Morgunblaðið - 03.03.2011, Qupperneq 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011
AF MÁLMI
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Á enga plötu hef ég hlustaðoftar um dagana en Masterof Puppets með kaliforn-
íska málmbandinu Metallica, nema
ef vera skyldi … And Justice for
All með sömu sveit. Þetta eru tvö af
öndvegisverkum málmsögunnar og
fáar plötur hafa haft meiri áhrif á
yngri kynslóðir flösufeykja. Þótt
ótrúlegt megi virðast er aldarfjórð-
ungur liðinn í dag frá útgáfu Mast-
er of Puppets – skífan kom fyrst í
verslanir 3. mars 1986.
Hún féll undir eins í frjóa jörð,
gagnrýnendur kepptust við að
hlaða hana lofi og seldist platan
eins og heitar lummur og sætti það
tíðindum fyrir þær sakir að út-
varpsstöðvar harðneituðu að spila
graðhestarokk af þessu tagi. Þá
tók sveitin ekki í mál að gera
myndbönd á þessum tíma. Metal-
lica stóð fyrir önnur gildi 1986 en
2011.
Master of Puppets komst hæst
í 29. sæti Billboard-listans í Banda-
ríkjunum og sat á listanum samfellt
í 72 vikur. Platan hefur selst í
meira en 6 milljónum eintaka
vestra. Það er nokkru minna en
langsöluhæsta
plata Metallica,
Svarta platan
(1991), sem selst
hefur í tæplega
16 milljónum
eintaka í Banda-
ríkjunum. Fæst-
ir harðkjarna fylgismenn sveitar-
innar leggja þessar tvær plötur þó
að jöfnu.
Master of Puppets, sem var
þriðja breiðskífa Metallica, var
rökrétt framhald af fyrri plötunum
tveimur, Kill ’Em All (1983) og
Ride the Lightning (1984). Þær
kveiktu mikið bál sem seint mun
slökkna – þrass. Frumkrafturinn
var beislaður og málum hvergi
miðlað. Þrassarnir eru Spartverjar
samtímans. Til þess að gera ný
málmbönd virkuðu skyndilega
gömul og lúin við hliðina. Á Master
of Puppets má segja að Metallica
hafi náð fullkomnu valdi á þessum
nýja stíl – tamið þrassið! Keyrslan
var kannski ekki eins mikil og áður
(fyrir utan Battery og Damage,
Inc.) en tónninn níðþungur. Te-
stósterónið drýpur af vínylnum.
Metallica hefur heldur aldrei legið
meira á hjarta, enda þótt lögin
væru að jafnaði lengri en áður
þjónaði hver sekúnda tilgangi.
Hvergi er snöggan blett á plöt-
unni að finna og flest lögin hljóma
reglulega á tónleikum Metallica,
einkum titillagið, Welcome Home
(Sanitarium), Battery og Leper
Messiah.
Ákveðin þversögn liggur í því
að um leið og hljómsveitin hafði
náð fullkomnu valdi á stílnum
hverfðist kveðskapurinn að mestu
leyti um þróttleysi. Í flestum lög-
unum eiga menn við ofurefli að
etja. Þeir eru ýmist í klóm fíkni-
efna, geðveiki, dugleysis, ofsa eða
Sáms frænda. Eiga allt sitt undir
öðru eða öðrum. Að því leyti er
Master of Puppets óður til áþjánar.
Oft er sagt að maðurinn sé áhátindi sköpunargetu sinnar
upp úr tvítugu og Master og Pupp-
ets rennir stoðum undir það. James
Hetfield og Lars Ulrich voru 22 ára
þegar platan kom út, Kirk Ham-
mett 23 ára og Cliff Burton nýorð-
inn 24. Makalaust þegar horft er til
þroskans sem listaverkið býr yfir.
Sem kunnugt er var Master of
Puppets svanasöngur Burtons
bassaleikara með Metallica, hann
lést með voveiflegum hætti í rútu-
slysi í Smálöndunum í Svíþjóð um
haustið, þar sem hljómsveitin var á
tónleikaferðalagi. Var hann málm-
elskum harmdauði og sumum þykir
skarð hans aldrei hafa verið fyllt.
Frá og með … And Justice for All
og sérstaklega Svörtu plötunni fór
Metallica á sporbraut um jörðu –
varð að viðskiptaveldi á heimsvísu.
Það sem síðan hefur komið er um-
deildara en breytir ekki því að Me-
tallica hefur um árabil verið eitt
stærsta tónleikaband heims.
Það er alltaf jafnáhugavert að
velta fyrir sér hver vegur sveit-
arinnar hefði orðið hefði Burton
haldið lífi en hann hafði megna
skömm á hverslags sýndar-
mennsku og prjáli.
Því verður aldrei svarað.
Þrassið tamið
» Í flestum lögunumeiga menn við ofur-
efli að etja. Þeir eru ým-
ist í klóm fíkniefna, geð-
veiki, dugleysis, ofsa eða
Sáms frænda. Að því
leyti er Master of Pupp-
ets óður til áþjánar.
Metallica 1986 Lars Ulrich, James Hetfield, Kirk Hammett, Cliff Burton.
Um daginn fór ég í bíó aðsjá kvikmyndina How doyou know. Ég bjóst svosem ekkert við miklu.
Þetta yrði líklegast ágæt afþreying í
Hollywoodstíl. Sæt, bleik froða sem
mætti hafa gaman af á sunnudegi.
Þegar um hálftími var liðinn af
myndinni var mér orðið ljóst að svo
var ekki. Í hléinu langaði mig helst
að ganga út af leiðindum og það ger-
ist eiginlega aldrei. Yfirleitt má
þrauka svona froðumyndir af Holly-
woodfæribandinu en Jesús Pétur. Í
þessa mynd vantar alla tilfinningu
og sannfæringu. Persónusköpunin
er lítil sem engin og öll samskipti
fólksins svo slök að þau þyrftu helst
að fara í hópmeðferð hjá sálfræð-
ingi.
Í örstuttu máli segir myndin frá
Lisu, sem Reese Witherspoon leik-
ur, en hún stendur á tímamótum
þegar ferli hennar sem afreks-
íþróttakonu í bandaríska minnibolt-
anum lýkur. Á sama tíma byrjar hún
með hafnaboltastjörnunni Matty,
sem leikinn er af Owen Wilson.
Hann er eiginlega orðinn of gamall í
þetta hlutverk spaðans sem hlær að
aulabröndurum félaganna. Hann má
þó eiga það að leika í einu af örfáum
fyndnum atriðum myndarinnar. Á
svipuðum tíma hittir Lisa líka
George, Paul Rudd. Hann þvælist
um sjálfan sig í aulagangi og stressi
yfir lögsókn sem aldrei er útskýrð
almennilega. Á milli þeirra á að vera
einhvers konar ástarþríhyrningur
þar sem Lisa getur ekki ákveðið
hvorn manninn hún vill. Tilfinningar
hennar eru hins vegar algjörlega
óáþreifanlegar og hún vöðlast um
sem viljalaust verkfæri. Sama er að
segja um þá félaga George og Matty
sem virðast hafa álíka mikið sálarlíf
og útgeislun og útstillingargínur.
Bara afsakið en ég get ekki orða
bundist yfir því það þessi mynd
hangir illa saman. Eiginlega það
eina sem bjargar henni er hvað frök-
en Witherspoon er snoppufríð og í
flottum fötum sem hin óskiljanlega
skopparakringla Lisa.
Óskiljanleg hringavitleysa
Smárabíó, Borgarbíó,
Háskólabíó
How Do You Know bmnnn
Leikstjóri: James L. Brooks. Aðalhlut-
verk Reese Witherspoon, Owen Wilson,
Paul Rudd og Jack Nicholson. 121 mín-
úta. Bandaríkin, 2010.
MARÍA
ÓLAFSDÓTTIR
KVIKMYND
Parið Reese Witherspoon og Owen Wilson virðast alveg jafnundrandi á
þessari vitleysu. How Do You Know er arfaslök kvikmynd.
THE MECHANIC Sýnd kl. 6, 8 og 10:10
TRUE GRIT Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:25
BIG MOMMA’S HOUSE 3 Sýnd kl. 5:50
JUST GO WITH IT Sýnd kl. 8 og 10:25
Stundum þarf maður stelpu, til að ná stelpunni
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND
SEM ENGIN MÁ MISSA AF
HHH
„Myndin hin besta skemmtun
sem hentar öllum aldurshópum“
-H.H. - MBL
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
MÖGNUÐ HASARSPENNUMYND
SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
THE MECHANIC KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
THE MECHANIC LÚXUS KL. 8 - 10.10 16
HOW DO YOU KNOW KL. 5.20 - 8 - 10.20 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3.30 - 5.40 L
THE EAGLE KL. 10.35 16
JUST GO WITH IT KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
BLACK SWAN LÚXUS KL. 5.30 16
GULLIVER´S TRAVEL 3D KL. 3.30 L
ALFA OG OMEGA 3D KL. 3.30 L
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%
5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-H.S.S.,MBL
HOW DO YOU KNOW KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.50 - 8 SÍÐASTA SÝNING L
JUST GO WITH IT KL. 10.10 SÍÐASTA SÝNING L
T.V. - KVIKMYNDIR.IS-H.H., MBL -H.V.A., FBL
HOW DO YOU KNOW KL. 5.25 - 8 - 10.35 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.30 - 8 L
127 HOURS KL. 5.50 - 8 - 10.10 12
BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
THE FIGHTER KL. 10.30 14
GLERAUGU SELD SÉR
FLOTTUR “STATTARI”
-A.E.T., MBL