Morgunblaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Kleppsvegur 128, 201-8452, Reykjavík, þingl. eig. Norðurbakki ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 11:00. Miklabraut 70, 203-0567, Reykjavík, þingl. eig. Guðni Birgir Gíslason, gerðarbeiðendur Lífeyrissj. starfsm.rík., B-deild, ogTrygginga- miðstöðin hf., mánudaginn 7. mars 2011 kl. 11:30. Sundlaugavegur 12, 201-8859, Reykjavík, þingl. eigandi Rúnar Bjarni Bjarnason, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga, Sýslumaðurinn á Blönduósi ogTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 2. mars 2011. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Brekkugata 5, fastanr. 213-1337, Sauðárkróki, þingl. eig. Njáll Heiðar Njálsson, gerðarbeiðendurTryggingamiðstöðin hf., Sparisjóður Skagafjarðar og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 9. mars nk. kl. 10:00 Skógargata 8, fastanr. 213-2183, Sauðárkróki, þingl. eig. Ingólfur Örn Guðmundsson, gerðarbeiðendur Vátryggingarfélag Íslands, Lýsing, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenni, sýslumaðurinn á Blönduósi og sveitarfélagið Skagafjörður, miðvikudaginn 9. mars nk. kl. 11:00. Þormóðsholt, land 193022, fastanr. 214-2253, Akrahrepp, þingl. eig. Sævar ÞrösturTómasson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sjóvá Almennar tryggingar hf., Afl-Sparisjóður, Söfnunarsjóður lífeyrisrétt- inda, miðvikudaginn 9. mars nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 2. mars 2011. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Austur- vegi 6, Hvolsvelli, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Berjanes, fnr. 163648, Rangárþing eystra, þingl. eig. Vigfús Andrésson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Búðarhóll 2, fnr. 193214, Rangárþing eystra, þingl. eig. Jón Þorvarður Ólafsson og Bertha Guðrún Kvaran, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Galtalækur, fnr. 164973, Rangárþing ytra, þingl. eig. Júlíus Ævarsson og Páll Sigurjónsson, ehl. Júlíusar Ævarssonar, gerðarbeiðandi AFL - sparisjóður, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Gerði, fnr. 219-8908, Rangárþing ytra, þingl. eig. Benedikt R. Jóhannsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTrygginga- miðstöðin hf, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Gularáshjáleiga, lnr. 163858, Rangárþing eystra, þingl. eig. Ólafur Árni Óskarsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Heiðarbrún 4, fnr. 212-759, Rangárþing ytra, þingl. eig. Landeigenda- félagið ehf, gerðarbeiðandi Rangárþing ytra, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Hvammur, lnr.165091, Rangárþing ytra, þingl. eig. CubiCasa á Íslandi ehf, gerðarbeiðandi Rangárþing ytra, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Hvolsvegur 20-22, fnr. 219-4859, Rangárþing eystra, þingl. eig. Joao Maria Loureiro Moita og Idalina Da C. Da Silva A Moita, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Lyngholt 13, landnr. 212787, Rangárþing ytra, þingl. eig. Slóð ehf, gerðarbeiðandi Rangárþing ytra, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Meiri-Tunga 2, lóð 209885, fnr. 219-7376, Rangárþing ytra, þingl. eig. Sigríður Þ. Sæmundsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Öldubakki 37, fnr. 230-7383, Rangárþing eystra, þingl. eig. Sigurjón Pálsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 9. mars 2011 kl. 10:30. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 2. mars 2011, Kjartan Þorkelsson. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógar- hlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Ármúli 23, 201-2771, Reykjavík, þingl. eig. Neðrihlíð ehf, gerðarbeiðendur Arion banki hf ogTryggingamiðstöðin hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Bergstaðastræti 25b, 200-7067, Reykjavík, þingl. eig. Völundur Björnsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Blöndubakki 20, 204-7556, Reykjavík, þingl. eig. Valur Júlíusson og Aðalbjörg Jóna Björnsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Dalaland 14, 203-6813, Reykjavík, þingl. eig. Kristján Björn Snorrason, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Eskihlíð 14a, 203-0309, Reykjavík, þingl. eig. Baldvin Hafsteinsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Fálkagata 28, 202-8541, Reykjavík, þingl. eig. Jón Hafþór Þórisson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Fiskislóð 45, 231-2209, Reykjavík, þingl. eig. Zuma ehf, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. FlugvélinTF-UTA Cessna 172M Skyhawk II, árg. 1975, raðnr. 65561, þingl. eig. Astin ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Funahöfði 17A, 223-1740, Reykjavík, þingl. eig. Þb. Hafurlagnir ehf, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Háholt 4, 229-8828, Mosfellsbæ, þingl. eig. Agnar Georg Guðjónsson og Erna Ósk Agnarsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Síminn hf, Sparisjóður Reykjavíkur/nágr hf og Sýslumaðurinn á Blönduósi, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Jörfabakki 6, 204-8257, Reykjavík, þingl. eig. Eva Dögg Steingrímsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf og Jörfabakki 6,húsfélag, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Lindargata 14, 200-3040, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Rúnar Ásgeirsson, gerðarbeiðendur Mekka Wines& Spirits hf og Vörður tryggingar hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Miðtún 17, 200-9583, Reykjavík, þingl. eig. Lára Hauksdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Reyrengi 10, 221-3759, Reykjavík, þingl. eig. Elvar Hallgrímsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Skipholt 15, 227-8828, Reykjavík, þingl. eig. Brynjar Smári Þorgeirsson, gerðarbeiðandi Friðrik Kristjánsson, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Súðarvogur 32, 202-3231, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Jónasdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, útibú 0511, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Urðarbrunnur 58, 231-1903, Reykjavík, þingl. eig. Þórður Daníel Ólafsson, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Vatnsveituv. Fákur, 205-3260, Reykjavík, þingl. eig. Hesthúsið ehf, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf, mánudaginn 7. mars 2011 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 2. mars 2011. ✝ Guðrún Bárð-ardóttir fædd- ist í Laufási á Hell- issandi 13. janúar 1924. Hún lést 22. febrúar sl. For- eldrar hennar voru Guðlaug Péturs- dóttir frá Ingjalds- hóli og Bárður Jónasson skipstjóri úr Eyrarsveit í Grundarfirði. Systkini Guðrúnar eru: Valný, f. 1917, Gunnleif Þórunn, f. 1919, d. 2002, Pétur, f. 1920, Kristín Guðllaug, f. 1921, d. 2010, Jón Jónas, f. 1925. Guð- rún giftist 27. júní 1946 Þráni Agnarssyni bifreiðarstjóra, f. 10. apríl 1922. Börn þeirra eru: 1. Guðlaug Bára, var gift Árna V. Sigurðssyni, þau skildu. Dóttir þeirra er Guðrún Árný, maki Jens Jóhannsson, þeirra börn eru Ásthildur Bára, Árni Björn og Gunnar Alex. 2. Óskar Þór Þráinsson, maki Anna Guð- mundsdóttir, þeirra börn: a. Guðrún, maki Agnar Örn Ara- son, synir þeirra Ari Páll og Óskar. b. Katrín, maki Kristján Ingi Úlfs- son, dóttir þeirra Anna Rakel. Katr- ín á fyrir Ólaf Andra Sigurðsson. c. Þráinn, maki Inga Hrönn Häsler, dóttir þeirra Eld- ey. Guðrún stund- aði vinnu ásamt húsmóðurstarfi, m.a. á sauma- stofu Andrésar Andréssonar. Hún var afar góð saumakona og margir leituðu til hennar með hjálp við saumaskap. Guð- rún og Þráinn bjuggu alla tíð í Reykjavík fyrir utan rúmlega tvö ár sem þau voru bændur á Árbæ í Ölfusi. Síðustu 4 mán- uðina dvaldi hún á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þar sem hún naut einstakrar umönnunar. Guðrún verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, fimmtudaginn 3. mars 2011 kl. 13. Elsku besta amma mín, það er svo erfitt að sætta sig við að þú sért farin og að ég sjái þig ekki aftur en ég veit að nú líður þér vel og ert komin á góðan stað. Þú varst mér hvatning og veittir mér styrk, ég gat alltaf leitað til þín og við gátum spjallað saman um allt. Gamla tímann, þegar þú varst yngri, ykkur systkinin, ömmu Laugu og hvað þú varst alltaf mik- il pabbastelpa og allar þær stund- ir sem ég var hjá þér, þegar ég var yngri. Héldum tombólur, bökuð- um trölladeig og það var alveg sama hversu mörg börn voru með mér, þeim var öllum boðið inn. Betri ömmu og vinkonu er ekki hægt að hugsa sér. Þú varst alltaf svo hlý og góð, með hjartað á rétt- um stað. Ég vona að ég geti verið til staðar fyrir mín börn og barna- börn eins og þú varst fyrir mig. Ömmu Gunnu koss mér fylgir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma Gunna mín, hafðu þökk fyrir allt. Guð geymi þig. Guðrún Árný Árnadóttir. Það er erfitt að kveðja hana ömmu Gunnu en ansi á maður nú margar góðar minningar um hana. Þegar ég var lítil eyddi ég ófáum nóttunum hjá ömmu og afa, kvaddi mömmu og pabba og sagðist ætla að vera í burtu í ákveðinn dagafjölda sem mér datt í hug í það og það skiptið. Amma var óþreytandi að spila við mig, leyfði mér að hjálpa til við kleinubakstur og ég skottaðist með henni í Leiftur þegar hún var í skúringum þar. Mörg voru líka sumrin í laxveiðinni á Snæ- foksstöðum. Þar „hjálpaði“ mað- ur til við blómin, spilaði og saum- aði út. Á menntaskólaárunum var stutt að skreppa til þeirra í Álfta- mýrina og það gerði ég ansi oft þegar göt voru í stundatöflunni, enda víst að þar biðu mín pönnu- kökur og kókómalt. Nokkur ár bjuggum við Agnar í Safamýrinni og áttum það til að koma við hjá þeim þegar við fór- um í göngutúra um nágrennið. Alltaf var vel tekið á móti okkur og amma töfraði fram vöfflur eða annað góðgæti. Seinni árin áttum við stelpurnar það til að fara á kaffihús með ömmu og pabbi spurði eitt sinn þegar hann fékk að fara með hvort við værum með „sponsorinn“ okkar með. Amma var alla tíð svo örlát við okkur öll, svo einstaklega gjafmild og tók til dæmis ekki annað í mál en að færa okkur páskaegg langt fram á fullorðinsaldur. Amma var einstaklega barn- góð og hafði mikla ánægju af því að umgangast langömmubörnin. Þeim var iðulega heilsað með ein- um góðum ömmu Gunnu kossi. Þrátt fyrir erfiða beinþynningu tókst henni alltaf að bera sig al- veg ótrúlega vel, tók alltaf þátt í öllu sem viðkom fjölskyldunni ef hún mögulega gat. Síðastliðið haust var henni erfitt í veikindum en hún tókst á við þau af mikilli seiglu, náði sér ótrúlega vel á strik og átti góðan tíma með okk- ur. Hún dvaldist á Grund frá því í haust þar sem vel var hugsað um hana og það var gott að sjá hversu vel henni leið þar. Ég kveð ömmu með miklum söknuði en ylja mér með góðum minning- um. Guðrún Óskarsdóttir. Guðrún Bárðardóttir móður- systir mín er látin eftir stutt en snarpt veikindastríð 87 ára að aldri. Guðrún var ein af 6 systk- inum frá Laufási á Hellissandi en að henni genginni eru þrjú þeirra látin. Öll hafa þessi systkini náð háum aldri. Móðir mín var sú eina sem settist að í heimahög- unum en hin fluttu á mölina. Milli þeirra systra var mikill kærleik- ur og fór mamma oft með okkur til Reykjavíkur og var þá nær alltaf gist hjá Gunnu frænku. Alltaf stóð heimili hennar og Þrá- ins opið fyrir okkur og eru minn- ingar mínar um þessar heim- sóknir til Reykjavíkur sem barn og unglingur mikið tengdar þeim heiðurshjónum. Það var oft glatt á hjalla í þessum heimsóknum. Þráinn spilaði á orgelið og ég stillti mér upp og söng eins og lungun leyfðu og var látin halda að ég væri bara flott söngkona. Marga textana kenndu þau mér en einna vænst þykir mér um Que sera sera því Gunna söng það lag með íslenskum texta á alveg sér- stakan hátt. Gunna var einstaklega falleg kona í útliti en hún hafði líka til að bera fallegt innræti, sem við sem áttum samleið með henni fengum svo ríkulega að njóta. Á milli okk- ar Gunnu var sterkur strengur og hefur hún alla tíð skipað stór- an sess í hjarta mínu. Ástúð hennar og umhyggja í minn garð var einstök og fór ég ætíð glaðari og ríkari af hennar fundi. Þegar við kvöddumst sagði hún alltaf: Guð launi þér fyrir heimsóknina. Guð þarf ekki að launa mér neitt því hún gaf mér meira en ég henni. Síðustu sólarhringarnir í lífi hennar voru henni erfiðir en aldr- ei kvartaði hún né vildi láta fyrir sér hafa. Hún tók því sem að höndum bar með einstöku æðru- leysi og andlegu atgervi hélt hún til hinstu stundar. Hún kvaddi okkur hvert af öðru á sinn fallega hátt því hún vissi að hverju stefndi. Ég vil gjarnan trúa því að þær systur, mamma, Stína og Gunna séu komnar í sumarkjólana sína og dansi nú á grænum grundum, mamma í gulum kjól, Stína í bleikum og Gunna í fjólubláum. Ég kveð hana frænku mína sem mér þótti svo undurvænt um, með þessari setningu úr laginu Que sera sera. Que sera sera. Það verður og fer sem fer. Hið ókomna enginn sér. Que sera sera. Elsku Þráinn, Óskar, Anna, Bára, Árný, Guðrún, Katrín, Þrá- inn og fjölskyldur, megi góður Guð styrkja ykkur. Minningin um einstaka konu mun ylja okkur um ókomin ár. Steinunn Tryggvadóttir og fjölskylda. Elsku frænka mín. Frá því ég fæddist varstu mér sem önnur móðir. Hjá þér átti ég alltaf skjól og hlýju. Nú ertu horfin yfir í ljósið bjarta. Trúarinnar traust og styrkur tendrar von í döpru hjarta. Eilífðin er ekki myrkur, eilífðin er ljósið bjarta. (Helgi Sæmundsson.) Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Blessuð sé minning Guðrúnar Bárðardóttur. Gísli Már. Guðrún Bárðardóttir Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Eftir tvö kvöld í þriggja kvölda hrað- sveitakeppni eru þau Ingibjörg, Sólveig, Unnar og Garðar með góða forustu. Röð efstu sveita í 13 sveita keppni er þessi: Ingibjörg Guðmundsd. - Solveig Jakobsd. - Unnar A Guðmss. - Garðar V Jónsson 985 Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldsson - Oddur Hannesson - Árni Hannesson 927 Sveinn Sveinsson - Gunnar Guðmss. - Sigurjóna Björgvinsd. - Karólína Sveinsd. 914 Kári Jónss. - Marteinn Marteinss. - Karl Karlsson - Sigurður R Steingrímss. 914 Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.