig sem á það er litið. Hann skildi eftir sig djúp fót- spor hvar sem hann staldraði við. Hann var ósérhlífinn vinnu- þjarkur og eins og einn frændi hans sagði: „Jói var eins og trak- tor, sem stoppaði ekki fyrr en allt var búið og hvergi eldsneyti lengur að fá.“ Hann kunni ekki að gefast upp, uppgjöf var orð sem var ekki til í hans orðabók. Það sást ágætlega á því þegar hann á fullorðinsárum tók upp á því að reyna fyrir sér í kraftlyft- ingum. Byrjaði smátt, prufaði að setja nokkur Akureyrarmet, síð- an ófá Íslandsmet og fáein heimsmet og að lokum bættist heimsmeistaratitill við í safnið, ekki einu sinni heldur tvisvar. Ekkert hálfkák, þannig var pabbi. Áhugi pabba á íþróttum var með eindæmum. Þá körfu- bolta- og fótboltaleiki hjá Þór sem hann missti af síðastliðin 20 ár mætti telja á fingrum annarr- ar handar. Væri hann staddur erlendis þegar leikir fóru fram heima mátti ekki draga það um of að senda sms til mömmu svo hann gæti verið rólegur ytra. Það verður skrítið að venjast því fyrir okkur feðga að hafa hann ekki með á Þórsleikina. Fyrir son minn verður það líka undarlegt að hafa ekki þann full- orðna með í að horfa á Arsenal og taka með honum einn og einn hring í golfi. Einnig er höggvið skarð í hóp félaganna sem hitt- ast alla föstudagsmorgna í Hamri, þar sem öll vandamál heimsins eru rædd og leyst. Já, þegar menn eins og pabbi hverfa af sjónarsviðinu breytist margt, stórt skarð sem verður vand- fyllt. Ég er afar þakklátur fyrir það að hafa fengið að hafa átt hann að. Sjóarann, verkamanninn, bíl- stjórann, íþróttamanninn, vin- inn og Þórsarann pabba minn, afa barna minna og langafa barnabarna minna kveð ég með virktum. Ég er þakklátur fyrir öll þau ár sem við áttum samleið í lífinu. Pabbi, þú veittir mér og mínum svo ótal margt. Þökk sé þér að ég get haldið áfram að halda í humátt á eftir þér, hafa þig sem fyrirmynd, láta mig dreyma um að koma tánum þar sem þú hafðir hælana. Komið er að leiðarlokum, leiðir skiljast í bili a.m.k. Pabbi minn, ég mun reyna að halda vel utan um mömmu og veita henni styrk í að halda áfram lífinu án þín enda missir hennar mikill. Lokaorð mín eru þessi: „Hver minning um þig er sem dýrmæt perla.“ Þinn sonur, Páll Jóhannesson. Elsku pabbi, nú er komið að leiðarlokum hjá þér. Það koma upp ótal margar minningar sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu. Það er engin leið að minn- ast þín í fáum orðum, um mann eins og þig sem afrekaðir svo mikið þarf að skrifa heila bók. Skrítið hvernig hlutirnir æxlast að þú skyldir vera staddur hérna fyrir sunnan. Við fjölskyldan mín náðum að kveðja þig vegna þess, ég náði að tala við þig áður en þú kvaddir þennan heim. Þessi dagur mun aldrei gleym- ast enda markar hann spor í lífi okkar. Ivan Freyr barnabarn mitt átti afmæli þennan dag og skírt var barnabarn elsta bróður míns sem fékk nafnið Katrín Þóra. Við systkinin munum gæta mömmu vel og hugsum um hana í þessari erfiðu sorg. Minning þín er ljós í lífi mínu. Læt hérna fylgja tvö ljóð að lokum. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Höf. ók.) Táp var þitt eðli, trúr til góðs þinn vilji, stofnsettur varst þú á sterkri rót. Um þig og að þér öfl og straumar sóttu, sem brotsjór félli fjalls við rót. Orka þér entist, aldur tveggja manna, að vinna stórt og vinna rétt. Vitur og vinsæll varstu til heiðurs í þinni byggð og þinni stétt. (Einar Ben.) Þín dóttir, Hrönn. Mig langar að minnast tengdaföður míns Jóhannesar Ingólfs Hjálmarssonar. Ég kynntist honum vorið 1986 þeg- ar ég kynnist dóttur hans. Þegar ég kom fyrst á heimili hans var þar margt fólk því það hafði spurst út að dóttir hans væri að koma að sunnan með kærasta sinn. Tekið var á móti mér með miklum kostum og gleði. Þegar ég bað svo dóttur hans um að flytja til mín suður var haldinn fundur með mér og spurt að því hvort alvara væri í þessu sam- bandi, hvort ég gæti séð fyrir henni. Við tengdapabbi urðum svo góðir vinir að við kölluðum hvor annan okkar millinöfnum. Alltaf var gaman að koma norður, þar áttum við okkar tíma saman. Hann var mikill Þórsari og bauð mér með sér í kaffi og meðlæti í Hamar, þar var hlustað á félagana tala um íþróttir. Við löbbuðum svo nokkra hringi á vellinum. Þess- ara stunda á ég eftir að sakna mikið. Tengdapabbi smíðaði nokkur skipslíkön sem hann var stoltur af, eitt af fyrstu verkum mínum þegar ég kom norður var að fara út í bílskúr með honum og skoða smíðina. Hann fékk hjálp við smáatriðin frá Palla syni sínum og sagði óspart frá því svo allir vissu af því. Ég kveð hér með tengdaföður minn með miklum söknuði og gleymi honum aldrei. Votta tengdamóður minni, systrum hans og allri fjölskyldunni sam- úð mína. Megi guð vernda þau. Þinn tengdasonur, Ágúst Sigurður Hrafnsson. Elsku afi minn og langafi, nú ertu farinn frá okkur og það er sárt að horfa á eftir þér. Þú varst alltaf eini afi minn og auðvitað sá allra besti. Ég vakn- aði að morgni 19. febrúar síðast- liðins og var svo spennt, við vor- um að fara að halda upp á afmælið hans Ivans og ætlaði Davor að fara í Mosfellsbæinn að sækja ykkur enda alltaf gam- an að fá ykkur og einnig að koma til ykkar. Því miður komust þið ekki þennan dag því þú varst orðinn veikur, en við Davor urð- um þess aðnjótandi að geta kom- ið og kvatt þig um kvöldið. Þú kvaddir okkur svo að morgni 20. febrúar á afmælisdegi Ivans og skírnardegi Katrínar Þóru og var sárt að hafa þig ekki þar, en eftir stendur fullt að góðum og fallegum minningum enda varst þú eðalmaður. Ég minnist þess þegar ég var lítil stelpa og var hjá ykkur ömmu hvað það var gott að vera á milli á kvöldin og þú last fyrir okkur, ég minnist þess einnig þegar við Davor vorum að kynn- ast, og þegar þú vissir að hann héldi með Arsenal sagðirðu strax við mig að ég hefði sko val- ið rétt enda héldi hann með réttu liði. Þið náðuð strax saman og urðuð hinir mestu félagar og var það alltaf númer eitt hjá okkur að ef við komum norður yrði sko gist hjá ykkur til að eiga góða stund enda alltaf best að vera hjá ömmu og afa. Ég var líka alltaf svo montin með þig sem krakki enda ekki allir sem geta státað af því að eiga afa sem var sko heimsmeistari í kraft- lyftingum og held ég að allir mínir vinir hafi vitað það því ég var sko ófeimin við að monta mig með það. Það verður skrítið að koma norður og enginn afi þar og enginn langafi til að fara með Ivan út í bílskúr, enda var það alveg ótrúlega gaman að sjá hvað ykkur kom vel saman og gat hann dregið þig með sér út um allt án þess að þú kipptir þér upp við það og það eru nú ekki allir sem eiga svo góðan langafa. Afi, þú varst yndislegur mað- ur sem verður sárt saknað en ef- laust hefurðu það mjög gott þar sem þú ert núna Ég ætla að láta fylgja hér með eina vísu sem þú samdir og gafst mér á litlum miða sem ég geymi í veskinu mínu og fylgir þessi miði mér hvert sem er. Þú skalt bara horfa á ská og brúnir hnykla. Sérðu kannski ömmu þá svo bjarta og mikla. Nú kveðjum við þig í hinsta sinn. Guð blessi þig, elsku afi og langafi. Aníta, Davor og Ivan Freyr. Það er eitt sem við höfum ávallt vitað. Það er, að einhvern tímann þurfum við að kveðja þetta líf okkar á jörðinni. Það er því afar mikil sorg í hjarta mínu að þurfa að kveðja þig, afi, eftir langa en jafnframt skemmtilega samferð okkar í gegnum lífið. Þrátt fyrir söknuðinn, er ég afar þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk með þér og þær minn- ingar sem við áttum saman munu lifa um ókomna tíð. Eflaust munu margir minnast þín sem miklum vinnuþjarki, fyrrverandi heimsmeistara og manni sem gat staðið allt af sér. Ég mun þó ávallt minnast þín sem afar góðs vinar og afa sem var ávallt tilbúinn að gera hvað sem er með mér. Þegar ég lít til baka á þær mörgu samveru- stundir sem við áttum, er afar erfitt að velja nokkur atriði úr. Manstu þegar ég kom til þín í kringum 10 ára aldur og bað þig að hjálpa mér við að smíða hillu sem ég ætlaði að gefa foreldrum mínum? Reyndar endaði hillu- smíðin að mestum hluta á þér þar sem ég gat í raun bara skrúfað hilluna saman og lakk- að. Manstu líka þegar við stund- uðum golf af miklum kappi? Golfið gerði okkur reyndar gjarnan gráhærða, enda vorum við pirraðir yfir því að þurfa að koma alltof litlum bolta ofan í alltof litla holu, auk þess að skemma góðan göngutúr með að dröslast með níðþungan golf- pokann. Þrátt fyrir að íþróttin hafi reynt á þolrifin, þá snerum við ávallt til baka á golfvöllinn og tókum einn hring í viðbót. Eins og við báðum vitum, þá er ættin okkar afar rík að þolinmæði! En flestar minningar okkar snúast þó í kringum Íþróttafélagið Þór og Arsenal. Við nutum þess að horfa á Arsenal spila sinn fagra bolta og misstum vart af leik. Því miður náðum við aldrei að fara saman til Englands og horfa á leik, þar sem örlagadís- irnar tóku fram fyrir hendur okkar. En þú verður þó ávallt með mér í anda á þeim leikjum sem ég mun fara á með Arsenal, þegar fram líða stundir. Við tók- um hins vegar Íþróttafélagið Þór fram yfir allt. Við misstum ekki af leik með Þór, hvort sem það var knattspyrna eða körfu- knattleikur. Ávallt varstu tilbú- inn að fara með mig á völlinn, sama hvernig viðraði. Ég mun því ávallt sakna þín og hugsa til þín þegar ég fer á völlinn. Það verður þó aldrei eins að fara á völlinn án þín, enda fórum við saman á völlinn í hartnær 20 ár eða svo. Ég veit, hversu lánsamur ég var að eiga þig sem afa og ég mun sakna þín. Hins vegar munu allar þær minningar um þig hlýja mér um hjartaræturn- ar, hvert sem leiðir mínar munu liggja. Ég vona að við munum hittast aftur og þá vona ég að ég hafi einhverju skemmtilegu frá að segja og við getum tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Að lokum vil ég þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum saman og lofa því að hugsa eins vel um ömmu og ég mögulega get. Sölmundur Karl Pálsson. Elsku afi, að hugsa sér, nú ertu farinn og ég sit með tárin í augunum við tölvuskjáinn og er að lesa minningagrein um þig á kraftasíðu. Þú varst æðislegur afi í alla staði og ég elskaði meira en orð geta lýst. Það var alltaf toppurinn þegar maður fór norður í heimsókn að hitta afa gamla, fara út í skúr og skoða skipin sem þú byggðir og alltaf þegar mér var illt þá tókstu í tærnar mínar og kreistir og sagðir að þetta væri svæðanudd, það var alltaf jafn vont en samt svo fyndið og gaman. Ég get ekki ímyndað mér að fara norður og þar verður eng- inn afi. Einhvertímann mun ég eignast konu og börn og þau fá aldrei að hitta þig, afa minn sem ég elska svo mikið. En ég mun þó alltaf geta sagt þeim sögur af hinum víðfræga Jóa fíra, afa mínum sem gat allt! Ég montaði mig alltaf við vini mína að afi minn væri sko heimsmeistari í kraftlyftingum enda er ekkert meira cool en það að eiga svona töff afa! Það er ótrúlegt hvað maður lítur á alla í kringum sig sem ódauðlega þangað til dauð- inn skellur á. Þá virðist allt hrynja í kringum mann. En sem betur fer erum við náin og góð fjölskylda og styðjum ávallt við bakið hvert á öðru. Það er skrítið að hugsa út í framtíðina núna en gaman að hugsa til baka. Þetta er mjög erfiður tími og ég mun sakna þín svo ótrúlega mikið. Elsku afi minn, hérna er ljóð sem vinkona mín sendi mér og á svo sann- arlega við á þessari stundu. Ég elska þig, afi, og þú munt alltaf vera partur af mér. Missir veldur brotnu hjarta sem enginn getur breytt en ást vekur minningar sem enginn getur eytt. Ævar Már Ágústsson. Elsku afi, núna sitt ég hér með tárin í augunum og rifja upp margar minningar sem ég og þú áttum saman. Það er oft venja hjá mér þegar ég kem norður að fara inn í gestaherbergi og taka fram ættabækur og skoða þær. Eitt skipti komstu að mér að skoða bækurnar og sýndir mér langafa og langömmu og bróður þinn Halldór heitinn og sagðir mér allt um ættina mína og það sem mig langaði að spyrja þig útí um langafa og langömmu og þú svaraði eiginlega flestum svörum sem ég spurði þig að. Og þú sagðir mér svo mikið um bróður þinn sem þú misstir ung- ur. En þann 19. febrúar síðastlið- inn þegar ég kom uppá spítala þá lást þú í rúminu og tilfinning- arnar fóru að streyma í gegnum hugann minn og það helst sem kom upp í hugann minn var að þú fengir loksins að hitta bróður þinn á ný. En ég vill enda þessi orð með smáljóði. Þó er eins og yfir svífi enn og hljóti að minna á þig þættirnir úr þínu lífi, þeir, sem kærast glöddu mig. Alla þína kæru kosti kveð ég nú við dauðans hlið, man, er lífsins leikur brosti ljúfast okkur báðum við. (Steinn Steinarr) Sævar Örn. Jóhannes Ingólfur Hjálmarsson HINSTA KVEÐJA Góði besti langafi, við erum ofboðslega þakklát fyrir að hafa átt þig. Í dag kveðjum við þig en þú verður alltaf í hjarta okkar. Við munum alltaf elska þig. Þú varst alltaf góður við okkur og skemmtilegur. Þú verð- ur alltaf langafi okkar og mun okkur þykja vænt um þig um alla eilífð og söknum við þín ofboðs- lega mikið. Öll fjölskyldan mun minnast þess hversu frá- bær þú varst og verður þú alltaf með okkur í hjartanu. Við vitum að þú munt alltaf fylgjast með okkur. Þín langafabörn, Margrét Birta, Elín Alma, Jón Páll og Hólmfríður Lilja.  Fleiri minningargreinar um Jóhannes Ingólf Hjálm- arsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.