Morgunblaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011
Út er komin bók-
in Góða ferð –
handbók um úti-
vist, eftir Helen
Garðarsdóttur
og Elínu Magn-
úsdóttur. Bókin
er 180 blaðsíður
að lengd og er
hún ætluð sem
eins konar alfræðirit fyrir útivist-
ariðkendur, bæði byrjendur og
lengra komna. Í henni er farið yfir
grunnþætti útivistariðkunar, eins
og klæða- og útbúnaðarval, rötun,
leiðarval, næringu, veður og
skyndihjálp.
Höfundar styðjast við margra
ára reynslu og þjálfun úr björg-
unarsveitarstarfi, skátastarfi og al-
mennri ferðamennsku til að fræða
lesandann um allt sem þeim finnst
mikilvægt að ferðafólk kunni skil á,
ætli það til fjalla.
Meðal ráðgjafa og yfirlesara
voru fjallaleiðsögumenn, björg-
unarsveitarfólk, næringarfræð-
ingur, landfræðingur, leiðbeinandi
í fjallamennsku, kennari í fyrstu
hjálp og sérfræðingur í útieldun.
Í bókinni er fjöldinn allur af ljós-
myndum, skýringarmyndum, list-
um og töflum sem gera hana auð-
velda aflestrar.
Góða ferð –
handbók um útivist
Á alþjóðlegun baráttudegi kvenna
hinn 8. mars nk. verður haldinn
hádegisfundur undir yfirskriftinni
„Staða konunnar er laus til um-
sóknar – jafnrétti úr viðjum van-
ans!“ Fundurinn fer fram á Grand
hóteli Reykjavík og hefst kl. 11:45.
Fundurinn er skipulagður í sam-
starfi við ASÍ, BHM, BSRB, KÍ,
SSF, Jafnréttisráð og Jafnrétt-
isstofu. Erindi á fundinum flytja
Margrét Steinarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mannréttinda-
skrifstofu Íslands, Eygló Árna-
dóttir, sjálfstætt starfandi
fræðikona, og Ingólfur Ásgeir Jó-
hannesson, prófessor við Háskóla
Íslands.
Staða konunnar
Ásgeir Sandholt bakari sigraði í
undankeppni fyrir hina þekktu
Barry Callebaut World Chocolate
Masters-súkkulaðikeppni. Undan-
keppnin fór fram í fyrradag í Bella
Center í Danmörku.
Sjö keppendur tóku þátt í keppn-
inni en aðeins tveir komust áfram
og varð Ásgeir langt fyrir ofan
aðra keppendur í heildarstigum,
segir í frétt á vefnum freisting.is.
Ásgeiri til aðstoðar var Elísa Gel-
fert. Aðalkeppnin sjálf fer svo fram
í París dagana 17.-20. október
næstkomandi þar sem Ásgeir mun
etja kappi við keppendur frá tutt-
ugu löndum.
Ásgeir Sandholt
vann undankeppni
STUTT
Rangt nafn og titill
Ranglega var farið með nafn og tit-
il formanns Félags skólastjórnenda
í Reykjavík í blaðinu í gær. Er
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir beð-
in velvirðingar á mistökunum en
hún er ekki stjórnarmaður í Skóla-
stjórafélagi Íslands eins og hermt
var.
LEIÐRÉTTING
Str. 38-54
Nýjar vörur
tunikur, toppar,
buxur og bolir
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl. 11-18 | lau. 10-16
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Mikið úrval af
aðhaldsfatnaði
Póstsendum
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
Nýtt - Gæðavara
Úrval af peysum og bolum
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vorfrakkarnir
komnir
skoðið sýnishorn álaxdal.is
Fimmtudags-
brjálæði
Skokkar og kjólar
áður 16.990
Nú 9.990
Ótrúlegt úrval
ATH. aðeins í dag
Fleiri myndir
á facebook
Vertu vinur
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn